Morgunblaðið - 12.02.1989, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1989
2 FRÉTTIR/IIMNLEIMT
Lagastofiiun HÍ:
Getur sinnt
málinu eft-
ir 4 mánuði
SIGURÐUR Líndal forstöðumað-
ur Lagastofiiunar Háskólans
segir að stofiiunin sé alls ekki
að forakta alþingi með því að
endursenda erindi Kristins Pet-
urssonar alþingismanns. „Við
höfiim ekki hafhað því að af-
greiða erindi hans, málið er ein-
faldlega að við getum ekki sinnt
því fyrr en eftir Qóra mánuði
sökum anna.“ Kristinn Pétursson
sendi Lagastofnun erindi með
spurningum um hvort bráða-
birgðalög rikisstjórnarinnar
væru í samræmi við sljórnarskrá
landsins.
Sigurður segir að frá því að
Lagastofnun tók að sér þjónustu-
rannsóknir á borð við erindi Kristins
fyrir hálfu öðru ári hafí sú stefna
verið mörkuð að reyna að leysa úr
málum á skjótan hátt. Hinsvegar
hafí þeir snemma orðið hlaðnir af
verkefnum og væru nú að vinna
upp það sem safnast hefur fyrir.
Vestan stormur
um allt land
VESTAN stormur var um allt
land í gær og éljagangur á
vestanverðu landinu. Veður-
stofan spáir áframhaldandi
hvassviðri, 7 til 10 vindstig-
um, í dag, sunnudag.
Fjallvegir voru ófærir eða ill-
færir í gær og innanlandsflug
Flugleiða féll niður í gærmorg-
un. Vegurinn um Mýrdalssand
fór í sundur í fyrrinótt en í
gærmorgun var unnið að við-
gerð á honum.
Komið að landi í Reykjavíkurhöfh í vonskuveðri síðastliðið föstudagskvöld
Morgunblaðið/RAX
Hampiðjan:
Möskvarnir
geta lokast
„MÖSKVAR geta lokast á trolli
og smáfiskur orðið eftir í því ef
menn lenda í miklum físki. Þetta
kom fram á myndum sem teknar
voru í leiðangri sem rannsókna-
skipið Bjarni Sæmundsson fór í
síðastliðið sumar,“ sagði Gylfi
Hallgrímsson, framleiðslustjóri
hjá Hampiðjunni, í samtali við
Morgunblaðið.
„Ef fískurinn kemur skarpt í
trollið getur smáýsa, jafnvel undir
38 sentímetrum, orðið eftir í troll-
inu. Það fer meðal annars eftir tog-
krafti skipsins, stærð pokans og
hversu skarpt fískurinn kemur í
hann hversu mikið af smáfíski verð-
ur eftir í honum,“ sagði Gylfi Hall-
grímsson. „Það er vel þekkt að
möskvar geti lokast, en þó verður
ekki fískur, sem er undir 38 sentí-
metrum, eftir í trollinu," sagði Jak-
ob Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastoftiunar.
Lélegustu gæftir í 30 ár
Ovíst að allur loðnukvótinn náist
NÆR stöðugt gæftaleysi frá því fyrir áramót, hefur dregið verulega
úr afla landsmanna miðað við sama tima síðustu árin. Sumir ganga
svo langt að telja þetta lélegustu gæftir í 30 ár. Meðal annars hefur
þetta ástand valdið því, að illa hefur gengið að afla fiskmetis til
flugflutninga til Japan. Ennfremur gæti orðið erfitt að ná öllum
loðnuaflanum, en 400.000 tonn eru enn óveidd af leyfilegum kvóta
okkar. Takist ekki að ná þeim afla öllum, eru mikil verðmæti í húfí
því 100.000 tonn af loðnu upp úr sjó geta skilað kringum 500 milþ’ón-
um króna í útflutningsverðmæti.
marz, en hún hefur einnig staðið
fram í apríl. Miðað við beztu gæft-
ir má áætla ai) það taki að minnsta
kosti tvo mánuði að ná 400.000
tonnum, en verðmæti aflans til
bræðslu minnkar eftir því, sem á
Misjafnt ec hve lengi
loðnuvertíðin stendur
fram eftir vetri. Það
hefur komið fyrir að
botninn hafí dottið úr
henni um miðjan
líður. Það dregur einnig úr mögu-
leikunum á því að ná þessum afla,
að loðnan er komin vestarlega og
því löng sigling að afkastamestu
verksmiðjum fyrir austan land og
norðan.
