Morgunblaðið - 21.09.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988
5
Innlend köku- og
mæjonesframleiðsla:
Verðjöfn-
unargjald
til að bæta
samkeppn-
isstöðuna
LEGGJA á tímabundið 11% verð-
jöfnunargjald á innfluttar kökur
og 16% á innflutt majones, enda
er slíkt í samræmi við stofhsamn-
ing EFTA og firíverslunarsamn-
ing EB, er niðurstaða nefndar
sem Friðrik Sophusson, iðnaðar-
ráðherra, skipaði í aprílmánuði
síðastliðnum til að gera úttekt á
samkeppnisstöðu innlendrar
köku- og mæjonesframleiðslu.
í nefndinni áttu sæti fulltrúar
fjögurra ráðuneyta, auk fulltrúa frá
Landssambandi bakarameistara og
þjóðhagsstofnun. í frétt frá iðnaða-
ráðuneytinu segir að á seinustu
misserum hafi samkeppnisstaða
innlendrar köku- og majonesfram-
leiðslu sífellt farið versnandi vegna
mun verri starfsskilyrða en öðrum
atvinnugreinum séu búin hér á landi
og sé nú svo komið að veruleg
hætta sé á að þessi framleiðsla flytj-
ist úr landi. Astæðumar fyrir því
eru að verð á búvörum til þessara
greina er mun hærra hér en í sam-
keppnislöndunum, þar sem í löndum
EFTA og EB eru landbúnaðaraf-
urðir niðurgreiddar sérstaklega við
útflutning. Vegna ákvæða búvöru-
laga er einnig óheimilt að flytja inn
landbúnaðarvörur og engar sér-
stakar niðurgreiðslur gilda til köku-
og majonesframleiðenda.
Síðan segir að þessar greinar
neyðist því til að kaupa innlend
aðföng landbúnaðar á mun hærra
verði en erlendir keppinautar auk
þess að keppa við innlendar kökur
án nokkurra tolla, þar sem vöru-
gjald á innfluttar kökur var fellt
niður um síðastliðin áramót. „Við
slík almenn starfsskilyrði, sem hér
hefur verið lýst, býr engin önnur
atvinnugrein hér á landi né í EFTA
eða EB löndunum."
Norræna húsið:
Atta skáld
lesa upp á
ljóðakvöldi
SKÁLDAKVÖLD verður haldið
í Norræna húsinu í kvöld, klukk-
an 21. Þar koma fram átta skáld,
flest af yngri kynslóðinni, en
þeim til hilltingis verða Hannes
Pétursson og Hannes Sigfusson.
Auk þeirra lesa úr verkum sínum
Valgerður Benediktsdóttir, Elísabet
Jökulsdóttir, Einar Heimisson, Sjón,
Elísabet Þorgeirsdóttir og Ágúst
Sverrisson.
Miðaverð á skáldakvöldið er 400
krónur.
Þau mistök urðu við frásögn af
skáldakvöldinu í blaðinu í gær að
það var sagt fara fram í gær-
kvöldi, þriðjudag. Leiðréttist það
hér með.
í vetur bjóða þaulvanir fararstjórar Flugleiða
nýja og gamalreynda farþega velkomna til hinnar
fögru eyjar, GRAN CANARIA. Þar fara náðugir
dagar í hönd á þægilegum gististöðum, íslenskum
Kanaríförum að góðu kunnir, t.d. San Valentin
Park og Corona Blanca. Tveir nýir staðir eru
Broncemar og Barbacan Sol.
Beint dagflug til Gran Canaria:
Föstudaginn 04.11. ’88, 3ja vikna ferð
„ Föstudaginn 25.11. ’88, 25 daga ferð
7 Þriðjudaginn 20.12. ’88, 22ja daga ferð
° Miðvikudaginn 11.01. ’89, 3ja vikna ferð
< Miðvikudaginn 01.02.’89, 3ja vikna ferð
| Miðvikudagirin 22.02.’89, 3ja vikna ferð
* Miðvikudaginn 15.03.’89, 3ja vikna ferð
Miðvikudaginn 05.04.’89, 3ja vikna ferð
Verðdæmi: Frá kr. 48.400* á mann miðað við
þrjá saman í íbúð á BRONCEMAR í 3 vikur.
Brottför 4. nóvember.
* Staðgreiðsluverð miðað við gengi 29.8.’88. Verð án
flugvallarskatts.
Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni;
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIDIR
fyrír þíg
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
- fólk sem kann sill fag!
Póslhússtrœti 13 - Sími 26900
Aðalstræti 9, Sími: 28133
(mofVTK
Hallveigarstíg 1, Sími: 28388
FERÐASKR/FSTOFAN
POIAR/S
Kirkjutorgi4 Sími622 011
FERÐASKRIFSTOFA
iRATVÍS
Ferúir
SlMI 641522 HAMRAROKC 13
Vraranfli
VESTURGÖTU S • REYKJAVÍK • SÍMI 622420
FERÐASKRI FSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRATI 1fa 101 REYKjAVÍK
SÍMI 621490