Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 38

Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 fólk í fréttum „Magnús“ kvikmyndaður Nú standa yfír tökur á nýrri íslenskri kvikmynd sem er skrifuð og stjómað af Þráni Bertels- syni. Þetta er sjötta bíómyndin sem Þráinn leikstýrir og sú fímmta sem fyrirtæki hans Nýtt líf framleiðir. Nýtt líf hlaut hæsta styrk sem út- hlutað var úr Kvikmyndasjóði ís- lands við síðustu úthlutun, eða 13 milljónir króna. Kostnaður við myndina nemur um 40 milljónum króna. Með stærstu hlutverkin í mynd- inni fara leikaramir Egill Ólafsson,. Þórhallur Sigurðsson, „Laddi“, Jón Sigurbjömsson, Guðrún Gísladóttir, María Ellingsen, Ámi Pétur Guð- jónsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Jngimar Oddsson, Lilja Þórisdóttir, Randver Þorláksson, Gunnar Eyj- ólfsson o.fl. Kvikmyndatöku annast Ari Kristinsson, hljóðmeistari er Marti- en Qoucke, leikmyndahönnuður er Geir Óttarr, um búninga sér Sigrún Guðmundsdóttir og förðun annast Gréta Boða. Framkvæmdastjóri myndarinnar er Vilhjálmur Ragn- arsson en framleiðandi er Þráinn Bertelsson fyrir Nýtt líf. Kvikmyndin „Magnús" er sam- bland af gamni og alvöru hvers- dagsins og gerist hún í Reykjavík og nágrenni. Aðalpersónan Magnús er lögfræðingur að atvinnu og hestamaður í tómstundum. Hann er á besta aldri þegar hann fær upplýsingar um að hann sé haldinn alvarlegum sjúkdómi, en áður en hann getur snúið sér að því að tak- ast á við veikindi sfn þarf hann að leysa ýmis vandamál sem steðja að honum og öðmm í fjölskyldu hans. Hestar koma mjög við sögu í þessari kvikmynd, enda fer dijúgur hluti af upptökum fram á félags- svæði hestamannafélagsins Fáks í Víðidal Qg svo á Vatnsenda við EIl- iðavatn. Þess má geta að hesturinn Leikararnir Jón Sigurbjörnsson, hesturinn Hrímnir, „Laddi“, Egill Ólafsson, Þórunn Sigurðardóttir og Þórarinn Óskar Þórarinsson fyr- ir töku. Werner Schabfer aðstoðartökumaður og Ari Kristinsson, kvikmynda- tökumaður undirbúa næstu töku. Hrímnir frá Hrafnagili leikur stórt hlutverk í myndinni, ef svo má að orði komast, en hann mun vera einna frægastur íslenskra gæðinga nú um stundir. Kvikmyndin „Magnús“ er 35 mm breiðtjaldsmynd í Dolby Stereo. Upptökur hófust 26. september siðastliðinn og lýkur um miðjan nóvember. Stefnt er að því að mynd- in verði frumsýnd í september á næsta ári. Loredana er ekki feimin við að lýsa ást þeirra á hvort öðru og seg ir hún að bónorðið komi innan skamms. LOREDANA OG BJÖRN BORG „Hér eftir er það Björn sem tekur ákvarðanir“ Menn segja að eitt umtalað- asta ástarsambandið um þessar mundir sé farið að taka á sig varanlega mynd. Loredana, 37 ára ástmey Bjöms Borgs, er loks flutt til hans, til Sviþjóðar. Nýverið sagði hún við sænska blaðamenn að hér eftir væri það Bjöm sem öllu réði um líf henn- ar. Þó liggur i loftinu að á þeim bæ sé það frekar hún en hann sem taki ákvarðanimar. Það er einmitt hún sem básún- að hefur ástríðufullt samband þeirra, en Bjöm situr bara og brosir. Að eigin sögn hefur hún nú eignast manninn sem hana hafði alla tíð dreymt um og litla gullinhærða bamið, ijögurra ára son Bjöms frá fyrra hjónabandi. Og