Morgunblaðið - 02.02.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
35
Sindri Sigmjóns-
son skrifstofustjóri
starfað hefur af miklum krafti. Öll
vissum við að Sindri var listrænn
maður, hann lék t.d. einstáklega
vel á píanó, en að hann ætti eftir
að standa á leiksviði og „slá í gegn“
kom okkur svo sannarlega á óvart.
Ég hygg að þau hjónin hafi verið
lífið og sálin í leikstarfinu eins og
í svo mörgu öðru, sem þau tóku sér
fyrir hendur.
Það er mikill missir að slíkum
öðlingsmanni sem Sindri var og
hans er nú sárt saknað. Ég á enga
heitari ósk en þá, að mannkostir
hans verði okkur sem eftir stöndum
að leiðarljósi. Sárastur er harmur
tengdamóður minnar, sem sér nú á
bak lífsförunaut og um leið sínum
besta vini, en lífið leggur líkn með
þraut. Hún á dýrmætar minningar,
sem munu veita henni styrk og
huggun í þungbærri sorg.
Guð blessi minningu mæts
manns.
Kristin Arnadóttir
Sindri Siguijónsson, skrifstofu-
stjóri, er látinn. Þótt okkur, sem
þekktum Sindra, væri kunnugt um
veikindi, er hann átti í fyrir nokkr-
um árum, vorum við ekki viðbúin
því að frétta af skyndilegu fráfalli
hans í miðri dagsins önn. Hann var
jafnan glaður og hress og kvartaði
ekki. Þetta lýsir raunar vel skap-
höfn Sindra. Sannfærður er ég um,
að sjálfur hefur hann verið við öllu
búinn, þótt hann léti sem ekkert
væri. Hann var maður, sem ekki
vildi leggja byrðar á annarra herð-
ar, allra síst fjölskyldu sinnar. En
hann var alltaf reiðubúinn að rétta
öðrum hjálparhönd og leggja á sig
erfiði fyrir þau málefni, sem hann
hafði tekið að sér að vinna að.
Sindri fæddist 20. desember
1920 að Kirkjubæ í Hróarstungu.
Foreldrar hans voru þau Anna Þ.
Sveinsdóttir og Siguijón Jónsson,
sóknarprestur. Sindri var elstur
þeirra bama presthjónanna að
Kirkjubæ, sem upp komust, en hin
vom Fjalar, Frosti, Vaka og Máni.
Sindri stundaði nám við Mennta-
skólann á Akureyri á ámnum 1936
til 1940. A námsámnum starfaði
hann á búi foreldra sinna að
Kirkjubæ á summm. Var auðheyrt,
að hann minntist æskuáranna á
Fljótsdalshéraði með þeim hlýhug,
sem raunar einkenndi mjög ailt
hans viðmót.
í ársbyijun 1941 settist Sindri
að í Reykjavík og kvæntist á sama
ári eftirlifandi konu sinni, Sigríði
Helgadóttur. Hún er dóttir hjón-
anna Ingigerðar Einarsdóttur og
Helga Tryggvasonar, bókbindara.
Síðustu 33 árin var heimili Sindra
og Sigríðar að Básenda 14 hér í
borg.
Synir þeirra em fimm, allir
kvæntir. Þeir em: Einar, kvæntur
Kristínu Ámadóttur, Heimir,
kvæntur Önnu L. Tryggvadóttur,
Siguijón, kvæntur Helgu Garðars-
dóttur, Sindri kvæntur Kristbjörgu
Sigurðardóttur og Yngvi, kvæntur
Vilborgu Ámundadóttur. Barna-
bömin em orðin 14.
Allt er þetta ágætisfólk og mikil
samheldni ríkir í þessari fjölmennu
fjölskyldu.
Sindri var í Góðtemplarareglunni
og var þar áhugasamur og virkur
félagi í reglu musterisriddara. Þau
hjónin vom meðal stofnenda leik-
félags áhugamanna, Hugleiks, sem
stofnað var fyrir 5 ámm. Þar lá
Sindri ekki á liði sínu frekar en
annars staðar þar sem hann lagði
hönd á plóginn. Hefur Sindri leikið
í öllum uppfærslum þessa leikfélags
síðan það var stofnað.
