Morgunblaðið - 18.12.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.12.1988, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 - Situr upp- rennandi sjónvarps- kynslóð ekki við skjáinn? Borða nammi- grísirnir ein- ungis sæl- gætiá nammidög- um? Hefur ung- dómurinn meira vit á penmgum en fullorðnir? eftir Urði Gunnarsdóttur/ myndir Ragnar Axelsson Islenskir krakkar fara ekkert sérlega snemma að sofa og þeir fá að vera mun lengur úti á kvöldin en lögreglusamþykkt Reykjavíkur um útivistartíma barna og ungmenna í Reykjavík segir til um. Þeir sitja ekki tímunum saman fyrir framan sjónvarp, heldur láta sér einn til tvo tíma nægja. Þeim finnst gaman í skólanum, kennarinn ágætur og hitt kynið skánar með hveiju árinu. Fáir gera upp á milli foreldranna, sem tæpur helmingur hefiir einhvem tíma séð drukkna. Og íslenskir krakkar spara. Spara peninga til að eiga þegar þeir verða stórir. É laðamaður Morgun- blaðsins gerði á dögun- um skyndikönnun með- al 39 bartta á aldrinum átta til þrettán ára. Ætlunin var ekki að gera fræðilega úttekt á islenskum bömum, heldur reyna að draga upp mynd af venju- legu reykvísku bami. Rætt var við 12 átta og níu ára krakka, 13 tíu og ellefu ára og 14 tólf og þrettán ára. Ekki þótti ástæða til að gera greinarmun á kynjunum í úrvinnsl- unni þar sem munurinn reyndist sáralítill. Hann var aftur á móti töluverður eftir aldri. Fyrsta spumingin sem beint var til krakkanna var hversu lengi þau mættu vera úti á kvöldin á virkum dögum. Eins og við var að búast áttu þau yngstu að vera komin mun fyrr heim, eða kl. 22 hjá þeim sem fékk að vera lengst úti. Flest áttu að vera komin heim kl. 21. Enginn krakkanna fékk að vera úti lengur en til miðnættis. Um helgar fengu sumir krakkanna að vera klukku- tíma iengur úti og mun lengur á sumrin. Einum níu ára strák var alveg sama, því honum fannst leið- inlegt að leika sér úti. Önnur spurningin var um hvað börnin hefðu gert í gærkvöldi. Fjöldi þeirra hafði mörg járn í eldinum. Langflest horfðu á sjónvarp, rúm 60% og var lítill munur á aldri, hvað það varðaði. Mörg léku sér, lærðu heima og tæp 20% litu í bók. Undir liðinn annað heyrði m.a. ferð ellefu ára stráks á óperu og ferða- lag þrettán ára pilts frá Höfn í Homafirði. Vegna þessa fóra báðir strákarnir seint að sofa, kl. 24 og kl. 1 og tókst því að hækka pró- sentutölu þeirra sem fóra að sofa eftir miðnætti töluvert. Þá era flest- ir krakkanna sofnaðir. Stutt seta við skjáinn Þriðjungur krakkanna hafði ekk- ert horft á sjónvarp kvöldið áður og enginn hafði setið við skjáinn lengur en í þrjá tíma. Það vora allt strákar, sem svo lengi horfðu. Þau sem horfðu á sjónvarp, létu sér flest nægja að horfa á einn sakamála- þátt í léttari kantinum. Fæst horfðu á fréttirnar, fannst þær leiðinlegar. Yngri krakkarnir sögðust helst horfa á gamanmyndir og bama- efni, níu ára snáði sagðist ekki horfa á neitt annað. Hann væri sem betur fer yfirleitt farinn ,að sofa þegar myndir bannaðar börnum væru sýndar, því hann yrði bara hræddur. Eldri krakkamir höfðu mjög gaman af spennu- og hryll- ingsmyndum,.eins og sést á því að allir tólf 'ög þrettán ára krakkar hafa séð hryllingsmynd, sem er bönnuð innan 16 ára. Nokkur höfðu komist í bíó, þar sem bömum innan 16 ára var bannaður aðgangur, en langflest höfðu séð myndirnar í heimahúsi. Mörg sögðust hafa stol- ist til þess þegar foreldramir vora ekki heima og höfðu þá gjaman boðið vinum og kunningjum með. Hjá tólf ára krökkum vora hryll- ingsmyndir vinsælasta skemmtunin í afmælum og partíum, stundum fleiri en ein. „Einu sinni horfðu pabbi og mamma einnar stelpunnar í okkar bekk á eiiia myndina sem við höfðum leigt áður en við fengum að horfa. Það var alveg ömurlegt," sagði tólf ára skólastúlka. Krakk- arnir vora vel að sér í hryllings- myndum og höfðu gaman af því að skeggræða einstök atriði í mynd- unum, rétt eins og breskir jafnaldr- ar þeirra. (Sjá meðfylgjandi ramma.) Það er leikur að læra Þegar íslenskur æskulýður var inntur eftir heimavinnu gærdags- ins, kom í ljós að þriðjungur hafði ekki lært neitt og sögðu flest barn- anna að þeim hefði ekki verið sett neitt fyrir. Einn hafði gleymt að læra og nokkrir ekki nennt því. Um 40% höfðu setið hálftíma eða skem- ur yfír námsbókunum. Nokkrir vora klukkutíma en níu ára strákur og tólf ára stelpa lærðu lengst allra, eða í tvo klukkutíma. Ef til vill hefdr lítill heimalær- . dómur gert það að verkum að flest- um krökkum finnst gaman í skólan- um. Nokkram finnst veran sæmileg en aðeins einum 12 ára strák fannst leiðinlegt í skólanum. Kennarar mega vel við una, því flestir nem- enda þeirra segjast kunna vel að meta þá. Aðeins þremur nemendum þótti kennarinn leiðinlegur og rétt um helmingur sagði kennarann sinn skemmtilegan, sumir sögðu kennar- 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.