Morgunblaðið - 02.02.1989, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 2. FEBRÚAR 1989
+
Útför eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR BJARNFINNSDÓTTUR (STELLU),
Búðarstig,
Eyrarbakka,
fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarfélögin.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Valgeir Ólafsson.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
GUÐLAUGAR STEFÁNSDÓTTUR,
Skarðshlíð 3,
Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Ólöf Tryggvadóttir, Guðjón Ásmundsson,
Stefán Tryggvason, Rannveig Kristjánsdóttir,
Hallgrímur Stefánsson, Jón Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför
HELGU KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Álfsnesi,
Kjalarnesi,
Lönguhlíð 25,
er lést í Landspítalanum 27. janúar, verður gerð frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðlaug S. Karlsdóttir.
+
Elskuleg vinkona okkar,
SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Skúlaskeiði 2,
Hafnarfirði,
sem andaðist 20. janúar sl. verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju,
Hafnarfirði, föstudaginn 3. febrúar kl. 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Slysavarnafélag fslands.
Margrét Burr,
Hreinn Bjarnason,
Guðlaug E. Kristinsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar og afa,
PÁLS JÓHANNESSONAR,
Víðihvammi 24,
Kópavogi,
fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 4. febrúar
kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir.
Gestheiður Jónsdóttir,
Sigrfður Pálsdóttir Eikás, Leif Magne Eikás,
Grimkell Pálsson, Ástríður Bjarnadóttir,
Anna Kristjánsdóttir
og barnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR GUÐMUNDSSON
húsasmíðameistari,
Bjarkarholti 4,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. febrúar kl.
13.30.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna.
ívar Örn Ingólfsson,
Pétur Ingólfsson,
Aðalsteinn Ingólfsson,
Hjörtur Ingólfsson,
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar og móður okkar,
ÞURÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Heiðagerði 7,
Akranesi.
Hallgrfmur Matthfasson,
Þóra Elfsabet Hallgrfmsdóttir,
Matthías Hallgrímsson,
Valdimar Hallgrfmsson,
Auður Hallgrímsdóttir.
Hulda Jónsdóttir
Laxdal - Minning
Fædd 26. apríl 1905
Dáin 25. janúar 1989
Þegar ég var um það bil að ljúka
kennaranámi við Kennaraskóla Is-
lands veturinn 1971 til 1972 varð
það að ráði að ég færi norður á
Akureyri til æfingakennslu við
Barnaskóla Akureyrar, og eftir að
ég lauk námi vorið 1972 hó ég
kennslu við þann sama skóla og bjó
á Akureyri næstu fimm árin.
Það, sem réð úrslitum um að
Akureyri varð fyrir valinu þegar ég
hóf störf að námi loknu, var löngun
mín til að kynnast skyldfólki mínu
á Akureyri og í Eyjafírði, þar sem
móðursystur mínar tvær voru mið-
deplar; Pálína Jónsdottir húsfreyja
á Grund og Hulda Jónsdóttir á
Akureyri. Allt frá bamæsku minni
hafði töluverður ævintýraljómi fylgt
þessum nöfnum fyrir norðan, og
það voru stórar stundir þegar Hulda
og Jón Laxdal komu í heimsókn
austur að Öxnalæk, eða þegar við
hittum Snæbjöm og Pálínu frá
Gmnd í Reykjavík. Þegar ég var í
Kennaraskólanum í Reykjavík var
ég lengst af í fæði hjá dóttur Huldu
og Jóns og tengdasyni; Guðnýju
Laxdal og Þórólfi Jónssyni, og alla
tíð var mér þar tekið eins og einum
úr ijolskyldunni. Hið sama átti við
þegar norður kom og ég fékk að
vera hjá Jóni og Huldu á Brekku-
götunni, fyrst vikuna í æfinga-
kennslunni og síðar hluta úr ári
þegar ég beið þess að ljúka bygg-
ingu á eigin íbúð. Jón og Hulda
tóku mér einstaklega vel, og sá
hlutur var ekki til, sem þau vildu
ekki gera fyrir mig eða annað
skyldfólk, sem til þeirra leitaði.
