Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 23

Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 23 Sparísjóður Reykjavíkurog nágrennis í BREIÐHOLTINU ÁLFABAKKA 14 • SÍMI 670500 Berbnósta í þingínu Helsinki. Frá Jan Lindroos, fréttaritara N ÍTALSKA klámstjarnan og þing- maðurinn Ilona Staller eða „Cie- ciolina" er nú stödd í Finnlandi og heftir tekist að vekja á sér verulega athygli þar sem annars staðar. Ekki eru þó allir á einu máli um, að hún eigi þessa eftir- tekt skilda. Cicciolina er í Finnlandi til að aug- lýsa eins konar sjálfsævisögu sína, bókina „Játningar", sem er mjög berorð lýsing á lífshlaupi hennar hingað til, og að sjálfsögðu lét hún ekki undir höfuð leggjast að heilsa upp á kollega sína, þingmennina. Stóðu þá yfir sveitarstjómarkosning- ar, sem þóttu einstaklegar daufar og óspennandi, jafnvel á finnskan mælikvarða, en Cicciolina lífgaði dálftið upp á andrúmsloftið með því að bera bijóstin á þinghúströppun- um. Er nú talað um, að sumar fram- boðskvinnur hafi hug á að reyna „Cicciolinu-aðferðina" l næstu kosn- ingum. Siðastliðinn þriðjudag var Ciccio- lina viðstödd þingsetninguna og tókst þá að móðga þingforsetann, Matti Ahde. Þegar hvað hæst stóð í stöng- inni og andaktin var mest svipti hún kjólnum frá öðru bijóstinu með þeim afleiðingum, að forsetann setti dreyr- rauðan. Uona Staller er fædd i Ungveija- landi en hefur vakið á sér athygli sem klámdrottning og þingmaður á italska þinginu. í Finnlandsferðifini hefur hún rekið áróður fyrir auknu frjálsræði í ástamálum og hefur raunar hrósað afstöðu fínnskra þing- manna í þeim efnum. Hefur Iqaminn í boðskap hennar verið þessi: „Minna áfengi — meira ástalíf." NÁTTÚRÚ L Æ KIMING ABÚÐIIM PÓSTKRÖFUSALA - SMÁSALA - HEILDSALA. SÍMAR 1 0262 - 1 0263. 100% si'dnmrifotnaður áalla ffðlskyiduna ÞaAgerasér ekki allir grein fyrir því, hvað það er þýðingar- mikið fyrir heils- unaaðlðtasér ekki verða kalt. (slenska ullin er mjög góö og er betri en allt annað, séretaklega í miklum kulda og vosbúð. En í dag ferðumst við á milli heimilis og vinnustaðar i bilum og förum frá hlýjum heimilum okkar á hlýja vinnustaði. Þessar stuttu ferðir geta verið ansi kaldar og jafnvel öriagarikar ef við verjum okkur ekki fyrir kuldanum. Hér kemur silkið sem lausnin. Silkið er mjög hlýtt en aldrei óþægilega hlýtt; það bókstaflega gælir við hömndið. Silkið er örþunnt og breytir þvi ekki útliti ykkar. Þið verðið áfram jafn grönn þótt þið klæðist því sem vöm gegn kulda. Því er haldið fram í indverskum, kínverskum og fræðum annarra Austurianda að silkið vemdi likamann í fleiri en einum skilningi. Evrópubandalagið; Steftit að samræmingu flugtj ómarsvæða í Evrópu Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Framkvæmdastjorn Evrópu- bandalagsins samþykkti á fundi 1 Brussel í gær tillögur sem miða að því að gera Evrópu innan EB að einu samræmdu flugstjórnar- svæði. Framkvæmdastjórnin tel- ur að flugumferðarstjórninni verði best borgið í höndum Eurocontrol og stefiia eigi að þvi að öll aðildarriki bandalagsins verði að fiilhi aðilar að þeirri stofhun. Eurocontrol var sett á stofn af Beneluxlöndunum, Frakklandi, V- Þýskalandi og Bretlandi árið 1960. Markmið stofnunarinnar var að setja alla flugumferðarstjóm í aðild- arríkjunum undir sama hatt. Árið 1965 sögðu Frakkar og Bretar sig undan því ákvæði og árið 1980 var það fellt út úr stofnsamningnum. Eurocontrol hefur eftir sem áður með höndum ýmiss konar verkefni sem varða sameiginlega hagsmuni aðildarríkjanna s.s. þjálfun starfs- manna. Núverandi þátttökuríki era öll innan Evrópubandalagsins, Portúgal gerðist aðili 1986 og Grikkland nú á þessu ári. Spánn hefur sótt Vim aðild og ítalir og Danir hafa nokkurt samstarf við stofnunina. Samkvæmt tillögum fram- kvæmdastjómarinnar eiga flug- stjóraarsvæði í framtíðinni ekki að takmarkast við lofthelgi þjóðríkja heldur verði komið á samræmdri stjóm fyrir bandalagið allt. Áhersla verði lögð á tæknilega samhæfingu og bættar samskiptaaðferðir. Sömuleiðis verði lögð áhersla á að auka afköst tæknibúnaðar og bæta þjálfun starfsmanna. Fram- kvæmdastjórain telur brýnt að vinna að samræmingu á sviði mann- virkjagerðar og koma á virku sam- ráði flugvallaryfírvalda og flugfé- laga sem helstu notenda flugvalla. Framkvæmdastjómin lýsir banda- lagið reiðubúið til að leggja fram fé til að þessum markmiðum verði náð. Þá leggur framkvæmdastjóm- in áherslu á að farþegaflug fái að- gang að þeim flugleiðum sem ætl- aðar eru til hemaðamota. Bent er á að sú skipting sem nú ér í gildi á milli farþegaflugs og herflugs í Evrópu hafí verið ákveðin í iok síðari heimsstyijaldarinnar og óum- flýjanlegt sé að yfirvöld hermála láti farþegaflugi eftir a.m.k. hluta af þessum svæðum á háannatímum. Framkvæmdastjómin bendir á að samræming sé nauðsynleg, nú- verandi fyrirkomuleg henti ákaf- lega illa og sé þess ekki umkomið að þjóna aukinni flugumferð. Áætl- að er að fram að næstu aldamótum eigi flugumferð í Evrópu eftir að tvöfaldast ef flugumferðarstjómin gerir það kleift. Tvi- og þríverknað- ur sé alltof algengur við núverandi aðstæður og óviðunandi sé að sam- skipti á milli flugstjómarsvæða fari fram í gegnum síma vegna þess að tækin era ekki samhæfanleg. Stanley Clinton Davis sem fer með samgöngumál innan fram- kvæmdastjómar EB sagði að við núverandi ástand yrði ekki unað. Umferðarþunginn á flugleiðum og flugvöllum hafí valdið farþegum og flugfélögum umtalsverðum óþæg- indum og kostnaði. Milljónir far- þega verði fyrir seinkunum, flugfé- lög verði að breyta áætlunum og fella niður ferðir auk þess sem hinn almenni farþegi hafi vaxandi áhyggjur af öryggi sínu. Augljóst sé að eitthvað verði að gera, hörm- ungar yfírstandandi árs megi ekki endurtaka sig. Reuter Engin mynd hefiir boríst úr Finnlandsreisu Cicciolinu en hér er hún að koma skoðunum sínum á framfæri í Róm. Er hún þingmaður á ítalska þinginu og á meðal annars sæti í varnarmálanefiidinni. Hef- ur hún vafalaust sinar hugmyndir um hvemig eigi að koma óvinun- um í opna skjöldu. „Cicciolina“ meðal Finna:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.