Morgunblaðið - 12.02.1989, Page 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1989
Theódór S. Halldórsson
Fæddur: 20. desember 1951 í Reykjavík.
Foreldrar: Halldór Ó. Jónsson og Sigfríður
Th. Bjarnar.
Heimilishagir: Giftur Ólöfu Helgu
Pálmadóttur og eiga þau tvö böm.
Menntun: Verslunarskólapróf.
Eftir að Theódór kom heim
aftur vann hann við ýmislegt þar
til hann gerðist starfsmaður SL.
Sem dæmi má nefna vinnu á bfla-
verkstæði, hjá byggingarverktaka
og hjá Flugfélaginu Vængjum.
Bæði vinir og samstarfsmenn
Theódórs bera honum vel söguna.
Allir eru á einu máli um að hann
sé skemmtilegur og kátur ná-
ungi. Jón Helgason verkfræðingur
hjá Vegagerðinni sem er nágranni
hans í blokk í Engjaseli segir að
Theódór sé fæddur grínisti. Hann
sé ávallt fenginn til að troða upp
með gamanmál á þorrablótum og
sumarhátíðum húsfélagsins.
„Þetta er fyrsta flokks maður
og ákaflega indæll í viðkynn-
ingu,“ segir Jón Helgason. Einn
af nánum samstarfsmönnum The-
ódórs á skrifstofu SL tekur undir
þetta og segir jafnframt að hann
sé áhugasamur og duglegur í
vinnu. Hann sé fastur fyrir og
fari sínar eigin leiðir. Þetta sé
ekki auðvelt á stofnun eins og
SL þar sem margir „smákóngar"
í iðnaðinum vilja vera með puttana
í rekstrinum. Theódór hefur hins-
vegar tekist með ágætum að eiga
gott samstarf við þá flesta þótt
oft sé það ekki létt verk.
Annar samstarfsmaður segir
að Theódór sé yfírleitt skapgóður
og skemmtilegur þótt hann eigi
sína slæmu daga eins og aðrir.
Áhugamál Theódórs eru marg-
vísleg. Þar má nefna að hann tek-
ur þátt í félagslífí og er þannig
virkur í Lions-hreyfíngunni. Þá
þykir honum gaman að stangveiði
og undanfarin sumur hefur hann
dundað við að smíða sér sumarbú-
stað í Grímsnesinu. Þá hefur hon-
um tekist að taka sólópróf í flugi
en getur lítt stundað það áhug'a-
mál sökun1 anna við önnur verk-
efni.
Morgunblaöið/Sverrir
Fastur fyrir gegn
„smákóngunum“
MÁL málanna í siðustu viku var hrun Iagmetismarkaðar íslend-
inga á markaðinum í Vestur-Þýskalandi vegna aðgerða Grænfrið-
unga. Mál þetta hefúr mikið mætt á Theódór S. Halldórssyni
framkvæmdastjóra Sölusamtaka lagmetis, áður Sölustofnunar
lagmetis. Theódór hóf þar störf 1979, fyrst sem skrifstofusljóri
en hefúr verið framkvæmdastjóri stofíiunarinnar síðan 1984.
rp heódór er fæddur og uppalinn
SVIPMYND
X á Lokastígnum í Þingholtun-
um. Er hann var 16 ára flutti fjöl-
skyldan hinsvegar í Kópavoginn.
Á unglingsárunum dvaldi hann í
sveit á sumrin, í Sauðlauksdal við
Patreksíjörð. Þeir sem muna eftir
Theódór frá unglingsárunum lýsa
honum sem hæglátum og jákvæð-
um dreng, léttum í lund og skap-
góðum.
Eftir að Theódór lauk Verslun-
arskólaprófí fór hann til Dan-
eftir Friðrik Indriðason
merkur og vann þar um eins árs
skeið, eða 1971. Hann var búsett-
ur í Hirtshals og vann þar sem
sölumaður fyrir íslenska sfldarflo-
tann. Á þeim árum var íslenski
sfldarstofininn hruninn og hluti
flotans stundaði sfldveiðar í Norð-
ursjó.
