Morgunblaðið - 02.02.1989, Síða 48

Morgunblaðið - 02.02.1989, Síða 48
GA CLASS í heimi hraða og athafna FLUGLEIÐIR FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. GUÐBJÖRG ÍS frá ísafírði var með mest aflaverðmæti ísfisktogara á síðasta ári. Togarinn aflaði 5.144 tonna að verðmæti 228,7 milljónir. Guðbjörgin hefur verið með mest aflaverðmæti togara mörg undanfar- Aflaskipá Vestijarðamiðum Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason in ár. Hinir harðduglegu sjómenn á Guðbjörgu eru þegar byijaðir að leggja grunninn að enn einu metárinu en myndin var einmitt tekin um borð í togaranum á Vestfjarðamiðum fyrir nokkrum dögum. Úrskurði um breytta lánskjaravísitölu vísað til dómstóla: Urskurðamefiid telur að um nýja vísitölu sé að ræða Lífeyrissjóðirnir gera fyrirvara gagnvart skuldurum sínum Veðrið í janúar: Ovenju lít- ið sólskin HITASTIG S Reykjavík mældíst í meðailagí í janúar en úrkoma var talsvert fyrir ofan meðallag. Sennilega fímmti úrkomu mesti janúar frá árinu 1920, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræð- ings. „Það var óvenjulega lítil sól og hefur aldrei fyrr mælst svona lítil sól i janúar, eða í tvær klukkustund- ir, en að vísu hefur nokkrum sinnum mælst nærri því jafn lítið," sagði Trausti. „Trúlega hefur ekki mælst meiri snjór síðan árið 1984 en þá snjóaði mun meira." f janúar voru miklir umhleypingar þrátt fyrir að hvassviðri væru ekki tíð en hins a vegar var óvenjulega breytilegt veð- ur. Amarflugsþotan: Segulbönd verða rann- jsökuð í dag Segulbandsupptökur af Qar- skiptum milli flugstjómar og Arnarflugsþotunnar, sem lenti á Keflavikurflugvelli á föstudag, verða rannsakaðar i dag og næstu daga. Rannsókn málsins var hafin á mánudag að frum- kvæði loftferðaeftirlitsins, segir Skúli Jón Sigurðarson deildar- stjóri rannsóknadeildar. í yfírlýsingu sem Amarflug sendi frá sér í gær er rannsóknin sögð vera dæmi um hlutdrægni Flug- leiðamanna í flugráði. Skúli Jón segir það hafa vakið athygli manna hjá loftferðaeftirlit- inu að ein vél lenti á Keflavíkurflug- ^velli þegar þijár aðrar sneru frá og vitað var að veðurskilyrði voru siæm. Hann segir loftferðaeftirlitið oft rannsaka tilvik þar sem eitthvað gæti reynst athugavert og þetta væri dæmi um slíkt. „Við vildum vita hvað væri hið sanna í málinu, við höfum ekki slegið neinu föstu.“ Málið var lagt fram í Flugráði á þriðjudag og óskað eftir rannsókn. Þá var upplýst að rannsókn væri þegar hafín hjá loftferðaeftirlitinu. Sjá yfírlýsingu Amarflugs á bls. 27. ÚRSKURÐARNEFND um verð- tryggingu telur það utan vald- sviðs sins að úrskurða í máli þvi sem Baldur Guðlaugsson, hæsta- réttarlögmaður, lagði fyrir nefndina varðandi það hvort hon- um væri skylt að greiða af skulda- bréfí samkvæmt breyttum grund- velli lánskjaravisitölu, sem tók gildi fyrir febrúarmánuð i fram- haldi af setningu reglugerðar við- skiptaráðuneytisins og auglýs- ingu Seðlabankans. I úrskurði nefndarinnar kemur fram að hún telur þessa breytingu á grund- velli lánskjaravísitölu jafngilda þvi að tekin hafí verið upp ný lánskjaravísitala, en það sé álita- mál hvort ný visitala geti gilt um skuldbindingar samkvæmt eldri vísitölu. Það sé utan valdsviðs nefhdarinnar að úrskurða þar um og sé faiið hinum almennu dóm- stólum. Sambönd lífeyrissjóðanna sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem þau fyrir hönd aðildarsjóða sinna gerðu „fyrirvara gagnvart öllum skuldurum sjóðanna, sem nú greiða af fjárskuldbindingum sínum sam- kvæmt hinni nýju vísitölu og áskilja sér rétt til að krefja þá um þann mismun sem leiðir af því að hinni nýju vísitölu er beitt í stað hinnar eldri." „Nefndin víkur sér undan að taka efnislega