Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 18.12.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 Churchill innanríkisráðherra (í vitnaleiðslu 1911): Hann vildi fylgjast með öllu því sem fram fór og mætti á staðnum. Þegar Churchill barðist við stjórnleysingja í EastEnd í SHney-stiæti En mennimir í Sidney-stræti voru hættulegir stjómleys- ingjar og morðingjar. Enginn vafí virtist leika á því að einn þeirra væri „Pétur málari", Peter the Painter, sem meira kapp var lagt á að klófesta en nokk- um annan stjómleysingja og glæpa- mann í Bretlandi á þessum áram. Churchill vildi ekki láta sér þetta tækifæri úr greipum ganga. Umsátrinu lauk án þess að lög- reglunni tækist að hafa hendur í hári Péturs málara. Tvö sviðin lík fundust í ijúkandi húsarústum eftir umsátrið, en jörðin virtist hafa gleypt Pétur málara. Flest benti til þess að hann hefði komizt undan. Frægur stjómleysingi Nú hefur rannsókn leitt í ljós að lögregluaðgerð Churchills í Austur- borginni var að nokkra leyti byggð á misskilningi. Pétur málari var aldr- ei í Sidney-stræti að sögn vikublaðs- ins The Observer. Sannað þykir hver þessi dularfulli stjómleysingi var í raun og veru og hann virðist hafa orðið virtur maður í heimalandi sínu á efri áram. Hálfum mánuði áður en atburður- inn í Sidney-stræti gerðist höfðu þrír lögreglumenn verið myrtir þegar þeir rannsökuðu innbrot í skart- gripaverzlun í Houndsditch, Hunda- skurði, í Whitechapel. Eftir morðin voru 500 pund sett til höfuðs Pétri málara, sem var einnig kallaður Pétur Piatkow, eða Pétur Straume frá Riga, og sagður frægur sljóm- leysingi. Lögreglan fékk sérstakan liðsauka til að rannsaka málið og leitaði morðingjanna logandi ljósi í Whitechapel, en án árangurs. Blöðin fylgdust með leitinni af lifandi áhuga og almenningur gleypti í sig fréttim- ar. Hins vegar kom Pétur málari hvergi nálægt morðunum í Hounds- ditch skv. niðurstöðum rannsókna brezks sagnfræðings, Philips Ruffs, sem hefur kannað starfsemi bylting- armanna í Austurborg Lundúna á árum áður, Enginn vafi lék hins vegar á því að Pétur var ágætur málari. Haft var fyrir sátt að hann hefði hlotið viðumefnið af því að milli þess sem hann rændi banka og verzlanir og ógnaði fólki með byssu málaði hann hús sér til lífsvið- urværis. Vopnasmyglari Leníns Pétur málari var Letti að þjóðemi og hét réttu nafni Gederts Eliass. Hann tók ríkan þátt í byltingarstarf- semi á áranum 1905-1914. Árið 1906 var hann í hópi byltingar- manna, sem gerðu fræga árás á aðallögreglustöðina í Riga. Sama ár átti hann aðild að bankaráni í Hels- ingfors. Hagnaðurinn nam um 15.000 pundum og var látinn renna í sjóði byltingarmanna. Eliass/Pétur málari lagði stund á nám í listum í Briissel og hélt að þvi loknu til Marseille, þar sem hann mun hafa stundað vopnasmygl fyrir Lenín. Frá Marseille fór hann til Parísar. í október 1910 hélt hann Péturmálarí var ekki sökudólgurinn og er nú „fundinn“ EINN FRÆGASTI atburður í Bretlandi á árunum fyrir heims- styrjöldina fyrri var umsátrið í Sidney-stræti í Stepney í Aust- urborg Lundúna (East End) í ársbyijun 1911. Umsátrinu stjórn aði enginn annar en Winston Churchill, þá 36 ára gamall inn- anríkisráðherra Fijálslynda flokksins. Hann hlaut ámæli fyrir óðagot. Það þótti ekki viðeigandi að ráðherra Hans hátignar stæði úti á götu í East End og segði lögreglunni hvað hún ætti að gera. til Lundúna og dvaldist þar aðeins skamma hríð að sögn Ruffs. Stjóm Fijálslynda flokksins, sem kom til valda 1906, veitti mörgum stjómleysingjum hæli í Bretlandi og var gagnrýnd fyrir það. Stjómleys- ingjar vora „borgarskæruliðar“ þessara ára, en stjómin þverskallað- ist við óskum um að fólksflutningar til Bretlands yrðu takmarkaðir. Þeg- ar uppreisnin í Rússlandi 1905 rann út í sandinn hreiðraðu pólitískir flóttamenn um sig í fátækrahverfun- um í Austurborg Lundúna, sem höfðu verið alræmd fyrir glæpi frá því löngu áður en . Kobbi kuti (Jack the Ripper) kom til sögunnar 1888. Seinna korfi" Basii fursti við sögu á þess- um slóðum. ■■ERLENDHHi hriwcsiA eftir Gudm. Halldórssort Jósef Stalín dvaldist í hálfan mán- uð í Whitechapel í júní 1907. Þá var hann á flótta undan erindrekum leynilögreglu Rússakeisara, Okhr- ana, og sótti „rannsóknaræfingu" byltingarmanna. Hann bjó í litlu herbergi með Maxim Litvinov, sem síðar varð utanríkisráðherra Sov- étríkjanna og lifði