Morgunblaðið - 23.10.1988, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
fclk i
fréttum
VEISLA TIL HEIÐURS CARY GRANT
Albert prins, Stefanía prinsessa og Rainer fursti af Mónakó voru
mætt á hátíð á Beverly Hæðum til heiðurs leikaranum Cary Grant.
Frank Sinatra og
Stefanía af Mónakó
sjást hér saman en
fjöldi stórstjarna var
samankominn í veisl-
unni. Söfnuðust 47
milljónir íslenskra
króna í svonefndan
sjóð Grace heitinnar
afMónakó.
i
Krakkamir úr 7. bekk Æfingaskóla Kennaraháskólans ásamt kennurum sínum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
VESTMANNAEYJAR
Skólakrakkar í heimsókn
Stór hópur krakka úr 7. bekk
Æfingaskóla Kennarahá-
skólans var í heimsókn í Vest-
mannaeyjum í vikunni. Krakkam-
ir gistu á heimilum hjá jafnöldrum
sínum og unnu að ákveðnum verk-
efnum meðan að á Eyjadvölinni
stóð.
Tilgangur ferðarinnar var að
kynnast lífí fólks í sjávarplássi,
kynnast störfum þess og fræðast
um sögu byggðarlagsins. Þau
unnu að ákveðnum verkefnum um
náttúruna, bæjarfélagið, félags-
starf unglinga og fleira. Farið var
í hin ýmsu fyrirtæki og rætt við
fólk. Skoðunarferðir voru famar
í fískvinnslustöðvar og byggða-
safn og fískasafn heimsótt.
Krakkamir reyndu að fínna svör
við öllum spumingum sínum um
Eyjamar og lífið þar.
Það er síðan ætlunin að þau
vinni úr gögnum sínum þannig
að þau geri samanburð á lífinu í
Eyjum og sinni heimabyggð. Þau
reyni að átta sig á og meta kost-
ina og gallana sem fylgja því að
búa í Reykjavík.
Blaðamaður ræddi við kennara
þá sem með hópnum voru, þau
Lilju M. Jónsdóttur og Pál Olafs-
son. Þau sögðu að ferðin hefði
tekist mjög vel og hefðu allir
krakkamir, 48, staðið sig með
prýði. Þau sögðu að það væri
nýjung í skólastarfínu að taka sér
á hendur námsferð sem þessa, en
þau væm viss um að þetta skilaði
sér vel.
„Krakkamir hafa fengið að
kynnast svo mörgu nýju hér.
Ferðin með Heijólfí sýnir þeim
hvaða samgönguaðstöðu fólk hér
býr við. Veðrið hefur sýnt sig í
miklum ham og það er svo margt
sem þau hafa séð sem þau þekktu
lítið til áður,“ sagði Lilja.
Þau sögðu að móttökumar
hefðu verið frábærar og kennar-
amir í Hamarsskólanum sem og
allir aðrir hefðu verið boðnir og
búnir að hjálpa þeim. Vildu þau
koma á framfæri sérstökum þökk-
um fyrir alla hjálpina.
„Krakkamir voru búnir að hafa
miklar áhyggjur af því hvemig
það yrði þegar þau kæmu til Eyja.
Óll áttu þau að fara inn á heimili
og óttuðust þau að það yrði svo
vandræðalegt þegar að því kæmi.
Þegar við komum með Heijólfi
biðu Eyjakrakkamir, sem tóku á
móti þeim, á bryggjunni og héldu
öll á spjöldum með nafni þess er
gista átti hjá hveijum. Maður
hafði sfðan varla snúið sér við á
bryggjunni þegar að allur hópur-
inn var horfinn inn í bflana sem
á biyggjunni biðu, svo að ekki
hefur nú vandræðagangurinn ver-
ið mikill. En svona hefur þetta
allt gengið vel fyrir sig,“ sagði
Páll að lokum.
Þess má geta að 7. bekkur
Hamarsskólans í Eyjum ætlar að
endurgjalda heimsókn þessa síðar
í vetur og gista hjá krökkunum
sem sóttu þau heim nú. G.G.