Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
~46
BADMINTON / LANDSLIÐIÐ
Tekur þátt í
• sterku boðs-
móti í Banda-
ríkjunum
Íslenska landsliðið í badminton
tekur þátt í sterku móti í Boston
í Bandaríkjunum í lok mánaðarins.
í sömu ferð verður landskeppni við
Bandaríkjamenn og þá verður keppt
við úrvalslið frá New York.
íslenska badmintonlandsliðið
hefur aldrei keppt í Bandaríkjunum,
en umrædd ferð er til kominn vegna
heimsóknar Bandaríkjamanna til
íslands í fyrra, er þeir töpuðu naum-
lega í landskeppni. Þeir voru án-
ægðir með allar móttökur og bjóða
íslenska hópnum nú frítt fæði og
gistingu.
Sex keppendur verða sendir,
tvær konur og §órir karlar, og verð-
ur hópurinn valinn eftir íslandsmó-
tið, sem fram fer í Laugardalshöll-
inni um helgina.
Broddi Kristjínsson verður vænt-
anlega einn þeirra sem keppir í Banda-
ríkjunum.
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum.
5. LEIKVI KA- 4. FEBf IÚAR1989 1 X 2
Leikur 1 Arsenal West Ham
Leikur 2 Aston Villa Sheff. Wed.
Leikur 3 CharHon Norwich
Leikur 4 Derbv Southampton
Leikur 5 Everton Wimbledon
Leikur 6 Luton Nott. For.
Leikur 7 Middlesbro Coventry
Leikur 8 1 Newcáistlé Liverpooi
Leikur 9 Q.P.R. Millwall
Leikur 10 Bournemouth - W.B.A.
Leikur 11 Oldham Watford
Leikur 12 Portsmouth - Man. City
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15 á
laugardögum er 91-84590 og -84464.
1 'vöfaldL ir pottur
Gangi 1. vinningur út að þessu sinni, verður SPRENGIVIKA í 6. leikviku.
Kjötvörur
frá Höfn I
fengu
TVENN
BRONSVERDLAUM
Á INTERFAIR 'R8 í DANMÖRKU
Við framleiðslu Hafnar kjötvaranna
eru gæðin höfð að leiðarljósi
KJÖTVINNSLA - SELFOSSI
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Leikið gegn Norðmönnum í kvöld og á morgun:
Siðustu leikimir
á heimavelli undir
sljóm Bogdans
„ÞESSIR leikir viö Norðmenn
eru mjög mikilvœgir fyrir okk-
ur. Reyndar heföi verið betra
að leika við þá í nœstu viku,
en þeir tóku það ekki í mál.
Við þekkjum nokkra leikmann-
anna en ekki alla og því kemur
sér vel fyrir okkur að kynnast
þeim nú með milliriðilinn í B-
keppninni í huga,“ sagði Bogd-
an Kowalczyk, landsliðsþjálfari
í handknattleik, á fréttamanna-
fundi í gær.
ÆT
Ísland og Noregur leika landsleik
í Laugardalshöll í kvöld og annan
á morgun. Báðir heijast klukkan
20.30 og eru þetta síðustu lands-
leikir þjóðanna fyrir B-keppnina.
Sterkasta liðið
íslenska liðið hefur leikið 11 leiki
á undanfömum sex vikum. „Við
hefðum þurft fleiri leiki, en það er
hægara að segja en í að komast,"
sagði Bogdan. „En árangur í þess-
um leikjum skiptir máli og því nota
ég þá leikmenn mest, sem eru
líklegastir til að ná árangri sam-
an,“ bætti hann við.
Hann sagðist reyndar ekki hafa
getað stillt upp sterkasta liði hveiju
sinni. „Mikið hefur verið um meiðsli
og eins hafa leikmenn ekki gefið
Bogdan Kowaiczyk.
kost á sér í leiki. Þetta hefur verið
visst vandamál og þess vegna hefð-
um við þurft fleiri leiki.“
Norðmenn unnu Dani
Norðmenn léku við Dani í fyrra-
kvöld og unnu 24:23. Liðið hefur
æft vel að undanfömu enda leggja
Norðmenn allt kapp á að standa
sig vel í B-keppninni. „Þeir em
hingað komnir til að sigra, en við
leggjum einnig mikla áherslu á sig-
ur,“ sagði Bogdan. „Þetta er síðasta
prófið fyrir B-keppnina og okkur
veitir ekki af góðum stuðningi."
