Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 16
16 D
Verd .
oggæói
tara saman
hjáokkur
herra^
imsiö
Laugavegi 47
Sími 29122.
FATAHENGI
( EPAL,
FAXAFENI 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
Maðurinn sem var
RICHARD
HANNAY
eskra Kósakka, sem hrundu áhlaup-
um bolsévíka á suðurströnd Kaspía-
hafs. Þegar Ironside var þarna
gerðu Kósakkamir uppreisn og
hann fól færum, persneskum höf-
uðsmanni, Reza Khan, að taka við
stjóm persneska Kósakkahersins.
Þar með lagði hann grundvöllinn
að því að Pahlevi-keisaraættin sett-
ist að völdum í íran og réði þar
lögum og lofum unz Khomeini
steypti henni af stóli.
Arið 1922 sneri Ironside sér að
venjulegum yfírmannsstörfum í
brezka hemum, enda var þá farið
að hægjast um eftir stríðið. A næstu
ámm var hann í hópi fárra her-
manna, sem gerðu sér grein fyrir
mikilvægi vélvæðingar í hemaði.
Þegar hann var hann kynntur fyrir
Hitler á æfingum þýzka hersins
1937 bar hann heiðursmerki „Piets
van der Westhuizens" frá Suðvest-
ur-Afríku forðum daga.
Herforingi Chamberlains
Á síðustu mánuðunum áður en
síðari heimsstyijöldin brauzt út
1939 stóð Ironside á hátindi frægð-
ar sinnar. Hann var einn litríkasti
og þróttmesti herforingi Breta. All-
ir vissu að hann var fyrirmyndin
að Richard Hannay. Hann var eini
brezki herforinginn, sem hafði
stjómað fjölmennu liði í fyrri heims-
styijöldinni. Hann þótti málgefinn,
metnaðargjarn og óvarkár. Flestir
töldu að hann yrði yfírmaður leið-
angurshers, sem Bretar mundu
senda Frökkum til hjálpar, og hann
þóttist þess fullviss að hann yrði
fyrir valinu.
Öllum á óvart var Ironside skip-
aður yfirmaður yfirherráðs Breta
(Imperial General Staff) í stað Gorts
lávarðar, sem var gerður að yfír-
manni jeiðangurshersins í Frakk-
landi. Ástæðan var sú að Hore-
Belisha, hermálaráðherra Chamb-
erlains, vildi losa sig við Gort og
fá„þróttmikinn“ herráðsforseta.
Ironside varð fyrir sárum vonbrigð-
um, því að hann hafði aldrei starfað
með stjórnmálamönnum og Ieiddist
smásálarskapur þeirra. „Ég er ekki
þannig skapi farinn að ég geti ver-
ið herráðsforseti," skrifaði hann í
dagbók sína. „Ég hef ekki búið mig
undir slíkt starf.“
Ironside hafði ákveðnar skoðanir,
hikaði aldrei við að láta þær í ljós
og varð æ opinskárri með aldrinum.
Hann bölsótaðist yfír stjórnmála-
mönnum og hélt þrumuræður yfír
undirmönnum sínum. Viðbrögðin
voru þau að hann segði ekkert af
viti á 14 tungumálum. Menn sögðu
að hann vildi alltaf gera eitthvað,
en vissi ekki hvað,, bara eitthvað.
Sjálfur varð hann að viðurkenna
að hann gæti ekkert gert. Fé skorti
til framkvæmda og Bretar urðu að
súpa seyðið af margra ára andvara-
leysi, sem hafði dregið úr hermætti.
í dagbókum sínum kvartar Iron-
side yfír nefndafargani, sem hafí
komið honum í ógöngur. „Svona
er ekki hægt að heyja stríð!“ skrif-
aði hann reiður. En hjá þessu varð
ekki komizt, því að samstarf er
nauðsynlegt í nútímahemaði.
„Fjárans stjómmálamenn, tómt
mas og þras og ekkert gert. Skap-
gerðarlausir og kjarklausir aular,“
skrifaði hann og fór einnig niðrandi
Theodor von Leutwein:
Níddist hann á blökkumönnum?
orðum um félaga sína í herforingja-
stétt. Einu mennimir með viti virt-
ust vera hann sjálfur og Winston
Churchill, gamall vinur hans frá
Suður-Afríku.
