Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 26
m_______________.
Kammersveit Reykjavíkur
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DBSEMBER' 1986
Barokkhljóð-
færin tilheyra
barokktónlist
Jólatónleikar í Áskirkju í dag
FRONSK barokktónlist, leikin á barokkhljóðfæri verður á efhisskrá
-*• Kammersveitar Reylqavíkur á fyrstu tónleikum starfsársins, Jólatón-
leikunum sem verða í Áskirkju í dag ki. 17.00. Þar verða leikin
verk eftir Lully, Rameau, Marais, Campra og Leclair. Leiðbeinandi
hljóðfæraleikaranna er Ann Wallström, fíðluleikari frá Svíþjóð. Auk
hennar leika með Kammersveitinni í dag Rut Ingólfsdóttir á fiðlu,
Helga Ingólfsdóttir á sembal, Inga Rós Ingólfsdóttir á á selló, Kol-
beinn Bjarnason á fíautu, Richard Korn á kontrabassa, Marteen van
der Valk á slagverk, Svava Bernharðsdóttir á lágfíðlu og Martin
Fewer á lágfíðlu. Einsöngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Blaðamaður leit inn á æfingu
hjá Kammersveit Reykjavíkur
í vikunni til að forvitnast um efnis-
skrá tónleikanna og hveiju það
SEVEN
SEAS
VÍTAMÍN
DAGLEGA
GERIÐ GÆÐA
SAMANBURÐ
breytti að leika barokktónlist á þau
hljóðfæri sem notuð voru á þeim
tíma sem hún var samin. Fyrir svör-
um varð Ann Wallström, en hún
hefur kynnt sér barokktónlist til
jafns við nútímatónlist.
^Barokkhljóðfærin eru smíðuð
fyrir barokktónlist og í henni eru
öðruvísi hendingar en t.d. í róm-
antískri tónlist. Flest þau hljóðfæri
sem notuð eru í dag eru smíðuð
fyrir rómantíska tónlist og barokk-
tónlistin nýtur sín ekki til fulls sé
hún leikin á þau. Barokktónskáldin
lögðu mikla áherslu á mismunandi
hljóma, mörg hljóðfæri með fjöl-
breytilegum hljóm. Tónlist er skrif-
uð af lifandi fólki fyrir lifandí fólk
og þótt hún berist til | okkar sem
ritverk þá er það okkar hlutverk
að láta hana lifna og auðvitað helst
á svipaðan hátt og hún hljómaði
þegar hún var samin.“
Hefur þú sérhæft þig í barokk-
tónlist?
„Ekki alfarið. Ég leik álíka mikið
barokktónlist og nútímatónlist og
er menntuð í flutningi nútímatón-
listar. Ég hef hins vegar mikinn
áhuga á barokktónlistinni, hef lesið
mikið um hana og barokktímann
almennt, auk þess sem ég hef verið
í læri hjá Clas Pehrsson, blokk-
flautuleikara, í túlkun barokktón-
listar og lærði mjög mikið af hon-
um. Tónlistin breytist eins og allt
annað, tónlistarmenn eru sífellt að
Morgunblaðið/Þorkell
Frá æfíngu Kammersveitarinnar. F.v. Ann Wallström, Rut Ingólfsdóttir, Helga Ingólfsdóttir, Kolbeinn
Bjarnason, Inga Rós Ingólfsdóttir og Richard Korn. Á myndina vantar Marteen van der Valk, Svövu
Bernharðsdóttur og Martin Fewer.
reyna eitthvað nýtt, eitthvað öðru-
vísi. En þegar maður kynnist bar-
okktónlistinni skilur maður betur
það sem á eftir kemur, þetta er
eins og að læra sögu, eitt tímabil
tekur við af öðru og tónlistin á einu
timabili er svörun við þeirri stefnu
sem ríkti á næsta tímabili á undan.
