Morgunblaðið - 21.10.1988, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
Qpið bréftil Svavars Gestssonar menntamálaráðherra:
Orð skulu standa
— eðahvað?
ÁS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál - í - stál
Sftuœtenuigjiuiir <J®OT©©®ini & ©®
VESTURGÖTU «6 SIMAR 14680 21480
felMDN5ENl
Viðurkenndur fyrir gœði og
einstakt notagildi.
Verð aðeins frá kr: 99.000.-
í burðar- eða bílaútgáfu.
BENCO hf.
^ágmúl^J7^sími^8407T^
eftír Svein Andra
Sveinsson
Hæstvirtur menntamálaráðherra,
Svavar Gestsson.
Tilefni þessa bréfs er það misrétti
sem lánþegar hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna hafa búið við undanfar-
in ár og sú staðreynd að þér sem
hvað harðast hafið barist gegn þess-
um órétti, eruð nú orðinn mennta-
málaráðherra; sá maður sem besta
aðstöðu hefur til leiðréttingar.
Það var í janúar 1986 að þáver-
andi menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, skar á vísitöluteng-
ingu námslána, þannig að þau hættu
að fylgja framfærsluvísitölu. Lánin
voru síðan aftur tengd við vísitöluna
í júní það árið en bilið sem skapað-
ist á þessum mánuðum var ekki brú-
að; upphæð námslána hafði verið
skert um 20%. Afleiðing þessa í dag
er sú að námslán til einstaklings í
leiguhúsnæði er aðeins 33.418 á
mánuði.
Aðgerðir þessar mættu mikilli
andstöðu hjá námsmönnum, sem og
hjá yður og flokki yðar. Hefur yður
orðið mjög tíðrætt um þessa skerð-
ingu og hvemig yðar flokkur muni
snúa sér í þessu máli. Vil ég láta
hér fylgja nokkrar tilvitnanir.
Uppriflun á
kosningaloforðum
1. í kosningagrein sem þér skrif-
uðuð fyrir kosningamar 1987 segið
þér að hver atlagan að námsmönnum
hafi rekið aðra í ráðherratíð Sverris
Hermannssonar.
a) „Menntamálaráðherra neitaði
að samþykkja hækkanir á fjárlögum
til þess að standa við skuldbindingar
sjóðsins.“
b) „Sverrir Hermannsson gefur
út reglugerð um breytingu á náms-
lánum. Umdeilt er hvort reglugerðin
standist lög...“
c) „Alþýðubandalagið hefur lýst
yfir því að það muni standa við lög-
in, enda voru þau sett undir forystu
Alþýðubandalagsins á sínum tíma.“
2. Á fundi í Háskólabíói fyrir
kosningamar 1987 var eftir yður
haft:
a) „Auka þarf framlög til sjóðsins
um 360 milljónir."
b) „Upphæð námslána þyrfti að
vera 20% hærri nú ef farið væri að
lögum um námslán frá 1982.“
c) „Alþýðubandalagið gerir það
að skilyrði fyrir stjómarsamstarfi
að í stjómarsáttmála komi fram að
lögum um námslán verði framfylgt."
Þingsályktunartillaga
3. Síðastliðið ár lögðuð þér ásamt
nokkmm samflokksmönnum yðar
fram svohljóðandi þingsályktunar-
tillögu:
„Alþingi ályktaf að fela mennta-
málaráðherra að fella úr gildi breyt-
ingar á reglugerð nr. 578/1982 um
námslán og námsstyrki, sem gerðar
yom 3. janúar og 2. apríl 1986,
þannig að þau ákvæði sem áður giltu
um útreikning á framfærslukostnaði
námsmanna taki gildi að nýju. Jafn-
framt felur Alþingi ríkisstjóminni
að gera ráðstafanir með aukafjár-
veitingum og lántökum til að tryggja
eðlilega framkvæmd laga nr.
72/1982, um námslán og náms-
sfyrki, út árið sem er að líða.“
Stjómmálamenn gefa oft fleiri
loforð en þeir ná að muna eftir,
hvað þá að efna. Emð þér þess vegna
minntur á yfirlýsingar yðar um
námslán. Virðist ekki veita af þar
eð ekkert var minnst á Lánasjóðinn
í stjómarsáttmála núverandi ríkis-
stjómar, þrátt fyrir yfirlýsingar yð-
ar.