„Það er alltaf vitlaust veður og
aflabrögð eftir því. Sjórinn er illa
skipgengur og menn eru alltaf að
draga eldgamalt. Það hefur verið
gæftaleysi frá því í byijun desem-
ber og þetta eru lélegustu gæftir
sem komið hafa í þrjájíu ár,“ segir
Ágúst Bergsson, hafnsögumaður í
Vestmannaeyjum.
„Ég man ekki eftir svona um-
Smyglaðferðir á fíkniefiium þróast:
Hörð neysla lítt kortlögð
utan mestu óregluhópa
ÞAÐ SEM einkum greinir rannsóknir fíkniefiiamála frá öðrum
afbrotamálum er að ekki er um að ræða einstakt atvik sem er
kært heldur þarf að standa afbrotamenn að verki. Arnar Jensson
lögreglufulltrúi í fíkniefiiadeild segir að aðdragandi þessara
mála sé nyög mismunandi. Allt frá því að eftii finnist af tilviljun
við tolUeit og til þess að marga mánaða eftirgrennslan skili ár-
angri. Hann vUl ekkert ræða um rannsóknaraðferðir lögreglunn-
ar og telur að umræður um þær hafi þann tilgang einan að sýna
andstæðingnum spilin. Því meiri leynd um aðferðir og persónur
þeirra sem að rannsóknunum vinni, því meiri árangur náist, enda
þrói smyglarar og dreifendur stöðugt sínar aðferðir.
Itengslum við fíkniefnamál
tengd íslendingum í Danmörku
undanfarið hefur verið skýrt opin-
berlega frá að símhlerunum hafí
verið beitt. Ásgeir Friðjónsson
staðfestir að þær áðferðir hafí
verið notaðar í 7 eða 8 af 20
stærstu málunum sem til af-
greiðslu voru hjá dómstólnum í
fyrra.
373 mál voru afgreidd frá
Sakadómi í ávana- og fíkniefna-
málum í fyrra. Fangelsisdómar
voru kveðnir upp yfír um 20
mönnum vegna innflutnings og
eða dreifingar á fíkniefnum, en
þorri mála var vegna neyslu eða
dreifíngar eða sölu á litlu magni
og var afgreiddur með dómsátt
og sektargreiðslu.
Arnar Jensson telur ekki hægt
að áætla hve stórum hluta lög-
regla nái af þeim fíkniefnum sem
hingað eru flutt
áður en þau
komast í umferð.
í nágrannalönd-
unum sé talað
um 2-10%. Ljóst
sé að hass sé enn
lang algengasta fíkniefnið hér á
landi. Helsta breytingin sem hann
merkir undanfarin ár er að meira
hafi borið á svokölluðum harðari
efnum, einkum amfetamíni og
kókaíni, á síðari árum. Langmest
er flutt inn frá Hollandi, þá Dan-
mörku, en Bandaríkin og flest
lönd Evrópu hafí einnig komið við
sögu. Ásgeir Friðjónsson telur að
það geti ef til vill skýrt aukið
magn af hörðum efnum, sem lög-
regla hefur náð í, að meiri tíma
sé varið í að hindra þann innflutn-
ing. Þótt tölur um efni sem næst
séu sveiflukenndar ár frá ári telur
1__J Ij-J»U!AfenÍ -L1 MLL'-ll
Amar óhætt að fullyrða að ekki
hafí dregið úr fíkniefnaneyslu
hérlendis, hún hafí aukist ef eitt-
hvað er. Það sjáist meðal annars
af því að kókaín sé að öðlast út-
breiðslu innan þess hóps sem er
í mestri óreglu. Hann segir að
meðal þeirra hafí það ekki þekkst
fyrir 2-3 árum. Lítið er vitað um
kókaínneyslu í öðrum hópum hér-
lendis.
Um helmingur þeirra sem komu
við sögu fíkniefnalögreglu í fyrra
var 22-29 ára en
BÆKSVIÐ
eftir Pétur Gunnarsson
Arnar segir að
mest endumýjun
sé í hópi þeirra
sem yngri em en
25 ára. Hins veg-
ar komi enn við
sögu í eldri hópum fólk sem lög-
reglan hafí vitað um árum og
áratugum saman. Verkamenn og
sjómenn em hlutfallslega margir
í hópi „viðskiptavina" fíkniefna-
lögreglu en þar er einnig að fínna
fólk úr flestum starfsgreinum. Þó
sker sig úr að meira en þriðjung-
ur þeirra, sem komu við sögu í
fyrra, er óreglufólk, sem ekki
hefur fasta atvinnu. Það fjár-
magnar einatt neyslu sína með
sölu fíkniefna til annarra neyt-
enda eða með annars konar af-
brotum.
