Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 47

Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 47 KORFUKNATTLEIKUR ÍBK með fullt hús Sigurganga Keflvíkinga heldur áfram og í gærkvöldi unnu þeir öruggan sigur á Þórfrá Akur- eyri í Kef lavík og hafa þar með unnið 5 fyrstu leikina. Það eins sem skyggði á sigur Keflvík- inga var að Falur Harðarson meiddist í leiknum og ólíklegt er talið að hann verði með í næstu leikjum. Leikurinn var jafn í upphafi og ÍBK-liðið komst ekkert áleiðis. Þá greip Lee Nober þjálfari til þess ráðs að taka allt byijunarliðið útaf og setja varaliðið Bjöm inná í nokkrar Blöndal mínútur á meðan skrífar hann messaði yfir sínum mönnum. Þegar Nober hafði lokið sér af setti hann byijunarliðið inná að nýju og Keflvíkingar fóru hreint hamförum Magnús Guðfinnsson, Falur Harðarson og Jón Kr. Gísla- son ÍBK. Guðmundur Björns- son og Konráð óskarsson Þor. og breyttu stöðunni úr 12:12 í 25:12. Eftir það var ljóst að hveiju stefndi og sigur heimamanna var aldrei í hættu. Keflvíkingar náðu ágætum köfl- um í leiknum, en duttu niður á milli eins og í síðari háfleik þegar Þórsarar skorðu 10 stig í röð. Tals- verður hraði var í leik liðanna sem iéku þokkalega og oft mátti sjá ágæt tilþrif. IBK-Þór 92 : 78 íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í körfuknattleik, fímmtudaginn 20. októ- ber 1988. Gangur leiksins: 2:0, 12:12, 2B:12, 32:19, 36:21, 40:22, 45:24,49:32,56: 32, 60:38, 60:48, 66:50, 75:61, 82:62, 86:7392:78. Stig IBK: Sigurður Ingimundarson 20, Magnús Guðfínnsson 17, Guðjón Skúlason 17, Albert óskarsson 13, Jón Kr. Gíslason 11, Falur Harðarson 6, Einar Einarsson 5, Egill Viðareson 2, Nökkvi M Jónsson 1. Stig Þórs: Guðmundur Bjömsson 24, Konráð Óskareson 19, Bjöm Sveinsson 16, Jóhann Sigurðsson 6, Eiríkur Sig- urðsson 6, Kristján Rafnsson 4, Stefán Friðleifsson 2, Einar Karlsson 1. Áhorfendur: 300. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Helgi Bragason og dgémdu vel. KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ íslendingar í HM ÍSLAND mun taka þátt i und- ankeppni heimsmeistara- keppninnar í körf uknattleik f fyrsta sinn á næsta ári. Akvörðun þess eðlis var tekin á fundi stjórnar KKÍ en ekki er Ijóst hvar keppnin verður haldin nó hvaða lið taka þátt í keppninni. í þessari keppni leika Evrópuþjóðir um tvö laus sæti i lokakeppninni 1990 í Argentínu. Keppnin fer fram í september en ekki hefur verið ákveðið hvar hún verður haldin. Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út í nóvember en ákvörðun um keppnisstað verður tekin í desem- ber. Það sem vakir fyrir KKÍ er að Pétur Guðmundsson gæti hugsan- lega leikið með liðinu. Á þingi aiþjóða körfuknattleiks sam- bandsins, FIBA, í Finnlandi í apríl verður tekin ákvörðun um hvort leikmönnum í NBA-deildinni verði leyft að leika með landsliðum. Þar sem Austur-Evrópuþjóðir hafa lýst stuðningi við tillöguna þykir líklegt að hún verði samþykkt. Pétur OuAmundsson leikur líklega með íslendingum