Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 21

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 C 21 Bókmenntir og listir bækur Siglaugur Brynleifsson Walter Jens: Feldziige eines Republikaniers. Ein Lesebuch. Herausgegeben von Gert Ueding und Peter Weit. Deutscher Taschenbuch Verlag 1988. Arnold Hauser: Kunst und Gesellschaft. Deutscher Tasch- enbuch Verlag 1988. Walter Jens fæddist í Hamborg 1923. Hann stundaði nám í klassík og germönskum fræðum í Hamborg og Freiburg, hefur starfað sem prófessor og gestaprófessor við þýska og erlenda háskóla og eftir hann liggur fjöldi rita. Gert Ueding og Peter Weiss hafa valið í þessa sýnisbók úr ritverkum Walters Jens. Það hefur verið vandaverk, því að hann hefur skrifað skáldsögur, leik- rit, fræðirit um bókmenntir og guð- fræði, ritgerðir, prédikanir, gagn- rýni og flutt fjölda fyrirlestra og auk þess skrifað mjög minnisstæðar mannlýsingar. Rit Walters Jens spegla menningarástand og andleg viðhorf í Þýska sambandslýðveldinu á þessari öld. Hann er snjall ræðu- maður og sem fyrirlesari er hann einstakur, eins og Gert Ueding lýs- ir ágætlega í formála að sýnis- bókinni. Walter Jens hefur skrifað margt um gríska og rómverska klassík og endursagt Hómerskviður og gefíð út. Prófritgerðir hans fjalla um Sófókles og Tacitus. Útgefendur hafa valið úr þessu 'fjölbreytta ritsafni, m.a. með hlið- sjón af höfundareinkennum Walters Jens, sem er fyrst og síðast andríki, bókmenntaþekking og málsnilld. Dtv. útgáfan gefur gefur bókina út í tilefni af 65 ára afmæli höfundar, sem var 8. marz sl. Arnold Hauser fæddist í Ung- vetjalandi 1892, starfaði í Vínar- borg en hvarf þaðan örlagaárið 1938 til Englands, þar sem hann kenndi við háskólann í Leeds til 1957. Hann lést í Budapest 1978. Helstu rit hans eru: „Sozialgesc- hicht de Kunst und Literatur" I-II — 1953. Ensk útgáfa 1951 „The Social History of Art“ I-II. „Der Ursprung de modernen Kunst u. Literatur" 1973 og „Soziologie der Kunst“ 1974. í þessu bindi eru birt- ir fyrstu fimm kapítular þess rits. Arnold Hauser er meðal kunn- ustu listfræðinga, hann á mikinn þátt að þeim félagsfræðilegu við- horfum til lista og bókmennta sem hófst með kenningum Marx og Engels um þessi efni og skoðanir hans eru útfærðar og mettaðar marxískri söguskoðun. Þessar kenninga Hausers um Iistir og bók- menntir eru því takmarkaðar við kenningakerfi og hugmyndafræði en listskilningur hans er skyldari skilningi Lukacs og Frankfurt- skólans en marxískra forvera þeirra. Hauser er ágætur höfundur, framsetning hans er skýr og læsileg og hugmyndaauðgi hans einstök. Félagsleg viðhorf hans til lista og bókmennta skýra eitt og annað í sögu þessara greina, en þegar fé- lagslegar forsendur skortir til út- skýringa þá reynist hann minna bundinn hugmyndafræðum marx- ista og leitar skýringa í einstakl- ingsbundnum viðhorfum höfunda og listamanna. Það er frávikið frá kórréttri kenningu, sem forðar rit- um Hausers frá freðinni kenninga- festu og glæðir þau raunsæi. arr symr nyja haustúrvaliö frá tveimur af heimsins þekktustu framleiöendum gœðateppa úr ull. Þú fœrð ekki teppi í þessum gœöaflokki hvar sem er. Þessi teppi eiga heima á hlýlegustu stööum heimilisins og sóma sér vel með öörum náttúrulegum efnum eins og leðri og kjörviöum. (Og eiga ekki síöur fagurlega viö glansandi króm og Memphis-stíl.) Þú finnur teppi sem fullnœgja þörfum þínum í nýjum sýningarsal okkar aö Höfðabakka 3. Mýkt, þéttleiki og stíll einkenna náttúrulegu ull- arteppin. Eins og rétti ramminn gefur málverki líf undir- strikar rétta teppið húsgögnin sem þú lœtur þér líöa vel í. (Það er ótrúlegt hve vel valið teppi prýöir húsgögnin.) Veldu þérteppi sem hœfir því herbergi sem þú hefur í huga. Nýrstíllfrá Sanderson byggiráformum úrsjálfri náttúrunni og gœðin eru siík aö fjaðurmagnaðar ullartrefjarnar halda eiginleikum sínum árum saman. Georgian Carpets BERBER, DESTINY, GEORGIAN SUEDE, HEATHER, MANOR, MAJRBLE, SAXONY, SUPREME, TWIST, VELVET. Nýir litir einkenna teppin frá Georgian Carpets í ár og svo mjúk eru þau að þú verður að ganga á þeim til aö átta þig á því. Auðvitað þarfnast teppi í þessum gœöaflokki vand- aörar lagningar. Viö reið- um okkur á sömu fagmenn og annast hafa ásetningu á fjölmörgum heimilum, í opinberum stofnunum og á skrifstofu- og verslunar- húsnœöi á undanförnum sjö árum. Þegar þú kauþir teþþi frá Barr getur þú alltaf treyst því aö fá vandaða vöru og teppalögn eins og hún gerist best. BARR Ullargólfteppi fyrir vandláta HÖFÐABAKKA 3, REYKJAVÍK. SÍMI: 685290 Sanderson Deep Velvet Deep Velvet Tweed Deep Velvet De Luxe Hostess Super Hostess Super Hostess Berber Ladyjane Filigree La Scala SYNINGIN ER OPIN LAUGARDAG KL.10-16 SUNNUDAG KL. 14-17 1 Rimlagluggatjöld í yfir 20 litum. Sérsniðin fyrir hvern glugga eftir máli. pli-sol Pli-sol gluggatjöld í mörg- um litum og gerðum. Tilval- in í sólhúsið, glugga mót suðri og alla vandamála- glugga. Útsölustaðir: Reykjavík Álnabær Síðumúla 32, sími 31870, 688770. Hafnarfjörður Lækjarkot sf. Lækjargötu 32, sími 50449 Keflavík Álnabær Tjarnargötu 17, sími 92-12061 Grindavík Verslunin Rún Vikurbraut 31, sími 92-68580 Selfoss Ágúst Morthens Miðengi 7, sími 98-21725 Þorlákshöfn Stoð sf. Unubakka 11, sími 98-33530 ísafjörður Húsgagnaloftið Skeiði, sími 94-4566 Bolungarvík Einar Guðfinnsson hf. Aðalstræti 21—23, sími 94-7200 Akureyri Zeta sf. Glerárgötu 34, sími 96-22550 Húsavík Borg hf. Ketilsbraut 7, simi 96-41406 Akranes Nýja Línan Suðurgötu 46, sími 93-12834 Einkaumboð á íslandi Síðumúla 32 S 688770 — 31870.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.