Morgunblaðið - 11.09.1988, Qupperneq 68
SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
A
m HRESSANDI,
FRÍSKA BRACÐ
NÝTT FRÁ KODAK
6 1»
, RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST
Skjálftavirknin í Grímsey
heldur áfram, en um smá-
skjálfta er að ræða sem fólk
finnur vart fyrir. Að sögn Al-
freðs Jónssonar, fréttaritara
Morgunblaðsins í Grimsey, urðu
tvær skjálftahrinur aðfaranótt
laugardagsins.
Fyrri hrinan hófst skömmu eftir
miðnættið og hin síðari nokkru
seinna um nóttina. Fólk varð ekki
mikið vart við þessar hrinur enda
um smáskjálfta að ræða.
Smáskjálftar mældust áfram í
• gærmorgun enda var við því búist
miðað við fyrri reynslu af jarð-
skjálftum á þessu svæði.
Skjálfta-
virkni held-
ur áfram
'í Grímsey
Óvist hvort
olíuverð
munilækka
segja talsmenn
olíufélaganna
VERÐ á gasoliu á Rotterdam-
markaði lækkaði um rúma 3
dollara um miðja vikuna í kjöl-
far lækkunar hráolíuverðs og
var grunnverð á tonninu af
gasolíu rúmir 120 dollarar.
Birgðir af olíu eru hér til 1-2
mánaða og óvíst er hvort lækk-
un innkaupsverðs kemur fram
í útsöluverði, þar sem það er
háð svo mörgum öðrum þáttum,
að sögn forsvarsmanna olíufé-
laganna.
Olíuverð hefur lækkað í sumar.
Þannig hefur grunnverð gasolíu
lækkað um rúma 20 dollara, sem
og steinolía, bensín um 25 dollara
og hráolía um 10 dollara, sem er
svipuð lækkun hlutfallslega.
Þegar olíuverð varð lægst á
árinu 1986 fór verðið niður í 100
dollara tonnið af gasolíunni.
Sérfræðingar eru ekki á eitt
sáttir hvort vopnahlé í stríði írana
og íraka verði til þess að hráolíu-
verð haldi áfram að lækka. Olíu-
vinnsla Arabaríkjanna jókst þó um
eina milljón fata í ágústmánuði
samanborið við júlímánuð, en óvíst
er hvort þetta er viðvarandi fram-
leiðsluaukning.
Morgunblaðið/KGA
FYRSTU RETTIR HAUSTSINS
Svínvetningar drógu fé sitt í dilka í gær og urðu einna fyrstir
bænda á þessu hausti til þess þegar fé af Auðkúluheiði í Austur-
Húnavatnssýslu var réttað í Auðkúlurétt. Á næstu dögum og
vikum fylgja réttir um allt land.
Flugleiðir
Um 350 milljóna rekstr-
artap á fyrri hluta ársins
Afkoma félagsins mjög áþekk því sem hún var á sama tíma í fyrra
LIÐLEGA 350 miiyóna króna
rekstrartap varð þjá Flugleið-
um á fyrri helmingi yfirstand-
andi árs, en endurskoðaðir
reikningar fyrir þetta tímabil
voru kynntir á stjórnarfundi
félagsins undir lok vikunar.
Afkoma félagsins er mjög
áþekk þvi sem hún var á sama
tímabili i fyrra, en þá nam
rekstrartapið rétt um 330 millj-
Ljóðasamkeppni Morgunblaðsins:
Skilafrestur að renna út
FRESTUR til að skila inn ljóðum í ljóðasamkeppni Morgun-
blaðsins rennur út fimmtudaginn 15. september nk.
Eins og áður hefur komið fram anna frjálst val. Ganga skal frá
í auglýsingum efnir Morgun-
blaðið til ljóðasamkeppni í tilefni
75 ára afmælis sfns 2. nóvember
nk. Veitt verða verðlaun fyrir tvö
kvæði, sem dómnefnd telur bezt
að þeim komin, tvö hundruð þús-
und krónur fyrir hvort kvæði. í
dómnefndinni eiga sæti Rannveig
G. Ágústsdóttir, Þóra Jónsdóttir,
Kristján Karlsson og Matthías
Johannessen. Þátttakendur skulu
einungis senda inn eitt kvæði
hver, áður óbirt, og er efni ljóð-
ljóðinu, sem merkt er kjörorði, í
lokuðu umslagi, en nafn og heim-
ilisfang fyigi með í lokuðu
ógegnsæju umslagi merktu sama
kjörorði og handrit.
