Morgunblaðið - 18.12.1988, Page 36

Morgunblaðið - 18.12.1988, Page 36
 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1988 Jung’ísk grund- vallarhugtök Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Helmut Hark: Lexikon Jungsc- her Grundbegriffe. Mit Origina- ltexten von C.G. Jung. Heraus- gegeben von Helmut Hark. Walt- er-Verlag Olten und Freiburg im Breisgau 1988. Helmut Hark er þjónandi prest- ur í Karlsruhe, hann stuildar sálusorgun í stfl Jungs og hefur ritað nokkrar bækur um guðfræði og sálfræði. Carl Gustav Jung starfaði sem geðlæknir við Burghözli geðsjúkra- húsið í Zurich og rannsóknir hans þar urðu grundvöllur að ýmsum skoðunum hans á sálfræði. Rann- sóknir hans á geðklofa leiddu til hugmynda um „sameiginlega djúp- vitund“ eða undirvitund. Jung var mjög vel að sér í trúarbragðasögu og táknfræðum trúarbragða, goð- sögum og þeim fræðum sem tengj- ast dulhyggju. Samkvæmt kenningum hans var dulvitundin náma og uppspretta allra trúarbragða og lista. Þetta efni varð lífsstarf hans sem sálfræð- ings og höfundar tuttugu þykkra binda sem Qalla um hugmyndir hans um sál mannsins. Honum var vel ljóst, eins og öllum sem hlotið PHUPS ERSNYRTILEGJOLAGJOF Drottning rafmagnsrakvélanna frá PHILIPS - (Súper-Lúxus). Hleðslurafhlaða sem dugar í tvær vikur. - Einnig bein- tenging. Stafraenn hleðslu- mælir. Nálægðarstilling með níu þrepum. Þrír90gata fljótandi rakhausar, hver með 15 sjálf-skerpandi „Lift- blade" skurðarhnífum. Bartskeri - Vönduð taska. svörtu. <8> Heimílistæki hf Sætúni 8 SÍMI: 69 1S 15 Hafnarstræti 3 • Kringlunni SÍMI: 69 15 25 SÍMI:691.520 ' saMouKgiutt, hafa einhvetja menntun, að því meira sem maðurinn veit, því minna veit hann og þess vegna var öll freð- in hugmyndafræði og „besserwiss- er-háttur“ honum mjög ijarri. End- anlegar lausnir í sálfræði og loka- mynd af sálargerð mannsins var honum fjarri. Endurminningar hans (ensk útg. 1963) eru besta heimild- in um hann sjálfan og kenningar hans í stuttu máli. Rit hans einkenn- ast af óvenjulegri þekkingu, rit- snilld og sjaldgæfri „andlegri spekt“. Jung fjallar um þau efni sem erfítt er að koma til skila, því er oft talað um ýmsa óljósa þætti í framsetningu ýmissa lykilkenninga hans. Því ætti þetta kver að verða lesendum rita hans til glöggvunar varðandi lykilhugtök í umfjöllun hans um oft erfíð viðfangsefni. Helmut Hark skýrir hugtökin í stuttum greinum, ásamt meðfylgj- andi textum úr ritum Jungs. Þar sem rit og kenningar Jungs eru eitthvað þekkt, er þekking á kenningum hans talin hluti al- mennrar menntunar. Hark telur í formála „að oft, þegar orðræða snýst að Jung og kenningum hans, þá komi í ljós að skilningi manna á ýmsum hugtökum í jungískum fræðum sé talsvert ábótavant og menn noti gjarnan þessi hugtök án þess að skilja inntak þeirra og merkingu samkvæmt skilningi höf- undar“. Þetta var ástæðan fyrir því að Helmut Hark tók sér fyrir hend- ur að setja saman kverið. Hér er hugtökum raðað í staf- rófsröð. Mörg þessara hugtaka eru almenn sálfræðihugtök, sem Jung skilur e.t.v. dýpri skilningi en al- mennt gerist, önnur eru jungísk hugtök, sem Jung varð fyrstur til að móta í samræmi við ný viðhorf hans og uppgötvanir í sálfræði. Svo dæmi séu tekin: Anima, Animus, Individuation, Syn- chroniztát, Archetypus og fjöldi annarra hugtaka sem Jung útlistar ítarlega í ritum sínum. Hugtök eru þess eðlis, að merking þeirra er alls ekki freðin, menn nota almenn- ustu hugtök samkvæmt eigin skiln- ingi þótt megininntakið