Sindri Siguijónsson hóf störf á
Póststofnuninni hér í Reykjavík í
marsmánuði 1946 og starfaði þar
til æviloka, fyrst í ávísanadeild póst-
hússins. Frá því Póstgíróstofan tók
til starfa hefur hann verið skrif-
stofustjóri þar.
Sindri var drengur góður og vin-
sæll meðal starfsfélaga og annarra,
sem hann átti samstarf við. Hann
var hreinskiptinn maður, sagði
skoðun sína umbúðalaust, þannig
að enginn var í vafa um afstöðu
hans til þeirra viðfangsefna, sem
fjallað var um. Með slíku fólki er
gott að starfa.
Sindri var um árabil í stjórn Póst-
mannafélags Islands og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið. Hann átti sæti í stjóm Orlofs-
heimila BSRB frá 1977 til dauða-
dags. Við Sindri áttum því langt
samstarf. Vil ég að leiðarlokum
færa Sindra þakkir fyrir allt það
sem hann lagði á sig í því sam-
starfi, fyrir ljúfmennsku hans og
vináttu, sem var okkur sem með
honum störfuðu að þessum málum,
mikils virði.
Við hjónin sendum Sigríði og fjöl-
skyldunni allri innilegar samúðar-
kveðjur.
Kristján Thorlacius
Þorrinn er genginn í garð, sorg-
arfrétt berst.
Góður félagi og vinur, Sindri Sig-
uijónsson, er látinn. Ljúfar minn-
ingar líða um hugann hver af ann-
arri. Eitt það dýrmætasta sem lífið
hefur upp á að bjóða er vinátta
góðra manna. Varð ég svo lánsöm
að eignast Sindra að vini. Kynni
okkar hófust fyrir 11 árum þegar
við völdumst saman í orlofsheimila-
nefnd stéttarfélags okkar, en einnig
átti hann sæti í fulltrúaráði orlofs-
heimila BSRB.
í einni fyrstu ferða okkar í sum-
arhúsin í Munaðamesi, sem farin
var til þess að lagfæra og skipu-
leggja það sem betur mátti fara,
óskaði hann eftir því að vera „ráðs-
kona“ hópsins og var það auðsótt
mál. Þegar leið að kvöldi var slegið
á létta strengi og tekin voru fram
spil. Bar „ráðskona" fram te og
kökur og stjanaði við heimilisfólkið
sitt af einstakri alúð meðan sagðar
voru sögur og gert að gamni sínu,
en Sindri hafði sérlega góða frá-
sagnargáfu og sagði frá með
skemmtilegri glettni og hlýju.
Ógleymanlegar voru einnig ferðim-
ar austur að Rauðabergi og er vart
hægt að hugsa sér ferð þangað án
hans.
Sindri hafði mikinn áhuga á
bættum hag félaga sinna. Var hann
gjaman valinn til trúnaðarstarfa
fyrir félagið og átti það traustan
fulltrúa þar sem Sindri var og þeg-
ar Norræna póstmannaþingið var
fyrst haldið hér á landi vorið 1987
þótti hann sjálfsagður fulltrúi okk-
ar, sem svo oft áður við svipaðar
aðstæður. Einstaklega gott var að
leita til hans og var þá sama hvert
málefnið var, alltaf gat hann gefið
góð ráð og miðlað af þekkingu sinni
og reynslu og fór maður ævinlega
vísari og glaðari af hans fundi,
enda vinsæll maður og vinmargur.
Leitað var m.a. til hans af Póst-
og símaskólanum og óskað eftir því
að hann tæki að sér kennslu við
skólann, sem hann féllst á. Ávann
hann sér traust nemenda sinna og
er þar einnig saknað vinar í stað.
Sindri hugðist bregða sér til sól-
arstranda um mánaðamótin til þess
að stytta svolítið mislyndan þorra
hér heima og hlakkaði hann mjög
til þeirrar ferðar. Örlögin höguðu
þeirri áætlun á annan veg og held-
ur hann nú til annarra stranda í
þá ferð sem við öll eigum eftir að
fara.
