Morgunblaðið - 21.10.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
Páll Jóhannesson
heldur tónleika
Syngnr í Norræna húsinu og á Akranesi
PALL Jóhannesson, tenór, held-
ur tónleika I Norræna húsinu á
laugardag kl. 17.00 og i Safnað-
arheimilinu Vinaminni á Akra-
nesi á sunnudag kl. 16.00. Á
efnisskránni eru óperuaríur og
íslensk sönglög. Undirleikari er
Ólafúr Vignir Albertsson.
Páll hóf söngnám á Akureyri
1973 hjá Sigurði D. Franzsyni og
hélt því áfram í söngskólanum í
Reykjavík undir leiðsögn Magnús-
ar Jónssonar. Árið 1981 hélt Páll
til Ítalíu í söngnám og meðal kenn-
ara hans þar var Pier M. Ferraro.
Þá hefur Páll unnið til verðlauna
í alþjóðlegri söngkeppni, sem
kennd er við Ettore Bastianini, í
Siena á Ítalíu.
Páll sagði í samtali við Morgun-
blaðið að efnisskrá tónleikanna um
helgina væri fjölbreytt og valin
með það fyrir augum að vera
skemmtileg fyrir áheyrendur. Vin-
sælar óperuaríur og íslensk söng-
lög væru uppistaðan og vildi hann
sérstaklega nefna aríur úr tveimur
óperum eftir Donizetti, Fra poco
a me ricovero úr Lucia di Lam-
mermoor og Una furtiva lagrima
úr Ástardrykknum, sem væru
meðal þekktustu aría söngbók-
menntanna. Sú síðamefnda væri
sérlega erfið, en skemmtileg og
sýndi vel allar hliðar raddarinnar.
Það eru tvö ár síðan Páll kom
heim frá námi og stundar hann
nú söngkennslu á Akureyri. Hann
var spurður hvemig gengi að fá
verkefni í söngnum.
„Sannast að segja gengur það
ekki nógu vel. Markaðurinn hér
heima er það lítill og maður verð-
ur að hafa sig allan við til að koma
sér á framfæri. Samkeppnin er
pijög hörð og menn tregir til að
veita nýjum röddum tækifæri. Það
hlýtur þó að koma að því að eðli-
Páll Jóhannesson Morgunbiaðið/RAX
leg endumýjun eigi sér stað t.d.
hjá íslensku ópemnni, fólk er far-
ið að langa til að heyra þar nýjar
raddir. Aðalvandamálið er kannski
það að á íslandi er svo mikið af
góðum tenómm og tækifærin svo
fá. Víða erlendis t.d. á Ítalíu er
skortur á tenómm og þegar ég
söng fyrir umboðsmenn þar á sl.
ári fékk ég góðar undirtektir, en
það er dýrt að koma sér á fram-
færi erlendis og fjárhagurinn leyf-
ir ekki að ég leggi út í það ævin-
týri að svo stöddu."
Ertu með fleiri tónleika í bígerð?
„Já, við höfum verið að tala
okkur saman nokkrir óperasöngv-
arar og útlit er fyrir að við höldum
sameiginlega tónleika í Þingeyjar-
sýslu, Skagafírði og Keflavík, en
hvenær það verður er óráðið enn-
þá.“
Dagvist MS félagsins, Álandi 13. Morgunblaðifl/Sverrir
Opið hús hjá MS
félagi Islands
í TILEFNI 20 ára afmælis MS félags íslands verður opið hús í
dagvist félagsins í Álandi 13, Reykjavík, laugardaginn 22. október
kl. 13.30—16.30. Seldir verða handunnir munir vistfólks.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir. „Félagið var stofnað 20.
septeber 1968 og.var aðalhvata-
maður að stofnun þess Kjartan
heitinn Guðmundsson prófessor
yfirlæknir taugalækningadeildar
Landspítalans. Fyrsti formaður
félagsins var Haukur Kristjáns-
son. Félagið rekur sjúkradagvist-
un fyrir 15—20 manns á dag, þar
sem boðið er upp á margvíslega
þjónustu svo sem sjúkra/iðjuþjálf-
un o.fl. Læknir dagvistarinnar er
John Benedikz taugalækningasér-
fræðingur. Félagar í dag era tæp-
lega 600.
20 ára afmælisrit félagsins
kemur út í næsta mánuði, auk
þess hefur félagið gefíð út ýmis
upplýsinga- og fræðslurit um
sjúkrdóminn."
Núverandi formaður félagsins
er Gyða Jónína Ólafsdóttir.