Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 2
2 D MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESÉMBER 1988 Stríösmenn regnbogans? ANNÁLL HELSTU ADGERDA Jakob Lagercrantz, talsmaður grænfriðunga vegna vísinda- veiða íslendinga, var hér á landi í vikunni meðal annars vegna útgáfu upplýsingabæklings á íslensku um starfsemi Greenpeace. í bæklingnum er meðal annars þessi frásögn höfð eftir öldnum Cree-indí- ána: „ .. . þann dag þegar jörðin er sjúk orðin, þegar dýrin drepast og fljótin eru orðin eitruð, þá mun fólk af öllum kynþáttum og trúarbrögð- um safna liði svo jörðin fái grænkað á ný. Það eru stríðsmenn regnbog- ans. „The Rainbow Warriors“.“ Enginn dregur í efa að mörg bar- áttumála samtaka grænfriðunga eru Íslendingum afskaplega mikilvæg, svo sem barátta þeirra gegn losun eiturefna og geislavirks úrgangs í hafíð. Samtökin hafa einnig barist einarðlega gegn hvers konar tilraun- um með kjamorkuvopn og nýtingu kjamorku, sem þau telja að ógni lífí á jörðinni. Sama gildir um kjamorku- afvopnun á og í höfunum. Hins veg- ar hefur mörgum íslendingnum þótt þeir fara offari gegn vísindaveiðum okkar og að málflutningurinn sé miklu fremur byggður á vísun til til- finninga en til raka. Það er ekki bara að hvalir séu í útrýmingar- hættu, heldur er yfir höfuð ljótt að drepa hvali vegna þess að þetta eru stærstu skepnur jarðarinnar, fallegar og tignarlegar, gáfaðri en aðrar skepnur og veiðiaðferðin er ómann- úðleg. Islenskir vísindamenn segja að það séu engin rök fyrir þessum viðhorfum. Hins vegar er ekki víst að málstaður okkar hvað vísindaveið- arnar snertir, sé eins góður og látið hefur verið í veðri vaka. Fjölmiðlarnir líftaugin Fjölmiðlamir eru líftaug samtaka grænfriðunga. Barátta þeirra og baráttuaðferðir miða að því að ná athygli Qöldans og beita almennings- álitinu málstað sínum til framdrátt- ar. íslenskir blaða- og fjölmiðlamenn þekkja það af eigin reynslu að græn- friðungar eru iðnir við að kynna málstaðinn. Þeir hafa samband að fyrra bragði, láta vita af væntanleg- um mótmælum og bjóða myndir hafí þau farið fram. Sé leitað eftir upplýs- ingum eru þeir fljótir að afla þeirra og láta þær í té. Styrktarmenn þeirra þurfa að fá vitneskju um baráttuna svo þeir haldi áfram stuðningi og almenningsálitið gefur aðgerðum þeirra þunga. Martin Leebum, tals- maður Greenpeace Intemational, sagði augljóst að fjölmiðlar væru samtökunum mjög mikilvægir. Með því að draga athygli almennings að þeim réttlætismálum sem samtökin berðust fyrir næðu þau árangri. Sam- tökin hefðu ráðist í aðgerðir gegn íslendingum vegna þess að vísinda- veiðamar væru aðeins aðferð til að fara í kringum veiðibannið. Hvalveið- ar væru liðin tíð og ef gerð væri skoðanakönnun í Bandaríkjunum væri hann viss um að meirihluti fólks myndi telja hvalveiðar siðferðilega rangar. Það væri staðreynd að fólk hefði mjög tilfínningabundna afstöðu til hvala. Barátta grænfriðunga og fleiri samtaka gegn kópadrápi hefur skilað hvað mestum árangri, enda má leiða að því rök að auðveldara sé að afla stuðnings fólks við málefni sem ork- ar sterkt á tilfinningamar. Sá at- vinnuvegur var lagður í rúst, svo nú er hann ekki nema 10% af því sem hann var áður. Það var ekki aðeins iðnvædd kópaveiði sem lagðist af heldur hafði þetta mjög alvarleg áhrif á afkomu frumbyggja á norður- slóðum. John Winter, stofnforseti Samtaka kanadískra selveiðimanna, sagði í samtali við Morgunblaðið sumarið 1985 að þessi barátta sé lævísasta tilraun þéttbýlisfólks til að þröngva gildismati sínu upp á fólk sem lifir af gæðum lands og sjávar. „Þessir hópar eru studdir af fólki sem hefur enga hugmynd um hvað það er að lifa af landinu. Það kaupir við- urværi sitt í stórmörkuðum og þarf aldrei að sjá dýr líflátið. Maður hlýt- ur að spyija hvar þetta endi. í dag eru það kópamir á morgun ef til vill fískurinn. Með litmyndum og sjón- varpi