Úrslit verða birt í Morgun-
blaðinu 3. nóvember. Eftir það
má vitja handritanna á ritstjóm
Morgunblaðsins og verða þá jafn-
framt afhent opnuð umslög með
nafni og heimilisfangi, eins og
kjörorð á handriti segir til um.
ónum króna. Eiginlegt tap Flug-
leiða fyrstu sex mánuðina er
um 343 miHjónir, þegar tekið
hefur verið tillit til vaxtatekna
og gjalda og söluhagnaðar af
flugvél fyrr á árinu, en var 330
miLIjónir í fyrra.
Þeir Sigurður Helgason, for-
stjóri, og Halldór Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
félagsins, kváðust í viðtali við
Morgunblaðið telja þetta viðun-
andi niðurstöðu, en hafa beri í
huga þegar rekstur félagsins sé
skoðaður, að megintekjumar á
fluginu verði til yfír sumarmánuð-
ina þijá — júní, júlí og ágúst — en
í maí og september megi segja að
reksturinn sé í jafnvægi. Hina 7
mánuði ársins er á hinn bóginn
tap á flugrekstrinum. Einungis
eins þessara sumarmánuða gætir
í þessu sex mánaða uppgjöri,
þ.e.a.s. júnímánaðar. Einnig gætir
í þessu upþgjöri verkfallanna í
vor, þó að áhrifín frá þeim hafa
ekki verið eins langvarandi og
ætla mátti, a.m.k. hvað varðar
millilandaflugið, segja Flugleiða-
menn.
Rekstrartelqur Flugleiða nú
fyrstu 6 mánuðina vom alls um
3,8 milljarðar króna, en þær vom
um 3,3 milljarðar a sama tíma í
fyrra. Rekstrargjöldin nú fyrri
hluta ársins vom hins vegar um
4,1 milljarður á móti um 3,6 mill-
jörðum á sama tímabili á síðasta
ári. Hagnaður af sölu einnar flug-
vélar fyrr á árinu nam um 28
milljónum króna á þessu tímabili.
Uppsafnaður söluskattur sjávarútvegs:
637 milljómr endur-
greiddar á árinu
421 milljón hefur runnið til vinnslunnar
ÞEGAR hafa verið greiddar út 637 miiyónir af þeim 937 milljónum
sem varið var á fjárlögum til endurgreiðslu á uppsöfnuðum sölu-
skatti í sjávarútvegi, að sögn Kristjáns Skarphéðinssonar, deildar-
hagfræðings hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Þar af hafa vinnslunni
verið greiddar 421 milljón af þeim 673 milljónum sem áætlað var
að kæmu í hennar hlut. Að auki voru útgerðinni veittar 234 milljón-
ir og Útflutningsráði 30 milljónir. Eftir er að greiða vegna útflutn-
ings í ágústmánuði.
2% af útflutningsverði fram-
leiðslu er nú greitt til frystingar
vegna vegna uppsafnaðs söluskatts
í framleiðslukostnaði. Greiðsla fer
fram hjá tollstjóra þegar afurðir eru
fluttar út. Sá háttur hefur verið
hafður á frá því að aflatrygginga-
sjóður, sem áður annaðist þessar
greiðslur, var lagður niður 1986.
Þjóðhagsstofnun áætlar uppsöfnun
í hverri grein sjávarútvegsins og
ákveður endurgreiðsluhlutfall sem
er mismunandi eftir afurðaflokkum.
Áætlunin er endurskoðuð nokkrum
sinnum á ári og er nú unnið að
reglubundinni endurskoðun í Þjóð-
hagsstofnun. Hún tekur til endur-
greiðsluhlutfalls vegna áætlaðs út-
flutnings í september, október og
nóvember. Ákvörðunar er að vænta
á næstunni. Sú ákvörðun mun taka
mið af stöðu þessa liðar á fjárlögum.