Morgunblaðið - 18.12.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988
13
bókmenntimar frá fomsögunum til nútí-
mans, er auðvelt að skilja þá sjálfsmeðvit-
und sem íslendingar bera með sér út í heim-
inn. Mér fínnst ég oft hafa orðið var við
það. Vigdís Finnbogadóttir er gott dæmi
um þetta. Ég held líka að margir Norður-
landabúar séu stoltir af því að slíkur for- •
seti skuli vera til á Norðurlöndum."
— Hvaða áhrif hefur það á samskipti
íslendinga og Dana að ísland er fyrrverandi
nýlenda ykkar?
„Samband íslands og Danmerkur er sem
betur fer ekki bara sagnfræði. Þá væm
tengslfn sjálfsagt ekki eins góð og þau em.
Ég held að það sé í þágu beggja að varð-
veita og styrkja þau bönd sem hin sögulegu
tengsl landanna hafa skapað. íslendingar
njóta mikillar velvildar í Danmörku og við
viljum gjaman efla tengslin sem mest. Auð-
vitað er það ekki mitt að segja íslendingum
hvað þeim sé fyrir bestu, en ég á erfitt með
að trúa öðm en að sambandið við Norður-
löndin sé afgerandi. Með hveijum ættu ís-
lendingar annars að eiga samleið? Við ósk-
um þess að minnsta kosti að ísland haldi
áfram að vera í samfloti með okkur og hin-
um Norðurlöndunum.“
— Á staða Danmerkur gagnvart norrænu
samstarfí ekki eftir að breytast talsvert
þegar sameiginlegur markaður Efnahags-
bandalags Evrópu verður að vemleika eftir
nokkur ár?
„Við emm oft spurðir hvort við ætlum
að Tialda áfram að telja okkur til Norður-
landanna eða snúa okkur að meginlandi
Evrópu. Svarið við báðum spumingunum
er já. Við lítum ekki á það sem val, heldur
samhangandi mál. Norrænt samstarf verður
áfram jafn mikilvægt bæði að innihaldi og
sem táknræn staðfesting á því hvaðan við
komum og hver við emm. Það á ekki eftir
að breytast hvorki með tilkomu sameigin-
legs markaðs Evrópu né einhverri annarri
þróun.
Sameiginlegi markaðurinn á eftir að hafa.
mikla þýðingu fyrir öll Norðurlöndin. Það
er ekki verið að byggja eitthvað upp sem
aðrir eiga ekki aðgang að. Þau lönd sem
hafa fríverslunarsamninga við Efnahags-
bandalagið munu hagnast á því að Evrópa
verður einn stór markaður í stað margra
með mismunandi reglur. Það gildir þrátt
fyrir að hin Norðurlöndin standi alveg utan
þessa sameiginlega markaðs.
Best yrði að reglumar yrðu þannig að
sameiginlegi markaðurinn næði líka til
Norðurlanda. Það er ömggt að þessi mark-
aður á eftir að hafa gífurleg áhrif á efna-
hagslega og pólitíska þróun Evrópu."
Það er oft talað um að dönsk stjómmál
einkennist af óstöðugleika sem fyrst og
fremst orsakast af því að flestar ríkissljóm-
ir í seinni tíð hafa verið minnihlutastjómir.
En Schluter er ekki sammála því:
„Það er rangt að segja að dönsk stjóm-
mál séu óstöðug vegna þess að við höfum
verið með minnihlutastjómir. Við verðum
að hafa í huga að einn flokkur hefur ekki
verið í meirihluta á danska þinginu síðan
1909. Það er orðin hefð fyrir því að allar
ríkisstjómir verði að biðla til stjómarand-
stöðuflokkanna til að ná fram meirihluta
fyrir tillögur sínar. Málamiðlun er höfuðein-
kenni á kerfí okkar. Það skapar tilhneigingu
til samstöðu í stóm línunum í pólitíkinni,
byltingar era ekki málið."
— Skoðanakannanir í sumar og haust
hafa verið Framfaraflokknum mjög í hag á
kostnað þíns flokks. Ertu að missa tökin ...?
