Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 3

Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 3 Morgunblaðið/Bjom Blondal Handhafar forsetavalds fylgja forsetanum síðasta spölinn áður en stigið er upp í flugvélina sem flutti hana til Kanada. Vigdís gengur í miðju ásamt Guðrúnu Helgadóttur, forseta sameinaðs AJþingis, en Guðrún er fyrsta konan, sem hefur forsetavald með höndum i Qarveru forseta. Lengst tíl vinstri er Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, en til hægri er Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar. Á eftir þeim ganga, talið frá vinstri, Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, Kornel- íus Sigmundsson, forsetaritari, og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Heimsókn forseta fslands til Vancouver: Skoðar sögnlegar byggingar og grafreit Vestur-Islendinga HEIMSÓKN Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, til Vancouver í Kanada hófst í gær. Vigdís lenti í Vancouver klukkan 23.30 að íslenskum tíma. Fyrirhugað er að á næstu dögum skoði forseti land- námsslóðir islenskra landnema í grennd við borgina og hitti afkom- endur þeirra. Frá sunnudegi og fram á miðvikudag mun hún svo sitja alþjóðlega ráðstefiiu um ferðamál i þágu friðar, en Vigdís er heiðursforseti ráðstefiiunnar. Ræðismaður íslands í Vancouv- er, Harold Sigurdson, og sendiherra íslands, Ingvi Ingvarsson, tóku á móti forseta á Vancouver-flugvelli ásamt sendinefnd íslendinga og Vestur-íslendinga. Vigdís hitti svo meðlimi Íslensk-kanadíska félags- ins í Bresku Kólumbíu, stjóm íslenska elliheimilisins Hafnar og fleira fólk af íslenskum uppruna. í dag heimsækir Vigdís elliheim- ilið Stafholt, sem Vestur-íslending- ar reistu. Þá mun forseti einnig fara í stutta ferð suður yfir landa- mæri Kanada og Bandaríkjanna, til Roberts Point í Washington-fylki. Þar verður meðal annars skoðaður kirkjugarður þar sem landnemar, er námu land á Kyrrahafsströndinni árið 1887, em grafnir. Þeirra á meðal em furðu margir íslending- ar. Einnig munu Vigdís og fylgdar- lið hennar skoða sögulegar bygg- ingar, sem íslendingar reistu. Loðnuleit rannsóknarskipa: Góðar torfiir Grænlandsmegin „VIÐ höfiim orðið varir við loðnu Grænlandsmegin við miðlínuna á milli íslands og Grænlands og hún er í góðum torfiun á blettum,1* sagði Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur, i samtali við Morgun- blaðið. Hjálmar er leiðangursstjóri f loðnuleit rannsóknarskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar. „Þessi loðna er 120 til 150 sjómíl- ur út af vestanverðu Norðurlandi og er á hraðri suðurleið," sagði Hjálmar. „í leiðangrinum hefur einnig fundist loðna nokkuð langt uppi á Strandagmnni og norðvestan við Kolbeinsey en hún er talsvert blönduð smáu. Stærsta loðnan er ekki gengin upp að landinu ennþá. Ef vel gengur lýkur þessum leið- angri í næstu viku," sagði Hjálmar. Loðnuskipin hafa lítið veitt síðan á þriðjudag í síðustu viku og bíða nú eftir að loðnan, sem er Græn- landsmegin við miðlínuna, komi yfir í íslensku lögsöguna, að sögn Ástráðs Ingvarssonar starfsmanns loðnunefndar. Gengu til ijúpna frá barninu í bílnum LÖGREGLAN hefur vísað til barnaverndarnefhdar máli ungra