Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 21

Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 D 21 háðsádeite' •reafemi og \_ennon skömmu segir Berry að allir sínir söngvar Qalli um þijú efni, bíla, skóla og ástina, því að það sé eitt- hvað sem allir hafi einhver kynni af. Berry hafði sem kunnugt er mikil áhrif á Beatles, Rolling Ston- es, Bob Dylan og fleiri af þeirri kynslóð hvítra tónlistarmanna. En aðrir þættir tóku brátt að móta textagerð rokksins, félagsleg- ar hræringar í lok 7. áratugarins, ný efni til að rugla skilningarvitin og afleiðingar þeirrar fjölmiðla- og tækniþróunar sem gerði rokkstjörn- ur að eins konar spámönnum. Það varð syndafall, dægurlagatextinn glataði sakleysi sínu, nú átti hann allt í einu að hafa einhvern „boð- skap“ fram að færa. Menn þreifuðu sig áfram með nýja tegund af text- um, ný yrkisefni sem sprengdu af sér hefðbundið form dægurlaga- textans. Við heyrum þetta vel í text- um Johns Lennon frá þessum tíma, súrraelískt myndmál, þjóðfélags- gagnrýni, háðsádeilu og miskunn- arlausa sjálfskrufningu. Menn muna líka eftir hljómsveitum eins og Trúbroti, Náttúru og Óðmönnum hér heima sem oft voru afar ábúðar- miklar í textum sínum. Megas gerði grín að ýmsum helgum dómum i þjóðlífinu og í kjölfar hans kom svo Bubbi Morthens. Upp úr þessum hræringum verð- ur rokktextinn miðill fyrir hvaðeina sem fólki liggur á hjarta. Þar tjáir það viðbrögð sín við ýmsu í um- hverfinu, tilfinningar sínar og lífssýn. Oft er rokktextinn líka gróðrarstía nýsköpunar í málinu, þar blómstrar slangrið og annað utangarðsmál í ýmsum myndum. Gróskan í rokktónlistinni upp úr 1980 hér á landi endurspeglaðist í textagerðinni og á undanförnum árum hefur fjöldi hljómsveita tjáð sig á frumlegan hátt, bæði í tónlist og textum. Jafnframt hafa rokktón- listarmenn verið að gefa út ljóða- kver. í Sykurmolunum er t.d. fríður flokkur skálda sem ýmist semur söngtexta eða yrkir í bækur og blöð. En lítum nú á nokkur nýleg dæmi um íslenska textagerð. Fyrst verður fyrir okkur plata Langa Sela og Skugganna sem kom út í vor. Þeir félagar sælqa aftur í goð- sagnaheim fýrstu rokkáranna í framgöngu sinni með tilheyrandi brilljantíni og kadilljákum. Textinn við lag þeirra, Kontinentalinn, er upptalning á ýmsum frumeiningum bílsins og minnir á sjónvarpsauglýs- ingu eina frá upphafsárum ríkis- sjónvarpsins. Takið eftir stuðlasetn- ingunni: Kontinental kílreimar, köttát, kerti, gormafjaðrir, gírmotor, heddpakkning og hraðabreytar. Pústflækjur og powerblokk, Perking-panna Pólargeymir, platínur, dínamór og dráttar- krókur. Leðursæti, ljósalugt, Dunlop-drifskaft, vökvastýri, veltigrind, hjólbarðar frá Jókó- hama. Tækniþróuð topplúga, Túrbó-tengsli, frambretti og forþjappa, dobblað drif á hveiju hjóli. Ein elsta nýbylgjusveitin hér um slóðir heitir S.h. draumur og hún sendi fýrir skömmu frá sér LP- plötuna Goð. Þar kennir ýmissa grasa í textum, þar er eitt sjó- mannalag, texti um reynsluheim hermanns í Keflavík og annað um örlög hippakynslóðarinnar. Heldur er hér málað í dökkum litum, eins og í þessum línum úr laginu Engl- aleinn í myrkrinu ég rembist að snökt’ ekki þeir rogast með gálgana aleinn í myrkrinu. ég gríp svo fast í sængina að hnúamir ganga út ég held svo fast í vonina að draumamir riðlast til. Fyrir nokkrum árum sendi hljóm- sveitin Kamarorghestar frá sér plötu, Bísar í banastuði, sem vakti talsverða athygli, ekki síst fýrir hressilega texta. Hljómsveitin starf- aði í nokkur ár í Danmörku og hélt uppi fjörinu