hefur þeim tekist að sýna bæði drápið og veiðimennina í þannig ljósi, að það slær fólk mjög illa, þó falsað sé. Islendingar eru ekki villimenn og það er fólkið á Nýfundnalandi ekki heldur. Þeir nota orð eins og drápari og morðingi um þessar veiðar, orð sem eru notuð um þá sem myrða fólk. Þetta er fyrirlitlegt." Eins og alþjóðlegt fyrirtæki Danski blaðamaðurinn Leif Bleidel skrifaði greinaflokk um grænfrið- unga í blaðið Information fyrir fáum árum og birtist hluti þeirra greina í Morgunblaðinu. Hann heldur því fram að baráttan gegn kópadrápinu hafí verið grænfriðungum gullnáma, þar sem stór hluti framlaga hafi komið vegna þess. Náttúruvernd samtakanna sé orðin að iðnaði sinnar tegundar og þau lúti sömu lögmálum og hvert annað fiölþjóðlegt stórfyrir- tæki. Eftir að þeir báru sigurorð í selamálinu hafi þá vantað baráttu- mál á svipaðan hátt og fyrirtæki þarf nýja framleiðsluvöru og þess vegna hafi þeir hafið baráttu gegn kengúruveiðum í Ástralíu. Norskur vísindamaður, Hoel að nafni, sem fenginn var til þess að rannsaka áhrif aðgerða grænfrið- unga á útflutning á norskum físki til Bandaríkjanna hefur svipað til málanna að leggja. Hann segir sam- tökin skipulögð eins og fyrirtæki. Þau hafi fyrst og fremst áhrif á þing- menn í Bandaríkjunum og áhrif þeirra á fiskútflutninginn séu ekki 1978 6. maí: Morgunblaðið segir frá því að sendinefnd á vegum grænfrið- unga sé væntanleg til Reykjavíkur í því skyni að fá íslendinga til þess að hætta hvaladrápi, eins og það er orðað. Ennfremur kemur fram að samtökin hafa fest kaup á 145 feta löngum togara, sem þau ætli með á mið hvalveiðibátanna í júni. Togaranum hafi verið gefið nafnið Rainbow Warrior. 6. júní: Rainbow Warrior kemur á hvalamiðin við ísland. Áhöfnin tel- ur 22 og áætlað er að aðgerðimar kosti 50 þúsund sterlingspund. 11. júní: Hvalveiðamar ganga vel þrátt fyrir veru grænfriðunga á miðunum. Skipstjóri Rainbow segir að hvalbátamir stingi af vegna meiri ganghraða. 17. júní: Rainbow Warrior kastar akkerum í Hvalfirði og áhafnar- meðlimir skoða hvalstöðina. 21. júní: RW eltir Hval 9, en bátn- um tekst að skjóta hval þrátt fyrir það. 29. júní: Hvalur hf. segir hvalveið- ar sjaldan eða aldrei hafa gengið jafn vel, búið sé að veiða 116 hvali, 99 langreyðar og 17 búrhvali. 1. júlí: RW kemur til Reykjavíkur og leiðangursmenn tilkynna að þeir muni halda til Færeyja og ræða grindhvaladráp við_ landsmenn. Þeir segja árangur íslandsferðar- innar góðan; þeim hafi fjórum sinn- um tekist að trufla veiðarnar. Sama dag eru hafðar í frammi mótmæl- aðgerðir á fundi Alþjóðahvalveiðir- áðsins í London og íslensku og jap- önsku fulltrúarnir fá yfir sig rauðan vökva og sprengdar eru reyk- sprengjur. Þórður Ásgeirsson, þá- verandi skrifstofustjóri sjávarút- vegsráðuneytisins, er kosinn form- aður ráðsins til næstu þriggja ára. Niðurstaða ráðsins er að íslending- ar fái óbreyttan kvóta. Árið 1976 var hann settur til 6 ára og íslend- ingum leyfilegt að veiða 1.564 lan- greyðar á þessu tímabili, þó aldrei fleiri en 304 á ári. Árlegur san- dreyðarkvóti er 84 hvalir og búr- hvalakvótinn sem nær til mun stærra svæðis en bara íslands er 600 hvalir. íslendingar hafa þó aldrei veitt fleiri en eitthvað á ann- að hundrað búrhvali. 1979 2. júní: RW kemur til Reykjavíkur. Segjast betur búnir til að trufla hvalveiðamar en árið áður og bíði þess eins að hvalbátamir láti úr höfn. 10. júní: Hvalveiðamar hefjast. 13. júní: Skipstjóri Hvals 8 óskar eftir að Landhelgisgæslan stuggi við RW. 15. júní: RW kemur á ytri höfnina með bilaða vél og er gert ráð fyrir að viðgerð taki nokkra daga. 19. júní: Farbann sett á skipið meðan beðið er úrskurðar um lög- bannskröfu Hvals hf. Skipið lætur úr höfn, en varðskipið Óðinn kemur með það til hafnar um nóttina. 21. júní: Grænfriðungar hóta her- ferð gegn íslenskum vömm i Bandaríkjunum verði farbanni ekki aflétt. 