foreldra, sem skildu tveggja ára barn sitt eftir i bíl við Bláfjallaveg í gær, á meðan þeir litu eftir rjúpu. Menn sem komu að bílnum og sáu barnið kölluðu til lögreglu og var ætlanin að heQa leit, þar sem óttast var að eitthvað hefði komið fyrir foreldrana. Þeir komu fram áður en leit hófst. Það var um hádegið í gær sem menn tóku eftir því að bíll stóð við Bláfjallaveg, við Rauðahnjúk. Mennimir sáu svo bílinn enn á sama stað um klukkan 13.30 og þegar þeir gættu að sáu þeir að í bílnum var bam, um tveggja ára gamalt, og vakandi. Ekkert bólaði á öðru fólki við bílinn, en í honum var byssuhulstur og nýútgefið byssuleyfi, stflað á móður bams- ins. Mennimir létu lögregluna þegar vita og skömmu eftir að hún kom á staðinn gengu að bílnum kona og karl, bæði um tvítugt. Þau kváðust eiga bamið og hafa skilið það eftir í bílnum á meðan þau bragðu sér til ijúpna. Fólkið sagði að bamið væri vant að sofa á þess- um tíma dags og því ekkert at- hugavert við að skilja það eftir í bflnum og engin ástæðu væri fyrir lögreglu að hafa afskipti af mál- inu. Lögreglan lét hins vegar í ljós áhyggjur af því, hvað hefði gerst ef bamið hefði ráfað út úr bílnum, sem var ólæstur. Þá hefði eitthvað getað komið fyrir foreldrana, svo enginn hefði vitað af baminu. Greenpeace fyrirhugar að herða aðgerðir vegna hvalveiða: Vildum frekar snúa okkur að samvinnu við Islendinga -segir Jakob Lagerkrantz svæðistjóri Greenpeace „DAGINN sem islenska ríkis- stjórnin lýsir því yfir að hvalveið- um verði hætt mun hún fá stuðn- ing um allan heim. Við vonum að sá dagur komi fljótt og við vorum raunar að vona að við gætum hætt herferð okkar í dag, vegna þess að við höfum enga ánægju af slíku og vildum heldur geta snúið okkur að þvi að vinna ÁRNI Gunnarsson alþingismaður segir að afstaða islenskra stjórn- valda til hvalveiða verði að liggja fyrir innan skamms þvi frum- varp, sem borgaraflokksmenn hafa lagt fram á Alþingi um bann við hvalveiðum, komi til umræðu fljótlega og rikisstjórnin gæti staðið frammi fyrir því að meiri- hluti væri i þinginu fyrir þessu frumvarpi. Ámi hefur undirbúið þingsálykt- unartillögu um að íslendingar byiji ekki hvalveiðar í vísindaskyni á næsta ári, en hann hefur ákveðið að bíða með að leggja tillöguna fram þar til afstaða ríkisstjómar- með íslendingum i öðrum bar- áttumálum okkar,“ sagði Jakob Lagerkrantz, svæðisstjóri Gre- enpeace i Svíþjóð við Morgun- blaðið i gær. Lagerkrantz skipu- leggur mótmælaaðgerðir sam- takanna í Evrópu gegn hvalveið- um íslendinga. Lagerkrantz sagði að Greenpe- ace hefði gert sér vonir um að innar liggur fyrir. Þegar Ámi var spurður hvort hann gæti stutt fram- varp borgaraflokksmannanna sagði hann að til þess yrði að gera á frum- varpinu nokkrar breytingar þar sem það gengi mun lengra en þings- ályktunartillagan. „Ég hef ekki predikað að við föram á viðstöðulausan flótta í þessu máli, því fer fjarri. En ég geri mér von um að menn hafí vit á að finna einhveija skynsamlega útgönguleið. Að öðrum kosti held ég því miður að við séum að kom- ast í blindgötu með þetta," sagði Ámi Gunnarsson. íslensk stjómvöld lýstu því yfír í gær að hvalveiðum yrði hætt, en fyrst ekki hefði orðið af því myndi herferðin