Þeim sem smygla fíkniefnum
hér á landi má skipta í tvo hópa,
að sögn Amars Jenssonar. Annars
vegar þá sem smygla til að standa
undir eigin fíkniefnaneyslu. Þar
em vinnubrögð lítið skipulögð og
þar sem staðið er undir kostnaði
að mestu eða öllu leyti með af-
brotum, skilur þetta fólk iðulega
eftir sig slóð sem Amar segir að
geti verið tiltölulega auðvelt að
rekja. Öðm máli gegnir í þeim
málum þar sem dreifing og sala
efnanna hefur verið skipulögð í
smáatriðum áður en efnið kemur
til landsins. Efnið fari þá frá eig-
endunum í hendur dreifíngaraðila
sem hafí samskipti við „heildsala"
og þeir við „smásala" sem selji
neytendum. Skipuleggjendumir
séu því aðeins stutta stund með
efnið á sínum vegum og örfáir
viti á þeim deili.
í vetur féll dómur í Hæstarétti
í fíkniefnamáli þar sem fimm ár
vom liðin frá því sakbomingar
vom staðnir að innflutningnum.
Amar telur að skjótari dómsmeð-
ferð væri til bóta og myndi fæla
frá brotum, en Ásgeir Friðjónsson
telur að þótt vissulega mætti auka
mannafla við þær stofnanir sem
um málin fjalla flýti það ekki endi-
lega meðferð þeirra. Mörg þeirra
séu umfangsmikil og flókin með-
ferð þeirra á öllum stigum réttar-
kerfisins taki alltaf sinn tíma.
hleypingasömum janúar. Frá ára-
mótum hefur verið hörmungarveður
en ljómandi fískerí er hjá línubátun-
umí þau fáu skipti sem á sjó gef-
ur,“ sagði Óskar Jóhannsson hafn-
sögumaður á ísafirði.
„Frá því í byijun desember hefur
verið leiðindaveður og lélegar gæft-
ir. Það er alltaf bræla og það hafa
bara verið smáskot hjá bátunum.
Þetta er óvanalega slæmur kafli og
mikil viðbrigði. Tíðarfarið hefur
verið mjög gott undanfarin ár og
það hafa engir vetur verið," sagði
Halldór Þorvaldsson hafnarvörður
á Húsavík.
„Lítið hefur gefíð á sjó að und--
anfömu og ég held að menn muni
varla eftir öðru eins. Menn hafa
verið að bijótast út í leiðindaveðri
en línubátarnir hafa síður getað
athafnað sig en netabátamir. Minni
línubátar frá Sandgerði hafa
hrökklast innfyrir Reykjanesskag-
ann í slæmum veðmm,“ sagði Guð-
mundur Þorvaldsson á hafnarvog-
inni í Keflavík.
„Eftir áramótin hefur verið
óvenjulega slæmt tíðarfar. Trillum-
ar hafa farið út þetta tvisvar og
þrisvar á viku og ekkert í síðustu
viku. Stærri bátar hafa verið að róa
en með þó nokkmm úrtökum. Það
var mikið meira um gæftir á sama
tíma í fyrra. Fjörðurinn lýkur í
þotunum og það er ekkert sem
bendir til þess að hann fari að stilla
á næstunni,“ sagði Sölvi Ólafsson
á hafnarvoginni á Fáskrúðsfírði.
Dæmdur í
fangelsi í
Danmörku
34 ÁRA íslendingur, Einar Halls-
son, var á föstudaginn dæmdur
til 5 ára fangelsisvistar í Kaup-
mannahöfii vegna fikniefiiamis-
ferlis. Fjöldi manna var við mál
þetta riðinn en Einar var sýknað-
ur af viðamesta ákæruliðnum,
innflutningi á 5 kílóum af am-
fetamíni, eftir að lykilvitni féll
frá fyrri framburði við réttar-
höldin.
Til frádráttar refsingunni kemur
varðhald sem maðurinn hefur sætt
undanfarin 2 ár, þar af 11 mánuði
í nær algjörri einangrun. Hann var
sakfelldur fyrir innflutning til Dan-
merkur og sölu þar í landi á hassi
og amfetamíni og refsiverða með-
ferð fíármuna, sem tengdust þess-
um afbrotum. Þá var honum gert
að þola eignaupptöku og verður
vísað úr landi að lokinni afplánun.