Að leiðarlokum er honum þökkuð
samfylgdin með söknuði og fyrir
hönd Póstmannafélags lslands
sendi ég eiginkonu hans og fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðjur.
Lea Þórarinsdóttir for-
maður Póstmannafélags
íslands.
„Til að sýna lítinn lit og ljúfar
þakkir gjalda" eru vísuorð sem fað-
ir minn orti fyrir allmörgum árum
og ég vil nú gera þessi orð að
mínum. Til að sýna lítinn lit langar
mig að minnast vinar míns og sam-
starfsmanns, Sindra Siguijónsson-
ar skrifstofustjóra á Póstgíróstof-
unni. Leiðir okkar lágu fyrst saman
vorið 1974, er ég kom til starfa
þar, í sumarvinnu, en það sumar
er nú orðið að 14 árum og átti hin
góða samvinna við Sindra stóran
þátt í því.
Ég get ekki hugsað mér betri
vinnufélaga, til hans leitaði ég oft
í smiðju og ævinlega átti hann holl
ráð, þar fór enginn bóníeiður til
búðar.
I einkalífinu var hann mér traust-
ur vinur og sérstaklega minnist ég
hversu vel hann reyndist mér við
andlát föður míns 1979.
Á gleðistundum var hann ómiss-
andi félagi og gleðigjafi sem miðl-
aði okkur svo ríkulega af náðargáf-
um sínum.
Vinnustaður okkar verður ekki
samur eftir snöggt og ótímabært
fráfall hans, en ég er þakklát fyrir
minningarnar, ég átti honum svo
ljúfar þakkir að gjalda.
Við Sverrir sendum Sigríði, son-
um þeirra og tengdadætrum og
öðrum aðstandendum okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Lilly Svava Snævarr
Sindri Siguijónsson, skrifstofu-
stjóri, lést í Reykjavík mánudaginn
23. janúar sl. Er ekki ráðist á garð-
inn þar sem hann er lægstur að
ætla að kveðja slíkan mann á prenti
og vísast verða aðrir til að rekja
ættir hans og æviferil.
Eins og ijöldinn allur af skóla-
fólki byijuðum við nokkrir vinirnir
í sumarvinnu á Póstgíróstofunni,
hjá Sindra, í byijun þessa áratug-
ar. Þar kynntumst við þeim allra
skemmtilegasta vinnuhóp er við
höfum þekkt síðan og hveiju fágæt-
inu við annað.
Sumir okkar ílengdust og voru
með annan fótinn eða báða í vinnu
hjá Sindra, en hurfu síðan til náms
eða annarra starfa, bæði hér heima
og erlendis. Menn voru baldnir og
báru mislitla virðingu fyrir hvers
konar yfirvöldum. Þó fór ekki á
milli mála að borin var óttablandin
virðing fyrir skrifstofustjóranum og
menn reyndu að sitja á strák sínum,
hvort sem hann var nálægur eða
ekki.
Svo kom nú í ljós, að karlinn var
með greindustu mönnum og eftir
því skemmtilegur, en hafði lúmskt
gaman af því að skjóta mönnum
skelk í bringu. Og ef þeir voru svo
skyni skroppnir að sjá ekki grínið
þá var hann ekkert að hafa fyrir
leiðréttingu, enda ekkert að troða
nærveru sinni eða skoðunum upp á
aðra. Þvert á móti sóttust vinnufé-
lagamir eftir félagsskap hans, enda
Sindri hafsjór af fróðleik og
skemmtiefni. Hann hafði glöggt
auga fyrir því spaugilega í tilver-
unni og því sjálfur einn af þeim
mönnum er gefa henni gildi. Hann
kunni einnig vel þá list að hlusta á
aðra. Grafalvarlegur gat hann þá
lyft stundinni með því að læða út
úr sér drepfyndnum athugasemdum
með stríðnisglampann blikandi í
augunum.
