Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 12

Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 12
12 D ....J........ MORGtTNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR .tmnnr,, „.in, SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 ALLTAÐ -irt 4, NÚNA " 1 innréttinpar ~~2ÖÖO Síðumúli 32 Sími: 680624. Eftir opnunartima 667556. VERfl CA. KR.1ig.000 - KOMUM HEIM, MÆLUM OG RÁÐLEGGJUMí VALI Á INNRÉTTINGUM • Þriggja vikna afgreióslu- frestur. • Ókeypis hugmynda- vinna. • Ókeypis heimsendingar- þjónusta. ELDHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR OG BAD- INN RÉTTINGAR, i hvítu, hvltu og beyki, gráu, gráu op hvitu, eik, beyki, furu og aski. Við erum við hliðina á Alnabæ i Siðumúla. Opið 9-19 alla daga. Laugardaga 10-16. Sunnudaga 10-16. Ný leikföng II. hæð Laugavegi 91 Góð verð 5% staðgreiðslu- afsláttur. Dúkkan Patty, grætur og hlær. Verð kr. 1197.- Blazerbíll Fjarstýrður Blazerjeppi kr. 1510.- Formula 1 fjarstýrður bíll kr. 1320.- Fjarstýrður kappakstursbíll kr. 1320.- Allskonar gæludýr Bangsar, mýs, kanínur, verð frá kr. 152. Hoppandi og geltandi hundur, verð frá kr. 627.- Leikfangasalan Laugavegi 91, II. hæð. Sími 623868. » » ___________ LOGFRÆDI/Er í lagi adfaraframyfir úttektarheimildináf \ Greiðslukortin íjólaösinni Greiðslukortin góðu hafa verið nokkuð í fréttum undanfarið. Heyrst hefur að færslur hjá ein- staklingum hér á landi séu u.þ.b. þrefalt fleiri að meðaltali en í öðr- um löndum. Þá hafa óprúttnir bisnessmenn fundið út að svindla má undan söluskatti með því að „strauja" kor- tið aðeins á annan veginn í kortavél- inni. Einnig hefur komið fram að verslunareigendur hafa stundað lánsviðskipti með því að geyma greiðslukortanótur í lengri eða skemmri tíma og að slíkar nótur ganga kaupum og sölum meðal vaxtaáhugamanna. Nú síðast voru tryggingavíxlar, sem korthafar eru látnir leggja fram, gerðir að umtalsefni. Þetta allt, ásamt því að nú fer í hönd sá tími þegar greiðslukortin eru „straujuð“ hvað mest, gefur tilefni til að ræða þau ofurlítið í lög- fræðipistlinum að þessu sinni. Greiðslukortin eru margslungið fyrirbæri frá lög- fræðilegu sjónar- miði. Að þessu sinni skulum við athuga hvað ger- ist ef korthafi fer fram úr úttektar- heimild sinni enda viðbúið að ýms- ir freistist til þess í jólainnkaupun- um. Algengt er að úttektarheimild einstaklinga sé á bilinu 35—70.000 kr. fyrir hvert úttektartímabil. Þá er ennfremur sett þak á það hversu há hver einstök úttekt má vera. Fer það eftir því hvers konar versl- un eða þjónustuaðili á í hlut. Án þess að ég hafi nokkur áreiðanleg gögn við að styðjast grunar mig að það sé all algengt að fólk fari fram úr úttektarheimild sinni. Hins vegar hefur ekki verið amast við því af hálfu greiðslukortafyrir- tækjanna svo lengi sem menn hafa borgað. Þrátt fyrir þetta þjóna þessi úttektarmörk ákveðnu hlutverki. í fyrsta lagi veita þau mönnum að- hald um að gæta hófs í notkun sinni á kortunum og að hún sé í samræmi við greiðslugetu þeirra. í öðru lagi má vera að greiðslu- kortafyrirtækið neiti um heimild til tiltekinnar úttektar, sem annars er umfram það sem heimilt er í viðkomandi verslun, ef notandinn er þegar kominn yfir þá fjárhæð sem hann má taka út fyrir eða ef úttektin myndi leiða til þess. Þetta fer þó eitthvað eftir því hversu traustur greiðandi korthaf- inn hefur reynst í gegnum tíðina. í þriðja lagi geta menn unnið sér til refsingar fyrir að fara fram úr heimildinni ef þeir geta ekki stað- ið í skilum. Eftir því sem ég kemst næst er það fátítt að gripið sé til þess ráðs að kæra fyrir refsivert brot þegar korthafar reynast ekki borg- unarmenn fyrir úttektum sínum. Til þessa hefur þó komið. Má í því sambandi rifja upp/tæplega árs- gamlan dóm Hæstaréttar (1987: 1773). í því máli hafði maður, sem raunar var þekktur vanskilamað- ur, látið breyta nafni sínu. Fékk hann síðan greiðslukort hjá banka nokkrum og úttektarheimild allt að kr. 20.000 á hveiju tímabili. Maðurinn hóf svo að nota kortið all hressilega og fór langt fram úr