Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 11

Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 II Óhóflegur sparnaður verður skattlagður eftir Jóhann J. Ólafsson Mikið er rætt og ritað um spam- að, vexti og lánskjaravisitölu þessa dagana. Tilefnið er áform ríkisstjóm- arinnar um að lækka vexti og auka tekjiu- ríkissjóðs með því að skatt- leggja sparifé. En að mörgu verður að hyggja þegar fjallað er um jafn þýðingarmikla undirstöðu athafna- lífsins og spamaður landsmanna er. Það er ljóst, að skattlagning spari- flár og tekna af því mun hafa mjög neikvæðar afleiðingar fyrir þjóðfé- lagið. Skatttekjur 300 milljónir króna eru hreinir smámunir hjá þeim geysi- lega skaða sem af þessari stefnu- breytingu mun hljótast. I fyrsta lagi mun hljótast mikill kostnaður fyrir alla aðila, spariQár- eigendur, bankar og ríkisvaldið. Fyrst þurfa banka að skattleggja vaxtatekjur almennt og bankamir að greiða þennan skatt til ríkisins. Síðan þarf ríkið að endurgreiða öllum þeim sem em fyrir neðan skattleysis- mörk. Það verður að setja því skyn- samlegar skorður hversu langt ríkis- valdið má ganga í þá átt að valda mönnum auknum kostnaði til þess að ná tekjum. Þá er sú sjálfsagða regla brotin að menn beri ekki skatt af sparifé sínu á meðan þeir njóta þess ekki sjálfír en lána það öðmm. Lágmarks- krafa er að menn séu ekki látnir bera skatt af sparifé sínu né tekjum af því á meðan það er látið vera í bönkum eða öðmm fjármálastofnun- um, heldur þá fyrst er þeir taka það út til eigin neyslu. Skv. grein Jóns Sigurðssonar, við- skiptamálaráðherra, í Morgunblað- inu 8. þ.m., munu vextir hækka vegna skattlagningarinnar. Af sömu grein má álykta að spariskírteini ríkissjóðs verði áfram skattftjáls og sparifláreigendum þannig umbunað sérstaklega láni þeir ríkissjóði fremur en öðmm. Og i sömu grein segir: „ ... það er alls ekki ætlunin að skattleggja hóflega vexti af venjuleg- um spamaði almennings." Hér verð- ur ekki komist hjá því að gagnálykta að óhóflega mikill spamaður verði skattlagður. Islendingar hafa ekki orðið fyrir barðinu á miklum sparnaði siðan i kreppunni miklu 1930—1939. Þvert á móti hefur eyðsla verið vandamál þjóðarinnar síðan í seinni heimsstyij- öldinni. Okkur er sagt að samræma eigi kjör sparifjáreigenda við vestur- þýska. Hér er ólíku jafnað saman. Þýska markið er sterkur gjaldmiðill. Spamaður er þar svo mikill að hálf- gerð deyfð er í atvinnulífínu og at- vinnuleysi. Skattar á sparifé þar í landi em til þess að auka þenslu. Okkur er engin þörf á slíku. A.m.k. ættum við að bíða þess að slíkt ástand kæmi hér upp eins og er í Vestur-Þýskalandi áður en við fær- um að skattleggja sparifé. Öll umræða um spamað og vexti á íslandi er rædd út frá sjónarmiði skuldara. Það er rétt eins og einung- is séu til skuldarar í þessu landi. Aldrei er sparifláreigandinn spurður þessarar einföldu spumingar: „Fyrir hvað vilt þú lána peningana þína?“ Aðeins lántakandinn er af hálfu stjómmálamannanna spurður um það, hvað hann vilji greiða I vexti. Eiga stjórnmálamenn alls ekki að gæta hagsmuna sparifjáreigenda? Þá er mikið rætt um lánskjaravísi- tölu. Hana þarf að lækka, segja menn, helst að afnema hana alveg. Þar em menn að leita að einhveiju jafnvægi á milli launa og húsnæðis- lána. Þá er því haldið fram, að það sé sanngjamt að lækka lánskjara- vísitölu, vegna þess að laun séu fryst. Með þessu væri verið að ráð- ast tvisvar á launin. Fyrst áður en þeirra er aflað með frystingunni, síðan eftir að þeirra er aflað með skertri lánskjaravísitölu. Vísitölu- binding á laun á að vemda laun gegn verðbólgu áður en launanna er aflað en lánskjaravísitölunni er ætlað að vemda launin eftir að þeirra er afl- að. Af þessu tvennu er hið síðar- nefnda nauðsynlegra. Það gleymist í allri þessari umhyggju fyrir skuld- umm íslands að lánslq'aravísitalan er til þess að vemda laun þeirra launamanna, sem eyða ekki ölium launum sínum strax. Margir halda litlum hluta þeirra eftir, oft með miklum fómum, til þess að búa í haginn fyrir sig og sína eða reyna af veikum mætti að skapa eitthvert fjárhagslegt öiyggi. Afnám lánskjaravísitölunnar kem- ur einnig mjög illa við tekjulitla skuldara, vegna þess að þá hækka nafnvextir mjög mikið. Tökum t.d. skuldara sem fær 15 ára lán en vext- imir em 25% á ári. Á fyrstu fjórum ámm af þessum 15 er hann búinn að greiða allt lánið til baka í vexti. Slíkt standast aðeins þeir sem hafa gott fjárstreymi (cash-flow) en það hafa láglaunamenn yfírleitt ekki. Með lánskjaravísitölu er hægt að dreifa greiðslubyrðinni jafnt á allt lánstímabilið. Lánskjaravísitölu losnum við ekki við fyrr en við höfum sigrast á verð- bólgunni. Það verður ekkert á næst- unni. Til þess er togstreita og mis- Jóhann J. Ólafsson gengi í íslensku efnahagslífi allt of mikil. Vitlaus afskipti hins opinbera og eyðsla, kosningamútur og „Vitlaus afskipti hins opinbera og eyðsla, kosning-amútur og byggðavandamál eru slík, að stöðugleiki krónunnar er langt undan.“ byggðavandamál era slík, að stöðug- leiki krónunnar er langt undan. Fyrst verðum við að skapa jafnvægi ( landinu, þá getum við farið að tala um lægri vexti og stöðugt gengi krónunnar án lánskjaravísitölu. Höfundur er formaður Verslunar- ráðs íslands. EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP UNO er vinsælasti og mest seldi bíllinn í Evrópu, enda einstaklega vel hannaður, rúmgóður og lipur í akstri. Nú býðst UNO 45 3ja dyra á sérstöku til- boðsverði, kr. 328 þús. Þetta er einstakt tækifæri til að að fá mikið fyrir peningana. Tilbpðið gildir fyrir síðustu bílana af árgerð 1988. Staðgreiðsluverð kr. 380.000, Tilboðsverð kr. 328.000,- 50% útborgun, eftirstödvar lánaðar í allt að 12 mánuði. FRAMTÍÐ VIÐ SKEIFUNA SÍMAR: 685100, 688850.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.