Morgunblaðið - 21.10.1988, Síða 1
72 SIÐUR B/C
241. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Litháen:
Umbótasinni verð-
ur flokksleiðtogi
Moskvu. Reuter.
Ringaudas-Bronislovas Songayla, leiðtogi kommúnistaflokksins í
Sovétlýðveldinu Litháen, sagði af sér á miðvikudag eftir að hafa setið
í embætti i aðeins níu mánuði. Arftaki hans er Algirdas Brazauskas
sem er kunnur stuðningsmaður umbóta. Um helgina verður haldinn
stofnfundur nýrrar stjórnmálahreyfingar í Litháen, er kennir sig við
perestrojku, umbótastefhu Gorbatsjovs Sovétleiðtoga.
Hreyfingum af svipuðu tagi hefur
þegar verið komið á laggimar í Lett-
landi og Eistlandi og skipta félag-
amir hundruðum þúsunda, þ. á m.
Palestínumenn:
Þjóðarráð
fundar í
nóvember
Túnisborg'. Reuter.
LEIÐTOGAR Palestínumanna
hafa ákveðið að útlagaþing þeirra,
svonefiit Þjóðarráð (PNC), komi
saman til fundar dagana 12. til
14. nóvember. Er búist við að það
lýsi yfir stofnun sérstaks ríkis
Palestfnumanna og beri fram til-
Iögur sfnar um frið f Mið-Austur-
löndum.
Frelsissamtök Palestínumanna,
PLO, sem er framkvæmdaaðili milli
árlegra funda þjóðarráðsins, munu
bera fram tillögur þar sem lýst er
yfír ríkisstofnun í samræmi við álykt-
un Sameinuðu þjóðanna frá 1947 um
skiptingu Palestínu, er þá var breskt
vemdarsvæði, í ríki gyðinga annars
vegar og araba hins vegar.
Hugmyndin um ríkisstofnun fékk
byr undir báða vængi eftir að Huss-
ein Jórdaníukonungur sleit öllum
stjómarfarslegum tengslum við vest-
urbakka Jórdanár þar sem hundruð
þúsunda Palestínumanna búa.
er fjöldi flokksbundinna kommún-
ista. Þrátt fyrir áherslu á stuðning
við perestrojku er ljóst að meginmál
hreyfinganna er að beijast fyrir
auknu frelsi og sjálfstæði Eystra-
saltsþjóðanna.
Songayla var almennt talinn auð-
sveipur þjónn Kremlarvaldsins
síðustu áratugina og sagði ritstjóri
vikublaðsins Gimtasis Krastas
fréttamanni Reuters að leiðtoginn
hefði orðið að víkja. „Leiðtogi komm-
únistaflokksins átti að flytja ávarp
á stofnfundi perestrojka-hreyfíngar-
innar og ef sá gamli hefði stigið í
stólinn hefði hann verið hrópaður
niður,“ sagði ritstjórinn.
Chile:
Ný ríkisstjórn
Santiago. Reuter.
Ríkisstjóm Chile sagði af sér f
gær. Pinochet forseti er sagður
vilja fá fullt ráðrúm til að gera
nauðsynlegar breytingar eftir
ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu
nýlega.
Heimildarmenn innan stjómarinn-
ar sögðu að Pinochet hygðist skipa
borgaralega stjóm og útnefna for-
sætisráðherra sem geti hafið viðræð-
ur við leiðtoga stjómarandstöðunn-
ar.
Pylking 16 stjómarandstöðu-
flokka hvatti Pinochet f síðustu viku
til að leyfa fijálsar kosningar við
fyrsta tækifæri.
VerkffiU í Frakklandi
Verkföll opinberra starfsmanna í Frakklandi hafa staðið yfir í eina
viku og ríkisstjóm landsins, undir forsæti Michels Rocards lætur eng-
an bilbug á sér finna. í borginni Lille fóru hátt í þúsund manns í
kröfugöngu í gær og verkfallsmaðurinn á myndinni skrýddist undarleg-
um höfuðbúnaði við það tækifæri.
Sjá ennfremur frétt á bls. 21.