Hulda Jónsdóttir móðursystir
mín fæddist hinn 26. apríl 1905.
Hún var dóttir hjónanna Þorgerðar
Jörundsdóttur hrá Hrísey og Jóns
Bergssonar frá Hæringsstöðum í
Svarfaðardal, sem lengst af áttu
heimili í Ólafsfirði. Hulda var næst-
elst bama Jóns og Þorgerðar, en
ólst hins vegar ekki upp hjá þeim,
heldur hjá föðurbróður sínum og
konu hans, Oddnýju Bjamadóttur
og Bergi Bergssyni. Þau bjuggu
fyrst í Skeggjabrekku í Ólafsfirði,
og síðar í Garðsvík á Svalbarðs-
strönd. Þar var Hulda hjá þeim í
nokkur ár, en hinn 19. maí árið
1924 giftist hún Jóni Laxdal frá
Tungu. Fyrstu árin voru þau í
Tungu, en byggðu síðan nýbýlið
Meðalheim, þar sem þau bjuggu á
ámnum 1930 til 1956, að þau fluttu
til Akureyrar. Hulda og Jón eignuð-
ust íjórar dætur: Guðnýju, Oddnýju,
Þorgerði og Hlaðgerði.
Þejgar ég kynntist þeim Huldu
og Joni er ég kom norður til Akur-
eyrar var tekið að hausta í lífi
þeirra, en heilsan þó að mestu óbil-
uð. Enn gekk kempan Jón Laxdal
til vinnu sinnar með hætti sem
ungir menn máttu vera fullsæmdir
af, og heimilishald allt hjá Huldu
var með þeim hætti, að með óvenju-
legum myndarskap var. Það er þó
ekki gestrisni þeirra sem er mér
minnisstæðust, heldur miklu frekar
sú mikla hlýja og ástúð sem ein-
kenndi allt heimilislífið. Aldrei kom
Jón svo heim úr vinnu, að hann
spyrði ekki fyrst um Huldu, væri
hún ekki nálæg, og mér er minnis-
stætt þegar þau sátu og héldust í
hendur á kvöldin við útvarp eða
sjónvarp eða í viðræðum við gesti.
Öft síðan hefur mér orðið hugsað
til þess, að mikil gæfa hlýtur það
að vera hjónum að geta eytt efri
árum saman umvafin slíkri hlýju
og ást hvors annars. Þetta gátu þau
Jón og Hulda, þótt mér detti aldrei
í hug að halda að líf þeirra hafi
alla tíð verið dans á rósum eða að
aldrei hafi hvesst í kringum þessar
stóru manneslq'ur í sjón og raun.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ELÍSABETAR GÍSLADÓTTUR
frá Hvarfi,
Víðidal.
Unnsteinn Pálsson, Guðriður Haraldsdóttir,
Þórdís Pálsdóttir, Jón Bergsson
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og
jarðarför
ÖNNU JÓNASDÓTTUR,
Lynghaga 4,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði Landakots-
spítala.
Heimir Askelsson,
Edith Guðmundsson.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vin-
semd við fráfall og útför sonar okkar og bróður,
LÝÐS S. HJÁLMARSSONAR.
Sérstakar þakkir til vina og starfsfólks í Hátúni 12, Reykjavík.
Katrin Karlsdóttir, Hjálmar Lýðsson,
Esther Hjálmarsdóttir, Gunnar Örn ísleifsson,
Valur Karl Hjálmarsson,
Hafdís Björg Hjálmarsdóttir,
Hulda Mekken Hjálmarsdóttir.
+
Alúðarþakkir færum við þeim sem minntust
SOFFÍU GUNNARSDÓTTUR SIGURÐSSON
við fráfall hennar og sendu okkur hlýjar kveðjur.