Óvænt fall
Churchill leysti hann frá starfi
herráðsforseta 27. maí 1940,
skömmu eftir brottflutning Breta
frá Noregi og skömmu fyrir brott-
flutning þeirra frá Dunkerque, en
sagði við hann: „Við treystum þér
alltaf þegar mest á reyndi, því að
þú misstir aldrei kjarkinn.“
Um leið skipaði Churchill Iron-
side yfírmann Heim'ahersins (Home
Forces) að hans eigin ósk. Hann
átti að sjá um að búa Breta undir
yfírvofandi innrás Þjóðveija. Þá
fyrst virtist hann í essinu sínu.
Hann vann það afrek að koma á
laggimar þjóðvamarliði á örfáum
vikum. Anhað, sem hann gerði ork-
aði tvímælis, t.d. gagnslaus varn-
arlína í stil við Maginotlínu Frakka.
Af dagbókum hans mætti ráða að
hann hafi gert ráð fyrir að verða
eins konar einræðisherra, ef til inn-
rásar kæmi.
Hinn 19. júlí 1940 vék Churchill
honum úr þessu starfi og skipaði
Sir Alan Brooks í hans stað. Iron-
side tók skyndilegu falli sínu með
heimspekilegri ró. „Ég get ekki
kvartað," skrifaði hann. „Ríkis-
stjórnir verða að taka ákvarðanir á
tímum spennu. Ég held ekki að
Winston hafi haft gaman af þessu,
því að hann er alltaf tryggur vinum
sínum.“
Ári síðar ákvað Churchill að
heiðra vin sinn og sagði þegar hann
kallaði hann fyrir sig: „Þitt er val-
ið, Ironside. Hvort viltu heldur
verða, marskálkur eða lávarður?"
Ironside sagði við sjálfan sig svo
að Churchill heyrði: „Marskálkur,
það er glæsilegur titill... en lávarð-
ur ... það er líka freistandi boð ...“
Hann hélt áfram að tauta eitthvað
og Churchill varð óþolinmóður.
„Ironside," sagði hann. „Við skulum
ekki tvínóna við þetta. Þú verður
hvort tveggja!" Og það varð úr.
Maðurinn, sem var Richard Hannay
og yfirhershöfðingi Chamberlains,
varð bæði marskálkur og barón af
Arkangelsk og Ironside. Hann lézt
1959.
JÓLA UMFERÐ ÍREYKJA VÍK
- engin gjöld í stöðumæla á laugardögum í desember né á Þorláksmessu -
★ Fjölgað verður um 640 gjaldfrjáls bílastæði frá 10.-24. des.
1. í bílakjallara á horni Vesturgötu og Garðastrætis (ekið inn frá Vesturgötu)......................... 80 stæði
4. Á lóðinni við Skúlagötu 4........................................................................... óOstæði
5. Á svæði milli Skúlagötu og Sætúns vestan bensínst. Olís.............................................150 stæði
6. Á lóðum Eimskips við Vitastíg/Skúlagötu.............................................................150 stæði
7. Á opnu svæði norðan Vitatorgs.......................................................................100 stæði
8. Á svæði við Mjölnisholt/Brautarholt.................................................................100 stæði
★ Bakkastæði (ekið inn frá Kalkofnsvegi) og Kolaport, (nr. 2 og 3), án gjalds á laugardögum............ 450 stæði
★ Bakkastæði (ekið inn frá Kalkofnsvegi) og Kolaport, (nr. 2 og 3), án gjalds á laugardögum...... 450 stæði
★ Á laugardögum í desember og á Þorláksmessu verður ókeypis í stöðumæla, bílastæði og bílastæðahús á vegum Reykjavíkurborgar.
★ Ökumenn, sýnið lipurð og tillitssemi í umferðinni. Akið varlega og fækkið þannig umferðarslysum.
BÍLAS TÆÐA SJÓÐUR REYKJA VÍKURBORGAR