Málefni Siglufjarðar-
eru í sérstakri skoðun
- segir Ólafiir Ragnar Grímsson flármálaráðherra
Fjármálaráðherra segir að
eðlilegt sé að sveitarfélög al-
mennt séu þátttakendur í því
björgunarstarfi, sem nú fari
fram fyrir atvinnulífíð, með því
m.a. að taka við skuldabréfum
Atvinnutryggingarsjóðs. Hann
segir þó, að Siglufjörður hafí
nokkra sérstöðu, m.a. vegna erf-
iðrar stöðu Þormóðs ramma hf.
á Siglufirði, sem ríkissjóður á
meirihluta í, og Ijóst sé að ríkið
þurfti að hlaupa þar undir bagga
sérstaklega.
Sigluíjörður hefur óskað eftir því
við íjármálaráðuneytið að
skuldabréf Atvinnutryggingarsjóðs,
«
Nauðasamningar JL-hússins:
Boðin 21% greiðsla
á tveimur árum
Skuldir 273 milljónir- eignir 17,7
KRÖFUHAFAR greiddu á fóstu-
dag atkvæði um hvort taka ætti
nauðasamningatilboði eigenda
JL-hússins h/f, sem rak sam-
nefnda verslun að Hringbraut
121 I Reykjavík. Að sögn Ragn-
ars H. Hall skiptaráðanda fól til-
boðið í sér 5% greiðslu upp í
kröfúr strax en 16% til viðbótar
á tveimur árum, tryggt með láns-
kjaravísitölu en vaxtalaust.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var tilboðið fellt í at-
kvæðagreiðslunni en að sögn Ragn-
ars H. Hall skiptaráðanda verður
tekin formleg afstaða til tilboðsins
með úrskurði skiptaréttar á mánu-
dág. Hanh sagði að einungis hluti
þeirra, sem rétt áttu til að taka
þátt í atkvæðagreiðslu, hefði setið
fundinn og ekki hefði verið tekið
saman hversu stóran hluta krafn-
anna þeir færu með.
Tilboðið varðaði eingöngu al-
menna kröfuhafa, en 30. september
síðastliðinn voru heildarskuldir fé-
lagsins áætlaðar tæpar 273 milljón-
ir, þar af veð- og forgangskröfur
um 170 milljónir króna. Bókfært
verð eigna Jl-hússins var þá 17,7
milljónir króna en auk þess eru
veðkröfur meðal annars- tryggðar
með veði í húseign þeirri við Hring-
braut þar sem félagið hafði starf-
semi sína. Húsið er eign annars
hlutafélags í eigu sömu fjölskyldu
og á JL-húsið h/f.
sem Siglufjarðarbær hefur tekið
við, verði tekin upp í skuld Rafveitu
Siglufjarðar við Ríkisábyrgðasjóð.
Erindið barst ráðuneytinu í nóvem-
ber en ekki hefur enn verið tekin
um þetta ákvörðun í ráðuneytinu.
Önnur sveitarfélög líta á þetta sem
eins konar prófmál.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
við Morgunblaðið að sveitarfélögin
væru opinberir aðilar eins og ríkið,
og því væri staða þeirra önnur en
annara viðskiptaaðila fyrirtækja
sem fengið hefðu skuldbreytingu
gegnum Atvinnutryggingarsjóð.
Hins vegar yrði einnig að líta á
skuldastöðu sveitarfélaganna og
ýmislegt annað sem snerti verka-
skiptingu ríkis- og sveitarfélaga,
þegar ákvörðun væri tekin um þessi
mál.
Hann sagði að ríkissjóður væri
einn aðaleigandi að Þormóði ramma
hf. á Siglufirði. Rekstrarstaða þess
fyrirtækis væri mjög erfíð og ljóst
að ríkið yrði að koma þar sérstak-
lega inn í. Og beðið hefði verið að
afgreiða erindi Siglu^arðar, vegna
skuldabréfanna, meðan staða Þor-
móðs ramma hf. hefði verið skoðuð
í ráðuneytinu.
„Það má segja að Siglufjörður
sé fulltrúi fyrir sveitarfélögin al-
mennt séð, en hins vegar er ríkið
að skoða vandamál atvinnulífsins á
Siglufirði út frá miklu stærra sjón-
arhomi, heldur en því sem snýr að
samskiptum við bæjarfélagið og
bréf _ Atvinnutryggingarsjóðs,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
Morgunblaðið/Pétur P. Johnson
Kúbanskar flugvélar lenda sjaldan í slíku snjókófí á heimaslóðum.
