Morgunblaðið - 21.10.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
Sláturtíð lokið á Akureyri:
Slátur sótt til Kópa-
skers vegna eftir-
spurnar á Akureyri
— segir Óli Valdimarsson sláturhússtjóri
SLÁTRUN lauk um miðjan dag f gær hjá sláturhúsi Kaupfélags
Eyfirðinga og hefur sláturtíð þá staðið í sex vikur. Eins og venja
er eftir sláturtfð var haldið sláturhúsaball f gærkvöldi, en starfs-
menn voru alls um 120 talsins f sláturtíðinni. Alls var 42.842 Qár
slátrað sem er um 5.000 færra en í fyrra. Meðalþungi dilka nam
14,51 kg sem er heldur minni þyngd en í fyrra þegar meðal-
þunginn var 14,69 kg.
Líkur eru á því að engin slátrun
fari fram í sláturhúsi KEA á Dalvík
á næstunni vegna samdráttar í
landbúnaði og auk þess var öllu fé
í Svarfaðardal slátrað og urðað
sökum riðuveiki. Slátrun á vegum
KE3A verður áfram á Akureyri og
á Kópaskeri. Óli Valdimarsson
sláturhússtjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að markaður fyrir
sláturfé væri nægur á Eyjafjarðar-
svæðinu enda væri ekkert af kjöt-
inu selt utan svæðisins nema norð-
lenska jólahangikjötið, sem færi
víða. „Það eru miklar kröfur gerð-
ar til þeirra sláturhúsa, sem flytja
kjöt út. Við þurfum bara ekkert á
útflutningi að halda. Þess í stað
látum við húsið fullnægja okkar
1 kröfum hér innanlands."
Metsala var í slátursölu í ár á
Akureyri. Óli sagði að selst hefðu
yfír 28.000 slátur sem væri miklu
meira en mönnum hefði órað fyrir
í upphafi sláturtíðar. Á tímabili var
eftirspumin eftir slátrum það mik-
il að ekki hafðist undan að slátra.
Því var brugðið á það ráð í tvígang
að sækja slátur í sláturhúsið á
Kópaskeri, 500 slátur í hvert skipti.
Mjög góð sala var einnig í fyrra,
en þá seldust um 25.000 slátur.
„Þetta eru feikilega góð matar-
kaup og þegar fólk sér hversu
mikinn mat það fær fyrir pening-
ana sína, þá finnst því engin spum-
ing um hvort taka eigi slátur. Fólk
á öllum aldri virðist taka slátur
nú á tímum og mjög algengt er
að Qölskyldur sameinist um slátur-
gerðina,“ sagði Óli.
Óli telur að næsta „sláturár"
verði mun betra en það sem nýlið-
ið er, en árin eru gerð upp frá
september til september. „Síðasta
ár var mjög slæmt og held ég að
ekkert sláturhús hafí komið út
öðruvísi en með tapi. Það náðist
að minnsta kosti hærri slátur-
kostnaður í ár en í fyrra og er
hann nú meira í takt við það sem
hann þarf að vera. Aðalvandamál
sláturhúsanna tel ég hinsvegar
vera hversu lág afurðalánin eru í
raun og veru. Við þurfum að greiða
bændum 70% afurðaverðsins út
eftir sláturtíð og þau 30% sem eft-
ir em í desember. Þau þijú slátur-
hús, sem KEA rekur, era saman-
lagt með um 1.100 tonn af kjöti
sem þýðir að húsin þurfa að snara
út um 300 milljónum kr. svo til í
einu. Af þessu lánar ríkið í formi
afurðalána 58%. Þetta skapar
mikla erfíðleika fyrir kaupfélögin,
á þeim tíma þegar ekki er búið að
selja nema brot af framleiðslunni,“
sagði Óli að lokum.
Mórgunblaðið/Rúnar Antonsson
Arekstur í Hafharstræti
Nokkrar skemmdir urðu á bUum við aftanákeyrslu í Hafnarstræti um kl. 14.00 í gær. TUdrög
óhappsins urðu þau að bU var ekið suður Hafiiarstræti og ók hann á bU, sem var á undan og ætlaði
að beygja inn á stæði vinstra megin við götuna, að sögn lögreglunnar á Ákureyri. Engin meiðsl urðu
á ökumönnum, sem voru einir í bílum sínum.