á málinu og vísar því til dómstólanna, sem er mjög miður. Þetta mál er einmitt þess eðlis að það hefði þurft að fást úrskurður í því með skjótum hætti," sagði Bald- ur Guðlaugsson, í samtali við Morg- unblaðið um þessa niðurstöðu. Hann benti á að í viðskiptalífí landsmanna væri notkun lánskjaravísitölu mjög útbreidd og því væri erfítt og næsta ómögulegt í mörgum tilfellum að snúa til baka, kæmust dómstólar að því eftir eitt eða tvö ár að ný vísi- tala gilti ekki fyrir eldri skuldbind- ingar. „Það er verið að greiða og gera upp einhver mál á grundvelli vísitölu í þúsundavís á hveijum degi. Og það gildir ekki bara um útlán heldur einnig innlán, eins og til dæmis verð- tryggða innlánsreikninga. Maður sér ekki fyrir sér að hægt sé að setja inn fyrirvara um öll þessi viðskipti. Það er ekki hægt að reka banka- kerfí og viðskiptalíf á fyrirvörum svo árum skiptir," sagði Baldur. Hann taldi sennilegt að þeir sem vildu draga í efa gildi hinnar nýju vísitölu gagnvart eldri skuldbindingum yrðu að gera fyrirvara, ef þeir vildu við- halda rétti sínum til að koma fram leiðréttingu. Annars gætu dómstólar litið svo á að um samþykki væri að ræða. Hann sagðist telja að nefndin hefði samkvæmt lögum tvímæla- laust úrskurðarvald í málum sem þessum, þó niðurstaða nefndarinnar hefði orðið önnur. Aðspurður hvort hann hygðist höfða mál fyrir dóm- stólunum, sagðist hann aðeins vilja hugleiða það áður en hann tæki ákvörðun. Hann væri ekki að rekast í þessu vegna persónulegra hags- muna, heldur til að fá úr því skorið hvort hægt væri að hringla með vísi- töluna með þessum hætti. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagðist ekki hafa séð úrskurð- inn, en honum hefði heyrst af frétt- um að nefndin teldi, sem rétt væri, að hún ætti ekki að úrskurða um mál af þessu tagi. Varðandi það að líta beri á þessa vísitölu sem nýja vísitölu, sagði Jón: „Sérhver breyttur hlutur er í einhveijum skilningi nýr hlutur. Sú vísitala sem var í gildi næst á undan þeirri breytingu sem nú er til umræðu hafði verið end- umýjuð frá því sem var í upphafi verðtiyggingartímabilsins 1979 og ég sé ekki að þar sé um eðlismun að ræða.“ Sjá úrskurð úrskurðarnefíidar á miðopnu. 13 milljón göngn- seiði fi'amleidd í vor Útlit fyrir 11 þúsund tonna framleiðslu á laxi á næsta ári EKKI er útlit fyrir að mikil offramleiðsla verði á gönguseiðum hjá seiðaeldisstöðvunum í ár. Friðrik Sigurðsson framkvæmda- stjóri Landssambands fískeldis- og hafbeitarstöðva segir að í eldi séu tæplega 13 miHjónir seiða sem verði gönguseiði í vor. Þegar væri búið að ráðstafa í hafbeit og f eldi i kerum og kvfum innan- lands um 10 milfjónum seiða. Einhver viðskipti ættu efltir að fara fram og síðan þyrfti að gera ráð fyrir aflollum, þannig að offram- leiðsla yrði lftil eða engin. A síðasta ári fóru um 8 milljón seiði í eldi og 400 þúsund seiði, sem nú eru unglaxar, eru óseld í seiðastöðvunum. Framleidd voru fleiri seiði í fyrra en talsverð af- föll urðu í flutningum innanlands og vegna veðurs. Friðrik sagði að eldi þessara seiða ætti að gefa af sér að minnsta kosti ellefú þúsund tonn af laxi á næsta ári og enn meiri framleiðslu árið 1991. Til samanburðar má geta þess að áætlað er að framleidd hafí verið 750—800 tonn af laxi á síðasta ári og að í ár verði fram- leidd um 4.000 tonn. Friðrik sagði að ekki væri gert ráð fyrir neinum útflutningi gönguseiða á þessu ári. Markaðir væru lokaðir. Hann sagði sem dæmi að Norðmenn hefðu nú í fyrsta skipti viðurkennt offram- leiðslu og hefðu samtök norskra fískeldismanna fyrirskipað seiða- stöðvunum að minnka göngu- seiðaframleiðsluna í vor um fjórð- ung.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.