Morgunblaðið - 02.02.1989, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
4
Vogar:
Annir hjá bj örgunar sveitinni
o g tíðar rafinagnstruflanir
Vog^um.
Björgunarsveitin Skyggnir hafði mikið að gera vegna slæms veð-
urs i síðustu viku og ófærðar á Reykjanesbraut og rafmagn fór af
alls fímm sinnum í vikunni, í Vogum og á Vatnsleysuströnd.
Björgunarsveitin veitti aðstoð á Hallgrímur sagði gott samstarf
Reykjanesbraut vegna illa útbúinna
bíla og bfla sem höfðu lent utan
vegnar sunnudaginn 22. janúar og
síðastliðinn föstudag voru björgun-
arsveitarmenn á Reykjanesbraut að
veita aðstoð frá hádegi til klukkan
2, aðfaranótt laugardagsins.
Hallgrímur Einarsson formaður
Skyggnis sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins að á föstu-
dag hafí verið mikið hvassviðri, eitt
það mesta sem hann myndi eftir.
Fólki úr tugum bfla var veitt aðstoð
og nokkrir fengu gistingu á heimil-
um í Vogum um nóttina.
vera milli björgunarsveitanna á
Suðumesjum og Björgunarsveitin
Stakkur í Keflavík og Hjálparsveit
skáta í Njarðvík hefðu komið og
veitt aðstoð. Auk aðstoðar á
Reykjanesbraut þurfti einnig að
veita aðstoð í Vogum.
Meðal verkefna sem björgunar-
sveitin sinnir þegar aðstæður eru
erfíðar vegna færðar er að flytja
starfsfólk við heilbrigðisþjónustu til
og frá vinnu og nýlega barst
Skyggni ávísun frá Garðvangi,
dvalarheimili aldraðra Suðumesja-
manna í Garði, fyrir veitta þjónustu
við flutning á starfsfólki og gladdi
þessi gjöf björgunarsveitarmennina
mikið, enda sjaldgæft að fá slíkar
gjafír.
Rafmagnstmflanir vom tíðar í
síðustu viku í Vogum og á Vatns-
leysuströnd. Rafmagn fór af alls 5
sinnum í vikunni. Fyrst sunnudag-
inn 22. janúar, síðan á þriðjudag,
fímmtudag, föstudag og laugardag.
Rafmagnsleysi var í eina til þijár
klukkustundir í senn.
Miklum snjó hefur kyngt niður
undanfama daga. það hefur verið
hvít jörð á aðra viku sem er mjög
sjaldgæft hér, en snjórinn hefur
fokið í skafla og þess vegna hefur
verið mikið að gera við snjómokstur.
- EG.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Miklum siyó hefur kyngt niður í Vogum og fokið í skafla eins og sjá má á myndinni sem er af Sólheimum
í Vogum.
Rannsóknaráð ríkisins
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1989
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins,
Laugavegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1989 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitleg-
um tæknisviðum.
Sérstök áhersla skal lögð á:
- efnistækni,
- fiskeldi,
- upplýsinga-ogtölvutækni,
- líf- og lífefnatækni,
- nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
- matvælatækni,
- framleiðni-oggæðaaukanditækni.
• Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina,
- möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi,
- hæfni rannsóknamanna/umsækjenda,
- líkindum á árangri.
0 Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
- samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur
í fram-
kvæmd verkefnisins,
- fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni afmörkum,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í at-
vinnulífi.
Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa upp-
byggingu
á færni á tilteknum sviðum.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Útibússtjórar Samvinnubankans fi-á stofiiun hans. Til hægri
Sveinn Guðmundsson sem gegndi stöðunni firá 1964-1981 og Örn-
óUúr Þorleifsson núverandi útibússtjóri.
Akranes:
Útibú Samvinnu-
bankans25ára
. Akranesi.
UM ÞESSAR mundir eru 25 ár liðin frá því Samvinnubankinn
opnaði útibú á Akranesi og var þess minnst á stofhdaginn 3. jan-
úar sl. Þetta var fyrsta bankaútibúið sem sett var á stofii á Vest-
urlandi.
Starfsemi útibúsins var fyrst
til húsa á Suðurgötu 36 eða fram
til ársins 1967. Þá var flutt í eig-
ið húsnæði á Kirkjubraut 24 og
síðan í nýbyggingu þar við hlið
en í því húsnæði var hafín starf-
semi 1983. Það húsnæði er stór
og mikil bygging, en auk banka-
útibúsins eru þar einnig bæjar-
skrifstofur Akumesinga svo og
skrifstofa Skattsijóra Vestur-
lands.
Frá opnun útibúsins 1964 hefur
umboð Samvinnutrygginga verið
þar til húsa, enda bankinn um-
boðsaðili þeirra til ársins 1987,
er stofnað var sérútibú sem enn
er til húsa í bankanum.
Fyrsti útibússtjóri bankans á
Akranesi var Sveinn Kr. Guð-
mundsson fyrrverandi kaupfé-
lagsstjóri, en hann gegndi starfí
sínu til 31. október 1981 er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Þá tók við stjóm Ömólfur Þor-
leifsson sem gegnt hefur starfinu
síðan. Skrifstofustjóri er Þröstur
Stefánsson. Starfslið bankans tel-
ur nú átján manns, en í upphafí
vom þeir þrír.
Á afmælisdagin var viðskipta-
vinum boðið kaffí og meðlæti í
útibúinu. — JG
ÍTSALA
ÍITSALA
Elísubúðin,
Skipholti 5.
SIEMENS -gceði
HRÍFANDI OG ÞRÍFANDI
RYKSUGA FRÁ SIEMENS!
Tilvalin ryksuga fyrir minni heimili og skrifstofur.
■ Lítil, létt og lipur
■ Kraftmikil (800 W) en
sparrieytin
■ Stór rykpoki og sýklasía
■ Sjálfinndregin snúra og
hleðsluskynjari
■ SIEMENS framleiðsla tryggir
endingu og gæði
■ Verð kr. 8.320,-
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
f
-f