Ljóst er að Alfreð Gíslason verð-
ur ekki með gegn Norðmönnum
vegna meiðsla. Félagi hans hjá KR,
Páll Ólafsson, leikur heldur ekki
með af sömu ástæðum.
Landsliðshópurinn er skipaður
eftirtöldum mönnum:
Markverðlr: Einar Þorvarðareon, Guðmundur
Hrafnkelsson, Hrafn Margeireson og Leifur
Dagfínnsson. Aðrir leikmenn: Þorgils óttar
Mathiesen, Jakob Sigurðsson, Bjarki Sigurðs-
son, Valdimar Grímsson, Sigurður Gunnara-
son, Alfreð Gíslason, Páll ólafsson, Guðmund-
ur Guðmundsson, Kristján Arason, Geir
Sveinsson, Sigurður Sveinsson, Héðinn Gils-
son, Júlíus Jónasson, Guðjón Árnason og Birg-
ir Sigurðsson.
Þeir sem hvíla í kvöld, auk Alfreðs og Páls,
eru markverðirnir Guðmundur Hrafnkelsson
og Leifur Dagfínnsson, svo og Birgir Sigurðs-
son línumaður.
íkvöld
ÍSLAND og Noregur leika
landsleik í handknattleik í
Laugardalshöll í kvöld kl.
20:30.
Tveir leikir fara fram á Is-
iandsmótinu í körfuknattleik
í kvöld. Haukar og Valur leika
í Hafnarfírði og ÍS og KR í
íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans. Báðir leikimir hefjast kl.
20.00.
■ 11» I I I I !■
Aðalfundur Víkings
Aðalfundur Knattspymufélags-
ins Víkings verður haldinn í
félagsheimilinu við Hæðargarð í
kvöld, fímmtudaginn 2. febrúar, og
hefst kl. 20.30. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verður rætt um
sölu á eignum félagsins við Hæðar-
garð.
HANDBOLTI
Frestað í Eyjum
Leikjum ÍBV og Þórs í 1. deild
kvenna og bikarleik ÍBV-b og
HK í karlaflokki, sem fram áttu að
fara í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi, var frestað þar sem ekki var
flogið til Eyja.
KNATTSPYRNU-
MABUR
Ungan framherja vantar
í 3. deildarlið í Svíþjóð.
Sími 9046-492-22200.
Stefán Tómasson.
KNATTSPYRNA
Mechelen tók PSV
í kennslustund
KV MECHELEN tók PSV Eind-
hoven nánast í kennslustund í
knattspyrnu er liðin léku fyrri
leik sinn um titilinn besta fé-
lagslið Evrópu „Super Cup“ í
Mechelen gærkvöldi. Belgísku
bikarmeistararnir sigruðu með
þremur mörkum gegn engu og
var sigurinn síst of stór.
Mechelen náði að pressa stíft
fyrstu 15 mínútumar og áttu
leikmenn PSV ekkert svar við stór-
leik belgísku bikarmeistaranna.
Frá Bjama
Markússyni
i Belgíu
aði fyrsta markið á
16. mínútu eftir fyr-
irgjöf frá Hofhens.
Tveimur mínútum
síðar bætti Pascal De Wilde við
öðru marki eftir frábæran undir-
búning Emmers og þannig var stað-
an í hálfleik.
Mechelen byijaði seinni hálfleik-
inn eins og þann fyrri og eftir að-
eins fímm mínútur skoraði Bosman
annað mark sitt og jafnfram þriðja
mark Mechelen. Það sem eftir lifði
leiks réðu Belgamir ferðinni og
hefðu getað bætt við nokkrum
mörkum í viðbót.
Lið Mecehelen var nær óþekkjan-
legt frá því í deildarleikjunum í
vetur. Leikmenn náðu vel saman
og gáfu Evrópumeisturunum aldrei
frið. Bestu leikmenn Mechelen voru
Denemaker og Bosman. Hjá PSV
var Ronald Koeman bestur.
Síðari leikurinn fer fram í Eind-
hofven í Hollandi næsta miðviku-
dag.
John Bosman skoraði tvívegis í
gærkvöldi.
NBA-úrslit
New Y ork Knicks—Indiana.120:111
Cleveland—Philadelphia..118:103
Washington—Boston.......110:103
Utah Jazz—Dallas........ 99: 84
Milwaukee—Sacramento....117:104
San Antonio Spure—Denver.117:111
Detroit Pistons—Chicago.104: 98
LA Lakers—Houston.......125:114
New Jereey Neta—Seattle.118:112