Morgunblaðið - 31.01.1989, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.01.1989, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989 John Tower, verðandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna: Nauðsynlegt að endumýja vígvallarvopn í V-Evrópu NATO-ríkin treysti öryggi vinveittra ríkja í þriðja heiminum MUnchen. The Daily Telegraph, Reuter. JOHN Tower, sem George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefiit til embættis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudag að Bandaríkjastjórn myndi leita eftir stuðningi bandamanna sinna inn- an Atlantshafsbandalagsins (NATO) til að unnt yrði að treysta ör- yggi vinveittra rikja i þriðja heiminum. Tower lét þessi orð falla á tveggja daga ráðstefnu um öryggismál sem firam fer á ári hveiju í MUnchen i Vestur-Þýskalandi. I máli hans kom fram að Bandarikja- menn teldu nauðsynlegt að endurnýja vígvallarvopn með kjarnorku- hleðslum í Vestur-Evrópu og mætti framkvæmd áætlunar í þá veru ekki dragast frekar. Tóku nokkrir varnarmálaráðherrar aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins, þ.’a m. Johan Jörgen Holst, varnar- málaráðherra Noregs, undir þessi orð hans. Oldungadeild Bandaríkjaþings þarf lögum samkvæmt að leggja blessun sína yfír skipun Towers og er búist við þingmenn gangi til at- kvæða um málið í þessari viku. í síðustu viku kom hann fyrir her- málanefnd öldungadeildarinnar og lýsti þar þeirri skoðun sinni að sú hætta sem lýðræðisrílqunum staf- aði af Sovétríkjunum hefði ekki minnkað þó svo aukinnar þíðu gætti í samskiptum austurs og vesturs. í ávarpi sínu á sunnudag lagði Tower til að NATO-ríkin í Evrópu sameinuðust um að veita vinveittum ríkjum í þriðja heiminum aðstoð til að unnt reyndist að treysta öryggi þeirra. Neftidi hann Egyptaland og Túnis sem dæmi og sagði að ríkjum þessum stæði ógn af Líbýumönnum og hinum herskáa leiðtoga þeirra, Muammar Gaddafi. Tower sagði að skoða þyrfti þann kostnað sem fylgdi því að halda úti bandarísku herliði í Vestur-Evrópu þar eð fyrirsjáanlegt væri að spam- aðaraðgerðir til að vinna bug á fjár- lagahalla Bandaríkjanna myndu einnig taka til útgjalda til vamar- mála. Hann lagði hins vegar áherslu á að það þjónaði öryggishagsmun- um Bandaríkjanna að hafa herliðið í Evrópu, sem telur um 320.000 manns og kvaðst ekki búast við „verulegum samdrætti“ á þessum vettvangi. Tower minnti á svonefnda Montebello-ákvörðun NATO frá árinu 1983 um endumýjun vígvall- arvopna með kjamorkuhleðslum í Vestur-Evrópu og kvað „nauðsyn- legt“ að ekki yrði vikið frá henni. Vamarmálaráðherrar Noregs, Holl- ands og Ítalíu lýstu sig sammála þessu mati Towers. Undirvígvallar- vopn heyra m.a. kjamorkuflug- skeyti sem draga allt að 500 kfló- metra, stórskotaliðsbyssur sem skotið geta sprengjukúlum með kjamahleðslum og kjamorkujarð- sprengjur. Frekari tafír á fram- kvæmd þessarar ákvörðunar sagði Tower gefa Sovétmönnum tækifæri til að grafa undan samstöðu aðild- arrílqa Atlantshafsbandalagsins. Bandaríkjamenn og fleiri banda- lagsríki hafa þtýst á stjómvöld í Vestur-Þýskalandi um að sam- þykkja endumýjun þessa hluta kjamorkuheraflans á þessu ári. Sovétmenn njóta mikilla yfírburða á þessu sviði í Evrópu t.a.m. ræður herafli NATO í Evrópu aðeins yfír rúmlega 70 skammdrægum kjam- orkuflugskeytum af „Lance“-gerð sem sérfræðingar segja löngu úrelt en ríki Varsjárbandalagsins kveðast eiga rúmlega 1.600 skotpalla fyrir skammdræg flugskeyti. Vestur-Þjóðveijar hafa verið tregir til að samþykkja framkvæmd Montebello-ákvörðunarinnar og hefur verið deilt um réttmæti henn- ar innan vestur-þýsku stjómarinnar þar eð ljóst er að komi til átaka í