heimildinni. Þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir tókst_bankanum ekki að innheimta skuldina og kærði manninn að lokum fyrir að mis- nota kortið. Þetta leiddi síðan til ákæru fyrir brot á 249. gr. al- mennra hegningarlaga, þ.e. fyrir umboðssvik. í umræddri lagagrein segir m.a., að ef maður, sem fengið hefur aðstöðu til að gera eitthvað, sem annar maður verður bundinn við, misnotar þá aðstöðu sína, þá varði það fangelsi allt að 2 árum. í niðurstöðu hér- aðsdómsins var á því byggt að við- komandi korthafa hafi mátt vera ljóst að hann væri ófær um að greiða úttektir sínar. Þá var álitið, að með því að fá afhent greiðslukort hafi hann fengið að- stöðu til að binda bankann, til að greiða út- tektir sínar og með því að fara út fyrir heimild sína, misnotað þessa aðstöðu. í dómi Hæstaréttar var hegðun mannsins talin bijóta gegn 249. gr. almennra hegning- arlaga, en jafnframt tekið fram að þetta ætti aðeins við úttektir hans að því leyti sem þær fóru fram úr úttektarheimildinni. Fyrir þetta og ýmislegt annað smálegt fékk maðurinn 5 mánaða fangelsi. Það er kannski rétt að hafa þetta bak við eyrað í jólaösinni! eftir Dovíð Þór Björgvinsson % -— ---------------------- VÍSINDI/Geturfiórildi íÁstralíu haft áhrif ájólavebrib á Islandi? Oreiða veðursim Ollum sem búa á íslándi ætti að > vera ljóst að veðurspá er flókið viðfangsefni og eins og nafnið bend- ir til getur hún aldrei verið meira en spá, sem einungis býr yfir tak- markaðri ná- kvæmni. Skammtímaspár geta vissulega ver- ið mjög nákvæm- ar, en eins og ótal dæmi bera vitni um geta langtíma- spár algjörlega mistekist og skap- ferli veðurguðanna því orðið allt annað en veðurfræðingarnir sögðu fyrir um. Það var lengi trú fræði- manna að með auknum framförum í gagnasöfnun, ásamt auknum möguleika tölva til að leysa flókin jöfnukerfi, gæti nákvæm þekking fengist á „löggengni“ lofthjúpsir.s og þar af leiðandi áreiðanlegar langtímaspár orðið að möguleika. Framfarir sem orðið hafa í stærð- fræði á undanförnum árum sýna að slíkur draumur mpn varla ræt- ast, þar sem óviss þróun ýpnssa kerfa, þar á meðal veðursins, kemur til af eðlislægu eiginleika þeirra, sem ekki verður upprættur með aukinni mælitækni, né hundrað þúsund aflmiklum tölvum. Þetta verður best skilið með því að líta á nokkra almenna eiginleika aflfræði- legra kerfa. Öllum kerfum sem hreyfast und- ir áhrifum krafta er lýst með s.k. hreyfijöfnum, en lausnir þessara jafna geta sagt fyrir um tímaþróun viðkomandi kerfís. Lausnir hreyfi- jafnanna lýsa þeim „brautum" sem vðkomandi kerfi ferðast eftir í ákveðnu óhlutkennu (abstrakt) rúmi, sem ákvarðast af eiginleikum þess kerfis sem við er átt. Til þess að leysa hreyfijöfnur kerfisins er nauðsynlegt að þekkja randskilyrði þess, þ.e. ástand kerfisins á ákveðn- um upphafstíma. Rannsóknir í aflfræði og stærð- fræði hafa sýnt að sum kerfi búa yfir þeim eiginleika að einungis örlitlar breytingar á randskilyrðum þeirra geta haft ótrúlega afdrifarík- ar afleiðingar fyrir framtíðarþróun kerfisins og í raun leitt til ófyrirsjá- anlegra afleiðinga. Sagt er að kerfi sem búi yfir þessum eiginleika séu „óreiðin" (chaotic). Eitt af höfuðein- kennum óreiðsins kerfis er því að sáralitlar, ef til vill ómælanlegar, breytingar á ástandi þess geta haft gífurleg áhrif á þróun kerfisins. Þetta setur þekkingu okkar á óreið- um kerfum ákveðin óyfirstíganleg takmörk, þar sem engin leið er að öðlast fullkomna þekkingu á rand- skilyrðum flókinna kerfa. Lofthjúp- urinn og verðurfarsþróun eru dæmi um óreiðin kerfi, en það voru ein- mitt rannsóknir á sviði stærðfræði- legrar veðurfærði sem gáfu fyrstu vísbendingu um tilvist og eiginleika slíkra kerfa. Á undanförnum árum hafa um- fangsmiklar rannsóknir verið gerð- ar á almennum eiginleikum óreiðu og nú þegar er vitað um mikinn fjölda raunverulegra kerfa sem búa yfír óreiðinni tímaþróun. Hagnýting fyrirbærisins lætur heldur ekki á sér standa, en sem dæmi um nokk- eftir dr. Sverri Olofsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.