Serbar mótmæla
Mörg þúsund serbneskra þjóðernissinna í borginni Kosovo Polje gerðu hróp að tveim fulltrúum
stjóramálaráðsins, æðstu valdastofnunar kommúnistaflokks Júgóslavfu, í gær eftir að valdastofiian-
ir flokksins höfðu hafiiað því að breyta stjórnarskrá landsins, Serbum í hag. Yfirvöld bönnuðu í
gær fjöldafund er fyrirhugað var að halda f höfiiðborginni Belgrad, sem er í Serbíu, á laugardag
til stuðnings kröfiim Serba um innlimun sjálfstjómarhéraðsins Kosovo í Serbfu. Meirihluti íbúa
Kosovo er af albönskum stofiii og saka Serbar þá um kúgun á Serbum í héraðinu. Mótmælendurn-
ir hrópuðu: „Þið hafið svikið Kosovo. Þið hafið selt selt ykkur.“ gjá nánar á bls. 20.
Israel:
Jórdaníumenn styðja
Mðartíllögur Peresar
Israelar hóta heftidum vegna sprengju-
árása Hizbollah-skæruliða ft*á Líbanon
Jerúsalem. Reuter.
HUSSEIN Jórdaniukonungur styður áætlun Shimons Peres, utanrík-
isráðherra ísraels, um alþjóðlega ráðstefiiu um frið í Miðausturlönd-
um. Kemur þetta fram í viðtali, sem bandarfsk sjónvarpsstöð hefur
átt við hann. Sljórnvöld f ísrael hafa heitið að hefiia þeirra sjö ísra-
elsku hermanna, sem féllu f fyrradag í sjálfsmorðsárás líbansks
skæruliða.
Viðtalið, sem Hussein átti við
ABC-sjónvarpsstöðina bandarísku,
hafði ekki enn verið sýnt í gær-
kvöld en haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að hann hafi sagt, að
sigraði Shimon Peres og Verka-
mannaflokkurinn í kosningunum í
ísrael 1. nóvember myndi hann
heilshugar styðja tillögu þeirra um
alþjóðlega ráðstefnu um frið í Mið-
austurlöndum. Er einnig haft eftir
Hussein, að það yrði „stórslys“
bæri Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra og Likudflokkurinn sigur úr
býtum. Aðstoðarmenn Peresar
segja, að yfirlýsingar Husseins geti
orðið til að auka sigurlíkur Verka-
mannaflokksins.
Frammámenn í ísrael hétu því í
gær að hefna hermannanna sjö,
sem létu lífið í Suður-Líbanon þeg-
ar líbanskur skæruliði Hizbollah-
samtakanna ók bíl hlöðnum
sprengiefni inn í ísraelska herflutn-
ingalest. Bíll og bílstjóri sprungu í
loft upp og var sprengingunni að
líkindum fjarstýrt. Shamir og Yitz-
hak Rabin vamarmálaráðherra
sögðu, að skæruliðasamtökin
slyppu ekki undan refsivendinum
og Likudfiokkurinn og aðrir hægri-
flokkar í fsrael gerðu í gær hlé á
kosningabaráttunni til að minnast
hinna látnu. Reynir Likudflokkur-
inn augljóslega að færa sér hryðju-
verkið í nyt enda mögulegt, að
hann hagnist á því í kosningunum.
ísraelskir hermenn skutu á og
særðu fimm Palestínumenn í gær
þegar til átaka kom á Vesturbakk-
anum. Þá sagði einn af yfirmönnum
ísraelshers, að verið væri að kanna
hvemig svo tókst til að fímm ára
gamall arabískur drengur var skot-
inn til bana á þriðjudag. Var hann
að leik fyrir utan heimili sitt þegar
hermenn í nálægri varðstöð skutu
þrisvar á hann og urðu honum að
bana.
Karíbahaf:
Engisprettur
frá Afríku
Róm. Reuter.
MILLJÓNIR engispretta frá
Vestur-Afríku hafa gert inn-
rás í lönd Karíbaliafs og ógna
nú jarðávöxtum i mörgum
ríkjum, að sögn fulltrúa Mat-
væla- og landbúnaðarstofiiun-
ar Sameinuðu þjóðanna, FAO.
Ekki er vitað til þess að engi-
sprettuhópar hafi fyrr flogið
yfir Atlantshafið.
„Fyrir tveim vikum hefði eng-
inn trúað því að þetta gæti
gerst," sagði Jeremy Rossey,
engisprettusérfræðingur FAO.
„Það er ljóst að um nýja tegund
af engisprettum] er að ræða.“
Afríku heijar nú einhver skæð-
asta engisprettuplága í manna
minnum. Talið er að kvikindin
séu fimm daga að fljúga yfir
hafið. Mesta áhyggjuefni sér-
fræðinga er að tegundin taki sér
fasta bólfestu á svæðinu.