„Ég sé ekki ástæðu til að leggja mikið
uppúr þessum skoðanakönnunum. Það hefur
auðvitað ekki verið skemmtilegt fyrir stjórn-
ina og minn flokk að sjá Framfaraflokkinn
gera strandhögg í fylgi okkar, en það hefur
örugglega haft mikið að segja að nýja stjóm-
in náði ekki að leggja fram stefnuskrá sína
fyrr en í október. Eg held að stjómarflokk-
arnir og ekki síst flokkurinn minn eigi góða
framtíð fyrir sér. Við emm í takt við þróun-
ina, það sem við köllum upplýsingaþjóð-
félagið. Iðnaðarsamfélagið einkenndist af
stöðlun, sérhæfingu og miðstýringu. Upp-
lýsingaþjóðfélagið er næsta stigið í þjóð-
félagsþróuninni og mun einkennast af and-
stæðum tilhneiginum þar sem fjölbreytnin
mun taka við af einstefnu og mikilvægasti
þátturinn verður að nýta til fulls það sem
hver einstaklingur hefur yfir að ráða. Og
það passar betur við hugmyndir borgaralegu
flokkanna en hinna vinstrisinnuðu. Langtí-
matilhneigingin er greinilega andstæð
vinstriöflunum og þessvegna er það ekki
skrýtið að þau hafí átt svo erfitt með að
fóta sig í flestum löndum í seinni tíð. Eng-
inn nefndur, enginn gleymdur.“
— Gætirðu hugsað þér að sitja í ríkis-
stjórn án þess að vera forsætisráðherra?
„Nei. Mér finnst enn heillandi að vera
með í að hafa áhrif á þróunina og það er
enn margt óunnið. Og þegar ég sleppi stýr-
inu á næsti forsætisráðherra ekki að þurfa
að hlusta á mig gefa ráðleggingar úr aftur-
sætinu. En það er aldrei að vita, þetta
gæti orðið allt öðmvísi."
— Hvemig litist þér á að Pia Kjærsgaard
yrði forsætisráðherra?
„Pia Kjærsgaard hefur sýnt að hún er
duglegur stjómmálamaður, það viðurkenna
allir, líka andstæðingar hennar. En ég er
alveg sannfærður um að hún verður aldrei
forsætisráðherra."
— Hvert er mikilvægasta verkefni dan-
skra stjórnmála?
„Mikilvægast er að ná jafnvægi í efna-
hagsmálum. Síðasta ríkisstjóm náði góðum
árangri, við stöðvuðum verðbólguna og er-
lendu skuldatökuna og að hluta útþenslu
ríkisbáknsins. En það var ekki nóg, ríkis-
báknið er enn of stórt og viðskiptajöfnuður-
inn er okkur enn í óhag. Við reynum nú
af öllum mætti að fá flokkana til að samein-
ast um að leysa þessi mál. Eitt af því sem
við væntum mikils af núna er niðurskurður
ríkisbáknsins. Kerfí okkar er að mörgu leyti
of stíft. Okkur hefur ekki tekist að aðlaga
það breyttum aðstæðum. Það væri undarleg
íhaldsstefna að sporna við breytingum um
leið og heimurinn í kring breytist æ hrað
ar. Og ég held að borgaraflokkamir hafí
gert sér grein fyrir þessu á meðan vinstri-
flokkamir halda sig við gömlu leiðirnar. Án
breytinga verður engin framvinda, eins og
sagt hefur verið.“
— Hvaða áhrif hefur embættið haft á
þig> — þú liggur stöðugt undir gagnrýni,
andstæðingamir kalla þig
ýmsum nöfnum, þú hefur
t.d. verið uppnefndur „ilm-
vatnssalinn" ...?
„Forsætisráðherraemb-
ættið er mjög kreíjandi það
er ömggt. Og gangrýnin
er aldrei langt undan. Þau
uppnefni sem ég haf fengið
á mig era dæmi um það.
