Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 42
ISLENSKA AUCl ÝSINCASTOfAN HF 42 D MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 V Til og með 16. desember næstkomandi getur þú lagt inn á Afmælisreikning Landsbankans og fengið 7,25% ársvexti umfram verð- tryggingu næstu 15 mánuðina. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Hvar voru prestamir? Til Velvakanda. Það var reglulega hátíðleg og góð stund sem ég og fjölmargir aðr- ir áttum á gömlum mennta- og menningarstað Norðlendinga, Hólum í Hjaltadal, um síðustu helgi. Hóla- dómkirkja, elsta steinkirkja landsins og nú orðin 225 ára gömul, var tekin í notkun að nýju eftir gagngerar endurbætur innanhúss. Rauður sand- steinninn úr Hólabyrðu setur hlýleg- an svip á þetta virðulega guðshús, feiknastór róðukross frá öndverðri 16. öld hangir á hliðarvegg, málaðar táknmyndir dyggðanna tala til okkar af milligerð og undir gólfinu hvfla jarðneskar leifar nokkurra þekktustu biskupa íslendinga á fyrri öldum. Það eina sem enn vantar til að full- komna myndina innandyra, er bríkin mikla eða altaristaflan, sem Jón bisk- up Arason lét flytja til Hóla við upp- haf biskupsdóms síns. Hún er nú í viðgerð í Reykjavík og mun koma aftur á heimaslóðir sínar á ári kom- anda. Skagfirðingar tóku höfðinglega á móti gestum sínum eins og þeirra var von og vísa. Biskupinn yfir ís- landi, prestar, núverandi og fyrrver- andi kirlqumálaráðherrar, alþingis- menn, þjóðminjavörður, allir þeir flöl- mörgu sem að endurbótunum unnu, auk hundraða annarra gesta nutu glæsilegra veitinga í húsakynnum bændaskólans að lokinni guðsþjón- ustu og hátíðarsamkomu í kirkjunni. Þökk sé þeim sem svo glæsilega fagna aðkomumönnum. En það vakti óneitanlega undrun og spumingar hvers vegna prestar af Norðurlandi eystra létu sig nær algerlega vanta á þessa hátið. Séra Bolli Gústavsson í Laufási var einn presta við Eyjafjörð og úr Þingeyjar- sýslum um að láta sjá sig. Mætti þó ætla að minna tilefni þyrfti til að klerkastéttin hugsaði sér til hreyf- ings. Hvar voru til dæmis prófastar Eyfirðinga og Þingeyinga? Hóladóm- kirkja er höfuðkirkja okkar Norð- lendinga og okkur er öllum rétt og skylt að sýna henni þann sóma og þá virðingu sem henni ber. Vígslu hennar hefur naumast borið svo brátt að, að ekki ynnist ráðrúm til að skipuleggja helgihald hér austan Tröllaskaga með þeim hætti að prest- ar ættu heimangengt um miðjan daginn. Flestir þeirra hefðu haft nægan tíma til að koma sér heim nægilega snemma til að hafa að- ventukvöld eða kvöldmessu þennan dag. Akureyringur Á FÖRNUM VEGI Eg tel sjálfsagt að hafa fleira en eitt skattþrep og það hlýtur að vera framkvæmanlegt ef vílji er fyrir hendi Morgunblaðið/Bjami Haukur Sigurðsson Um skattamál og prakkaraskap kattamálin voru ofarlega á baugi í síðustu viku því nú er að sögn komið tómahljóð í ríkisins kassa. Ríkisstjórnin hefur áhveðið að herða á skattheimtunni en hins vegar er deilt um hvernig það skuli gert. Hugmyndinni um nýtt skatt- þrep á hátekjufólk hefur verið hafn- að en þess í stað er í ráði að hækka skattprósentuna yfir alla línuna. Hann gekk á með éljum þegar við fórum í bæinn til að spyija fólk á fömum vegi um viðhorf þess til þessara mála. Sjálfsagt að hafa annað skattþrep „Það er alltaf eins þegar vinstri- stjórir taka við völdunum, þá tala þeir