Evrópu verður vopnum þessum beitt á vígvöllujp í Vestur- og Aust- ur-Þýskalandi. ERLENT Reuter Hindra hvalveiðar Grænfriðungur hindrar að japanskir hvalfangarar geti skotið á hrefnur í suðurhöfum með þvi að sigla hraðbáti sínum fyrir fram- an hvalbátinn. Japanir hyggjast veiða 300 hvali í vísindaskyni en grænfriðungar hafa fylgt hvalbátunum eftir og reynt að koma í veg fyrir veiðamar. Franz Schönhuber, formaður repúblikana; Stoltur af for- tíð sinni í SS „Lífstíðarfangelsi fyrir fíkniefhasala og enga náðun,“ þrumaði Franz Schönhuber, formaður og stofiiandi hins öfgasinnaða Repú- blikanaflokks, á stjóramálafundi I Mttnchen i fyrra. Ekki fékk hann síður góðar undirtektir þegar hann krafðist þess að mótmæ- lendum, sem hylja andlit sitt, yrði mætt af meiri hörku og þróunar- hjálp til Afríku yrði stöðvuð vegna þess að „hún lenti i höndunum á glæpahundum". Repúblikanaflokkurinn var stofnaður í Bæjaralandi árið 1983 og beinist áróður hans einkum gegn útlendingum. Auk þess er lögð áhersla á sameiningu þýsku ríkjanna og „þjóðlegar dyggðir" eins og hreinlæti og stundvísi. Fram til þessa hefur flokkurinn litlum árangri náð í kosningum ef fylkiskosningar í Bæjaralandi árið 1986 eru undanskildar. Þá fengu repúblikanar 3% atkvæða og olli það Kristilega sambands- flokknum með Franz Jósef Strauss heitinn í broddi fylkingar nokkrum áhyggjum. Liðhlaupi eða stríðskappi? Franz Schönhuber er 65 ára gamal! fyrrum sjálfboðaliði í SS- sveitunum. Samkvæmt eigin lýs- ingu var Schönhuber „ótrúlega hugrakkur hermaður" en upp á síðkastið hefur hughreysti hans í stríðinu verið dregin mjög í efa. Til dæmis hefur honum ekki tek- ist að færa sönnur á þá fullyrð- ingu sína að hann hafi fengið Jámkrossinn fyrir hugprýði. Því hefur jafnvel verið haldið fram að Schönhuber hafí vegna hug- leysis gerst liðhlaupi árið 1945 og því til stuðnings verið bent á að hann var sá eini úr 11. bryn- fylki SS sem ekki var handtekinn af Rússum f stríðslok. Sú ásökun er sérlega neyðarleg fyrir Schön- huber því málgagn flokks hans mótmælti harkalega þegar af- hjúpað var minnismerki í Bremen til heiðurs hinum óþekkta lið- hlaupa. „Skömm fyrir þýska her- inn“ sagði í málgagninu. Schönhuber var rekinn úr starfi sem þáttagerðarmaður hjá Bæ- verska sjónvarpinu vegna met- . sölubókarinnar „Þátttaka mín“ sem flallar um feril höfundar í stríðinu. Síðan hefur komið út bókin „Þýskaland þrátt fyrir allt“ og Schönhuber hefur boðað nýtt ritverk undir nafninu „Svikin við þjóðemisstefnuna". Schönhuber lét aldeilis í sér heyra f fyrra þegar upp komst um fjárdrátt Wemers Nachmanns heitins, forseta Miðnefndar þýska gyðingasamfélagsins. „Svipta verður lokinu af þessum illa þefj- andi graut, annars verður Mið- nefndin að fímmta hemámsveld- inu,“ sagði Schönhuber. Þótt Repúblikanaflokkurinn hafí vakið ugg með lýðræðissinn- um í Vestur-Þýskalandi hafnar Schönhuber allri samvinnu við NDP, flokk nýnasista. Sá flokkur „brýtur gegn grundvallarlögmál- um hinnar lýðræðislegu þjóðemis- stefnu," segir Schönhuber. Öryggisákvæði ' stj órnarskrárinnar Stjómarskrá Sambandslýðveld- Franz Schönhuber isins gerir ráð fyrir tveimur mögu- leikum til þess að hindra uppgang öfgaflokka. í fyrsta lagi verður stjómmálaflokkur að ná 5% at- kvæða a.m.k. til að fá fulltrúa á þing hvort sem er í sambands- kosningum eða fylkiskosningum. Þetta ákvæði hefur til dæmis með fáum undantekningum hindrað að DKP, Þýski kommúnistaflokkur- inn, og NPD, flokkur nýnasta, kæmust til áhrifa. í öðra lagi heimilar sfjómarskráin bann við starfsemi sfjómmálaflokka „sem með markmiðum sfnum eða hegð- un fylgismanna sinna ógna hinu lýðræðislega grandvallarskipu- lagi.