allar hreinsanir. Rithöfundar eins og Joseph Conrad og G.K. Chesterton lýstu byltingar- mönnum og stjómleysingjum þess- ara ára í Lundúnum af rómuðu inn- sæi. Þegar Pétur málari var í Lundún- um síðla árs 1910 skipulögðu lettn- eskir félagar hans, sem vora stjóm- leysingjar eins og hann, innbrotið í Houndsditch. í þeirra augum var slík iðja „eignaupptaka" í þágu bylt- ingarinnar og þeir litu brezka lög- reglumenn sömu augum og starfs- menn Okhrana. Slóðin lá til Péturs Lögreglan kom Lettunum að óvör- um í Houndsditch, en þeir vora vel vopnaðir og komust undan. Tveir lögreglumenn særðust auk þeirra þriggja, sem biðu bana. Lettamir skutu einn félaga sinn í bakið af slysni og drógu hann deyjandi um götur austur- borgarinnar til íbúðar Péturs málara. Pétur lagði á flótta, en lögreglan fékk greinargóða Iýsingu á honum og bendlaði hann við morðin. Churchill mætti við útför lögreglumannanna, sem var gerð frá St. Páls-dómkirkju, ásamt eiginkonu sinni, Clementine. Tíu dögum eftir atburðinn í Houndsditch var lögreglunni til- kynnt að nokkrir stjómleysingjanna feldu sig í húsi nokkra við Sidney- stræti. Lögreglan taldi víst að Pétur málari væri þar á meðal, þótt nú megi heita sannað skv. athugunum Ruffs að hann hafí þá verið farinn til Parísar. ughts and Adventures. „Ég taldi það skyldu mína að fylgjast sjálfur með því sem fram fór. Hins vegar verð ég að viðurkenna að mikil forvitni rak mig líka áfram og ef til vill hefði verið ráðlegast fyrir mig að halda henni í skefjum." Kúlnaregn í götunni Þegar Churchill kom til Sidney- strætis um hádegisbil 3. janúar 1911 í bifreið sinni blasti við honum ein- kennileg sjón. Áhorfendur og ein- kennisklæddir menn vora í hnipri bak við byggingar beggja vegna götunnar og fylgdust með hörðum skotbardaga stjómleysingja og ums- átursliðs. Þá hafði skothríðin staðið í eina og hálfa klukkustund. Frétta- maður Daily Chronicle, sem stóð uppi á þaki bjórkrárinnar Rising Sun, taldi að kúlumar hefðu skipt þúsundum og þó hafði staðan ekkert breytzt. Churchill sá strax að það vora mistök að mæta á staðinn. „Það var ekki í mínum verkahring að skipta mér af starfí þeirra manna, sem vora á staðnum," segir hann í Tho- ughts and Adventures. „Ég hafði miklu meiri völd en allir hinir og hlaut því að verða að axla ábyrgð- ina. Ég gerði mér grein fyrir því að ég hefði farið viturlegar að ráði mínu, ef ég hefði verið kyrr í skrif- stofu minni og haft hægt um mig. Á hinn bóginn gat ég með engu móti stigið aftur upp í bifreiðina og ekið á braut meðan ástandið var svona óvisst og þar að auki stór- merkilegt." Kúlum rigndi frá Sidney-stræti 100. Churchill læddist milli húsa og ræddi við hermenn og lögreglufor- ingja alvarlegur í bragði. Til þess að fá betra útsýni skauzt hann yfir Heldur kalt var í veðri og dálítið snjóaði þegar lögreglan lét til skarar skríða í Sidney-stræti síðla kvölds 2. janúar 1911. Hverfíð fylltist af lögreglu. Um 750 menn umkringdu húsið nr. 100 um nóttina og sagan um morðóðu stjómleysingjana, sem setið væri um í Áusturborginni, barst eins og eldur í sinu. Enginn vissi hve margir þeir væra. Rimlar voru fyrir gluggum og ekkert hljóð heyrð- ist. Þegar gijóti var kastað í rúðum- ar var því svarað með skothríð. Lög- reglumennimir flýttu sér í skjól. Fréttin um umsátrið birtist í öllum morgunblöðunum. Umsátursliðið sá sér þann kost vænstan að biðja um liðsauka her- manna og hringdi í Churchill inn- anríkisráðherra, sem var í baði eins og algengt var þegar eitthvað óvænt bar til tíðinda. „Beitið eins miklu valdi og þið teljið nauðsynlegt," sagði Churchill í símtólið og lofaði að senda flokk hermanna úr Skozka varðliðinu í The Tower á vettvang. Áður en ein klukkustund var liðin vöra 19 varðliðar mættir með Max- im-vélbyssu. Þeir hófu stanzlausa skothríð á Sidney-stræti 100 frá bragghúsi, þar sem þeir vora í góðu skjóli. Churchill flýtti sér til innanríkis- ráðuneytisins í Whitehall til að afla sér nánari upplýsinga. Ekkert nýtt var að frétta þar og hann ákvað að fara á vettvang í bifreið embættis- ins. Flestir fyrirrennarar hans hefðu sleppt því og látið lítíð fara fyrir sér, en Churchill var af öðra sauða- húsi. Hann segir í bók sinni Tho- Eliass: Pétur málari, var á og burt. Churchili mættur í Sidney-stræti (gægist):„Hvað var ráðherrann að flækjast þarna?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.