i HM. Aðrar þjóðir Evrópu hafa þegar ákveðið að styðja tillöguna á þing- inu. Ef svo fer að tillagan verði samþykkt verður Pétur líklega löglegur í september. Þá er keppni í NBA-deildinni ekki hafin og því líklegt að Pétur gæti leikið með íslenska liðinu. Á aðalskrifstofu FIBA í Munc- hen, fengust þær upplýsingar að fimm þjóðir hefðu þegar tilkynnt þátttöku. Bestu þjóðir Evrópu hafa þegar tryggt sér sæti í loka- keppninni, með því að ná í efstu sæti Evrópukeppninnar. Það má því búast við því að andstæðingar Islendinga verði í hópi miðlungs- þjóða í Evrópu á körfuknattleiks- sviðinu og með Pétur Guðmunds- son ætti að vera möguleiki á sæti í lokakeppninni. „Við vonum að Pétur verði með og á því byggist þátttaka okkar að mestu leyti. Við gerum ráð fyrir að þama verði þjóðir á borð við Danmörku, Hoiland og Sviss og þvi ættum við möguieika," sagði Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í samtali við Morgunblaðið. KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ Haukar-IS 119 : 52 íþFÓttahúsið í Hafnarfírði, íslandsmótið í körfuknattleik, fímmtudaginn 20. október 1988. Gangur leiksins: 10:0, 32:9, 41:11, 56:17, 73:35, 90:41, 100:45, 113:60, 119:52. Stig Hauka: ívar Ásgrímsson 24, Jón Amar Ingvareson 19, Ólafur Rafnsson 16, Eyþór Ámason 16, Henning Henn- ing8son 14, Reynir Kristjánsson 12, Pálmar Sigurðsson 9, Hálfdán Markús- son 4, Ingimar Jónsson 3 og Tryggvi Jónsson 2. Stig ÍS: Valdimar Guðlaugsson 23, Páll Amar 16, Ágúst Jóhannesson 5, Þoreteinn Guðmundsson 4, Jón Júlíus- son 3 og Hafþór Óskarsson 2. Dómarar: Jón Bender og Jón Halldóre- son. Dæmdu vel. Áhorfendur: 50. Léttæfíng hjá Haukum Haukar áttu ekki í miklum vandræðum með nýliðana Stúdenta í íslandsmótinu í körfu- knattleik í gær. Haukar sigruðu 119:52 og hefði sig- ur þeirra getað verið mun stærri enda óhætt að segja að fyrir Hauka hafi þessi leikur aðeins verið létt æfing. Stúdentar eru tvímælalaust með slakasta lið úrvalsdeildarinnar og áttu aldrei möguleika gegn Hauk- um. Hörður Magnússon skrifar m Jón Amar Ingvarsson og ívar Ásgrímsson Haukum. Valdi- mar Guðlaugsson ÍS. FJ. lelkja U J T Mörk Stlfl UMFN 6 VALUR 5 UMFG 5 ÞÓR 5 1S 5 5 0 0 453: 356 10 4 0 1 492: 394 8 2 0 3 417:376 4 1 0 4 403:499 2 0 0 5 299: 526 0 Fj.leikja U J T Mörk Stig ÍBK B KR 5 HAUKAR 5 ÍR 5 TINDASTÓLL 5 5 0 0 438:367 10 4 0 1 362:346 8 3 0 2 494:413 6 1 0 4 356: 389 2 0 0 6 448: 496 0 Öruggt hjá KR HITTNIN ífyrri hálfleik f leik KR-inga og Grindvíkinga var einstaklega slök. Grindvíkingar skoruðu aðeins fjögur stig á fyrstu 11 mínútum leiksins og alls nítján stig í hálfleiknum. KR-ingar nýttu sín tækifæri betur, náðu strax forystunni og héldu henni út leikinn. Ekki er hægt að segja að leikur- inn hafi verið fyrir augað eða vel leikinn og geta bæði lið betur en þau sýndu í gærkvöldi. Vamar- leikur KR-inga var þó góður lengst af, einkum í fyrri hálf- leik. Grindvíkingar komust lítið áleiðis gegn sterkri svæðisvöm KR-inga og virkuðu taugaóstyrkir framan