Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 10

Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 10
10 c MORGUNBLAÐŒ) MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Verð frá kr. 34.087. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16- Sími 69 16 00 Husqvarna eldavélar ENDAST OGENDAST SÁLARFRÆÐI///‘uwr) er sálarfrœbi? Til skilnings á innra lífi mannsins Fyrirhugað er að á þessum vetri birtist hér í blaðinu undir þess- an fyrirsögn smápistlar um sál- fræðileg efni, líklega einu sinni til tvisvar í mánuði hverjum. Hef ég verið beðinn að annast þessa pist- lagerð. Finnst mér rétt að fara í upp- hafi fáeinum orð- um um ráðgerða tilhögun þessa efnjs. Ég hyggst taka efnið fremur effirSigurjón Björnsson frjálsum tökum, enda þótt sálfræði- leg slagsíða verði nokkur að líkind- um. Algengasta skilgreining sálar- fræði er á þá lund að hún sé sú fræðigrein sem setur fram tilgátur og kenningar byggðar á vísindaleg- um rannsóknum um atferli lífvera. Við þessa rúmu skilgreiningu er fátt að athuga, annað en það að skiptar skoðanir kunna að vera á því hvað teljast vísindi eða vísinda- legt. Út í þá sálma fer ég ekki. Sá þáttur sálarfræði sem fjallar um skilning á innra lífi manns (en af því stjórnast efalaust atferli hans að verulegu leyti) og mannlífi verð- ur viðfangsefnið hér. Sá skilningur stuðlar að því að gera líf manna farsælla og samskipti manna giftu- samlegri. En sálarfræðin ein dugar þó ekki til að glæða þennan skiln- ing. Til þess þarf margvíslega aðra þekkingu, t.a.m. félagsfræðilega, bókmenntalega, líffræðilega, hag- fræðilega og siðfræðilega, ásamt ýmsu fleiru, ekki síst langri og góðri reynslu sem menn hafa dreg- ið lærdóma af. Ég er að sjálfsögðu ekkert betur að mér í þessum efnum en allur þorri manna og verr en margir, sem láta þó fjölmiðla í friði. Má því búast við að margt af því sem úr penna kann að hijóta verði af vanefnum gert. En reyna má að viðhafa gætni og láta sér nægja hugleiðingar, tilgátur og hóflegar ábendingar. Einatt má varpa fram spumingum til yfirvegunar fyrir lesendur og til að hvetja þá til skoð- unar á tilteknu efni. Réttlæting þessara skrifa er helst sú að það ætti að vera fremur hollt en óhollt að leitast við að öðlast eilítið dýpri skilning á framvindu mannlífs og ýmsum mannlífsvanda. Öll þurfum við á því að halda að huga að þeim málum öðru hveiju. Ég vil gjaman njóta stuðnings frá væntanlegum lesendum. Þætt- irnir em að vísu ekki hugsaðir sem svör við bréfum lesenda, en engu að síður er kærkomið að fá línu frá lesendum (stílaða á Morgunblaðið) með athugasemdum þeirra og að- finnslum, ábendingum, hugmynd- um og tillögum um efni sem þeir kjósa að fá reifað. Allt slíkt verður skoðað vandlega og tekið til um- fjöllunar, ef tök verða á. HAGFRÆÐI/Tekst okkur pab sem Rómverjum mistókst? Okkar jólastjörnur eru á sama veröi ogí fyrra Handstyring: Gömul reynsla og ný Kúvending nýrrar ríkisstjómar í efnahagsmálum markar án efa helstu tíðindin á vettvangi efna- hagsmála á þessu hausti. Með því að sýnt þótti að lögmál efna- hagslífsins virk- uðu ekki eða að of tímafrekt væri að bíða þess að þau hrifu var ákveðið að skipta yfir í handstýringu „af fullri hörku á öll- um þáttum". Flest úrræðanna em gamíir kunn- ingjar, stjóm á verðlagi og vöxtum, hækkun skatta til að greiða niður verðbólgu og reka atvinnufyrirtæk- in með erlendu lánsfé. Aldursfor- seti þingsins þuklar peningana áður en þeir em greiddir út til að tryggja að þeir fari í hendur réttra aðila. Það á að hafa þetta svipað og var hjá Eysteini forðum tíð á velmektar- dögum verðlagseftirlitsins og skömmtunarskrifstofunnar. Því hefur verið haldið að fólki, að ekki tjói að bjóða