Morgunblaðið - 12.02.1989, Side 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGLYSINGAR
Hótelstj órastarf
Auglýst er starf hótelstjóra við Hótel Blönduós. Umsóknar-
frestur er til og með 26. febrúar nk. Tekið er fram að æski-
legt sé að umsækjendur hafi réttindi matreiðslumeistara.
Laus staða fram-
kvæmdastjora
Knattspyrnufélag í Reykjavík óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra. Felst stafið aðallega í umsjón og skipulagn-
ingu fjáröflunar fyrir félagið. Upplýsingar um aldur, mennt-
un og fyrri störf skulu sendar inn fyrir 16. febrúar.
Þúsundþjalasmiður
Öflugt fyrirtæki í matvælaiðnaði óskar eftir að ráða starfs-
mann til viðhalds og viðgerða. Engar sérstakar kröfur eru
gerðar aðrar en þær að viðkomandi sé vanur viðgerðum á
tækjum og vélum, hafi þekkingu á rafmagni og sé þúsund-
þjalasmiður. Tekið er fram, að mikið sé lagt upp úr snyrti-
mennsku ásamt lipri og þægilegri framkomu. Viðkomandi
þarf að hafa eigin bifreið. Starfið er laust í síðasta lagi 1.
máí nk.
RAÐAUGLYSINGAR
Rekstur hótels
í blaðinu í dag er auglýst til leigu rekstur á hóteli í Reykjavík
með 17 herbergjum. Er hér um að ræða tímabilið 1. júní tii
30. ágúst.
Laxveiðiá til leign
Til leigu er Krossá í Bitrufirði í Strandasýslu. Tilboðum
skal skila fyrir 28. febrúar nk. Réttur er áskilinn til að taka
hvaða tilboðum sem er eða hafna öllum.
Tilboð í íþróttahús
Tilboð óskast í að byggja í fokhelt ástand og fullbúið að
utan íþróttahús við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Grunnflöt-
ur hússins er 2.140 fm. Tilboð verða opnuð miðvikudaginn
1. mars kl.ll.
Útboð hjá Inn-
kaupastofnuninni
Innkaupastofnun Reykjavíkur, f.h. byggingadeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum í málum á ýmsum fas-
teignum í eigu Reykjavíkurborgar. Tilboðin verða opnuð
miðvikudaginn 22. febrúar kl. 14.
SMAAUGLYSINGAR
Skyggnilýsingar
Breski miðillinn Zina Davies starfar hérlendis á vegum Sálar-
rannsóknafélagsíslands dagana 13.—24. febrúar. Hún heldur
skyggnilýsingafundi mánudaginn 13. febrúar og miðvikudag-
inn 15. febrúar. Fundirnir eru haldnir á Hótel Lind, Rauðar-
árstíg 18 og hefjast kl. 20.30.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Stjóraendur þessara snjóruðningstækja tilheyra slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli, en þar voru 147 íslenskir starfsmenn um áramótin.
Keflavíkurflugvöllur:
Varnarliðið greiddi
1.697willjónir í laun
Islenskir starfsmenn eru 1.103 og mikil
ásókn er nú í störf á flugvellinum
Keflavík.
VARNARLIÐIÐ greiddi íslenskum starfs-
mönnum 1.697 milljónir í Iaun á síðasta ári
og auk þess 238 miHjónir í launatengd gjöld.
Um áramót voru íslenskir starfsmenn vara-
arliðsins 1.103 og er það svipaður fjöldi og
á undanförnum árum. Karlmenn vora 715,
en konur 388. Samkvæmt upplýsingum hjá
starfsmannahaldinu á Keflavíkurflugvelli
er nú mikil ásókn í störf á flugvellinum og
nú liggja fyrir umsóknir í öll sumarafleys-
ingastörf sem þar bjóðast, en á síðasta sumri
tókst ekki að ráða í um 130 störf.
Xslenskir starfsmenn á Keflavík-
urflugvelli voru 2.547 um áramótin
og flestir þeirra, eða 1.373 flokkuð-
ust undir ríkisstofnanir og þar eru
hinir 1.103 sem starfa hjá varnar-
liðinu meðtaldir. Við ýmiskonar
verktakaþjónustu vinna um 1.175
manns og voru íjölmennustu fyrir-
tækin íslenskir aðalverktakar með
551 starfsmann og Keflavíkurverk-
takar með 250 starfsmenn, en alls
voru 19 verktaka- og þjónustufyrir-
tæki starfrækt á flugvellinum.