á samkomum ís- lendinga þar. Nú hefur hún hafið starfsemi að nýju og sendir frá sér nýja plötu, Kamarorghestar ríða á vaðið. Þar er m.a. smellinn texti, Grímfreður, sem ætti að stappa stáli í mannskapinn: Grímfreður óbrotið andans gler aha ha ef skúmaskotin skjóta út fæti og skella reyna þér taktu þér traust grip breggð’ upp nettum brossvip vegvisar einblína áfram og vandalaust að taka tvö þijú skref í ' sporinu á biáum granni nokkuð góðum skóm glaðbeittur í ljóðlituðu vorinu Það er líka byggt á bláum grunni á plötunni Bláir draumar sem tveir frumkvöðlar í íslenskri dægurlaga- MickJagger— textar Rolling Stones „eru rusl“. Það varð syndafall, dægurlagatextinn glataði sakleysí sínu, nú átti hann allt í einu aú hata einhvern „hoúskap” fraui aú færa. gerð senda nú frá sér í sameiningu. Þetta eru þeir Bubbi Morthens og Megas sem báðir hafa verið af- kastamiklir síðustu árin. Nú flytja þeir söngva sína við jazzkenndan undirleik þar sem koma við sögu Birgir Baldursson trommuleikari, Tómas R. Einarsson kontrabassa- leikari, gamla gítarkempan Jón Páll Bjamarson, danski hljómborðs- leikarinn Kenneth Knudsen og fleiri. Auk eigin laga flytja þeir Bubbi og Megas lag Inga T. Lárus- sonar við ljóð Jónasar Hallgríms- sonar, Ég bið að heilsa. Textarnir á síðustu plötu Bubba, ’56, voru hálfgerð hrákasmíð en á þessari nýju sækir hann aftur í sig veðrið. Hann er nú farinn að ríma og stuðla meira að hefðbundnum hætti, stundum með góðum árangri. Þessir nýju textar eru þó ekki gæddir því fjölskrúðuga myndmáli sem finna má í lögum á ýmsum eldri platna hans, eins og t.d. Konu. En blústexti hans, Hann er svo blár, er lipurlega saminn, en þar er síðasta erindið svona: Ég elska daður en dansa ekki ég dregst að þeim sem ég ekki þekki ég vil það ekki en særi samt af sársauka hef ég fengið minn skammt hann er svo blár svo djúpur heillandi blár svo gljúpur svo blár þessi blús. Megas sýnir hér á sér bæði kunn- uglegar og nýjar hliðar. Það er t.d. einhver ný og tær angurværð í text- anum Flæðarmál sem lýsir haust- stemmningu í Reykjavík þar sem staðið er í fjörunni og horft út á hafíð. Þar koma fyrir þessi erindi: & við stóðum þama um haustið & við störð- um lengi dags á storminn hve hann byrsti sig & blés okkur í fangið en í félagi við gijót & sand í fjöranni & þangið okkur fannst það einsog kurteislegra að bíða sólarlags jú það var svalt & það er satt það var kalt en samt var betra að vera til en ekki mér fannst ég eiga heiminn hérambil & maður hugsaði bara: ég gef skíf I það allt sem ég ekki skil & ekki þekki Það er líka svolítið óvenjulegur tónn í ástarljóðinu Tvær stjömur þar sem Megas hefur haldið öllum hálfkæringi víðs fjarri: ég sakna þin í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér & ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér & ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á & ég sakna þín mest á nóttunni er svipimir fara á stjá svo lít ég upp & ég sé við erum saman þama tvær stjömur á blárri festingunni sem færast nær & nær ég man þig þegar augun mín era opin hveija stund en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund Þetta er kannski dæmi um hinn klassíska dægurlagatexta, við- kvæmnislegan og rómantískan, jafnvel pínulítið væminn, en ekki neitt til að vera pæla mikið í. Og eins og áður sagði er textinn eins og sér á blaði bara reykurinn af réttunum. te*'-aT' ? Ir í’ífci Fats Domino — „aldrei að syngja textann mjög greinilega".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.