Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBÉR 1988
C 3
En þegar ég spurði þá piltana í
MR hvort menn ræddu kannski ljóð
og bókmenntir á göngunum varð
lítið um svör en mikið um hlátur.
Töldu þeir þó skólann eiga mörg
ágætis ljóðaskáld.
Bókmenntir.í tímum,
nesti í frímínútum
Stúlkurnar í Hagaskóla kunnu
góð skil á nýjustu erlendu bók-
menntunum, en í MS var lítill al-
mennur bókmenntaáhugi að sögn
nemenda, sem aftur á móti voru
mjög stoltir af félagslífi sínu.
í Versló og Menntaskólanum á
Isafirði var sama sagan, enginn
sérstakur áhugi, bara einstaka
fígúrur sem lægju yfir þessu. Þau
fyrir vestan sögðust þó halda mikla
menningarhátíð á hvetju vori.
En í MH er bókmenntaáhuginn
það mikill að sögn Þorvaldar í 3.
bekk, að menn koma óspart með
tilvitnanir í tímum. Nefndi hann
m.a. Halldór Laxness og Sjón sem
vinsæla höfunda. Auk þess væri
mjög öflugt tónlistarlíf í skólanum
og væri nú svo komið að hann hlust-
aði sjálfur á klassíska músík.
En það var fróðlegt að heyra,
að hinir menningarlega sinnuðu
MH-ingar létu sig ekki muna um
að koma með nestispakkann í skól-
ann, og mun það vera nýtt í sögu
vorri síðari tíma. Sagði Þorvaldur
þetta vera af hreinum sparnaðar-
ástæðum, bæði þyrfi hann að borga
Euro-kortið sitt frá því í sumarleyf-
inu, og svo væri ekki fært að láta
foreldra ausa út vasapeningum í
þeirri dýrtíð sem hér væri ríkjandi.
Ekki laust við að manni hlýnaði
um hjartarætur.
Hagnýtt nám á undanhaldi?
Islenskir stjórnmálamenn eiga
ekki upp á pallborðið hjá unglingun-
um. Helst gátu þau sætt sig við
Davíð Oddsson, „því hann lætur
ekki þessar konur stjóma sér“ eins
og þeir sögðu strákamir í Haga-
skóla, en það hnussaði þó í dreif-
býlisfólkinu í MS þegar minnst var
á borgarstjórann og þeim fyrir vest-
an hreinlega hitnaði í hamsi.
Sögðu þau það fjári hart, að ekki
mætti Davíð setja flugu í glas án
þess að það kæmi í öllum íjjölmiðl-
um, en svo væru þau að byggja
stjómsýsluhús og sjúkrahús á
ísafirði en enginn hefði áhuga fyrir
þvf.
En eftir nokkrar umræður kom-
ust þau þó að þeirri niðurstöðu að
það væri nú ekki amalegt fyrir
bæjarfélagið að eiga svona eins og
einn tíunda part af Davíð, því hann
efldi samkennd fólksins í bænum.
Það virðist ekki mikill hiti í ungl-
ingum þegar pólitík er annars veg-
ar, nema kannski þegar landsmálin
ber á góma, en aftur á móti er
mikill áhugi fyrir stjórnmálafræði.
Lögfræði, viðskiptafræði og hag-
fræði eru enn vinsæl fög, en eitt-
hvað virðast þau vera orðin leið á
þessu „hagnýta námi“ fyrir vestan,
því þar eru æ fleiri famir að halla
sér að félagsvísindum.
Ekki er laust við að hræringa
gæti í þá átt fyrir sunnan líka, því
Þorvaldur í MH sagðist gjaman
vilja verða kennari og Magnús vinur
hans í 3. bekk MS spurði hvort
hann hefði nú enn einu sinni dottið
á hausinn?
En Þorvaldur sagði að peningar
skiptu ekki máli á Islandi, það væri
allt á hausnum hvort eð væri og
hann gæti ekki séð hvernig ungt
fólk ætti að fara að því að eignast
fasteignir í framtíðinni, því ekki
væru húsnæðismálin hátt skrifuð
hjá valdamönnum.