upp á nútíma- lega vestræna stjómarháttu í efna- hagsmálum sökum þess að hér standi fmmstætt veiðimannaþjóð- félag. Á slíku geirfuglaskeri verði engum hagvísindum komið við nema til bölvunar. Þessum rök- semdum er ætlað að réttlæta til- raunina sem nú fer fram á þjóðarbú- inu. Meinið er að þetta hefur allt verið reynt oft áður og mistekist jafnoft. Nefna má ýmis tiltöluleg nýleg dæmi, en eitt hið eftirminni- legasta er frá Rómaveldi hinu foma. Þar stóð tilraunin nógu lengi til að álykta megi almennt um afleiðingar þeirrar stefnu sem fylgt er í æfing- iim af þessu tagi. Og dæmið frá dögum Rómveija hefur gildi fyrir nútímann vegna þess að jafnvel þótt íslenskt þjóðarbú beygði sig ekki undir sömu lögmál og hag- kerfí nágrannaþjóða nútímans verð- ur samt að ætla að það sé ekki frumstæðara en efnahagslíf forn- þjóða ýmissa sem til eru góðar heimildir um. íslendingar eiga þess kost að kynnast sögu Rómaveldis af önd- vegisverki sagnfræðingsins Wills Durants í rómaðri þýðingu Jónasar Kristjánssonar prófessors. Þar segir m.a. frá því að árið 282 valdi her- inn sem landsföður Díócles nokk- urn, sem síðan kallaði sig Díóclet- íanus. Hann tók upp nýja stjórnar- háttu og leitaðist við að ráða bót á efnahagshnignun ríkisins. Árið 301 gáfu Díócletíanus og meðstjórnendur hans út tiiskipun um verðlag þar sem tiltekið var hæsta lögleyft verð eða laun fyrir allar helstu vörur og þjónustu í ríkinu. Gefum Durant orðið: „Til- skipun þessi var allt til vorra tíma frægasta tilraun sem gerð hefur verið til að setja stjórnboðin ákvæði í staðinn fyrir lögmál efnahagslífs- ins. Tilraunin mistókst fljótt og full- komlega. Kaupmenn földu vörur sínar, skortur varð meiri en nokkru sinni fyrr, Díócletíanus var sjálfur sakaður um að stuðla að hækkandi verðlagi, og slaka varð á tilskipun- inni til að örva aftur framleiðslu og dreifingu. Að lokum var hún númin úr gildi af Constantínusi mikla.“ í haust hefur borið á mikilli hug- kvæmni ráðamanna í skattamálum og hefur fjölmörgum hugmyndum um nýja skatta og álögur verið veif- að. Söguhetja vor var líka skatta- glöð í meira lagi. Durant segir svo frá: „Allir skattgreiðendur reyndu að komast undan gjöldunum, og því setti ríkið á fót sérstaka skattalög- reglu til að rannsaka eignir og tekj- ur hvers manns. Eiginkonur, börn og þrælar voru pyntuð til að fá þau til að ljóstra upp um fólgna fémuni eða tekjur heimilisins, og þungum refsingum var beitt fyrir öll undan- brögð. Síðast á þriðju öld, og þó enn fremur á fjórðu öldinni, varð flóttinn undan sköttum eins og far- sótt í Rómaveldi. Efnamennm fólu eigur sínar, hefðarmenn skiptu um stétt og gerðust humiliores til að losna við kjör til sveitarstjórnar, iðnaðarmenn yfirgáfu iðnir sínar, óðalsbændur stukku frá skattþrúg- uðum búum og gerðust daglauna- menn, mörg þorp og jafnvel stærri borgir (t.d. Tíberías í Palestínu) lögðust í eyði vegna skattpíningar. Að lokum kom þar á fjórðu öldinni að þúsundir borgara flýðu út yfir landamærin og leituðu hælis meðal óþjóða.“ Vitaskuld ber að hafa fyrirvara á samlíkingu milli Rómaveldis á fjórðu öld og íslands á tuttugustu öld en stefna stjórnvalda fellur í áþekkan farveg. ísland veturinn 1988-’89 mun bætast í safn reynsl- unnar að þessu leyti rétt eins og Rómaveldi á fjórðu öld. Skuggahliðar tilraunarinnar munu birtast á vordögum þegar lagabókstafur og tilskipanir falla úr gildi og flóðalda verðhækkana skellur yfir samfara skattahækkun- um. Kannski er stjórnvöldum hugg- un í því að lega landsins leyfir ekki að Islendingar fari að dæmi Róm- veija og flýi út yfir landamærin til að „leita hælis meðal óþjóða". eftir Ólaf ísleifsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.