26. júní: Lögbann lagt við aðgerð- um grænfriðunga gegn hvalveiði- bátunum. 28. júní: RW siglir á brott frá ís- landi. Leiðangursmenn segjast munu virða lögbannið. 15. ágúst: RW skýtur upp kollinum og blaðamanni og tveimur stúlkum skotið á land í gúmbát án leyfis íslenskra yfirvalda. 18. ágúst: Veiðar Hvals 7 truflað- ar. Varðskipið Ægir tekur RW í tog, þar sem skipverjar neita að gangsetja það, og færir það til hafnar í Reykjavík. Aðgerðum hót- að í Bandaríkjunum gegn íslensk- um framleiðsluvömm. 23. ágúst: Mál RW tekið fyrir í sjó- og verslunardómi. Málið sent ríkissaksóknara. Gæslu hætt við RW- Að sögn talsmanns ætlar skip- ið á miðin aftur og halda upptekn- um hætti. 29. ágúst: Leiðangursmenn segjast tmfla veiðar, en Landhelgisgæslan segir engar kvartanir hafa borist. 1982 Hvalveiðiráðið samþykkir 0-kvóta í fjögur ár. 1983 Alþingi samþykkir að mótmæla ekki hvalveiðibanni og nota þessi ijögur ár til vísindalegra rannsókna á hvalastofnunum hér við land. 1985 Júní: Rannsóknaráætlun vísinda- veiðanna lögð fram. 9. ágúst: Síríus, skip grænfrið- unga, kemur til landsins, en fran- skir leyniþjónustumenn sökktu Rainbow Warrior í höfninni í Auck- land á Nýja-Sjálandi í fyrra mán- uði. Tilgangur komu Síríusar er að reyna að hafa áhrif á að hætt verði við vísindaáætlunina með umtölum en ekki aðgerðum, að sögn leiðang- ursmanna. 12. ágúst: Grænfriðungar segja almennan fund sem þeir héldu til að kynna málstað sinn „stórslys". Fundurinn hafi verið illa undirbú- inn og hótanir gagnvart íslending- um um að skaða fiskútflutning til Bandaríkjanna féllu ekki í góðan jarðveg meðal Evrópumanna í hópi grænfriðunga. Síríus fór laugar- daginn 17. ágúst, fyrr en ætlað var. 1987 Mars: Sjö frystigámar með 175 tonn af hvalkjöti á leið til Japans kyrrsettir í Hamborg. Kjötið end- ursent til íslands. 1988 Febrúar: Herferð gegn sölu á íslenskum fiskafurðum í Banda- ríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi. 10. júní: Grænfriðungar hlekkja sig við skipskrana Jökulfellsins í höfn í Gloucester í Bandaríkjunum og tefja löndun á fiski. 21. júní: 200 tonn tonn af hval- kjöti kyrrsett í Helsinki. 5. júlí: Grænfriðungar hlekkja sig við hafnarkrana -til þess að mót- mæla að hvalkjötið sé endursent til íslands. 26. júlí: Höfða mál fyrir banda- rískum dómstólum til þess að þvinga stjómvöld til þess að gefa út staðfestingarkæru. 4. ágúst: Mótmæli í 50 borgum í Bandaríkjunum. 14. október: Tengelman hættir við kaup frá Sölustofnun lagmetis. LIFSSPEKI GRJENFRIDUNGA Vistfræðin kennir okkur að mannkyn- ið er ekki miðpunktur lífsins ájörðinni. Vist- fræðin hefiur kennt okk- ur að jörðin sem heild er hluti af „líkama“ okk- ar og að við verðum að læra að virða hana eins og við virðum okkur sjálf. Eins og við finnum til með okkur sjálfum verðum við að finna til með öllum tegundum lífs — hvölunum, selun- um, skógunum, hafinu. Hin mikilfenglega feg- urð vistfræðilegrar hugsunar er að hún sýn- ir okkur leið til baka til skilnings og virðingar fyrir lífinu sjálfu — skilnings og virðingar sem er nauðsynleg þeim lífsháttum. Eins og með hvalina og selina verður að bjarga lífi með friðsamlegum aðgerðum og með því sem kvekaramir köll- uðu „að vitna“. Ein- staklingur sem vitnar verður að axla ábyrgð af því að vita um órétt- læti. Sá einstaklingur getur síðan valið á milli aðgerða og aðgerðar- leysis, en hann getur ekki snúið frá í van- þekkingu. Siðfræði grænfriðunga er ekki aðeins sú að vitna um glæpi gegn Iífinu; held- ur að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir þá. Þó að aðgerðirnar verði að vera bein- skeyttar mega þær ekki byggjast á ofbeldi. Við verðum að leggja stein í götu ofbeldis án þess að beita ofbeldismenn- ina hörðu. Mestur styrk- leiki okkar er lífið sjálft og sú skuldbinding að helga okkur því að veija aðra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.