Morgunblaðið - 02.02.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
mmmn
„He-PurSu heyrt nr\Cd.taeJt<ih,
v þú ert poub serv\ þúi etur ?"
j
I
8
©
Ást er ...
. . . enginn fótbolti.
TM Reg. U.S. Pat Ott —all rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Aðeins smálögg fyrir
svefiunn. Mér er bölvan-
lega við að vakna um miðja
nótt vegna þorsta ...
Á skiðum í Bláfjöllum.
Þessir hringdu ..
Tapað - fundið
Kona hringdi og sagðist hafa
fundið gyllta armbandskeðju
skömmu fyrir jól á 2. hæð í Kjör-
garði. Nánari upplýsingar í síma
18905.
Skíði töpuðust
Rósa hringdi:
Sonur minn týndi nýlegu skíði
með bindingum af gerðinni Blizz-
ard Tro í Bláfjöllum í byrjun jan-
úar. Skíðið er 1,75 m á hæð.
Hann tapaði einnig bankabók
í Mosfellsbæ í janúar, frá mið-
bæjarútibúi Búnaðarbankans með
sex þúnsund króna innistæðu.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 667221.
Góð þjónusta
Sveinbjörg hringdi:
Mig langaði til að þakka fyrir
sérstaklega góða þjónustu í Hall-
argarðinum. Það er svo oft sem
það er lokað á sunnudagskvöld-
um, en þeir í Hallargarðinum voru
til með að bíða eftir okkur þó við
værum ekki á ferðinni fyrr en um
ellefu og engir aðrir viðskiptavin-
ir. Við fengum líka að sitja í róleg-
heitum til klukkan 1:30.
Skattsvik
Ellilífseyrisþegi hringdi:
Eg hef verið að hlusta á um-
ræður um skattamál í Meinhom-
inu, en þar er aldrei minnst á
skattsvikin. Þó ætluðu háttvirtur
fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar
Grímsson og Jón Baldvin Hanni-
balsson, að hreinsa þar til og held-
ur betur að hlynna að gamla fólk-
inu. Ekkert hefur samt heyrst um
það þó nóg tali þeir um þetta
þegar þeir em að komast í stól-
ana. Svo er allt tekið af gamla
fólkin ef tekjur þess fara fram
yfir skattamörkin.
Við emm orðin leið á því hvem-
ig farið er með smælingjana, en
þeir sem stunda skattsvik em
menn sem reka stór fyrirtæki og
þeir fá að komast upp með þetta.
Það er aftur á móti ekki munað
eftir gamla fólkinu nema þegar
kemur að því að kjósa og borga
skattana.
Hækkuð afnotagjöld
Jóhanna hringdi:
Mig langar til að koma þvi á
framfæri vegna þessarar miklu
hækkunar á afnotagjöldum að
Ríkisútvarpið má fara að koma
með aðeins betri dagskrá. Það em
margir góðir þættir inni á milli
og ég hvet ráðamenn Sjónvarpsins
eindregið til þess að sýna aftur
Vínartónleikana, þar sem þeir
vom sýndir á mjög óheppilegum
tíma á nýársdag. Eg bíð eftir að
fá að sjá þá.
HEILRÆÐI
Sjómenn
Á neyðarstundu er ekki timi til lesturs. Kynnið ykkur þvi í
tíma hvar neyðarmerki og björgunartæki eru geymd. Lærið
meðferð þeirra.
Yíkverji skrifar
HÖGNI HREKKVISI
•f-ao
. hæ-ttið þBSSU 06 fXið MÉR EINKUNN-
ARSPJALDIÐ."!
