Morgunblaðið - 12.02.1989, Page 25
38ðí HAÍJflBSri .Sl flLKlACRtóMUB í : 'uMrllflliílM öluAiWHUijJiOiv. _______1« ■
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1989 25
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
ísafjörður
Blaðbera vantar í innanverðan Seljalandsveg,
Miðtún, Sætún og Stakkanes.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
94-3884.
Atvinnurekendur
Ungur maður með háskólapróf óskar eftir
krefjandi starfi.
Þeir, sem áhuga hafa, sendi tilboð til auglýs-
ingadeildar Mbl. merkt: „L - 111“.
Vélvirkjar
Óskum að ráða vélvirkja til starfa á vélaverk-
stæði.
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón í síma
651200.
Sjóiastöðin hf.
Atvinna
ísþór hf. óskar eftir eldismanni til starfa við
fiskeldisstöð fyrirtækisins. Auk þess óskum
við eftir rafvirkja eða vélvirkja til starfa við
eftirlit og viðgerðir.
ísþórhf.,
Þorlákshöfn,
sími98-33501.
Húsmóðurstarf
4 manna fjölskyldu á Álftanesi vantar hjálp
við að gæta 7 ára stelpu og annast almenn
heimilisstörf frá kl. 9.00-13.00 virka daga.
Upplýsingar í síma 652676.
Framkvæmdastjóri
Knattspyrnufélag í Reykjavík óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra. Starfið felst aðal-
lega í umsjón og skipulagningu fjáröflunar
fyrir félagið.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
fimmtud. 16. febrúar, merktar: „F - 6998“.
Skrifstofustarf -
bókhald
Lítil heildverslun óskar eftir starfskrafti til
almennra skrifstofustarfa s.s. vélritunar,
færslu og umsjón með bókhaldi á tölvu, síma-
vörslu og annarra verka sem til falla. Um 50%
starf er að ræða. Eingöngu aðili vanur tölvu-
bókhaldi kemur til greina.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist Mbl. merktar: „J - 14240“ eigi síðar
en 16. febrúar.
Tölvunarfræðingur
eða rafmagnsverkfræðingur
Verkfræðistofan AFL hf. óskar að ráða tölv-
unar- eða rafmagnsverkfræðing til hönnunar
og uppsetningar hugbúnaðar á tæknisviði.
Áskilin er góð þekking á UNIX stýrikerfum,
forritunarmálinu C og gagnagrunnum. Nán-
ari upplýsingar er veittar í síma 686465.
LANDSPITALINN
Sérfræðingar
Lausar eru tvær afleysingastöður sérfræð-
inga í almennum skurðlækninum. Önnur
staðan er 75% og þarf umsækjandi að hafa
sem mesta reynslu í kviðholsaðgerðum. Hin
er 50% staða. Ráðningartími er eitt ár.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 1.
apríl nk.
Upplýsingar gefur Hjalti Þórarinsson próf-
essor í síma 91-601330.
Sérfræðingur
Staða sérfræðings við svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítalans er laus til umsókn-
ar. Nauðsynlegt er að umsækjandi geti stýrt
hjarta- og lungnavél. Starfið er 100% staða.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 15.
mars nk.
Upplýsingar gefur Þórarinn Ólafsson yfir-
læknir í síma 91-601375.
Reykjavík, 12. febrúar 1989.
RÍKISSPÍTALAR
Hótelstjóri
Starf hótelstjóra við Hótel Blönduós er laust
til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með
26. febrúar nk. Æskilegt er að umsækjendur
hafi réttindi matreiðslumeistara.
Umsóknir séu skriflegar og greini frá mennt-
un og starfsreynslu. Allar upplýsingar gefur
Ragnar Ingi Tómasson í síma 95-4200 á
skrifstofutíma.
Hótel Blönduós hf.
Reykjavík.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar á fastar nætur-
vaktir. Greidd eru hjúkrunarstjóralaun auk
launaflokks fyrir öldrunarhjúkrun. Einnig
vantar hjúkrunarfræðinga á aðrar vaktir.
Barnaheimili til staðar.
Upplýsingar veitir ída Atladóttir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 35262 eða skrifstofa Hrafnistu
í síma 689500.
SVÆÐISSTJÓRN SUÐURLANDS —um málefni fatlaðra
Þroskaþjálfar -
fóstrur
Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf:
í Vestmannaeyjum:
1. Þroskaþjálfa eða starfsmann með
sambærilega uppeldismenntun í starf
forstöðumanns að meðferðarheimilinu
Búhamri 17, Vestmannaeyjum. Staðan
er laus frá 1. apríl 1989.
2. Þroskaþjálfa eða fóstru, helst með
sérmenntun, í stöðu forstöðumanns við
leikfangasafnið, Búhamri 17, Vestmanna-
eyjum. Staðan er laus frá 1. júní.
Á Selfossi
1. Þroskaþjálfa til að veita forstöðu nýrri
dagvistun fyrir fatlaða á Selfossi. Staðan
er laus nú þegar.
2. Þroskaþjálfa eða annað uppeldismennt-
að starfsfólk til starfa í nýrri dagvistun
fyrir fatlaða á Selfossi.
Nánari upplýsingar um stöðurnar eru veittar
á skrifstofu svæðisstjórnar Suðurlands, sími
98-21839, hjá forstöðumanni lelikfangasafns
í Vestmannaeyjum, sími 98-12127 og hjá
forstöðumanni meðferðarheimilisins að Bú-
hamri 17, sími 98-12865.
íSunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Simi 45550
Húsvörður
Sunnuhlíð óskar eftir húsverði til starfa.
Húsvarðaríbúð fylgir.
Skriflegar umsóknir, er greini aldur, menntun
og fyrri störf, leggist inn á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 17. febrúar nk., merktar:
„SHL - 6999“.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Hjúkrunarforstjóri
Hér með er auglýst til umsóknar staða hjúkr-
unarforstjóra við Fjórðungssjúkrahúsið á
ísafirði.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist stjórn F.S.Í.
fyrir 1. mars nk. í pósthólf 114,400 ísafirði.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri alla
virka daga í síma 94-4500 frá kl. 8.00-16.00.
0
Leikskólinn
Selbrekka
á Seltjarnarnesi
óskar eftir fóstru eða starfsmanni í hálft starf
eftir hádegi sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
611961.
Lyfjakynnir
Við óskum eftir að ráða lyfjakynni í hlutastarf.
Starfið felst í kynningu á lyfjum frá erlendu
lyfjafyrirtæki. Viðkomandi skal hafa lokið námi
í hjúkrunarfræði, líffræði eða skyldum greinum.
Starfið krefst góðrar kunnáttu í ensku og
a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Skriflegar umsóknir óskast sendar á skrifstofu
okkar c/o Árni Ingason fyrir 17. febrúar nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum svarað.
Stefán Thorarensen hf.,
Síðumúla 32,
108 Reykjavík.