Morgunblaðið - 23.10.1988, Side 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
Amelia Earhart og
síðasta flug hennar
og loftnetsins, sem hún skildi eftir
í Miami.
Það væri vægt að orði kveðið,
að segja að skipulagning fjarskipt-
anna fyrir flugið var hroðvirknisleg
og kæruleysisleg. Strandgæslunni
varð á í messunni, þegar henni láð-
ist að benda á mótsagnirnar í
áformuðum radíótíðnum Earhart,
svo og að benda á að 7500 kílórið
þeirra kæmu ekki DF-stöð Earhart
að notum. George Putnam var að
reyna að hugsa fyrir öltu þegar
hann fékk sjóherinn til þess að láta
Strandgæslunni í té færanlega HF
DF-stöð, til þess að hafa í landi á
Howland. Það verður að telja
líklegt, að Earhart og Noonan hefðu
líklega fundið eyjuna, ef þau hefðu
haft næga þekkingu á fjarskiptum,
skilið ósamræmið og getað leiðrétt
Það LOKALEGGUR
FLUGSINS
Ferðalagið umhverfis hnöttinn
hafði verið svo að segja viðburða-
laust, ef undanskilið er atvikið sem
henti er þau nálguðust Dakar. Þau
lentu í Lae og brottför þaðan var
ákveðin kl. 1000 f.h. á staðartíma
(OOOO GMT) 2. júlí, þ.e.a.s. 2. júlí
á austurhveli jarðar, en 1. júlí á
vesturhveli.
Minniháttar viðhaldsvinna var
unnin og skipt var um bensíndælu.
Nýja dælan virkaði ekki heldur og
flugvirkjar frá Guinea Airways
gerðu við þá gömlu. Reynsluflug
var farið, flugvélin skoðuð og seint
um kvöldið var hið fyrirfram
ákveðna 80 oktan bensín sett á
geyma hennar og þess sérstaklega
gætt, að blanda því ekki saman við
100 okta-n bensínið, sem áður hefur
verið sagt frá og var í einum geym-
inum.
Noonan varð að fara á fætur
fyrir kl. 06.00 að staðartíma, til
þess að ná alþjóðlega útvarpstíma-
merkinu, en því var útvarpað á
nákvæmlega réttum tíma. Hann
átti að setja klukkur sínar eftir
þessu merki og nota þær sólarhring
seinna, þegar þau nálguðust How-
land.
Þama um kvöldið var gleðskapur
og kveðjuhóf og flugmenn Guinea
Airways flugfélagsins á staðnum,
buðu Earhart og Noonan. Að sjálf-
sögðu sáu flugliðar og starfsmenn
Guinea Airways um það, að gestina
skorti hvorki mat né drykk.
Earhart fór snemma í rúmið, en
Gunea Airways fólkið hafði ekki
hugmynd um að Noonan var alkó-
hólisti. Hann hafði misst starf sitt
hjá Pan American vegna Þessa og
var talinn óhæfur til flugliðastarfa.
Earhart vissi það og þau höfðu
rætt þetta vandamál.Þegar hann
réði sig til þessarar ferðar, hafði
hann lofað henni því, að bragða
ekki áfengi urts þau væru komin
til Oakland. Kannske var hann of
þreyttur, eða honum fannst hann
ætti fyrir þessu eftir langt og erfitt
flug, eða þá að hann áleit „einn
gráan“ ekki saka.
Það varð að bera hann í rúmið
seint og síðar meir og hann svaf
yflr sig um morguninn, fram yfir
tímamerkið. Earhart varð æf því
þau gátu ekki farið án nákvæmrar
tímasetningar. Hún vildi halda
áætlun sinni svo hún kæmi til Oak-
Eflíkaminn færekki
nægjanlegt kalk úr fæðunni,
gengur hann á forða
kalkbankans og aukin
beingisnun á sérstað.
Þeir sem hreyfa sig mikið
virðast nýta kalkið betur og
hafa því meiri beinmassa á
efri árum en þeir sem hreyfa
sig lítið.
Það erkjörið fyrirþá sem
kjósa fituskerta mjólkað
neyta einnig lýsis, sem erríkt
affituleysanlegum
vítamínum.
B-2 vítamín er nauðsynlegt fyrir
augu, húð, negluroghár. Mjólkog
mjólkurvörur eru ein auðugasta
uppspretta B-2 vítamíns í fæðu
okkar fyrir utan innmat.
B vítamín, sem talsvert er af í
mjólk eru nauðsynleg tilþess að
viðhalda heilbrigði taugakerfisins.