Adögunum sagði Víkveiji litla
sögu af sambýlisfólki norður í
landi og ferðalagi þeirra um vand-
rataða vegu Húsnæðisstofnunar
ríkisins síðastliðin tvö ár. I fram-
haldi af þessari sögu hafði annar
kunningi Víkverja samband og
hafði hann enn ótrúlegri sögu að
segja:
Eiginkona þessa kunningja
Víkveija stundar framhaldsnám, en
tekur ekki lán úr Lánasjóði
íslenskra námsmanna, er reyndar
ekki talin eiga rétt til slíks munað-
ar, þar sem eiginmaðurinn á sam-
kvæmt kerfinu að sjá fyrir hennar
þörfum. En vegna þess að þetta
nám er undir öðmm kringumstæð-
um lánshæft, þá metur Húsnæðis-
stofnun lánsumsókn þessara hjóna
um lán til íbúðarkaupa þannig, að
konan verði að standa skil á lífeyris-
greiðslum. Er því svo komið að þau
neyðast til að borga í Söfnunarsjóð
lífeyrisréttinda til að eiga mögu-
leika á því að umsókn þeirra um
húsnæðislán sé tekin til afgreiðslu.
Finnst þessum kunningja
Víkveija súrt í broti að þannig sé
aukið á erfíðleika eiginkonunnar við
námið. Þegar hann spurðist fyrir
um þetta hjá Húsnæðisstofnun kom
í ljós að ef hann hefði látið eiga sig
að taka fram í umsókninni að kon-
an væri í námi, en væri heimavinn-
andi húsmóðir, þá hefði aldrei kom-
ið til þessara vandræða.
xxx
Spilakassar ýmiss konar stytta
mönnum stundir í biðsölum eins
og á Reykjavíkurflugvelli og að
undanfömu hefur svo sem ekki
veitt af því þar sem samgöngur
hafa verið stirðar. Víkveiji þurfti
fyrir skömmu að eyða nokkrum
klukkustundum í bið eftir flugvél á
Reykjavíkurflugvelli og glaptist til
að eyða peningum í að vigta sig á
tölvustýrðri almenningsvog sem þar
er að finna. Eftir að hafa stimplað
fæðingardag, hæð og kyn á tölvu-
borð spýtti vogin út úr sér bréf-
miða, sem á voru ekki aðeins upp-
lýsingar um þyngd og kjörþyngd,
heldur fylgdu með fróðleiksmolar
um andlegt og líkamlegt ástand
Víkveija dagana á eftir.
Þetta peningaplokk væri svo sem
ekki í frásögur færandi ef Víkveiji
hefði ekki rekið augun í annað ná-
kvæmlega eins apparat í Kringl-
unni, fjórum dögum síðar. Honum
fannst upplagt að athuga hvort
ekki væri samræmi á milli tælq'anna
en það var nú öðru nær.
Dæmi: Sagt var í fyrra skiptið
að líkamlegt ástand yrði með betra
móti sjö daga enn. I síðara skiptið
var sagt að líkamlegt ástand yrði
með betra móti einn dag enn. í
báðum tilvikum var talað um að
tiltekinn dag yrði heilsan viðkvæm,
þó ekki sama dag. Sagt var að
andlegt jafnvægi yrði slæmt næstu
tvo daga í fyrra skiptið, en í íjóra
daga í seinna skiptið. í bæði skiptin
var bent á að forðast bæri illindi
tiltekinn dag, þó ekki sama daginn.
Til að kóróna viskuna var talað um
að greind og skarpskyggni yrðu í
minna lagi næstu 12 daga í fyrra
skiptið, en í 13 daga í seinna skip-
tið. Ekki þótti voginni æskilegt að
mikilvægar ákvarðanir væru teknar
ákveðinn dag, en sinn hvor dagur-
inn nefndur í úttekt vogarinnar.
Ekki öll vitleysan eins og til við-
bótar má bæta við að ágizkanir um
aldur voru út í hött og bar ekki
saman, þrátt fyrir að sömu upplýs-
ingar væru stimplaðar inn í bæði
skiptin. Ef það skiptir einhveiju
máli má geta þess að tölur um
þyngd voru iangt.frá raunveruleik-
anum og munaði auk þess tveimur
kílóum á milli daga. Og til að bæta
gráu ofan á svart, bar heldur ekki
saman tölum um kjörþyngdina,
„skv. staðli Broca“!