Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 14

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 14
14 C Skrifa um mig! Ertu bara frá þér!“ Framangreind viðbrögð voru þau fyrstu, er ég færði í mál við Pamelu Brement þá hug- mynd mína að ég fylgdist með henni á meðan á stuttri heimsókn hennar hingað stóð nú fyrir skömmu. Þeir eru ugglaust ófáir sem minnast hjónanna Pamelu og Marshall Brement, en Marshall var sendiherra Bandaríkjanna hér á landi á árunum 1982 til 1985. Þau hjónin eignuðust fjölda vina hér og hafa þau rækt þann vinskap vel eftir að þau fóru héðan. Það vakti kannski athygli sumra að vinskapur þeirra náði inn í raðir flestra þjóð- félagshópa, og skiptu stjórnmála- skoðanir þá engu máli. Jafnframt skáru þau sig nokkuð úr hvað það, varðar að fjöldi vina þeirra heyrir til listamönnum, svo sem leikurum, tónlistarmönnum, rithöfundum og myndlistarmönnum. Eftir- því sem ég kemst næst, mun ýmsum ráða- mönnum, ekki hvað síst banda- rískum, hafa þótt nóg um, hversu marga vini og nána þau hjón áttu og eiga að sjálfsögðu enn úr vinstri „intelligensíunni" hér. En í þessu sem öðru voru þau hjón samkvæm sjálfum sér og létu engan hlutast til um eða ráða vinavali sínu. Pamela með pálmann í höndunum Því er þetta riíjað upp nú þremur árum eftir að Marshall og Pamela kvöddu Laufásveginn og ísland með söknuði, að Pamela kom hingað nýverið þeirra erinda að ferðast með íshestum Fjailabaksleið syðri, til þess að skrifa grein um slíka ferð fyrir bandarísk ferðatímarit. Hún hafði tekið af mér loforð á sl. ári að ef af yrði, þá ferðaðist ég með henni. Því er nú þannig varið að í notalegum félagsskap vestur á Rhode Island, þar sem þau hjón búa, virðist það ekki mikið mál að gefa slíkt loforð, en þegar að efnd- unum kemur, fyrir lítt vana hesta- konu, þá horfír málið svolítið öðru vísi við. Hvað um það, við loforðið var staðið — og eftirsjáin varð eng- in. Með Pamelu kom Virginia, vin- kona hennar frá Newport, Rhode Island, þar sem þau búa nú. Hún hafði samskonar reynslu að baki, hvað varðar reiðmennsku og undir- rituð — hafði oft farið á bak sem bam. Pamela stóð því með pálmann í höndunum í upphafí ferðarinnar, hafði bæði riðið Kjöl árið 1985 og styttri ferðir um Grafninginn, Þing- vallasveit og víðar. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 ISLENSKUR \TKINGUR OG BANDARÍSKT GLÆSIKV'ENDI Hrólfur, gæðingur- inn Ijúfi, heillaði Pamelu. Samband þeirra Jóns fararstjóra og j Pamelu blómstraði mjög í kjölfar þess að hann afsalaði sér Hrólfi í hendur Pamelu, enda er stolt hennar augljóst þar sem hún situr hann. Á stundum var gott að hvíla lúin bein eins og sést hér að ofari. Texti og myndir: AGNES BRAGADÓTTIR „ Jæja stelpur, nú kemur það á daginn í dag, hvort þetta er upphafið að endalokum okkar!“ Óvissan er í því fólgin hvort við lifum heilan dag af á hestbaki, og konan sem á þessi fyrstu orð er lítil, grannvaxin, fínleg kona, með Ijóst hár og stöðugan brosglampa í augum, sem á hennar glettnustu stundum getur breyst í lítinn brospúka. Það sætir reyndar furðu að brosglampinn sé stöðugur í augum hennar, því líf hennar í liðlega hálfa öld hefur ekki verið eintómur dans á rósum. Hún er bandarísk, en fæddist á Filippseyjum og meðal þess sem hún upplifði í bernsku, var að lenda í fangabúðum Japana þar. Þegar hún bjó hér á landi um nokkurra ára skeið veiktist hún af krabbameini. Sjúkdómur hennar var það alvarlegur, að um hríð var henni ekki hugaður bati. Hún og eiginmaður hennar segja að íslenskir læknar hafi bjargað lífí hennar og skal það ekki dregið í efa hér. Þakklæti þeirra til íslenskra lækna og þá einkum til þeirra Sigurðar S. Magnússonar heitins, Hafsteins Sæmundssonar og Auðóifs Guðnasonar er ómælt, en hún lagðist undir hnífínn hjá þessum þremur læknum: fyrst hjá Sigurði, þá hjá Hafsteini og loks hjá Auðólfí. Það að hún náði bata hér, er ugglaust ein ástæða þess að þau hjón hafa bundist órofa tryggðaböndum við ísland, íslensku þjóðina, sögu okkar og menningu. Konan er Pamela Brement, öðru nafni Pamela Sanders, sem er rithöfundarnafn hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.