Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 21

Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 21 ^ Reuter A fiindi með Arafat Thorvaid Stoltenberg, utanríkisráðherra Nor- egs, átti fiind með Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, í Túnisborg sl. sunnudag. Var þar um að ræða fyrstu opinberu samskipti norskra stjórnvalda og PLO en að fundinum loknum sagði Stoltenberg, að Norð- menn vildu gera sitt til að vinna að friði í Mið- austurlöndum. Arafat sagði, að Norðmenn og aðrar Norðurlandaþjóðir nytu mikillar virðingar á alþjóðavettvangi og gætu þvi haft mikil áhrif legðust þær á eitt. Stoltenberg sagði að lokum, að Arafat væri velkominn til Noregs og hefði verið ákveðið, að fulltrúar aðila ræddu hugsan- lega heimsókn hans síðar. Réttarhöld yfír Oliver North: Val á kviðdómend- um erfiðleikum háð Washington. Reuter. RÉTTARHÖLD yfir Oliver North, fyrrum ráðgjafa Ronalds Reagans fyrrverandi Bandaríkjaforseta í öryggismálum, i Íran-Kontra- málinu svonefiida, sem hófúst á þriðjudag, snerust að mestu leyti um það á fyrsta degi réttarhald- anna hve mikla vitneskju um mál- ið kviðdómendur megi búa yfir svo hlutleysis sé gætt. Ekkert stjómmálahneyksli á níunda áratugnum hefur hlotið jafn mikla umfjöllun í bandarískum fjöl- miðlum og íran-Kontra-málið. Veij- endur Norths sögðu við upphaf rétt- arhaldanna á þriðjudag að víkja bæri þeim úr kviðdómnum sem viður- kenndu að hlýtt á vitnisburð Norths í yfirheyrslum sem fram fóru árið 1987 og sjónvarpað var um gervöll Bandaríkin. Ákærur á hendur North eru í tólf liðum. Hann er meðal annars sakað- ur um tilraun til að hylma yfir hneykslið með því að eyðileggja leyniskjöl Bandarílg'astjómar, bera falskan vitnisburð fyrir þinginu og vera viðriðinn skattsvikamál. Oliver North Reutcr North játaði á sig mörg ákæruat- riðanna fyrir rétti en hann segist aðeins hafa fylgt stefnu ríkisstjómar Ronaids Reagans, fyirurn forseta. Texas: Tankþota brot- lenti og sprakk 19 menn fórust með þotu banda- ríska flughersins Houston. Reuter. NÍTJÁN menn biðu bana er KC-135 eldsneytisþota banda- ríska flughersins brotlenti skömmu eftir flugtak frá Dy- ess-flugstöðinni, sem er skammt frá borginni Abilene í Texas. Að sögn sjónarvotta sprakk þotan og varð að risastórum eld- hnetti er hún skall til jarðar rétt fyrir utan flugstöðina, í hálfs ann- ars kílómetra Qarlægð frá enda flugbrautarinnar. Um borð í þotunni var sjö manna áhöfn, átta hermenn og fjögur skyldmenni þeirra. Hún var fiillhlaðin eldsneyti og var að leggja upp í æfingaflug. Ferðinni var heitið til Hickham-flugstöðvar- innar á Hawaii. KC-135 þotan var á sínum tíma framleidd til farþegaflugs sem Boeing-707, en henni var á sínum tíma breytt í eldsneytisflutninga- flugvél. Ber hún 70 tonn af elds- neyti og getur gefið öðrum flugvél- um áfylíingu á flugi. Óhappið átti sér stað í fyrra- kvöld en í gær var enn ekki ljóst hvað olli brotlendingunni. Vor og sumar '89 1113 síður. Frægustu merkin í fatnaði. Búsáhöld, sportvörur, leikföng o.fl. Kr. 190 án burðargjalds dregst frá fyrstu pöntun. B.MAGNÚSSONHF. Hólshrauni 2,Hafnarfirði sími 52866. RYMWGARSALA ÁRMÚLA3. AFSLÁTTUR ALLT AÐ 40% Einstakt tækifæri til að eignast ódýr heimilistæki. Vegna flutnings Rafbúðar Sambandsins úr Ármúla 3 í Holtagarða bjóðum við úrval af vönduðum heimilistækjum á stórlækkuðu verði. Hér er m.a. um að ræða þvottavélar, þurrkara, uppþvottavélar, kæli- skápa, frystikistur, eldavélar, eldhúsviftur, sjónvörp o.fl. o.fl. fris. rn/Éii — rnmn&m GRIPTU GÆSINA MEÐAN HÚN GEFST... SAMBANDSINS ARMULA3 SIMI 687910

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.