En mér fínnst líka að ég
hafi, á þeim áram sem ég
hef verið forsætisráðherra,
haft tækifæri til að þróast
persónuelga og nýta þá
hæfileika sem ég bý yfír
sem stjómmálamaður. Stjórnmálin hafa orð-
ið ævistarf mitt, ég hef verið í þeim frá
unga aldri. Og ég hef sjálfsagt staðið mig
betur en þeir sem hafa uppnefnt mig bjug-
gust við.“
Þegar ég bið hann um að segja persónu-
lega skoðun sína á helstu pólitísku leiðtogum
Dana: Svend Auken, Gert Petersen, Mogens
Glistrup ofl. færist hann undan:
„Ég við ekki fara útí að gera úttekt á
pólitískum samheijum og mótheijum. Hins-
vegar fínnst mér það skipta miklu máli hér
í Danmörku að andstæðingar tala alltaf vel
um og við hvem annan. Það má segja um
hin Norðurlöndin, en í mörgum öðram lönd-
um er um stöðuga óvináttu að ræða, líka
persónulega á milli pólitískra andstæðinga,
þeir tala ekki saman. Það gemm við og
fínnst það bæði manneskjulegra og lýðræð-
islegra."
Danska slúðurpressan með Ekstrablaðið,
B.T. og Se og hor í broddi fylkingar gengur
mjög nálægt einkalífí þekkts fólks. Poul
Schlúter fékk sinn skerf í byijun þessa árs
þegar Lisbeth kona hans lést af völdum
krabbameins og í sumar þegar þessi blöð
„afhjúpuðu" samband hans og ákveðinnar
vinkonu. Hvemig leið honum undir þessu?
„Ég hef einu sinni sagt að það væri í
rauninni upplífgandi að það skuli vera
nokkrar milljónir Dana sem lesa ekki
Ekstrablaðið. Við stjómmálamenn eigum
líka að geta gagnrýnt pressuna, eins og hún
gagnrýnir okkur. Mér finnst oft pressan
ganga of nálægt einkalífi manna, og blása
upp aukaatriði en gleyma því sem málin
snúast um. En það em að sjálfsögðu einnig
dæmi um hið gagnstæða; að pressan beri
virðingu fyrir fólki, að það séu hlutir sem
ber að láta í friði. Og svo getum við ekki
horft framhjá því þegar við fjöllum um fjöl-
miðla, að hlutverk þeirra í lýðræðisríki er
lífsnauðsynlegt fyrir alla umræðu og þeim
ber að fjalla þannig um hlutina að fólk geti
tekið afstöðu til þeirra.“
Viðtalstíminn er liðinn, en það er ekki
hægt að skilja við Poul Schluter án þess
að biðja hann um að segja eitthvað um
þann eiginleika sem hann er þekktastur
fyrir, bjartsýnina.
„Bjartsýnin, já, hún hefur verið eitt af
vinnutækjum mínum ef svo má segja. Það
er nauðsynlegt að trúa þvi að það heppnist
sem maður er að vinna að. En hún er ekki
bara vinnutæki, hún er líka lífsskoðun. Sum-
ir eru svartsýnir, aðrir léttir og áhyggjulaus-
ir. Bjartsýni er svo enn annað, hún er trúin
á að við séum nógu góð til þess að gera
eitthvað og vandamálin séu ekki stærri en
svo að við getum leyst þau ef við virkilega
viljum."
Ég get ekki hugsað mér
að vera I ríkisstjórn
nema sem forsætisráð-
herra.Mér finnst enn
heiilandi að vera með í
að hafa áhrif á þróunina
og það er enn margt
óunnið. Og þegar ég
sleppi stýrinu á næsti
forsætisráðherra ekki
að þurfa að hlusta á mig
gefa ráðleggingar úr
aftursætinu.
jaBBQwr’
HANDSTURTUSETT
Stillanlegur handdreifari,
sturtustöng, barki og sápuskál.
NYTSAMLEG JÓLAGJÖF
VERÐ ADEINS 1.990,-
v VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
l^fcl LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
/ ' N
Leikfangahúsiö
tilkynnir
Kœru vidskiptavinir!
ísambandi við verdkönnun verðlags-
stofnunar er Leikfangahúsið með hœsta \
verð á einni vörutegund.
Samanburður er ekki raunhœfur. Tekið
er mið afútsöluvöru íeinni búð
(kannski í miður fallegum umbúðum).
Nú œtla ég að biðja fólk að lesa skýrslu
verðlagsstofnunar og bera saman verð.
Auk þess ætla ég að bjóða fólki upp á
afslátt dagana 16.-20. desember.
Afslátturinn er 10-70%
Jóladúkkan
í Evrópu 1988
Póstsendum
Virðingarfyllst,
LEIKFANGAHÚSID,
Skólavörðustíg 10,
sími 14806.
J
Áskriftarsíminn er 83033