“ Tvisvar hefur þessu ákvæði verið beitt; gegn SR, hinum hægrisinnaða Sósíalíska rfkis- flokki og KPD, Kommúnistaflokki Þýskalands. Segja má að NPD og DKP séu arftakar þessara tveggja flokka en starfsemi þeirra hefur verið liðin á þeirri forsendu að skoðanir lq'ósenda birtist ekki nægilega vel í kosningum ef smá- flokkar séu bannaðir og nýjum flokkum gert að bregða yfir sig lýðræðishulu. Auk þess hafa menn vonast til þess að slíkir öfgaflokk- ar væra tímabundin fyrirbrigði. Undir kjörorðinu „Þýskaland fyrir Þjóðveija" hafa öfgaflokkar til hægri einkum sótt fylgi sitt til hefðbundinna fylgismanna Kristi- legra demókrata í þéttbýlum iðn- aðarhéraðum þar sem mikið er um útlendinga. Heimild: Der Spiegel Aróðurinn minnir á nasista - segir Ágást Þór Árnason, sem búsettur er í Vestur-Berlín „NOKKUR vafí leikur á hvort flokka beri repúblikana sem nýnas- ista eða óánægða smáborgara og þykir síðari skýringin líklegri,“ sagði Ágúst Þór Árnason, námsmaður í Berlin, í samtali við Morgunblaðið. „Kristilegir demókratar eru flestir þeirrar skoðun- ar að hægrisinnaðir kjósendur hafi viljað veita stjóraarflokkunum • ráðningu fyrir lélega stjóra en þess má geta að hvert hneykslið hefur rekið annað í Vestur-Berlín undanfarið kjörtímabil,“ sagði Ágúst ennfremur. Kosningasigur repúblikana kom öllum mjög á óvart ekki síst þeim sjálfum. Hinir flokkamir sem fulltrúa eiga á fylkisþinginu í Berlín era sammála um að efna ekki til samstarfs við repúblikana vegna þess hve öfgafullir þeir era. Hins vegar benda stjómmálaský- rendur á að með aðgerðaleysi sínu í málefnum útlendra verkamanna í Vestur-Berlín hafí stjómvöld undirbúið jarðveginn fyrir kosn- ingasigur öfgasinnaðs hægri- flokks af þessu tagi. „Af þessum sökum era stjómarflokkamir með nokkurt samviskubit vegna úrsli- tanna og kenna sjálfum sér að nokkra leyti um,“ sagði Ágúst. „Þrír möguleikar hafa verið neftidir varðandi eftirleik kosning- anna. Samstarf jafnaðarmanna og græningja, sem saman hafa meirihluta á þinginu í V-Berlín, kemur til greina en óvíst er hvort jafnaðarmenn leggi út í slíkt vegna fordæmisgildisins sem það hefði í öðrum fyllqum Sambands- lýðveldisins. Forystumenn Kristi- legra demókrata og jafnaðar- manna hafa gefíð í skyn að stjóm- arsamstarf þessara tveggja stærstu flokkanna kæmi til greina. Innan flokks kristilegra demókrata og Fijálsra demó- krata, sem duttu út af þingi, eru einnig uppi raddir um nýjar kosn- ingar. Vonast þeir þá til að Iq'ós- endur endurtaki ekki sömu mis- tökin,“ sagði Ágúst. „Úrslitin eru ekki síst alvarleg fyrir stjómvöld í Bonn þar sem sama stjómarmynstur hefur verið og í Vestur-Berlín. Þetta era fímmtu fylkiskosningamar í röð þar sem Kristilegir demókratar tapa fylgi og tengjast úrslitin nú óánægju með breytingar sam- bandsstjómarinnar á löggjöf um sjúkratryggingar. Kosningabarátta repúblikana var nokkuð söguleg. Almennt samkomuiag virtist vera um að þegja flokkinn í hel auk þess sem her lögreglu varð að standa vörð um kosningafund flokksins vegna mótmæla. Repúblikanar virðast einkum njóta stuðnings í hverfum þar sem verkamenn era fjölmenn- ir auk þess sem stuðningur við þá er útbreiddur innan lögregl- unnar í borginni. Einnig má nefna að sjónvarpsauglýsing frá flokkn- um vakti mikla reiði. Þar mátti sjá hóp af Tyrkjum og undir var leikið lagið „Spiel mir das Lied vom Tode“, eða „Leiktu mér lagið um dauðann", sama lag og nas- istar notuðu við áróður gegn gyð- ingum. Áróðurinn minnir á að- ferðir nasista og slagorðin eru keimlík nema hvað Tyrkir og Júgóslavar koma í stað gyðinga," sagði Ágúst Þór Ámason að lok- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.