hún segist ætla að elda sjálf ofan í „sinn mann“ og ala „sínum manni" heilan bílfarm af bömum eins og ítalska kvenþjóðin hefur löngum gert. „Bjöm er kærastinn minn og ég mun gera allt til þess að halda í hann. Hann er ástríðufyllri en allir ítalskir karlmenn til samans. Á hveijum degi bíð ég eftir bón- orðinu og seinna ætla ég að eign- ast með honum sæg af bömum. Þetta er i fyrsta skipti sem ég get þakkað Guði fyrir góð við- skipti." Þannig hljóðar ein yfirlýs- ing konunnar sem krækti í Bjöm Borg. I næsta mánuði munu hjúin fara til Kína og þá segir hún að bónorðið hljóti að koma. Ennþá hefur nú Bjöm sjálfur ekki minnst á það við fjölmiðla, og er hann fáorður um þessi mál. Myndir af turtildúfunum segja þó meira en mörg orð, sýnt þykir að ástin blómstrar. En eitt er víst, Loredana er mjög masgjöm kona, sem hefur ekki aðeins kveikt eld í hjarta Bjöms, heldur og öllum samlönd- um hans. Hún er án efa góð aug- lýsing fyrir vömmerki Bjöms og hefur þegar fylgt honum á ýmsar fatasýningar. Samkvæmt heim- ildum er það varla orðum ofaukið að segja að athyglin hafí fremur beinst að Loredönu en fataleppum á sviði. / TINNA EIGNAST STÚLKUBARN „Við fögnum litlu systur“ Tinna Gunnlaugsdóttir, leikkona, sem tilnefnd hefur verið til kvikmyndaverðlauna Evrópu, og Egill Ólafsson leikari eignuðust 12 marka stúlku þann 18, þessa mánaðar. Eitt rigningar- kvöld í vikunni leit „Fólk í fréttum" við hjá mæðgunum á fæðingardeildina. „Það er sterkur Egilssvipur á stúlkunni" segir hin nýbakaða móðir en Egill bætir þá við í spaugi að „ekki vil ég neinni konu það að líkjast mér, svona upp á seinni tíma að gera.“ Segist hann vona að hún muni iílg'ast móður sinni sem mest. Og Tinna Gunnlaugsdóttir hefur í mörgu að snúast á stómm stundum. Eins og alþjóð veit hefur hún fengið tvær tilnefningar til kvik- myndaverðlauna Evrópu fyrir bestan leik í aðal- hlutverki kvenna, í kvikmyndinni „í skugga Hrafnsins" sem frumsýnd verður hér á lándi sunnudaginn 23. október og stuttu síðar á öllum Norðurlöndunum. Eftir rúmlega mánuð verður ljóst hvaða myndir hljóta kvikmyndaverðlaun Evrópu. Tinna mun þá dvelja á kvikmyndahátíðinni í Berlín í tvo daga, og Egill gætir bús og bama á meðan. Og hvemig leggst það í Jfau? „Það eru til dæmi þess að karlmenn geti mjólkað, og ef það hefðu verið þrír dagar sem hún væri fjarverandi, þá hefði ég sjálfsagt farið á horm- ónalyf" segir Egill glettnislega, og Tinna full- yrðir að svo hart þurfi hann ekki að leggja að sér. Það eru annasamir tímar framundan hjá bæði móður og föður en Egill er um þessar mundir að leika f nýrri kvikmjmd eftir Þráinn Bertelsson. En það eru hjálpfúsar hendur á heimilinu. Fyrir eiga þau hjónin 9 og 11 ára snáða. Að sjálfssögðu var um „ást við fyrstu sýn“ að ræða hjá bræðrunum eins og þriggja bama faðirinn orðar það og á korti sem þeir færðu móður sinni stóð skrifað „Við fögnum litlu systur". Morgunblaðið/Þorkell Litla stúlkan var hin sprækasta, en gaf fljótlega til kynna að hún vildi mat sinn og engar reQar, tilnefhingar til kvikmyndaverðlauna var henni vafalftið ekki efst í huga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.