alltaf um að leggja byrðirnar á breiðu bökin, sagði Haukur Sig- urðsson. Þegar til kastana kemur er það svo almenningur sem verður að taka þær á sig. Ég tel sjálfsagt að hafa fleira en eitt skattþrep og það hlýtur að vera framkvæmanlegt ef vilji er fyrir hendi. Sjálfsagt væri að hækka skattprósentuna t.d. þegar tekjur hjá einstaklingi eru komnaryfir 120 til 150 þúsund krónur. Það hlýtur að vera eðlilegt að skattar hækki í samræmi við tekjumar. I Austurstræti hittum við þau Olgu Ragnarsdóttur og Kristján Valdimarsson. Þau sögðust lítið hafa velt þessum skattamálum fyr- ir sér en töldu að stjórnvöld ættu fremur að setja nýtt skattþrep fyrir hálaunafólk en að hækka skatt- prósentuna yfir heilu línuna. Þarna hafði verið vígslað stöfum. Yíkverji skrifar Nú þegar komið er fram í des- ember em ýmsir famir að telja dagana til jóla, að minnsta kosti þeir sem lægstir em í loftinu. Jólin em mesta gleðihátíð kristinna manna — og okkur hér á norður- hjara em þau einnig sérstaklega kærkomin á miðjum vetri þegar skammdegið er svartast. Þegar haustar að em jólin tíma- viðmiðun flestra, þegar horft er til vetrar. Ef þá væri horft allt fram til vors, er hætt við að margir myndu mikla um of fyrir sér vetur- inn, og skammdegið leggjast þyngra á þá. Þetta hefur þó ekki síður átt við hér áður fyrr, þegar ljósadýrðin var minni en nú. xxx Asíðari ámm hefur oft heyrst að tilefni jólanna sé ekki leng- ur í heiðri haft, þau séu að dmkkna í allskonar pijáli og prangi. Mamm- on hafí sest í það hásæti, sem Kristi einum var ætlað. Rétt er það, ytri gerð jólanna hefur breyst mikið frá því er eitt kerti og smá- vegis í viðbót vakti ekki síður föls- kvalausa gleði barnshugans en þær gjafir, sem nú tíðkast almennt. Ýmsir ganga meira að segja svo langt að segja að jólin hafi glatað upphaflegum tilgangi sínum. En er það rétt? Víkveiji hefur þá trú að þeir séu' fáir sem horfa aðeins á ytri búnaðinn — láti sér nægja umbúðirnar einar. Boðskapurinn rati rétta leið þrátt fyrir allt og allt — þótt hann marki ef til vill misdjúp spor. xxx •• Omgglega hafa allir veitt at- hygli gleði barna þegar þau veita gjöfum móttöku á jólunum, gjöfum sem við gefum vegna þess að við viljum gleðja. Þetta er óblandin gleði. En hafa menn ekki einnig tekið eftir engu minni gleði hjá bömunum, þegar aðrir opna gjafir, sem þau hafa gefið. Gleði þeirra yfir að gleðja er einnig fölskvalaus. Strax og börnin em komin til nokkurs þroska vita þau hvers vegna jólin eru haldin hátíðleg, þau vita að það er fæðingarhátíð Jesú frá Nasaret. Þau eldri hafa lært um hann og vita hver hann er — og það fer ekki framhjá þeim yngri hve allir em fjarska góðir á fæðing- ardegi hans. Það auðveldar þeim seinna að líta til hans þeim augum sem boðskapurinn segir til um. Og þó að þau síðar sem fullorðið fólk láti sér fátt um trúna finnast, að minnsta kosti flíki henni ekki, býr enn í sál þeirra sá neisti sem kveikt- ur hefur verið. XXX Víkveiji leggur ekkert mat á hvað við hæfi er að jólagjafir séu miklar eða dýrar — það er hug- urinn einn, sem að baki býr, er skiptir máli. Við val þeirra tekur hann þó undir með þeim, sem hvetja til þess að stríðsleikföng verði snið- gengin. Morðtól eiga illa við þann boðskap friðar og kærleika, sem | kristin trú er byggð á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.