Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 37
r> sr
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
C 37
bæti það upp þegar tvíburarnir
koma!“
Michel er mjög barngóður, hon-
um þykir gaman að börnum og
börnunum þykir gaman að honum
og sjá í honum ekki bara hetju,
heldur einnig vin. Þegar þau söfn-
uðust saman fyrir utan æfingaleik-
vang Juventus, til að fá hjá honum
eiginhandaráritun eða bara eitt lítið
bros, kom oft glampi í augu hans.
Hann segir að honum þyki vænst
um börnin sem eru í hópi aðdáenda
hans. Þau séu svo einlæg þegar þau
hrópi til hans hvatningarorð á æf-
ingum og biðji síðan um mynd eða
eiginhandaráritun.
Christele eiginkona Michels segir
um mann sinn: „Hann er mjög vel
gefinn, hann er mannlegur og afar
rausnarlegur. Hann hefur komið sér
upp ákveðinni ímynd sem hann
heldur út á við, aðallega í fyölmiðl-
um, en heima er hann besti eigin-
maður og faðir sem hægt er að
hugsa sér.“
Fráhrindandi?
ítölskum fréttamönnum gekk
misvel að ræða við Platini meðan
hann lék með Juventus. Sumum
fannst hann fráhrindandi og duttl-
ungafullur leikmaður, en aðrir
kunnu vel að meta kímnigáfu hans
og kaldhæðni, sem hann sparaði
ekki þegar það átti við. „Maður
vissi aldrei fyrirfram hvort hann
kæmi til með að tala við blaða-
menn. Við bíðum alltaf eftir leik-
mönnunum eftir æfingar og leiki,
til ?ð fá hjá þeim svör við ákveðnum
spurningum, og yfirleitt svara okk-
ur allir. Nema Platini, hann er
„primadonna" sem getur leyft sér
að svara ekki nema þegar honum
þóknast," sagði Paolo Carrano
blaðamaður íþróttablaðsins Tutto-
sport, en Carrano hefur fylgst með
og skrifað um Juventus í mörg ár.
Gian Paolo Ormezzano blaðamaður
ítalska dagblaðsins La Stampa átti
hins vegar mjög góð samskipti við
Platini. „Ég sakna þessa vel gefna
húmorista," sagði hann eftir að
Platini hætti hjá Juventus, „og það
er hæsta einkunn sem ég get gefið
nokkrum manni. Með Platini hvarf
góður leikmaður af knattspymu-
vellinum en mér þykir verra að
missa manninn Michel en leikmann-
inn Platini. Ég átti mjög góð sam-
skipti við hann þau fimm ár sem
hann lék með Juventus, en ég held
að þeir sem áttu erfitt með að tala
við hann hafi ekki gert sér grein
fyrir að hér er á ferðinni stórgáfað-
ur maður með óvenju mikla kímni-
gáfu. Ég missti með honum góðan
vin, meðan aðrir misstu kannski
bara einn ellefta af knattspyrnu-
liði."
Hjðlpar ungllngum
Platini hefur stofnað sjóð í
Frakklandi sem verður varið til
styrktar unglingum sem eiga við
eiturlyfjavandamál að stríða. Hann
hefur ákveðnar skoðanir á þeim
málum og segir: „Unglingana vant-
ar heilbrigð áhugamál og trygga
atvinnu. Þetta eru þau tvö grund-
vallaratriði sem þarf að taka til
meðferðar."
Loforð
Platini lofaði því er hann hætti
að leika með Juventus, að hann
hefði ekki sagt endanlega skilið við
knattspymuna — eins og nú hefur
komið á daginn. Þá hefur hann
sýnt og sannað, í þeim mörgu góð-
gerðarleikjum sem hann hefur tekið
þátt í síðan hann „hætti“, að lengi
lifir í gömlum glæðum!
Platini
Nafii: Michel Platini
Fæddur: 21. júní 1955 í
Joeuf í Frakklandi.
Félög: Nancy og St. Eti-
enne í Frakklandi, Juventus
á Italíu.
Fjölskylduhagir: Platini er
kvæntur franskri konu,
Christele, og eiga þau tvö
börn, Laurent og Marine.
Platini lék sem atvinnu-
maður í knattspyrnu í 17
ár. Á þeim tíma tók hann
þátt í 648 leikjum og skor-
aði í þeim 348 mörk. Þar
af skoraði hann 103 mörk
fyrir Juventus á þeim fimm
árum sem hann lék með
ítalska stórliðinu.
GLÆSIBÆ
ÁLFHEIMUM 74. SÍMI686220.
IKVOLD:
Gömlu dansarnir
með hljómsveit JÓNS SIGURÐS-
SONAR ásamt söngkonunni
HJÖRDÍSIGEIRS.
Opiðfrákl. 21-01.
Snyrtilegur klæðnaður
- Rúllugjald kr. 600,-
- Staðurhlnna dansglöðu -
Cfíh
Úrval af herrafrökkum
herra'
húsió>
Kjörgar&ur
Herrahúsiði
Laugavegi 47 sími 17575.
ADRIII#