Vamarliðið er ekki samningsaðili
og greiðir laun samkvæmt gildandi
kjarasamningum einstakra starfs-
hópa sem em um 23. Stærstu hóp-
amir em almennt verkafólk og
skrifstofu- og verslunarmenn sem
em um helmingur allra starfs-
manna vamarliðsins. Flestir em
búsettir á Suðumesjum eða 74,32%
og þar af em 60,81% starfsmanna
búsettir í Keflavík. Fjölmennasti
hópurinn, eða 260, em á aldrinum
50 til 59 ára og áberandi er að
meirihluti íslensku starfsmannanna
á að baki 10 til 40 ára starfsaldur
hjá varnarliðinu. BB
Liðsauki kaupir ráðn-
ingastofuna Vettvang
LIÐSAUKIHF., afleysinga- og ráðninga-
þjónusta, hefúr nýlega keypt og tekið yfir
rekstur ráðningastofu Vettvangs. Verður
Vettvangur deild í Liðsauka og mun starf-
semi hvors um sig verða áfram til húsa, þar
sem fyrirtækin eru staðsett nú, eða á Skóla-
vörðustíg 1A og Skólavörðustíg 12.
Að sögn Oddrúnar Kristjáns-
dóttur, framkvæmdastjóra
Liðsauka, var ástæða fyrir kaupun-
um sú, að þáverandi eigendur höfðu
rekið Vettvang samhliða öðmm
störfum, en snem sér alfarið að
þeim. Einnig sagði hún að Liðsauki
væri með geysimikinn upplýsinga-
banka, sem nýttist betur á þennan
hátt. „Vettvangur hefur lagt
Sauðárkrókur:
Atvimiuleysi
tvöfaldast
Sauðárkróki.
ATVINNUÁSTAND er verra en
á sama tíma í fyrra. Samkvæmt
upplýsingum Matthíasar Viktors-
sonar voru 58 skráðir um síðustu
mánaðamót og atvinnuleysis-
dagar í janúar reyndust 1.496.
Er þetta tvöfalt meira atvinnu-
leysi en í sama mánuði í fyrra.
Mestu munar að rækjuvinnslan
Dögun er ekki komin í gang
en þar er búist við að starfsemi geti
hafist um næstu mánaðamót þegar
rækjuskipið Hilmir kemur og jafnvel
fyrr ef heimilaðar verða veiðar á
innfjarðarækju. Þá var sagt upp
áhöfnum tveggja togara Útgerðarfé-
lagsins Skagfirðings og Drangeyjar,
á meðan þau eru í viðgerðum erlend-
is. Nokkuð er einnig um atvinnu-
laust iðnaðar- og verslunarfólk.
BB
Rangárvallasýsla:
Alver getur
skipt sköpum
Selfossi.
ATVINNULEYSI í Rangárvalla-
sýslu hefur aukist nokkuð að und-
anfornu. Á atvinnuleysisskrá eru
nú um 100 manns. Aukningin er
vegna manna sem unnið hafa hjá
verktökum við verk utan sýslunn-
ar og hjá byggingarfyrirtælgum
sem unnið hafa á höfuðborgar-
svæðinu.
Sigurður Óskarsson fram-
kvæmdastjóri verkalýðsfélag-
anna sagði að ef af áformum yrði
um byggingu álvers gæti það skipt
sköpum fyrir verkafólk og bygginga-
menn á Suðurlandi. Því þá væri ljóst
að hafist yrði handa við undirbúning
virkjanaframkvæmda og síðan við
virkjanir á Tungnársvæðinu.
Sig.Jóns.
áherslu á öðru vísi starfsemi, t.d.
heimilishjálp og barnaumönnun, og
munum við halda því áfram. Þá
höfum við hugsað okkur að bjóða
þeim, sem treysta sér ekki til að
greiða full ráðningagjöld, sem eru
u.þ.b. 25-30.000 krónur, ódýrari
kost en þá veitum við ekki sömu
þjónustu, þ.e. tökum ekki ábyrgð á
starfsmanni og veitum ekki eins
umfangsmikla þjónustu. Þessu fólki
munum við einnig beina til Vett-
vangs.“
Eigendur Liðsauka eru Ella Stef-
ánsdóttir, Erna Bryndís Halldórs-
dóttir, Guðjón Guðmundsson, Leifur
Magnússon og Oddrún Kristjáns-
dóttir.
Sandgerði:
Atvinnulíf að
komast í gang
Keflavík.
ATVINNULÍFIÐ í Sandgerði er
að komast í gang aftur eftir að
hafa legið að mestu niðri frá því
fyrir jól. Tvö stærstu fyrirtækin,
Jón Erlingsson og Miðnes hf.,
hófii loðnufrystingu fyrir helgi.
Um 50 manns voru á atvinnuleys-
isskrá þegar mest var en hefur
nú fækkað að sögn Stefáns Jóns
Bjamasonar sveitastjóra.
Gæftir í Sandgerði hafa verið
ákaflega stirðar að undanförnu.
Afli netabátanna hefur verið tregur
og hafa þeir verið að fá frá 5 tonn-
um uppí 13 tonn mest. Dragnótar-
bátarnir hafa verið að fá ágætisafla
og er Reykjaborgin búin að fá um
120 tonn frá áramótum og á aðeins
eftir 7 tonn af aflakvóta sínum.
BB