Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 45

Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 45 Starfslið bjórstofu Eisu. Bjórstofa Elsu í Þórscafé Ólafur Dýr- mundsson formaður Sauðflár- verndarinnar ÓLAFUR R. Dýrmundsson ráðu- nautur hefur verið tilnefhdur formaður SauðQárvemdarinnar og sem meðstjórnendur hafa ver- ið tilnefnd Björgvin Þ. Valdi- marsson og Jórunn Sörensen. SauðQárverndin var sto&uð af Jóni Konráðssyni á Selfossi árið 1965 og var markmið hennar að bæta umhirðu og umgengni manna gfagnvart sauðkindinni. í frétt ftá Sauðfjárvemdinni seg- in „Jón var mikill dýravinur og bar hag þeirra mjög fyrir bijósti, sem best má sjá af því framtaki hans að stofna Sauðfjárvemdina. Hann rak Sauðfjárvemdina alla tíð á sinn eigin reikning. Jón Konráðsson lést í hárri elli á Selfossi þann 19. mars 1986. Áður en hann lést arfleiddi hann Sauðfjárvemdina að eigum sínum og stofnaði jafnframt sjálfs- eignarfélag um hana.“ NÝ skemmtidagskrá, Bjórstofa Elsu, hefst í Þórscafé föstudag- inn 3. febrúar, en þar fer í farar- broddi gleði og gáskadrottningin Elsa Lund. Verður skemmtidag- skráin sýnd í Þórscafé öll föstu- dags og laugardagskvöld. í för með Elsu verður flokkur gleðimanna og má þar nefna þá Saxa lækni, Leif ‘ óheppna, kínverska hollustukokkinn Wee Ta Min, Mófreð gamla, manneldis- fræðinginn Rögnvald Hall, Magnús bónda Laugdal og rafverktakann Skúla Ohmarsson. Með í þessum hópi verða einnig bræðumir Halli og Laddi, Egill Olafsson söngvari og hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar, en stjómandi skemmtidag- krárinnar er Egill Eðvarðsson. (Úr fréttatilkynningu) Nýr framkvæmda- sljóri Bandalags ís- lenskra leikfélaga KOLBRÚN Halldórsdóttir hef- ur tekið við starfi fram- kvæmdastjóra Bandalags íslenskra leikfélaga af Sigrúnu Valbergsdóttur, sem hafði gegnt því í 6 ár. Kolbrún lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1973 og prófi frá Leiklistarskóla ís- lands árið 1978. Kolbrún hefur starfað sem leik- ari, leikstjóri og dagskrárgerðar- maður við útvarp og sjónvarp. Hún stóð að stofnun og rekstri leikhússins Svart og sykurlaust, starfaði með Alþýðuleikhúsinu um árabil, hefur leikstýrt hjá áhuga- leikfélögum og skólaleikfélögum auk þess sem hún hefur kennt á Qölda leiklistamámskeiða. (Fréttatilkynning) Kolbrún Halldórsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Bandalags islenskra leikfélaga 1. janúar sl. Miðhús, Reykhólasveit: Þorrablót- inu ekki frestað Miðhúsum, Reykhóhuveit: YFIR helgina var hér leið- indaveður, en á laugardag- inn létti heldur til og þá var ákveðið að halda uppá þorr- ann hér á Reykhólum, en fólk komst með rútunni að sunnan á föstudagskvöldið. Miðað við erfíðleika í umferð var þorrablótið vel sótt og á sunnudaginn á venjulegum áætlunartíma eða klukkan rúmlega 3, lagði rútan af stað frá Reykhólum og var hún kom- in um miðnætti í Búðardal og til dæmis tók það rútuna 5 klukkutíma að komast fyrir Gilsfjörð. Rútan kom þá til Reykjavíkur kl. 7 á mánudags- morgun. - Sveinn. Höfii: Fáir róðrar og afli rýr H5b. Þrir bátar byrjuðu línuróðra skömmu eftir áramótin, en tíðar- farið hefúr verið á þann veg að róðrar hafa verið fáir og aflinn rýr. Fjórir bátar byijuðu svo á netum eftir miðjan mánuð og er auðvitað sömu sögu að segja um þá að segja. Tveir bátar, Helguvík ÁR-213 og Þorsteinn GK-16, hafa lagt upp síld hjá fiskiðjuveri KÁSK um 540 tonn. En fískiðjan hafði tekið á móti 753.471 kg af fiski um síðustu helgi. Þar voru 71 kg af humri, en Garðey SF-22 reyndi örlítið fyrir sér með humarvörpu án árangurs. Vísir SF-64 hefur fengið um 56 tonn í net sem af er og mun það mestur afli til þessa. Vísir og Haukafell leggja upp hjá Faxeyri, en það er saltfískverkun sem hóf starfsemi sína á vetrarvertíð sfðast- liðið ár. Skinneyjarbátar, Freyr, Steinunn og Skinney, leggja upp hjá Skinney hf. Þeir eru á línu. Þá hefur lítilsháttar verið sent úr landi f gámum. JGG TILKYNNING 23. janúar sl. gaf viðskiptaráðherra út „reglugerð um lánskjaravísitölu til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár." Samkvæmt þessari reglugerð er grundvelli lánskjaravísitölu breytt á þann veg að framfærsluvísitala, byggingarvísitala og svonefnd launavísitala gildi að þriðjungi hver í grundvelli hinnar nýju lánskjaravísitölu. Þessi nýja lánskjaravísitala á skv. ákvæðum reglugerðar að koma að fullu og öllu í stað þeirrar lánskjaravísitölu sem reiknuð hefur verið skv. lögum nr. 13/1979 og grundvallast að % á framfærsluvísitölu og að 'A á byggingarvísitölu. Skal hin nýja vísitala samkvæmt reglugerðinni taka gildi 1. febrúar 1989. Samband almennra. lífeyrissjóða og Landssamband lífeyrissjóða taka fram, að þau telja vafa leika á um lögmæti þess að láta hina nýju vísitölu taka gildi um fjárskuldbindingar sem stofnað var til fyrir 1. febrúar 1989. Með vísan til þess gera samböndin fyrir hönd lífeyrissjóða, sem aðild eiga að þeim, fyrirvara gagnvart öllum skuldurum sjóðanna, sem nú greiða af fjárskuldbindingum sínum samkvæmt hinni nýju vísitölu og áskilja sér rétt til að krefja þá um þann mismun sem leiðir af því að hinni nýju vísitölu er beitt í stað hinnar eldri. F.h. SAMBANDS ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA Benedikt Davfðsson F.h. LANDSSAMBANDS LÍFEYRISSJÓÐA Pétur H. Blöndal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.