Morgunblaðið - 02.02.1989, Qupperneq 38
38
fclk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
ALPAFJÖLL
Roger Moore, hinn frægi James Bond, stundar skiðaíþróttina af
kappi og er þá öll fjölskyldan með. Frá vinstri: Roger Moore, De-
borah, dóttir hans, eiginkonan Luisa, James, vinur þeirra og þá sonur-
inn Jeff.
Leikkonan Julie Andrews og eiginmaður hennar
Blake Edwards eru sammála þeim sem segja
að ekkert frí sé eins hressandi og dvöl I svissn-
esku Ölpunum.
Þær eru bestu vinkonur, leikkonurnar Jane
Fonda og Sally Fields, og segja þær skíðaiþrótt-
ina allra meina bót.
Ekki líður sá vetur að Karólína prinsessa af Mónakó láti sig vanta
í svissnesku Alpana. Hér dregur hún Andrea litla á skíðum.
A
skíðum
skemmta
þau
sér
Pierre sonur Karólinu af Món-
akó, sem aðeins er eins árs, nýt-
ur útiverunnar ekki síður en hin-
ir.
Stefano eiginmaður Karólínu af
Mónakó með dótturina Charlotte
á öxlunum.
FAÐERNISMÁL
Ég er sonur Dalis
og mála eins og hann“
- segir 44 ára gamall ítalskur málari
Tórinó. Frá Bryqju Tomer fréttaritara Morgunblaðsins & ítaliu.
(C g hef engan áhuga á að
Lh erfa foreldra mína, en ég
vil fá staðfestingu á ætterni
mínu,“ segir Giuseppe Rossi
rúmlega fertugur málari sem
býr i Róm. Þegar vika var liðin
frá andláti Salvadors Dalis gaf
„týndi 8onurinn“ sig fram en
slíkt er algengt þegar frægt
fólk deyr. Spurningin er hins
vegar sú sama i hvert sinn:
Segir maðurinn satt? Hann hef-
ur nú farið fram á að gert verði
svokallað DNA-próf, þar sem
erfðafrumur hans verða rann-
sakaðar og bornar saman við
fi-umur spánska málarans.
Giuseppe Rossi hefur einnig
undir höndum ljósmynd af sjálfum
sér og Dali. Hann ber listamanns-
nafnið José Van Roy, og árið
1981 bætti hann nafninu Dali
aftan við. Hann hefur sams konar
skegg og Salvador Dali, vaxborið
yfirskegg sem hann snýr upp á.
„Það var móðir mín, Gala, sem
benti mér á að vaxbera yfirskegg-
ið og snúa upp á það.„Þannig ert
þú líkari föður þínum," sagði hún
þegar ég hitti hana í fyrsta sinn
í París fyrir tæpum átta árum.“
Rossi segir að 10. maí 1981
hafi Gala og Salvador Dali skrifað
og undirritað bréf „til minningar
í framtíðinni" þar sem segir að
hann sé sonur þeirra. Giúseppe
Rossi Van Roy Dali segir frá þessu
í einbýlishúsi sínu í Velletri, þar
sem málverk hans þekja flesta
veggi. Hann málar fyrst og fremst
myndir af konum, hestum og fiðr-
ildum. í einu homi er „mynd af
föður mínum, Salvador Dali“ seg-
ir hann.
A þeim tíma sem liðinn er frá
andláti Salvadors Dalis hefur
mestur tími ítalska málarans farið
í að taka á móti fréttamönnum
og undirrita ýmiss konar auglýs-
ingasamninga.
Hrækti ekki framan í
mig eins og aöra
„Þegar ég heimsótti hann 1985
talaði hann samhengislaust, en
hann hrækti ekki framan í mig
eins og hann gerði við alla aðra
sem komu til hans, og þá skildi
ég að hann hafði þekkt mig,“ seg-
ir Rossi.
