Morgunblaðið - 31.01.1989, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.1989, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989 Skotín með loftriffli TÓLF ára stúlka á Seltjamarnesi fékk skot úr loftriffli milli herða- blaðanna á laugardag. Hana sak- aði ekki. Fimmtán ára piltur hefur játað að hafa verið að skjóta úr loftriffli sínum út um glugga húss sunnar- lega á nesinu en segir óviljaverk að stúlkan hafi orðið fyrir skoti. Ríkisstjórnin: Samkomulag- um vaxta- og gengismál? REYNT var að ná samkomulagi um efoahagsráðstafanir í stjórn- arflokkunum um helgina. Ráð- herrar sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að talsvert hefði þokast í samkomulagsátt, en enn væri mikil vinna eftir. „Þetta stefhir allt í rétta átt. Við ætlum að vera búnir að ganga frá þessu áður en þing kemur saman,“ sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins liggur nú nokkum veginn fyrir samkomulag um stefiiu ríkis- stjómarinnar í vaxtamálum. Sam- komulagið byggist á því -að beita lagaákvæði, sem heimilar Seðlabank- anum að hlutast til um vaxtaákvarð- anir. Ákvæðinu hefur ekki verið beitt, en til þess að Seðlabanki megi nýta heimildina þarf vaxtamunur að vera óeðlilega mikill og vextir hér að hækka umfram það sem þeir hækka í helstu viðskiptalöndum okk- ar. Er talið að Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra geti sætt sig við að þak verði sett á vexti með því að gera þessa lagaheimild virka. Forsætisráðherra sagði í gær að hann teldi að það stefndi allt í rétta átt varðandi samkomulag í ríkis- stjóminni um gengismál. Það sem einkum er til umræðu nú er minni háttar gengisfelling og aðgerðir til að lækka raungengi krónunnar, eink- um með því að halda kostnaðar- hækkunum í skeflum. Ekki liggur enn fyrir hvort sam- komulag tekst við fulltrúa Borgara- flokks um sijómaraðild, en Júlíus Sólnes, formaður flokksins, sagði að hann teldi helmingslíkur á samkomu- lagi og mál skýrðust síðar í vikunni. Ráðherrar ríkisstjómarinnar eru enn þeirrar skoðunar að stjómin verði fyrst að ná saman um aðgerðir, áður en Borgaraflokkurinn eða hluti hans komi inn í sljóm. Forsætisráðherra greinir frá ein- stökum efnisatriðum efnahagsráð- stafana á Alþingi næsta mánudag. Reykvíkingar mótí sína eigin heilbrigðisþjónustu Lagttil að Sjúkrasamlagið verði sjúkratryggingasjóður í HUGMYNDUM starfshóps um heilbrigðismál á borgarmálaráð- stefiiu Sjálfetæðisflokksins var meðal annars lagt til, að Sjúkra- samlagi Reylgavíkur verði breytt i sjúkratryggingasjóð, sem borg- arbúar greiði iðgjöld til. Þannig verði Reykvíkingum gert kleift að móta eigin heilbrigðisþjón- ustu og beina henni i þann far- veg, sem þeim hentar. Formaður starfshóps um heil- brigðismál var Grímur Sæmundsen læknir. Hann sagði blikur á lofti í heilbrigðismálum og varaði ein- dregið við miðstýringaráformum ríkisins með tilheyrandi forsjár- hyggju og skömmtun. Hvatti hann sjálfstæðismenn í borginni til að spyma við fótum því reynslan sýndi, að aukin afskipti ríkisins af þessum málum leiddu til verri og dýrari heilbrigðisþjónustu. f niðurstöðum starfshópsins var lögð áhersla á að vekja þurfi verð- skyn þeirra sem njóta heilbrigðis- þjónustunnar og þeirra sem veita hana. Einnig að tryggja að fjár- hagsleg og stjómunarleg ábyrgð í rekstri heilbrigðisstofnana fari saman og að Reykjavíkurborg hafi svigrúm til að leita hagkvæmustu leiðanna til að sinna neytendum og tryggja hámarksgæði þjónustunn- ar. Til þess að ná þessum markmið- um telur hópurinn meðal annars, að breyta eigi Sjúkrasamlagi Reykjavíkur í sjúkratryggingasjóð. Allir borgarbúar skuli greiða ákveð- ið lágmarksiðgjald til sjóðsins, en auk þess greiði menn persónubund- ið gjald í samræmi við tekjur sínar. Með þessu móti geti Reykvíkingar mótað stefnu í eigin heilbrigðismál- um og beint henni í þann farveg sem þeim hentar. Þar sem kostnað- ur við heilbrigðisþjónustu í borginni væri ekki lengur greiddur af ríkinu myndu skattaálögur minnka, sem næmi þessum iðgjöldum. Starfshópurinn benti í greinar- gerð sinni á sérstöðu Reykjavíkur í heilbrigðismálum, þar sem öll sér- fræðiþjónusta væri þar í boði utan sjúkrahúsa og þar væru stærstu sjúkrahús landsins. Mun fleiri leiðir væru til uppbyggingar heilsugæslu í borginni en í dreifbýli og fleiri leiðir heldur en gert væri ráð fyrir í lögum um heilbrigðisþjónustu. Sjá frásögn bls. 27. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Vatnsveður eftir vetrarhörkur Mikla hláku gerði í höfúðborginni í gærkvöldi, eftir fannfergi I borgarstarfemanna réðst til atlögu við niðurfoll, til að forðast undanfarinna daga. Götur borgarinnar hurfú í vatnsflaum og lið | flóð. Umferðin gekk vandræðalaust þrátt fyrir hlákuna. Könnun Félagsvísindastofiiunar: Kaupmáttur rýmaði um 15% á einu ári FRÁ nóvember 1987 til nóvember 1988 hafa heildartekjur fólks í fullri vinnu hækkað um 21% en Qölskyldutekjur um 24,8%. Hækkun framfærsluvísitölunnar á viðmiðunartimanum er um 24,8% og hefúr kaupmáttur heildartekna fólks í fúllri vinnu þvi rýrnað um nærri 15% á árinu, en kaupmáttur Qölskyldutekna hefúr hins vegar staðið í stað. Þetta virðist einkum vera vegna þess, að um leið og úr vinnu- tima og tekjum hefúr dregið hjá fólki i fúllri vinnu hefúr fólk í hlutastörfúm aukið vinnutíma sinn og tekjur. Þegar annar tveggja útivinnandi aðila í meðalQöIskyldunni verður fyrir tekjutapi virðist sem það hafi oft verið bætt upp með aukinni vinnu og tekjum hins. Um 63% vinnandi manna sögðust vera ánægðir með fjárhagsafkomu sína og Qölskyldu sinnar i nóvember sl., en i maí sl. sögðust 59% vera ánægðir með afkomuna. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Félagsvísindastofnunar á atvinnu og tekjum í nóvember 1988, með samanburði við kannanir frá maí 1988 og nóvember 1987. Þar kemur fram, að um 81% lands- manna á aldrinum 18-75 ára voru við launuð störf í nóvember sl., en í nóvember 1987 voru þeir 82%. Atvinnuleysi nú er um 1,1%, en fyrir ári síðan var það um 0,4%. Nokkuð hefur því dregið úr atvinnu- þátttöku undir lok ársins 1988 og atvinnuleysi aukist. Frá 3-6% ein- staklinga eru fjarverandi frá vinnu til lengri tíma vegna veikinda eða fría á könnunartímunum, og er hlutfallið hæst að vori 1988. At- vinnuþátttaka karla var um 88% í nóvember sl., en hjá konum var hlutfallið 72%. Atvinnuleysi kvenna var um 1,7% í nóvember sl., en hjá körlum var það 0,5%. Heildarvinnutími fólks í fullri vinnu var um 52 stundir á viku í nóvember sl. og hafði styst um nærri eina klukkustund frá nóvem- ber fyrir ári. í skýrslu Félagsvís- indastofnunar segir, að þetta sé heldur minni stytting vinnutíma en gögn Kjararannsóknamefndar frá þriðja ársfjórðungi 1988 gefi til kynna. Vinnutími karla í fullri vinnu var um 55 stundir í nóvember sl. og konur í fullri vinnu unnu um 46 stundir. Flestir vinnandi karlar eru í fullri vinnu, en ef vinnutími full- vinnandi og hlutavinnandi kvenna er reiknaður saman eru þær með um 37 stundir á viku í nóvember sl. Um leið og vinnutími þeirra sem eru í fullu starfí hefur styst lítillega virðist vinnutími þeirra sem eru í hlutastörfum heldur hafa aukist. Karlar í fullri vinnu höfðu að jafnaði um 112 þúsund krónur í heildartekjur á mánuði í nóvember síðastliðnum, en konur í fullri vinnu höfðu á sama tíma um 71 þúsund krónur á mánuði. Voru heildartekj- ur kvenna því um 63% af heildar- . tekjum karla, en umtalsverður hluti þess munar er vegna lengri vinnu- tíma karlanna. Ef miðað er við heildartekjur á klukkustund höfðu karlamir 467 krónur, en konumar 358 krónur. Heildartekjur kvenna á klukkustund em því um 77% af tekjum karla. Nokkur hluti af þeim mun sem þá er eftir skýrist af mis- munandi starfsstéttaskiptingu kynjanna. Fjölskyldur vinnandi svarenda höfðu aðjafnaði 151 þúsund krónur í tekjur í nóvember sl. Ef miðað er við allt vinnandi fólk (hlutavinnandi eða fullvinnandi) vom meðalfjöl- skyldutekjumar um 148 þúsund krónur á mánuði. Heildarvinnutími fullvinnandi verkakarla var í nóvember síðast- liðnum um 56 stundir á viku, iðnað- armenn, sérfræðingar og atvinnu- rekendur vom einnig með um 56 stundir að jafnaði, karlar í skrif- stofu- og þjónustustörfum vom með stysta vinnutímann, um 53 stundir, en sjómenn og bændur höfðu lengsta vinnutímann, eða 74 stund- ir á viku. Verkakarlar þöfðu að jafnaði um 89 þúsund krónur í heildartekjur í nóvember, iðnaðarmenn um 112 þúsund krónur, karlar í skrifstofu- og þjónustustörfum um 110 þúsund krónur, sérfræðingar og atvinnu- rekendur um 144 þúsund krónur og loks höfðu sjómenn og bændur að jafnaði um 132 þúsund krónur, en þar af era sjómenn með mun hærri tekjur en bændur. Verkakonur vom að jafnaði með um 57 þúsund krónur á mánuði í heildartekjur, en konur í skrifstofu- og þjónustustörfum höfðu um 75 þúsund krónur á mánuði fyrir held- ur skemmri vinnutíma en verkakon- umar. Dreifing tekna er þannig að um 8% fólks em með undir 30 þúsund krónum í heildartekjur, nærri 58% er með undir 90 þúsund krónum á mánuði og um 13% em með 150 þúsund krónur eða meira á mán- uði. Um 3% höfðu 210 þúsund krón- ur eða meira á mánuði í nóvember sl. og samsvarar það um 4000 manns á aldrinum 18-75 ára.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.