sé almennt viðurkennt. Sama er að segja um hugtök sálfræðinnar, en þar er meiri þörf nákvæmni og því er það mikið þarfaverk að skýra notkun þessara hugtaka eins og einn fremsti sálfræðingur aldarinnar notar þau. Walter-Verlag hefur gefíð út öll verk Jungs í 19 bindum, auk við- bótarbindis og bréf hans í þremur bindum, einnig minningamar og fleiri rit varðandi Jung. Þýðing verka Jungs á ensku er gefín út af Routledge & Kegan Paul í 20 bindum, mjög vönduð útgáfa. Sigurbjörg Guðmunds- dóttir — Minning Mig langar í nokkrum orðum að minnast hennar Sibbu, þó er það ekki létt í fáum orðum. Sibba hét fullu nafni Sigurbjörg 'Guðmunds- dóttir fædd 23. febrúar 1926, á Skjaldþingsstöðum í Vopnafírði, elst 6 systkina. Ég minnist Sibbu móðursystur minnar af svo mörgu, hún var bam- góð, iðin, félagslynd og hafði mikla unun af blómum og dýram. Það var því mikið áfall þegar ég frétti af láti hennar, þar sem hún var stödd á sjúkrahúsi í London í hjartaað- gerð og allt lék í lyndi og hún vænt- anleg heim eftir nokkra daga. Sibba var mér sem móðir og kallaði ég hana oft fóstra, sem ekki er svo fjarri lagi. Öllum var hún eitthvað, hvort sem var við gæslu bama eða bakstur og aðra þjónustu við félagasamtök á staðnum, alltaf var Sibba tilbúin að aðstoða. Missirinn er því sár og söknuður- inn mikill. Það að þekkja Sibbu og hennar persónuleika er góð reynsla, alltaf var hún að gera öðram greiða og gleðja þá sem stóðu henni næst. Heimilið prýddi hún með handa- vinnu sem hún vann sjálf. Einnig gaf hún margt sem hún vann í höndum því henni féll varla verk úr hendi. Nú, þegar jólahátíðin fer í hönd, og sá tími er minningar frá liðnum æskudögum koma í huga manns, þá er margs að minnast, bæði í sorg og gleði. Sibba frænka var frænka allra í fjölskyldunni. Hún var yfírleitt hress og kát, þar af leiðandi hrókur alls fagnaðar. Eg minnist þess sér-. staklega hversu bamgóð hún var. Bömin nánast drógust að henni eins og jám að segulstáli. Já, það er margs að minnast og margt að þakka kæra frænku minni. Eg vil ekki síður þakka henni þá þolin- mæði sem hún sýndi mér á mínum unglingsáram, því oft hefur maður nú verið henni erfíður. Sibba giftist Bimi Jónssyni föð- urbróður mínum frá Vopnafírði og eignuðust þau þijú böm. Ástu, gifta Bent Jocmsen og eiga þau fjögur böm. Siguijón, kvæntan Ástu Harðardóttur og eiga þau eitt bam, og Guðmund, kvæntan Herdísi Harðardóttur og eiga þau tvö böm. Ég veit að Sibba fær góða heim- komu. Það verður tekið vel á móti henni af þeim sem á undan era gengnir. Þar fær hún hvíld og frið. Góði guð, blessa þú hana um eilífð. Um leið og við kveðjum Sibbu hinstu kveðju bið ég guð að blessa eiginmann hennar, böm, tengda- böm og bamaböm. Megi guð vera með ykkur og styrkja í þessari miklu sorg. Einnig sendi ég systkin- um hinnar látnu mínar samúðar- kveðjur. Þetta var okkur öllum mik- ill missir. Megi elsku frænka mín fara í friði. Vinar, burt sem vikinn er, veitist jafnan ljúft að minnast, yndislegt að óska sér aftur mega sjást og finnast. Frelsari, þín minning mær mjög er vinum þínum kær. Gjör, 6 Jesús, hjartað hreint, helga það til endurfundar. Gef vér keppum Ijóst og leynt lifa þér til hinstu stundar. Nafn þitt veri lífsins ljós, leiðarblys að dauðans ós. (N.F.S. Grundtvig.). Sigurvin Kristjánsson Birting afinælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afinælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tek- in til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.