Morgunblaðið - 31.01.1989, Síða 30

Morgunblaðið - 31.01.1989, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989 Átta í samkomu- bann eftir þorrablót ÁTTA „skemmtanaglaðir“ Þórshafnarbúar þurfa að sæta samkomubanni í mislangan tíma eftir þorrablót, sem haldið var í félagsheimilinu þar í sveit, Þórsveri, síðastliðinn laugar- dag. Að sögn húsvarðarins í Þórs- veri, Sigfúsar Skúlasonar, voru sumir þessara manna dæmdir í þriggja mánaða bann og aðrir allt upp í sex mánaða skemmtana- bann. Dæmi væru þó um áralöng samkomubönn þó ekki hafí verið gripið til þess nú. Með skemmtana- banni er viðkomandi meinað að sækja dansleiki sem haldnir eru í viðkomandi sýslu. Áttmenningam- ir munu því ekki fá inni á dan- sleikjum í Norður-Þingejrjarsýslu næstu þijá til sex mánuðina. Sigf- ús sagði að feykilegt Qör hefði verið á þorrablótinu þó sumir hefðu endilega þurft að útkljá ein- hver persónuleg mál sín á milli meðan á blótinu stóð. „Kraftamir vilja oft hlaupa út í hendumar á mönnum þegar of langt líður á milli dansleikja hér,“ sagði Sigfús, en þess má geta að síðasti dans- leikur á Þórshöfn var haldinn um áramótin. Arekstur á Hlíðarbraut Aitanákeyrsla varð á Hlíðar- braut um miðjan dag í gær. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmd- ir urðu á bifreiðum. Síðasta helgi var róleg hjá lögreglumönnum á Akureyri þrátt fyrir smávegis ölv- un í bænum. Nokkur hálka er í bænum og snjór er mikill á Akur- eyri. Vinnuvélar unnu að því að hreinsa götur í allan gærdag og er nú greiðfært víðast hvar í bæn- um. Skíðafólk bíður rútunnar á Brekkunni. Morgunbiaðið/RúnarÞór Hliðargall: Sæmileg aðsókn fyrstu helgina SÆMILEG aðsókn var að Skíðastöðum í HlíðarQaUi um helgina, en HllðarQall var fyrst opnað skiðafólki sl. laugardag. Aðallega var skíðafólk frá Ak- ureyri enda ófiert úr nærliggj- andi bæjum auk þess sem flug lá niðri um helgina. Gott veður var til skíðaiðkana á laugardag, en skafirenningur var nokkur á sunnudag. Opið verður fyrst um sinn um helgar frá 10.00 til 16.00 og á virkum dögum frá kl. 13.00 til 17.00. Nokkum snjó vantar enn í Hjallabraut, sem er eina flóð- lýsta brautin í ijallinu og sú eina sem notuð er á kvöldin. Vænta má þess að úr snjóleysinu rætist á allra næstu dögum, ef marka má veðurspá. Þá verður opnun- artíminn framlengdur til 18.45 á mánudögum og föstudögum og til 20.45 á þriðjudögum, miðviku- dögum og fímmtudögum. Rútuferðir eru úr bænum alla daga og er fólki safnað saman á einum þremur stöðum úti í Þorpi, í miðbænum og upp í gegnum bæinn, á Brekkunni. DNG markaðssetur nýtt öryggistæki: — segir Reynir Eiríksson, markaðsstjóri DNG „Gengum lengí með Vörð í maganum“ DNG rafeindaiðnaður hf. á Akureyri er að heQa markaðs- setningu á nýju öryggistæki, sem starfsmenn fyrirtækisins hafii kosið að nefna Vörð. Vörður verður fyrst um sinn seldur inn- anlands hjá DNG, en seinna má búast við að hann fiáist hjá um- boðsaðilum víða um land. Tækið kostar 69 þúsund krónur. Við Vörð er hægt að tengja sex nema og gerir hann þar að auki viðvart ef rafmagn fer af. Nemar þeir, sem tengjast Verði, geta verið af ýmsum toga svo sem reykskynj- arar, hitaskynjarar, vatnshæðar- skynjarar og þjófavamarkerfí. Vörður getur hringt í allt að nfutfu símanúmer og mest níu sinnum í hvert þeirra. Litlar líkur eru taldar á að eigendur slfkra tækja þurfí að slá inn níutíu símanúmer, en mögu- leikinn er engu að síður fyrir hendi. Ætla má að flestir notendur slái innan við tíu símanúmer inn í tæk- ið. Mjög auðvelt er að setja síma- númer og aðrar upplýsingar inn í Vörð og lítil hætta er á að notandi geri vitleysur, að sögn Reynis Eiríkssonar, markaðsstjóra hjá DNG. Reynir sagði jaftiframt að Vörður væri mjög einfaldur í upp- setningu, tæki lftið pláss og gæti verið nánast hvar sem væri. Vörður tengist sfmalfnu, sem er til staðar en þarf ekki sérstaka línu. Ef raf- magn fer af er Vörður áfram virkur því í honum eru innbyggðar raf- hlöður, sem endsist í um eina klukkustund. Þegar rafmagn kemst síðan aftur á hlaðast rafhlöðumar í tækinu á ný. Því þarf aldrei að skipta um rafhlöður í tækinu. Sendi einhver nemi boð til Varð- ar