Morgunblaðið - 21.10.1988, Side 48
SÍMANÚMER g[
606600 Mk
/
Breiðholt:
Sérstakt
hlið á götu
fyrir SVR
„VIÐ ætlum að reyna að selja
upp sérstakt hlið á götu Strætis-
vagna Reykjavíkur miili Flúða-
sels og Hjallasels, þar sem brögð
hafa verið að því að fólk hefur
ekið einkabifreiðum sinum um
götuna,“ sagði Þórarinn Hjalta-
son, verkfræðingur hjá Borgar-
verkfræðingi.
Eftir götu þessari er bönnuð öll
umferð nema strætisvagna. Þórar-
inn sagði að sett yrði upp slá með
sjálfvirkum opnunarbúnaði, til að
tryggja að engar bifreiðir gætu
ekið um götuna nema strætisvagn-
ar. „Við eigum eftir að kanna
hvemig að þessu verður staðið, en
hugsanlegt er að komið verði fyrir
skynjara, svo sláin lyftist einungis
ef stórri bifreið er ekið að henni,“
sagði hann. „Það er töluvert um
að fólk aki þessa götu á einkabif-
reiðum og þar með eykst mjög
slysahætta við bamaheimilin Hálsa-
borg og Hálsakot. Starfsmenn
bamaheimilanna og foreldrar hafa
bent á þessa hættu og því ætlum
við að grípa til þessara ráðstaf-
ana,“ sagði Þórarinn Hjaltason.
Vinna við
Dýraflarð-
arbrú hafín
Núpi, Dýrafírði.
VINNA er nú hafin við hina nýju
brú yfir Dýrafjörð.
Brautin sf., verktaki við Dýra-
fjarðarbrú á Lambadalsodda, bauð
5,9 milljónir eða 77% af kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar í verkið.
Gunnar G. Sigurðsson verkstjóri
upplýsti að unnið yrði við lagningu
vegar að brúarstæðinu sem verður
á oddanum og lagningu fargs á
plan undir brúna. Sjálf brúin verður
100 m löng.
Áætlað er að þessi hluti verksins
taki um 6—7 vikur, þá þarf fargið
að standa í 6 mánuði þar til næsti
áfangi getur hafist.
- Kári
Nafhvextir lækk-
aðir um allt að 4%
FLESTIR viðskiptabankanna lækka nafiivexti í dag, um allt að 4%.
Meginástæða vaxtalækkunarinnar er sú að hækkun lánskjaravísi-
®*tölu er minni en Seðlabankinn spáði. Verðbólga mælist nú aðeins
um 4% miðað við mánaðarhækkun visitölunnar, en hækkun láns-
kjaravísitölu undanfarna þijá mánuði mælir verðbólguhraðann um
10% á ári.
Flestir bankanna höfðu tilkynnt
um lækkun vaxta stuttu fyrir lokun
í Seðlabankanum í gær, en þar
fengust ekki upplýsingar um hvaða
bankar það væm eða hve mikil
lækkunin væri að meðaltali. Lands-
bankinn mun lækka nafnvexti á
nær öllum tegundum inn- og út-
lána um 3% og Útvegsbankinn um
3-4%. Þá hefur Verslunarbankinn
einnig lækkað vexti á öllum lánum.
Vextir lækkuðu síðast þann 11.
október, en þá lækkuðu raunvextir
••teinnig.
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði að
þetta væri mikil lækkun og ákvörð-
un bankans hefði verið tekin í kjöl-
far nýrra útreikninga á lánskjara-
vfsitölu, sem sýndi að verðbólga
væri enn minni en menn hefðu
talið. Það væri nauðsynlegt að
endurmeta vaxtastig í sífellu í sam-
ræmi við verðbólguna og markaðs-
aðstæður, en ekkert væri hins veg-
ar unnið með vaxtalækkun með
handafli.
Jakob Armannsson, aðstoðar-
bankastjóri Útvegsbankans, sagði
að það væri eins víst að vaxta-
breyting yrði aftur eftir 10 daga,
þar sem bankamir væru nú að leita
að réttu jafnvægi á tímum mikilla
sviptinga.
Morgunblaðið/Bjami
Búið að salta í32.000 tunnur
Búið er að salta í 32.000 tunnur af þeim 68.000 tunnum sem seld-
ar hafa verið til Svíþjóðar og Finníands. Mest hefiir verið saltað
á Eskifirði, Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði, að sögn Kristjáns Jó-
hannessonar birgða- og söltunarstjóra síldarútvegsnefiidar.
"Yfír 70
fyrirtæki
gjaldþrota
YFIR 70 fyrirtæki og um 190
einstaklingar hafa verið úr-
skurðaðir gjaldþrota það sem
af er árinu.
Meðal þekktra fyrirtáekja sem
''•firskurðuð hafa verið gjaldþrota
eru Nesco framleiðslufélag hf.,
Kjötbær hf., Ingólfur Óskarsson,
Miðfell hf., Víðir, Pétur Snæland
hf., Goðgá hf., Sjónvarpsbúðin
hf., Skemmtigarðurinn hf., Kjöt-
og matvælavinnsla Jónasar Þórs
hf., Evrópa hf., Ávöxtun hf. og
-íslensk Portúgalska hf.