Sennilega er eitt bréf og ein
ljósmynd ekki nóg til að hægt sé
að fara fram á opinbera rannsókn
á því hvort Rossi segi satt eða
ekki, en hann er ákveðinn í að
gefast ekki upp. Hann hefur einn-
ig reynt að fá löggildingu á ætt-
emi sínu á Spáni, en án árang-
urs. „Ég skrifaði Jóhanni Karli
Spánarkonungi bréf og bað hann
að heimsækja föður minn og bera
honum kveðju mína. Ég veit ekki
hvort hann hefur gert það.“
Salvador Dali
Rossi hefur leitað til einkaspæj-
ara til að rannsaka hvers vegna
foreldrar hans létu hann í fóstur
á Italíu og finna sannanir máli
sínu til stuðnings. „Á dánarbeðn-
um, árið 1972, sagði fósturfaðir
minn mér sannleikann. Kona
hans, fósturmóðir mín, staðfesti
það sem hann sagði, og þau skrif-
uðu bréf um málið og undirrituðu
það í votta viðurvist.
Þetta var á stríðsámnum, og
ég veit ekki einu sinni nákvæm-
lega hvenær ég fæddist. Ég var
skráður í þjóðskrána 17. febrúar
1944.“ Samkvæmt frásögn fóst-
urforeldra Rossis létu Dali-hjónin
drenginn í fóstur þegar þau fóru
til Bandaríkjanna. Síðan reyndu
þau tvisvar að ræða við Rossi-
hjónin um að taka drenginn aftur
til sín, en fósturforeldramir sögðu
að drengurinn væri dáinn, því þau
vildu ala hann upp.
ÚTVARP RÓT
EINS ÁRS AFMÆLI
FAGNAÐ í TUNGLINU
Utvarpsstöðin Rót hafði verið
starfrækt í eitt ár þann 24.
janúar síðastliðinn. Af því tilefni
ákváðu samtökin Grasrót, styrktar-
félag Rótarinnar, að gera ýmislegt
til hátíðabrigða. Aðstandendur
stöðvarinnar eru kampakátir á af-
mælinu þrátt fyrir langan skulda-
hala og vilja með sérstakri afmælis-
hátíð dagana 28. janúar 3. febrúar
vekja athygli á starfsemi stöðvar-
innar.
Hátíðin var opnuð með köku-
bóka- og plötubasar en í Tunglinu
verða afmælistónleikar fimmtudag-
inn 2. febrúar þar sem fram koma
Hilmar Öm Hilmarsson, Bjartmar
Guðlaugsson, hljómsveitimar Síðan
skein sól, Ný dönsk, og Bless.
Kvöldið eftir verður afmælishátíð í
Risinu, þar sem menn lesa ljóð og
sögur, flutt verða ávörp og djassað
fram eftir. Kynnir verður Jón Múli
Ámason.
—En hvemig hefur starfsemin
gengið þetta eina ár?
„Það hefur gengið mjög vel að
fá fólk til að vinna efni, en það er
minna framboð af fólki í fjáröflun-
amefndir. Lítið er um auglýsingar,
við emm að mestu með áskriftar-
gjöld og eru áskrifendur um 400
talsins. Ein skoðanakönnun hefur
verið gerð þar sem í ljós kom að
hlustendahópurinn er um þúsund
manns. Það þykir kannski ekki
mikið. Jú, það em sömu hluthafar
og í byrjun," sögðu þeir Sigvarður
Ari Huldarsson og Halldór Karls-
son.
Jón Helgi Þórarinsson, útvarps-
stjóri, á útvarpi Rót.
Og dagskráin? „Það em ýmis
samtök með sína föstu þætti, fjallað
er um vímuefnavandamál íslenskra
unglinga jafnt sem þekkt tónlistar-
fólk en tónlistarþættir em oft þema-
þættir. Unglingar fá inni og spila
tónlist eftir smekk og fundir em
haldnir í beinni útsendingu," segja
piltamir og bæta við að þetta
nútíma fundaform hafi gefist vel.
Þá flytur Sigvarður Ari, sem sér
um þætti um Rómönsku-Ameríku,
inn kaffi frá Nikaragva og hefur
heyrst að það sé alveg rótsterkt.