Sindri var óhemjuvel lesinn og
minnið afbragðsgott. enda þótt
hann gengi ekki þann menntaveg,
er hann ætlaði, eins og margur
hæfileikamaðurinn af hans kynslóð,
þá byggði hann háreist á grunninn
úr menntaskóla. T.d. hafa áreiðan-
lega fáir nýstúdentar staðið honum
á sporði í erlendum bréfaskriftum.
Betri helmingur Sindra var
Sigríður Helgadóttir og eignuðust
þau fimm syni. Hafði undirritaður
þá ánægju að heimsækja þau hjón,
er þau héldu starfssystur okkar
kveðjuhóf. Er það með skemmti-
legri veislum, er ég hef sótt. Sungu
húsráðendur með gestum sínum og
spiluðu undir á píanó; voru reyndar
svo skemmtileg, að gestimir fóru
ekki fyrr en næsta morgun.
Ég þykist mæla fyrir munn okk-
ar félaganna, utanbæjar og erlend-
is, er ég kveð Sindra Siguijónsson,
um sinn, og þakka ógleymanlega
viðkynningu og uppeldið.
Konu hans og fjölskyldu eru
sendar samúðarkveðjur.
Viggó Jörgensson
Hvar er nú Haraldur blindi? Hvar
er Sigurður í Dal, Hvar er síra
Guðmundur og hvar er Jóhannes
skrifari sýslumanns?
Hver á núna hlýlegt klapp, upp-
örvandi orð og gamanyrði með við-
eigandi kímniglampa í augum
handa okkur í Hugleik? í hléum
milli atriða, á æfingum og alltaf
átti Sindri allt þetta handa okkur
öllum.
Nú er Sindri farinn frá okkur og
við vitum ekki alveg hvað við eigum
að gera. Sindri, Sigga, Jón fóst-
bróðir hans og Stella komu til leiks
í litla leikfélagið okkar strax í upp-
hafi, þau urðu ein af sterkustu stoð-
um hópsins bæði á sviði og utan.
Þegar hópurinn þurfti að hittast til
að taka ákvarðanir eða til að gleðj-
ast saman stóð heimilið að Básenda
14 ávallt opið, Sindri við píanóið
og Sigga auðvitað búin að drífa upp
veisluföng.
Við eigum svo margar góðar
minningar frá samverustundum
með Sindra að það er of langt mál
upp að telja. Við erum þakklát fyr-
ir að eiga þær og við erum ríkari
eftir. Við erum líka þakklát fyrir
að eiga Siggu að áfram. Sindri var
góður píanisti og besti undirleikar-
inn okkar. Á síðasta ári misstum
við besta söngvarann úr hópnum.
Við höfum valið þá leið að sjá
þá fyrir okkur saman, ekki langt í
burtu, alveg eins og þeir voru svo
oft. Sindri við píanóið að spila og
þeir Bjössi syngja saman „Þar sem
háfjöllin heilög rísa“.
Élsku Sigga, við vottum þér og
fjölskyldu þinni okkar innilegustu
samúð.
Félagar í Hugleik
Á skammri stundu skipast veður
í lofti. Samstarfsmaður og vinur
okkar, Sindri Siguijónsson skrif-
stofustjóri Póstgíróstofunnar, er
látinn.
Hann hafði starfað með sumum
okkar í rúm fjörutíu ár. Við fráfall
hans er margs að minnast, þegar
samverustundir liðinna ára koma
fram í huga okkar og vekja söknuð
og trega.
Sindri var sérstakur persónuleiki
en var ekki allra. Þeir sem kynnt-
ust honum náið fundu þar fyrir
góðan dreng, elskulegan og ætíð
spaugsaman. Hann var vinur vina
sinna jafnt í blíðu og stríðu.
Fyrir all mörgum árum keypti
Póstmannafélag Islands jarðarhluta
á Rauðabergi II í A-Skaftafells-
sýslu. Þar voru gamlar byggingar
með burstabyggingarlagi. Strax
eftir að félagið festi kaup á um-
ræddum jarðarhluta fékk Sindri
áhuga á að endurnýja og laga
gömlu byggingamar.