Minni áfengis-
sala en í fyrra
SALA áfengis er 1,67% minni í
lítrum talið á þessu ári en í
fyrra, en 0,19% ef miðað er við
Fiskmarkaður Suð-
urnesja:
Gott verð
fyrir síld
VíKELD voru 42 tonn af sfld fyrir
9,06 króna meðalverð á Fiskmark-
aði Suðumesja í gær. Hæsta verð
var 9,30 krónur en lægsta 8,50
krónur.
„Þetta er gott verð þar sem verð-
lagsráðsverð er um 8 krónur," sagði
Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri markaðarins, I samtali
við Morgunblaðið. „Þetta er fyrsta
sfldin sem kemur til Grindavíkur á
vertíðinni. Kópur GK veiddi sfldina í
Mjóafirði og Fáskrúðsfirði og hún fer
aðallega í beitu. Nokkrir aðilar
keyptu sfldina og flestir þeirra
keyptu 7 tonn af henni," sagði Ólaf-
ur Þór.
áfengismagn. Þá kaupir fólk
mun meira af ódýrari tegundum
en dýrum. Tekjutap ÁTVR af
þessum sökum nemur tugum
milljóna króna.
Gústaf Níelsson hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins segir að
fyrstu níu mánuði ársins hafi ver-
ið selt áfengi fyrir rúma þrjá millj-
arða króna. Að magni til var salan
2.306.000 lítrar og hafði dregist
saman um 38.000 lítra miðað við
fyrstu níu mánuði fyrra árs.
Hvað breytt neyslumunstur
varðar má nefna að salan á
íslensku brennivíni hefur aukist
um 33,61% en salan á vodka
minnkað um 4% og viský um
3,32%. Það er einnig athyglisvert
að salan á hvítvíni hefur minnkað
um 13,65% en salan á rauðvíni
hefur aukist nokkuð.
Sömu sögu er að segja af tób-
aki. Salan á sígarettum hefur
minnkað um 1,37% á milli fyrr-
greindra tímabila og saian á pípu-
tóbaki hefur minnkað um 11,83%.
Fyrsta álit umboðsmanns Alþingis:
Reglumum aldur leigubílstjóra ábótavant
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur gefið sitt fyrsta álit í máli sem
til hans var leitað með. Um er að ræða kvörtun leigubílstjóra sem
vikið var úr starfi sökum aldurs. Leigubílstjórinn taldi þá ákvörðun
skerðingu á atvinnuréttindum sinum og skaut máli sínu tíl umboðs-
mannsins, Gauks Jörundssonar. Gaukur kemst að þeirri niðurstöðu
að upphafeákvæði 16. gr. reglugerðar nr. 293/1985 um hámarksald-
ur leigubílstjóra eigi sér ekki viðhlítandi lagastoð. Þannig verði því
ekki beitt gagnvart leyfishöfum sem höfðu leyfi við gildistöku fyrr-
greinds ákvæðis en leigubílstjórinn er í þeim hópi.
Forsaga þessa máls er sú að
umsjónamefnd leigubifreiða til-
kynnti leigubflstjóranum í sumar
að hann hefði verið sviptur leyfi
til aksturs leigubfls frá og með 1.
júlí. Ástæðan var sú að hann var
orðinn 75 ára gamall. Hann var
einnig sviptur leyfi til að láta ann-
an mann annast aksturinn. Þessu
til stuðnings vitnaði nefndin í fyrr-
greint reglugerðarákvæði er gildi
tók á þeim tíma.
Umboðsmaður Alþingis aflaði
ýmissa gagna í málinu og ritaði
m.a. bréf til samgönguráðuneytis-
ins þar sem það var beðið um að
skýra viðhorf sitt til kvörtunar
leigubflstjórans og rökstuðning að
upphafsákvæði 16. gr. reglugerð-
arinnar. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Atvinnuleyfin gilda þar til leyfis-
hafar verða 75 ára og skulu þeir
leggja leyfi sín inn fyrir 1. júlt
næsta ár.“ Umboðsmaðurinn vildi
einnig vita hvort leigubflstjórar
geti fengið undanþágu samkvæmt
15. gr. nefndrar reglugerðar ef
ákvæði 16. gr. um aldurshámark
telst á annað borð gilda.
Ráðuneytið svaraði þessari fyrir-
spum umboðsmannsins á þá leið
að mat þess væri að eftir að um-
rætt ákvæði væri komið í gildi
gæti enginn sem orðinn er 75 ára
haft atvinnuleyfi og hvað undan-
þáguna varðar taldi ráðuneytið
slíkt óeðlilegt.
f áliti sínu segir Gaukur m.a.
eftir að hafa rakið lög og reglur
um leigubflaakstur: „Ákvæði í
reglugerðum sem hafa 5 för með
sér takmarkanir eða missi atvinnu-
réttinda verða að eiga sér ótvíræða
stoð í lögum. Verður að gera
stranga kröfu um að slík lagaheim-
ild sé tvímælalaus ef í hlut eiga
afdrifarík ákvæði svo sem um rétt-
indamissi. Lög um leigubifreiðar
hafa frá upphafi geymt fyrst og
fremst ákvæði varðandi heimild til
takmörkunar á fjölda leigubifreiða,
um skyldu til að stunda leiguakstur
ffá stöð og um ráðstöfun leyfa til
leigubifreiðaaksturs. Þar hefur
ekki verið til að dreifa reglum um
það hvaða skilyrðum menn þurfi
að fullnægja til að fá slík leyfi eða
hvaða atvik leiða til brottfalls þess-
ara réttinda."