Hildigunnur Hjálmarsdóttir, Agnar Þórðarson,
Uggi Agnarsson, Margrét Guðnadóttir,
Úlfur Agnarsson, Ásta G. Briem,
Sveinn Agnarsson
og barnabarnabörn.
Margt skemmtilegt gerðist á
þeim tíma, sem ég bjó hjá Jóni og
Huldu á Brekkugötunni. Eg minnist
þess til dæmis eitt sinn, að Hulda
var fjarverandi nokkra daga að
sumri til, hafði víst brugðið sér
suður til Reykjavíkur. Slíkt var
annars ekki venjulegt, enda held
ég satt að segja að Jóni hafi þótt
nærri óbærilegt að vera án hennar
í marga daga. En svo bar við þessa
daga, að á laugardegi fórum við
Jón á knattspymuvöllinn til að sjá
Akureyringa beija á einhveiju
sunnanliðinu. Þegar heim kom og
við tveir einir í kotinu hafði Jón orð
á því, að nú skyldum við elda okkur
steik um kvöldið, sem hann hafði
tekið til. Þetta kom mér satt að
segja dálítið á óvart, því ég vissi
sem var að Jón var vanur að fá sér
aðeins hræring á kvöldin; hann
kærði sig ekki um þunga máltíð á
þeim tíma dagsins. En Jón var
óhagganlegur í þeirri ákvörðun að
steik skyldi á borðum þetta kvöld,
ásamt sósu og öllu tilheyrandi.
Lengi vorum við að elda þessa
máltíð, enda hvorugur okkar sér-
lega mikill kokkur held ég á þeim
árum. Þar kom þó að allt átti að
vera tilbúið, og unnt að setjast til
borðs. Þá gerðist það hins vegar
mér til mikillar undrunar, að Jón
fékk sér ekki af steikinni, heldur
kvaðst vilja sinn hræring eins og
hann væri vanur, og þar við sat! —
Síðar komst ég að þvl að Hulda
vildi ekki að það spyrðist að „kost-
gangarinn" væri á einhveiju mála-
myndarfæði hjá þeim, þótt hún
færi af bæ í nokkra daga. Slík var
Hulda; því voru engin takmörk sett,
hvað hún vildi gera fyrir aðra, og
þess naut ég ótæpilega eins og
aðrir sem á heimili hennar komu.
Á langri ævi Huldu frænku voru
þau ekki mörg árin, sem ég hafði
dagleg kynni af henni. Þau kynni
nægja mér þó til að ég á margar
bjartar minningar um hana, og ég
verð henni alltaf þakklátur fyrir
allt það, sem hún veitti mér, hvort
heldur var um að ræða gestrisni
og vináttu eða móðurlegar um-
vandanir, sem mér veitti vafalaust
ekki af frekar en öðrum unglingum.
Jafnan þegar ég heyri góðs fólks
getið mun mér koma í hug Hulda
frænka.
Hulda var jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju í gær, miðvikudaginn
1. febrúar. Jóni Laxdal og dætrum
þeirra Huldu og öðrum vandamönn-
um sendi ég samúðarkveðjur.
Anders Hansen
Mig langar að kveðja hana Huldu
frænku mína með örfáum orðum
og þakklæti fyrir samveruna. Ein
af mínum gæfum, var að fá að vera
í sveitinni hjá Jóni og Huldu í Meðal-
heimi. Ég mun hafa verið baldinn
polli á þeim árum en Hulda frænka
hafði aga með ástúð og umhyggju
á þann hátt að eftir sitja aðeins
góðar minningar um dvölina í Með-
alheimi. Það segir e.t.v. meira en
mörg orð að ég kallaði hana Huldu-
mömmu lengi á eftir. í þau fáu
skipti sem ég heimsótti Jón og
Huldu á Akureyri fannst mér ástúð
og samheldni geisla af þeim hjónum
og ekki hef ég kynnst meiri gest-
risni annars staðar.
Ég votta Jóni og öðrum aðstand-
endum innilega samúð mína.
Bergur Björnsson