Ástin biómstrar
Unga fólkið í Reykjavík er nú
ekkert á þeim buxunum að festa
ráð sitt of snemma. Æskilegasti
aldurinn til að hefja búskap að
þeirra mati er frá 25 ára aldri, því
þá ættu þau að hafa lokið námi að
mestu. En það er allt í þessu fína
Blóm fyrir
dömuna
Yngissveinarnir úr
MR þeir Kolbeinn og
Stefán völdu blómin
að kostgæfni, sögðu
það mjög áríðandi
að vel tækist til.
að vera á föstu og jafnvel bara
betra á þessum síðustu og verstu
tímum þótt þeir vinimir í MR, Stef-
án og Kolbeinn, segðu að það væri
nú ósköp þreytandi að horfa upp á
fólk kyssast með stírumar í augun-
um eldsnemma á morgnana á
göngum skólans.
En ástin og rómantíkin blómstrar
á Vestfjörðum og þar settu þau
lágmarksaldurinn neðar. Töldu 20
til 25 ára aldurinn heppilegan til
að hefja búskap og sögðu að lang-
flestar stelpumar væm á föstu og
tækju þá yfirleitt upp fyrir sig.
Þeim fannst það ágætis hugmynd
að hvfla sig á námi eftir stúdents-
próf og settu það ekkert fyrir sig
að halda áfram síðar þótt barn
væri komið í spilið. Þau sögðu að
bameignir væm mikið í tísku á
Isafírði og hefði nánast orðið
„sprenging" síðasta árið.
Og Vigdís sagði að hér hefðu
orðið breytingar á, því fyrir nokkr-
- Stærsti gólfdúkaframleiðandi
Evrópu. Vestur-þýsk gæðavara.
A
Jj H U
i j V W
r* p 1
- Hollenskar teppaflisar með
ótrúlega mðguleika i
sérframleiðslu
Brintons
carpets
- Einn elsti framleiðandi Wilton
og Axminster teppa í Englandi
mipolom]
- Gegnheill vinyldúkur frá virtasta
framleiðanda Vestur-Þýskalands
- Lím og fylgiefni frá
Vestur-Þýskalandi
norcxment
[7\
freudenberg
_____i
- Takkaðir gúmmldúkar frá
V-Þýskalandi. Stærstir og
fjölbreyttasta úrvalið
HflRO
Die Parkett-Marke®
- Vestur-þýskt gæðaparket
GRESPANIA
- Fallegar heimilisflísar frá Spáni
ege
- Stærsti teppaframleiðandi
Danmerkur, 50 ára og enn síungir
VORWERK
- Einn stærsti teppaframleiðandi
Vestur-Þýskalands.
Frumlegustu teppamynstrin á
markaðnum.
- Skítgleypimottur (Coral) frá
Hollandi
- Náttúru- og vinylkorkur frá
Portúgal
ÆKk
MILUKEN
-Stærsti teppaflísaframleiðandi í
heimi
- Stök teppi úr ull með
tískumynstrum frá Hollandi
Stærsti teppaframleiðandi
Evrópu.
AltroNordic
- Öryggisdúkar frá Svlþjóð
V*EDESTEIN=)
- Hollenskar gúmmímottur og
gúmmídreglar
^nThJoJKBVUnÚk
- Vestur-þýskar gæðaflísar.
OSTACARPETS
- Sérhæfður framleiðandi stakra
teppa í Belgíu
- Stök teppi í sígildum mynstrum
frá Belgíu.
LA SAH
GIORGiO
- Steyptar marmaraflögur
(terrazzo) frá Ítalíu
Hjá okkur færðu allt á gólfið á einum stað.
Teppaland
FAST
LAND
UNDIR
FÓTUM
Nú eru liðin 20 ár frá
opnun Teppalands. •
Á þessum tíma höfum við
selt yfir 3,2 milljónir fer-
metra af góifefnum, sem
segir sína sögu um vin-
sældir Teppalands. • Þetta
hefur einnig verið staðfest í
nýlegri skoðanakönnun
Hagvangs, þar sem 51%
aðspurðra sögðust myndu
leita fyrst til Teppalands ef
kaupa ætti gólfefni. •
Næstu verslanir voru með
10,8% og minna.
Teppaland er nú alhliða
verslun með allt á gólfið á
einum stað. • í Teppalandi
færðu gólfteppin, teppaflís-
arnar, motturnar og dregl-
ana. • í Dúkalandi færðu
gólfdúkinn, parketið og flí-
sarnar auk úrvals fylgihluta.
• Styrkur okkar liggur í inn-
flutningi frá þekktum og virt-
um framleiðendum gólfefna
um allan heim.
• Teppaland-Dúkaland er í
dag umfangsmesta gólf-
efnaverslun landsins, með
reynslu og þekkingu sem
kemur þér til góða.
LÍTTU VIÐ EÐA HAFÐU
SAMBAND.
\