Var það von hans og ósk að á
Rauðabergi skapaðist aðstaða fyrir
póstmenn svo þeir gætu átt þar
góðan og ánægjulegan hvíldarstað
í orlofi sínu. Þama er nú mjög
skemmtilegt orlofshús í fallegu
umhverfi á friðsælum stað.
í vinnuferðum okkar á Rauða-
bergi lét Sindri sig sjaldan vanta.
Hann var eins og opin bók hvað
leiðarlýsingu varðaði og gat nefnt
alla bæi, fjöll og kennileiti á leið
okkar. Sögumaður var hann góður
og margar skemmtilegar sögur
kunni hann bæði nýjar og gamlar.
Er við fórum um hina frægu sögu-
staði í Öræfasveit, þá sagði hann
okkur frá löngu liðnum atburðum.
í samstilltum hóp á ferðalögum
okkar var oft tekið lagið og var
Sindri ávallt forsöngvari enda söng-
maður góður og kunni öll ósköp af
lögum og kvæðum.
Upp úr samstarfi okkar um
Rauðaberg hefur myndast sam-
stæður hópur er haldið hefur vel
saman gegnum tíðina og verður það
skarð sem höggvið hefur verið í
okkar hóp ekki fyllt. Við Rauða-
bergsfélagar Sindra söknum hans
og minnumst með þökk og virðingu.
Við sendum eiginkonu og fjöl-
skyldu Sindra Siguijónssonar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Rauðabergsfélagar
í dag verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju Sindri Siguijónsson
skrifstofustjóri Póstgíróstofunnar.
Sindri hóf störf hjá Pósti og síma
vorið 1946 og gegndi þar ýmsum
störfum, en 30. apríl 1971 er Póst-
gíróstofan tók til starfa varð hann
skrifstofustjóri hennar og gegndi
því starfi til dauðadags.
Óneitanlega hefur Sindri haft
mikil áhrif á vöxt og viðgang Póst-
gíróstofunnar enda fór þar saman
áhugi hans á málefnum hennar og
atorka til að fylgja þeim eftir.
A þessum tíma hefur starfsemi
Póstgíróstofunnar vaxið jafnt og
þétt ekki síst fyrir atbeina hans og
framsýni.
Sem vinnufélagi var Sindri
drengur góður, ávallt reiðubúinn
að aðstoða og hjálpa ef á þurfti að
halda.
Við fyrstu kynni virtist Sindri
dulur og jafnvel fáskiptinn en við
fekari kynni birtist fljótt öðlingur-
inn og félaginn Sindri, hjartahlýr,
einlægur og hvetjandi.
í góðra vina hópi birtist okkur
svo listamaðurinn Sindri við hljóð-
færið þar sem gleðin var sett í há-
sæti, söngur og gamanyrði höfð
uppi. Slíkar stundir voru margar í
gegnum árin og eru ómetanlegar í
sjóði minninganna.
Við samstarfsmenn Sindra kveðj-
um nú góðan félaga en minningin
um hann mun seint frá okkur
hverfa. Við þökkum fyrir að hafa
fengið að kynnast þessum góða
dreng og biðjum algóðan Guð að
styrkja fjölskyldu hans.
Starfsfólk Póstgíróstofunnar.
Birting af-
mælis- ogminn-
ingargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafiiarstræti
85, Akureyri.
f Einn vetur stundaði Odci
| nam við Kvennaskólann
| var mun meiri en almen
f síðar við almenna kennt
| Hún var mikil hannyrða
Kvennaskólann á Blönd
IÁrið 1955 hófu systur
Guðrúnar og Pálma á Bj
sunnaii^Másstada^^^
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
t
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavik,
sem lést á öldrunardeild, Hátúni 10, Reykjavík, laugardaginn 28.
janúar verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 3. febrú-
ar-kl. 10.30.
Sölvi Jónasson,
Svanhildur T essnovy,
Haukur Sölvason, Kristin Árnadóttir,
Sigrún H. Hauksdóttir,
Elfn H. Hauksdóttir,
Svanhildur H. Hauksdóttir.