Ályktun Stúdentaráðs
Stúdentaráð Háskóia íslands
samþykkti nýverið samhljóða álykt-
un, þar sem skorað var á yður að
standa við orð yðar og afnema fryst-
inguna. Er á það bent að farið hafi
verið út í frystinguna í nafni slæmr-
ar stöðu sjóðsins, en hún ekki verið
leiðrétt þrátt fyrir mun betri stöðu
sjóðsins en stöðugt versnandi stöðu
námsmanna. í ályktuninni segir
síðan: „Að tilhlutan forvera yðar var
framkvæmd könnun á því hvort
núverandi framfærslugmnnur væri
fullnægjandi eður ei. Skýrsla sem
unnin var á vegum sjóðsins sýnir*
að „æskileg" framfærsla er mun
hærri en sem nemur núverandi fram-
færsluviðmiðunum. Samsvarar mun-
urinn þeirri skekkju sem myndaðist
við „frystingu" Sverris Hermanns-
sonar. Núverandi ástand fram-
færslumála er algerlega óviðunandi
og hefur valdið því að margir náms-
menn hafa hrökklast frá námi. Því
skorar SHÍ á yður að afnema áhrif
vísitölufrystingarinnar frá og með
fyrstu vetrarúthlutun ...“ Má þess
geta að samstarfsnefnd náms-
mannahreyfinganna hefur sent frá
sér sams konar ályktun.
Af þessu má ljóst vera að stúdent-
ar við Háskóla Islands, sem og aðrir
námsmenn gera skýlausa kröfu um
það að við lögin um Lánasjóðinn
verði staðið, undanbragðalaust.
Boltínn hjá ráðherra
Nýlega sendi stjórn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, bæði fulltrúar
ríkisstjómar og námsmanna, bréf til
menntamálaráðherra þar sem hún
lýsti sig reiðubúna til þess að hækka
námslánin, fengist til þess fjárveit-
ing. Það er því ljóst að stjómin mun
ekki standa í vegi fyrir hækkunum
og er boltinn alfarið hjá ráðherra.
Enn fremur hlýtur að teljast ólíklegt
að fjármálaráðherra standi í vegi
fyrir auknum fjárveitingum til sjóðs-
ins, sjálfur formaður Alþýðubanda-
lagsins.
Stenst reglugerðin lög,
Svavar?
Undanfarna daga hafið þér verið
með yfirlýsingar um það í fjölmiðlum
að hagur þjóðarbúsins og staða ríkis-
sjóðs leyfði það ekki að frystingin
yrði afnumin. Undirritaður hlýtur
að taka slíkum blaðaummælum með
fyrirvara og treysta því að þetta sé
ekki mat yðar. Benda má á það í
fyrsta lagi að vart er hagur þjóðar-
búsins neitt verri eða halli ríkissjóðs
meiri í ár en hann var 1986 eða
1987. Tölduð þér stöðu þjóðarbúsins
ekki koma í veg fyrir hækkun þá. í
öðm lagi má benda á að þér gerðuð
ráð fyrir því í þingsályktunartillögu
yðar hvemig afla skyldi flármagns
til að standa við lögin um LÍN. Ekki
hefur verið bryddað upp á þeim
telquöflunarleiðum enn. Ef þér teljið
Sveinn Andri Sveinsson
„Ef þér teljið ekki vera
svigrúm fyrir hendi, þá
hlýtur sú spurning að
vakna hvort þér séuð
komnir á þá skoðun að
reglugerðin sem sett
var í tíð Sverris standist
eftir allt saman.“
ekki vera svigrúm fyrir hendi, þá
hlýtur sú spuming að vakna hvort
þér séuð komnir á þá skoðun að
reglugerðin sem sett var í tíð Sverr-
is standist eftir allt saman. Vart
ætlið þér að láta reglugerð standa
sem þér teljið hæpið að standist lög.
Einnig hafið þér látið hafa eftir yður
í blaðagreinum að þér séuð að kynna
yður málefni Lánasjóðsins. Sé svo
sem undimtaður leggur frekar lítinn
trúnað á, hlýtur sú spuming að
vakna hvaða forsendur þér höfðuð
fyrir framlagningu þingsályktunart-
illögunnar á sfnum tíma. Var hún
fram sett að ókönnuðu máli?
Málsvari námsmanna
Undanfarin ár hafið þér gefið
yður út fyrir að vera málsvari náms-
manna. Sama á við um marga sam-
flokksmenn yðar. Það er von mín
að þér og yðar félagar séuð yður
sjálfum samkvæmir og standið við
öll stóm orðin, nú þegar þið hafið
aðstöðu til. Verði svo ekki gert verð-
ið þér ómerkingar í augum náms-
manna um langa tíð.
Höfundur er formaður Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands.
,,Ekta
kráarstemnming"
Virt enskt fyrirtæki með 20 ára
reynslu og sérhæfingu í hönnun,
smíði og uppsetningu ekta kráar-
innréttinga býður þjónustu sína
hérlendis.
Fjölmargar spennandi útfærslur
koma til greina, sem skapa óvið-
jafnanlega kráarstemmningu.
Áhugasamir aðilar er óska eftir
nánari upplýsingum leggi inn nafn,
heimihsfang og síma á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 31. okt. nk. merkt:
„K - 3186".