Reykj aví kurflugvöllur:
Kubanskar flugyél-
ar eru tíðir gestir
FLUGVELAR kúbanska flugfé-
lagsins Cubana eru tíðir gestir á
Reykjavikurflugvelli, en hér
hafa þær viðdvöl á leið sinni i
feijuflugi milli Kúbu og Sov-
étríkjanna.
að lætur nærri að kúbanskar
flugvélar komi hér við að jafn-
aði tvisvar í mánuði. Flugvélar þess-
ar eru af gerðinni Antonov An-24
og An-26, smíðaðar í Sovétríkjun-
um og eru mjög áþekkar Fokker
F.27 Friendship í burðargetu.
Flugfélagið Cubana hefur um 30
slíkar flugvélar í flota sínum og eru
þær notaðar til innanlandsflugs svo
og til millilandaflugs til nærliggj-
andi eyja í Karabíahafí. Eins og
aðrar flugvélar þurfa þær að fara
reglulega í skoðun, en á nokkurra
ára fresti verða þær að fara í sk.
stórskoðun og em þá sendar þang-
að sem þær vom smíðaðar, til Ant-
onov-verksmiðjanna í Kænugarði í
Sovétríkjunum.
Ein af vélum Cubana átti leið
um Reykjavíkurflugvöll nú fyrir
skömmu, þegar snjóaaði hvað mest.
Líklega lenda kúbanskar flugvélar
sjaldan í slíku snjókófí á heimaslóð-
um. _ ppj.
SjÓ dælt Úr lest Júpíters í Sundahöfíl. Morgunblaðið/Þorkell
Réttu Júpíter af
með loðnudælunni
STARFSMENN ReyHjavíkur-
hafnar óskuðu aðstoðar slökkvi-
liðs á fímmtudagskvöld vegna
þess að sjór hafði af óljósum
orsökum komist í lestir m/b
Júpíters, sem lá í sundahöfú. Þó
nokkur slagsíða var á skipinu.
lökkviliðið mætti á staðinn með
dælur sínar en hafðist ekki að
þar sem afkastamikil loðnudæla
skipsins annaði því að dæla úr lest-
inni og rétta skipið af.
Nægur þrýstingur
til að valda gosi
HELDUR hefúr hægt á landrisi
við Kröflu undanfarna daga, en
hraði þess var mestur um jól og
áramót. Þrýstingur I kvikuhólf-
um er nægur til þess að valda
gosi og hefúr verið undanfárin
þijú ár að sögn Páls Einarssonar
jarðeðlisfræðings, sem fylgist
með jarðhræringum nyrðra.
Ef gos verður, þá er það yið
svona aðstæður, sagði Páll.
Hann sagði að land hefði risið meira
og minna síðan í haust. Það táknar
að kvika er að safnast í kvikuþró.
Hann kvað ógjörning að spá um
framhaldið, það virtist vera háð
duttlungum náttúruafla. Haldi að-
streymi kviku áfram getur annað
af tvennu gerst, kvikuhlaup eða
gos. Kvikuhlaup voru á Kröflusvæð:
inu á árunum 1976 til 1980. í
mars 1980 urðu þáttaskil, þætti
kvikuhlaupa lauk og þáttur gosa
hófst.
A meðan þrýstingur er þetta hár
í kvikuhólfum er hættuástand við
Kröflu.
Bamasamkoma
í Grindavík
Bamasamkoma í dag kl. 11 og
messa kl. 14. Verður sérstaklega
fjallað um hjónabandið og fjölskyld-
una í prédikun. Þessi dagur er sum-
staðar erlendis haldinn sem dagur
hjónabandsins og eru hjón sérstak-
lega hvött tl að sækja saman messu.
Vænta má sérstakrar þátttöku
hjóna úr hreyfingunni Lúthersk
hjónahelgi (Lutheran Marriage En-
counter). Bænasamkomur alla
þriðjudaga kl. 20.30 þar sem sungn-
ir eru sálmar og andleg ljóð, lesið
úr Ritningunni og beðið fyrir sjúk-
um. Kaffi og umræður í Safnaðar-
heimilinu eftir samkomu. Sr. Öm
Bárður Jónsson.