Fjórðungssjúkrahús Akureyrar:
80-90 millj. kr. vantar til
að fiillbúa nýja röntgendeild
HaUdór Jónsson forstjóri Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar ger-
ir ráð fyrir að hægt verði að taka nýja röntgendeild FSA í notk-
un fúllbúna á miðju næsta ári. „Ég hef ekki ástæðu til að ætla
annað en að sú áætlun standist þó ég viti ekki nákvæma fiárveit-
ingu á næsta ári.“
Til að fullbúa deildina vantar
milli 80 og 90 milljónir króna. Þar
af nema tækjakaup rúmum 60 millj-
Ferðakaupstefna
Hótel KEA - miðvikud. 2. nóv. 1988
í tilefni af ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs, sem haldin verður á Hótel KEA
dagana 3. og 4. nóv. nk., munu Ferðamálasamtök Norðurlands gangast fyrir
ferðakaupstefnu á Hótel KEA miðvikudaginn 2. nóv., 1988 frá kl. 10-17.
Tilgangur kaupstefnunnar er að gefa þeim aðilum sem bjóða uppá ferðir, gist-
ingu eða aðra þá þætti sem þeir vilja koma á framfæri, tækifæri til að kynna
sínar vörur fyrir fulltrúum ferðaskrifstofa, sem þá gætu fellt þessa þætti inn í
sínar dagskrár.
Sérstaklega eru þeir aðilar, sem ekki hafa hrint í framkvæmd góðum hugmynd-
um, hvattir til að koma og kynna sínar hugmyndir.
Þátttökugjald er aðeins kr. 1.000,- fyrir hvern aðila.
Þeir sem hafa áhuga, vinsamlega láti vita í síðasta lagi 28. okt. og afli frekari
upplýsinga hjá:
Guðmundi Sigurðssyni, sími 96-27744
Þorieifi Þór Jónssyni, sími 96-21701.
ónum króna. Halldór gerir ráð fyrir
fjárveitingu ríkisins upp á 20 millj-
ónir króna á næsta ári vegna frá-
gangs húsnæðisins. Á síðasta ári
fékk FSA 16 milljónir kr. til fram-
kvæmdanna á verðlagi í upphafí
þessa árs.
Ríkissjóður hefur heimilað Akur-
eyrarbæ að taka 62 milljóna króna
lán vegna tækjakaupa fyrir nýju
röntgendeildina. Ríkissjóði ber
síðan að greiða 85% hluta þess til
baka. Ekki hefur verið ákveðið hvar
lánið verður tekið, en gert er ráð
fyrir að það endurgreiðist á þremur
áram. Ákureyrarbæ er gert að
greiða allan vaxtakostnað af láninu,
en ríkið kemur til með að greiða
höfuðstól, verðbætur og gengis-
mun. Ætla má að heildarfjárveiting
til nýju deildarinnar á næsta ári
verði um 40 milljónir króna, vegna
húsnæðis og tækjakaupa. Stærsti
liðurinn í tækjakaupunum verður
tölvusneiðmyndatæki, sem áætlað
er að kosti 20-25 milljónir króna.
Ríkissjóður greiðir 85% af stofn-
kostnaði við sjúkrahúsið og 15%
lenda á Akureyarbæ.
Útboði á hefðbundnum tækjum
á deildina er lokið og þessa dagana
er verið að ákveða hvaða tilboðum
verður tekið. Síðan á eftir að
ákvarða hvers konar tölvusneið-
myndatæki verður keypt eða hvort
farin verður útboðsleið. Innkaupa-
stofnun ríkisins sér um slík útboð
fyrir hönd sjúkrahússins.
'ííúMííí
HOTEL
KEA
Sunnudagur
Glæsilegt kökuhlaðborð
frákl.15-17
FSA:
Fímmsóttu
um stöðu
yfirlæknis
Fimm læknar hafa sótt um
stöðu yfirlæknis í kvensjúk-
dómum og fæðingarhjálp við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri sem laus er frá og með 1.
febrúar nk.
Þeir era Jón B. Stefánsson sér-
fræðingur á Landspítala, Jónas
Franklín sérfræðingur við FSA,
Ólafur M. Hákansson sérfræðingur
í Linköbing í Svíþjóð, Steingrímur
Bjömsson sérfræðingur við sjúkra-
hús í Glasgow og Vilhjálmur Kr.
Andrésson sérfræðingur hjá
Krabbameinsfélagi íslands í
Reykjavík og við Fæðingarheimili
Reykjavíkur. Umsóknarfrestur
rann út 30. september sl.
Bjami Rafnar hefur sagt starfí
sínu lausu sem yfirlæknir frá og
með 1. febrúar nk. fyrir aldurs sak-
ir, en hann hefur starfað við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri á fjórða
tug ára. Búast má við að nýr yfir-
læknir verði ráðinn í næsta mánuði.