halda áfram samkvæmt áætlun. Hann sagði að um miðjan nóvember yrði nýrri herferð hleypt af stokkunum í Þýskalandi og mót- mælastöður _yrðu skipulagðar um allt landið. I Bandaríkjunum yrði aðgerðum haldið áfram að minnsta kosti fram á vor. Þá yrðu aðgerðir hertar í Bretlandi. Þegar Lagerkrantz var spurður hvort Greenpeace viðurkenndi ekki ástæður íslenskra stjómvalda fyrir veiðunum sagði hann ljóst að hval- veiðamar væra ekki í ágóðaskyni, enda væri það eina ástæðan sem fslensk stjómvöld gætu sett fram til að veija þær. „En það er í gildi hvalveiðibann og við teljum það mikilvægt að öll lönd samþykki að fylgja alþjóðlegum tilmælum. í Svíþjóð viljum við að Bretar hætti að menga andrúmsloftið svo súrt regn drepi ekki lífið í vötnunum okkar. Við viljum því að þeir fylgi alþjóðlegum tilmælum varðandi súrt regn en það gera þeir ekki.“ —En ef Alþjóðahvalveiðiráðið ákveður 1990 að hægt sé að leyfa hvalveiðar á ný, hver yrðu viðbrögð Greenpeace? „Ráðið myndi ekki ákveða slíkt. Það era enn næstum engar upplýs- ingar til um hvað hvalastofnamir era stórir, svo það era engin líkindi Ríkisstjórnin þarf að taka afstöðu bráðlega - segir Ami Gunnarsson alþingismaður til þess að banninu verði aflétt." —Á næsta ári verður umfangs- mikil hvalatalning á Norður-Atl- antshafi, sem meðal annars er studd af Alþjóðahvalveiðráðinu. Gætu þessar upplýsingar ekki legið fyrir eftir það, þannig að ráðið geti tekið afstöðu til hvalveiðibannsins árið eftir. „Auðvitað hvetur ráðið til vísindastarfsemi sem hefur það ekki í för með sér að hvalir era drepnir. En einu niðurstöður, sem hingað til hafa fengist um hvalastofna, er undan Noregsströndum og þar vora stofnamir minni en áður var haldið. Ég býst við að niðurstaða þessara rannsókna sýni að það era færri hvalir í hafinu en talið er núna.“ —En ef svo færi að hvalveiðráðið afturkallaði hvalveiðibannið. Myndi Greenpeace sætta sig við það? „Það sem skiptir mestu máli nú er að öll lönd virði hvalveiðibannið. Það væri til marks um alþjóðlegt samstarf og virðingu fyrir öðram þjóðum. Það sem þú ert að tala um er ekki á dagskrá núna,“ sagði Jak- ob Lagerkrantz. Magnús Skarphéðinsson formað- ur Hvalavinafélagsins sagði við Morgunblaðið að styrkur umhverf- isvemdarsinna væri alltaf að koma betur og betur í ljós: „íslendingar verða að viðurkenna það að það hafi verið rangt að halda hvalveið- unum til streytu, og því á að hætta þeim stax. Við ættum síðan að bjóða friðunarsinnum í opinbera heim- sókn til íslands og þakka þeim fyr- ir aðgerðimar." Rætt um ákveðin vinnubrögð - segir Ólafur Ragnar Grímsson ÓLAFUR Ragnar Grímsson Qár- lýst í hvalamálinu, sagði hann að málaráðherra segir að á ríkis- flokkurinn hefði talið nauðsynlegt stjórnarfiindi í gær hafi verið að unnið verði áfram að málinu á rædd drög að ákveðnum vinnu- brögðum i hvalveiðimálinu. Þegar hann var spurður, hvort Alþýðubandalagið styddi þá stefnu, sem sjávarútvegsráðherra og ut- anríkisráðherra hefðu undanfarið grundvelli þeirra atburða og upplýs- inga sem verið hafa að koma fram. Þetta hefði verið rætt í ríkisstjóm- inni en hann vildi ekki tjá sig meira um það á þessu stigi málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.