Vínar-klassíkin er svörun við bar-
okktónlistinni, rómantíkin er svörun
við Vínar-klassíkinni og nútímatón-
list er svörun við rómantíkinni.
Maður getur jafnvel séð þjóðfélags-
ástandið á hveijum tíma Speglast í
tónlistinni. Barokktónskáldin lögðu
mikið upp úr flúri, hljómum sem
skáru sig úr en eftir frönsku stjórn-
arbyltingunna, í andófinu gegn aðl-
inum, var lögð áhersla á að allir
hljómar væru jafnréttháir."
Hvað getur þú sagt mér um efn-
isskrá tónleikanna?
„Verkin sem við leikum eru mjög
ólík, og ættu að gefa góða mynd
af því hve mismunandi barokktón-
list getur verið. Verkin eru öll mjög
áhugaverð og spennandi, ekki bara
fyrir hljóðfæraleikara heldur ekki
síður fyrir áheyrendur, þannig að
ég hef þá trú að þetta verði mjög
skemmtilegir tónleikar, ólíkir því
sem fólk á að venjast."
Ann er ekki sú eina sem hefur
sérhæft sig í barokktónlist af þeim
sem leika með Kammersveitinni í
dag. Helga Ingólfsdóttir leikur á
sembal, sem er barrokhljóðfæri og
hollenski slagverksleikarinn Marte-
en van der Valk er meðlimur í al-
þjóðlegri hljómsveit sem nefnist
Orchestra of the 18th Century, eða
Hljómsveit átjándu aldarinnar og
er stofnandi hennar og stjórnandi
Frans Briiggen, blokkflautuleikari.
Hljómsveitin hefur aðsetur í Amst-
erdam og fer í tvö tónleikaferðalög
á ári. Marteen var beðinn að segja
lítillega frá Hljómsveit átjándu ald-
arinnar.
„Frans Briiggen, blokkflautu-
leikarinn frægi, stofnaði þessa
hljómsveit 1981 og safnaði saman
í hana vinum sínum alls staðar að.
Allir leika á upprunaleg hljóðfæri
og ég hef lært mjög mikið af sam-
starfi mínu við hljómsveitina. Ég
hef verið í hljómsvfitinni síðan 1984
og í gegnum það verið boðið að
leika með mörgum frægustu flytj-
endum barokktónlistar í samtíman-
um.“
Og jeikur nú með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands?
„Já, þegar ég fluttist hingað með
konu minni Hlíf Svavarsdóttur, list-
dansara var mér boðin staða í Sin-
fóníuhljómsveitinni, sem ég þáði
með þökkum og mikilli ánægju."
Og leikur nú í fyrsta sinn með
Kammersveit Reykjavíkur?
„Já, og ég er mjög ánægður með
það. Það er gaman að sjá allt þetta
áhugafólk um barokktónlist og
finna hversu áfjáð þau eru í að
gera vel. Ég vona að ég geti hjálp-
að til við að auka þennan áhuga,
ekki aðeins hjá tónlistarfólki heldur
áheyrendum líka. Draumur minn
er að koma því í kring að Hljóm-
sveit átjándu aldarinnar spili hér á
Listahátíð, en hvort af því getur
orðið er önnur saga.“
FJÖLVÍTAMÍN
OG STEINEFNI
(§)t orenco
HEILDSÖLUDREIFING
Laugavegi 16, simi 24057.
Utjkál
ar
Rauðarárstíg 14, sími 622322
Abbeycraft eru margfaldir verðlaunahafar
í enskri stílhúsgagnaframleiðslu.
Þeir hafa fengið hin eftirsóttu „Queen's
Award for Industry and Export Achieve-
ment" verðlaun ekki bara einu sinni heldur
alls fjórum sinnum og eru handhafar þess-
ara verðlauna fyrir árið 1988.
...Húsgögn fyrir fagurkera
Abbeycraft Í
-'Kurmturc l.td.