af. KR-ingar léku hins vegar oft óagað í sókninni og þess vegna náðu þeir aðeins að skora 30 stig í fyrri hálfleik. I síðari halfleik var hittni beggja Guðmundur Jóhannsson skrifar m Birgir Mikaelsson, Jóhannes Kristmundsson, KR. Guð- mundur Bragason, UMFG. liða mun betri en í þeim fyrri en Grindvíkingum tókst ekki að ógna sigri KR og urðu lokatölumar 74:56. Birgir Mikaelsson átti góðan leik og skoraði mikilvægar körfur í fyrri hálfleik. Jóhannes Kristmundsson átti góðan leik í vöminni og spilaði samheijana oft vel uppi í sókninni. Ólafur Guðmundsson átti góðar rispur en datt niður þess á milli. KR-UMFG 74 : 56 íþróttahús Hagaskóla, íslandsmótið í körfuknattleik, úrvalsdeild, fímmtu- daginn 20. október 1988. Gangur leíksins: 6:0, 14:4, 25:17, 30:19, 39:25, 48:31, 60:40, 63:50, 74:56. Stig KR: Birgir Mikaelsson 19, ólafur Guðmundsson 16, ívar Webster 16, Jóhannes Kristmundsson 10, Lárus Ámason 7, Matthías Einarsson 4, Lár- us Valgeireson 2. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 15, Rúnar Ámason 11, Jon Páll Haraldsson 10, Steinþór Helgason 6, Hjálmar Hallgrímsson 5, Astþór Ingason 5, Eyjólfur Guðlaugsson 2, Sveinbjöm Sigurðsson 2. Áhorfendur: 100. Dómaran Kristinn Albertsson og Leif- ur Garðarason, dæmdu þokkalega. Morgunblaðið/Bjami Blrglr Mlkaelsson átti góðan leik í gær. Hér sést hann skjóta að körfu Grindvlkinga en Guðmundur Bragasón er til vamar. KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ Gunnar til Hácken GUNNAR Gíslason, landsliös- maöur f knattspyrnu hefur skrífað undir samning vift sænska liöið Höcken f Svfþjóö. Hacken leikur f suA- ur-riAli 1. deildar f sænsku knattspyrnunni og hefur lengst af staftift f skugganum af stærri liAum Gautarborgar sem leika f úrvalsdeildinni. Þess má geta að Gunnar er eini landsliftsmafturin f lifti Hacken. Hácken lék í úrvalsdeildinni 1983 en féll þá í 1. deild. Liðið hefur leikið f suður-riðli deildarinnar síðan og verið f efri Qunnar Gfslason. hlutanum. Liðið er nú í 5. sæti en einni umferð er ólokið í Svíþjóð. Gunnar hefur leikið með Moss undanfarin tvö ár og staðið sig vel. Hann var valinn í lið ársins í haust og Moss hafði mikinn áhuga á að halda honum áfram. Gunnar tók hinsvegar ákvörðun um að koma heim og leika með KA næsta sumar en hefur nú skipt um skoðun og sett stefnun á Svíþjóð. Gunnar lék með íslenska lands- liðinu gegn A-Þýskalandi f fyrra- dag og gisti með íslenska liðinu í V-Berlín. í gær hélt hann svo til Gautaborgar og skrifaði undir samning við Hácken. ENGLAND Liverpool kaupir Kenny Dalglish, framkvæmda- stjóri Liverpool á í miklum vandræðum með vamarmenn. Alan Hansen og Gary Gillespie eru meiddir og Jan^ Mölby í fangelsi. Dalglish tók því upp veskið í gær og keypti óþekktan vamarmann, David Burrows, frá W.B.A. fyrir hálfa milljón punda. Burrows, sem verður tvitugur í vikunni, hefur ekki mikla reynslu; hefur aðeins leikið 50 leiki með" W.B.A. FráBob Hennessy iEnglandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.