hringir hann þegar í stað í þau símanúmer sem hafa verið slegin inn í hann. Vörður hringir þar til er svarað og skilaboð hans móttek- in. Sá sem svarar hringingu Varðar gefur til kynna að skilaboðin séu meðtekin með því að styðja á fyrir- fram ákveðinn tölustaf á símtæki sínu. Ef sá sem svarar styður ekki á þennan ákveðna tölustaf telur Vörður að skilaboðin hafí ekki verið meðtekin og hringir í næsta síma- númer. Þegar á staðinn er komið segir tækið til um hvaða skynjari fór af stað og í hvaða númeri skila- boðin vom móttekin. „Starfsmenn DNG voru búnir að ganga með þetta tæki í maganjim í langan tíma. Þróun þess var að mestu lokið fyrir um það bil ári og þá var Fiskeldi Eyjafjarðar hf. feng- ið til að prófa tækið, sem átti að láta vita ef dælur færu úr gangi, vatnsmagn lækkaði, ef rafmagn færi og fleira. Þeir fískeldismenn hafa góða reynslu af tækinu og brást Vörður aldrei ef eitthvað bját- aði á. Hinsvegar má hugsa sér Vörð hvar sem er, til dæmis í mat- Horfur í skinnaiðnaði góðar „VIÐ höfurn fulla ástæðu tll að vera bjartsýnni á þessu ári en þvi síðasta, þvi mikið hefur bor- ist af fyrirspuraum og óstað- festum pöntunum,“ saðgi Bjarni Jónasson, forstöðumaður skinna- iðnaðar Sambandsins á Akur- eyri. Bjami sagði að á næstu vikum og mánuðum kæmi í ljós hvort aðil- ar staðfestu pantanir sínar á skinn- um. Um væri að ræða aðila á ít- alíu. Fataframleiðendur halda sýn- ingar sinar í febrúar og mars og eftir að viðbrögð við þeim liggja fyrir ákveða þeir hvaða lit þeir vilja á skinnum. „Þær fyrirspumir og pantanir sem okkur hafa borist eru mun fleiri en á síðasta ári, sem var óvenju slæmt,“ sagði Bjami. „Við reiknum með að vinna um 530 þús- und skinn á þessu ári, sem er tölu- verð aukning frá 1988. Vonandi náum við upp fyrri afköstum á þessu ári.“ Bjami sagði að mest væri selt af skinnum til Ítalíu og Norðurland- anna. „Viðskiptavinir okkar í Skandinavíu em að halda sínar sýn- ingar núna og á næstu vikum kem- ur í Ijós hvað þeir panta mikið. Enn er ekki hægt að segja til um hugs- FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkur- bæjar og fyrirtækja hans var samþykkt samhljóða við síðari umræðu á bæjarstjórnarfimdi þriðjudaginn 24. janúar síðastlið- inn. Fjárhagsáætlun hefur ekki fyrr verið afgreidd jafnsnemma á Dalvík og nú og er Dalvíkurbær fyrstur bæjarfélaga til að ganga firá fjárhagsáætlun þessa árs. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að um 15,6% tekna renni til afborgana lána og Qár- festinga. Tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 106 milljónir króna, þar af eru út- svör 60,5 milljónir kr., aðstöðugjöld 19.5 milljónir og fasteignagjöld 15.6 milljónir króna. Rekstrargjöld era áætluð 89 milljónir og afgangur tekna rennur tii framkvæmda, 16,5 anlegt verðmæti útflutnings á ár- inu, því viðskiptavinir okkar eiga einnig eftir að tilgreina í hvaða gæðaflokki þeir vilja skinnin," sagði Bjami Jónasson. Hjá skinnaiðnaði Sambandsins starfa nú 200 manns. milljónir króna. Ekki era fyrir- hugaðar miklar framkvæmdir á vegum bæjarsjóðs að þessu sinni. Áhersla er lögð á að laga greiðslu- stöðu og að greiða niður skuldir. Ekki era miklar nýframkvæmdir fyrirhugaðar á vegum bæjarsjóðs að þessu sinni. Fjárfestingar eru áætlaðar upp á 41 milljón króna. Munar þar mestu um hafnarfram- kvæmdir, sem áætlaðar era að nemi 17 milljónum króna. Verður unnið að dýpkun hafnarinnar en það verk- efni er orðið mjög brýnt. Á vegum vatnsveitu og hitaveitu er fyrir- hugað að veija 11,7 miiljónum króna til framkvæmda. Stærsta verkefnið á vegum bæjarsjóðs er bygging annars áfanga grunnskól- ans og er ráðgert að veija til þess 5 milljónum króna. Fjárhagsáæthin Dalvíkurbæjar samþykkt: Ahersla lögð á að laga greiðslustöðu vælaframleiðslu, verslunum, skrif- stofum og jafnvel í heimahúsum. Tækið tengir þá skynjara, sem fyr- ir era á staðnum, við þá sem ætti að hafa samband við ef eitthvað fer úrskeiðis," sagði Reynir að lokum. Morgunblaðið/Rúnar Þór Reynir Eiriksson, markaðsstjóri hjá DNG, ásamt Verði, nýrri upp- finningn hugvitsmanna DNG.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.