Morgunblaðið - 26.02.1989, Síða 19

Morgunblaðið - 26.02.1989, Síða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1989 MORGUNBLAÐIÐ SUNNÚDAGUR 26. FEBRÚAR 1989 19 7VIÐ RÍFUMST • m.a. um hvalamál. Það er svo sem gott og blessað, en hvað er það sem dregur athyglina að þessu upphlaupi? Er það siðferði okkar sem er í veði, eða réttlætið? Er það dóm- greindin? Eða sannleikurinn, þessi harði húsbóndi? Erþað kannski heiður okkar og orðstír? 0 nei, það eru pen- ingar. Samt er ekkert uppúr þessum hvalveiðum að hafa. Þær eru einsog krækiber í helvíti þegar litið er á út- flutningsverzlun okkar. Stendur þetta upphlaup þá eitthvað í sambandi við þjóðarstolt eða metnað? Kannski, ég veit það ekki — en það er þá'harla skrýtin útrás fyrir metnað sem hefur haldið í okkur lífinu í 1100 ár. Og þá er það svona álíka metnaður og þegar ríkið auglýsir Derrick, Matlock og Cosby í stórum litauglýsingum í dag- blöðum einsog þeir komi stolti okkar eitthvað við; einsog hann komi stolti okkar eitthvað við, þessi sífelldi bófa- hasar. [Þessi afþreying hét Tim Holt í minu ungdæmi og enginn hafði áhyggjur af því, enda ruglminna og einfaldara þjóðfélag þá en nú.] Nei, mér er til efs að þetta eigi nokkuð skylt við metnað í raun og veru. Þeg- ar hvaiamálið ber á góma er alltaf viðkvæðið, Ætli þeir hætti að kaupa af okkur fisk? Á það er svo einblínt þangað til við höfum verið sannfærð um að þessir útlendingar ætla að halda áfram að kaupa af okkur físk, þá slappa menn af og stoltið er hert í hvallýsi. Fæstir hafa í raun áhuga á „rannsóknaveiðum á hvölum og hval- veiðum í norðanverðu Atlants- hafí ...“, svo vitnað sé í nýlega grein eftir Hjáímar Vilhjálmsson hér í blað- inu. Vísindin eru þó eina afsökun okk- ar og haldreipi, þótt margir gefí lítið fyrir þau enda erum við tortryggðir vegna augljóss tvískinnungs eftir að Alþingi samþykkti að hlíta hvalveiði- banni. Margir telja að við höfum notað vísindin til að sniðganga alþjóðareglur og hefur okkur ekki tekizt að hrista af okkur þær ásakanir. Þannig liggjum við undir ámæli um tvöfalt siðgæði. Það var aldrei í þorskastríðunum. Engum dettur í hug að nefna þann eina metnað, eða huga eitt andartak að því þjóðarstolti sem máli skiptir: hvemig orðstír okkar er með öðrum siðuðum þjóðum. Er hann við sannka- þólska heilsu? Eða er hann við sæmi- lega heilsu, svona almennt taiað? Er okkur treyst fyrir um- hverfísvömum; eru verndunarsjónarmið okkar virt? Er Atlants- hafið í góðum höndum? Erum við enn álitin sið- menningarþjóð? Eða er spuming þýzka drengsins sem hann lagði fyrir móður sína í Munchen í herferðinni gegn okkur vegna hvala- drápsins sællar minningar sú niður- staða sem við eigum skilið? Mamma, sagði drengurinn, era allir Islendingar viilimenn? Svona setning sómdi sér vel hjá H.C. Andersen. íslenzkur fréttamaður þama suð- urfrá heyrði þessa bamslegu áminn- ingu í spurnarformi útundan sér en gat þess ekki hveiju móðirin svaraði. Það getur ekki heldur neinn svarað slíkri spumingu, nema við sjálf. Kannski á ekkert okkar eftir að upp- lifa svarið. Kannski verður það sá eld- ur sem heitast brennur á niðjum okk- ar, hver veit(!) Það gæti komið að því þjóðargjald- þroti að allir yrðu sannfærðir um að við hefðum ávaxtað illa okkar pund, farið umhverfi okkar eyðandi eldi eins- og vígóðir mongólar á miðöldum, slit- ið tengsl við arf okkar og upprana — rótlaus óþjóð sem hefði þá glatað öllu verðmætaskyni og einnig þeirri arf- leifð sem mikilvægust er, tungunni sjálfri; þessum hjartslætti aldanna sem er okkur eins í blóð borinn og landið sjálft. Það yrði einsog úthafið glataði hrynjandi himintungla í fijálsum leik hvalanna, svo að maður kallist á við hugsun og tungutak Kjarvals and- spænis því eina þjóðargjaldþroti sem væri kollrak: að þjóðin glataði sjálfri sér. Að hún glataði rótum sínum; tungu sinni. Að hún eyðilegði fiskimiðin og horfði á eftir uppblásnu landi; upp- flosnuð þjóð. 8NEW YORK TIMES SEGIR • við höfum farið að alþjóðareglum um vísindalegar hvalveiðar svonefnd- ar. Þá liggur það fyrir. En almennings- álitið í heiminum hefur ekki hugsað um það og þá fer að gilda reglan um að eitthvað sé löglegt, en siðlaust. Bandaríski rithöfundurinn, David Henry Thoreau, skrifaði merka bók á síðustu öld, Walden, og hefur hún haft mikil áhrif nú á tímum, ekki sízt á umhverfísverndarmenn. Sumir telja Thoreau spámann, þótt hann hafi ver- vegurinn er og verður um langa framtíð burðarás útflutnings- framleiðslunnar og meginuppi- staða þeirrar verðmætasköpunar, sem er undirstaða hagsældarþjóð- félags á íslandi. En í báðum þess- um atvinnugreinum hefur til- hneigingin verið sú að hverfa til aukinnar miðstýringar. Gegn of- framleiðslu í landbúnaði urðu menn að bregðast. Þá var gripið til umfangsmikillar og kerfís- bundinnar framleiðslustjómunar. Gegn ofveiði og mikilli afkasta- getu fískiskipastólsins urðu menn að bregðast. Þá var gripið til opin- berrar stjómunar með alveg nýj- um hætti.“ Þorsteinn Pálsson bendir síðan á, að innan beggja þessara at- vinnugreina, sjávarútvegs og landbúnaðar, hafí ekki náðst betri sátt um aðrar leiðir til þess að mæta nýjum aðstæðum. Það er rétt. Þótt kvótakerfíð í landbúnaði hafí verið umdeilt hafa ekki kom- ið fram hugmyndir um aðrar að- ferðir, sem njóta meira fylgis. Hins vegar hefur kvótakerfíð í sjávarútveginum verið umdeild- ara, þótt menn hafí unað við það, en líklega er vaxandi fylgi við hugmyndina um sölu veiðileyfa — en að vísu utan sjávarútvegsins. Sú hugmynd, að hér séu að skapast tvö ólík hagkerfí, annað á landsbyggðinni, hitt við Faxa- flóa, er ný og forvitnileg. Spyija má, hvort sá þróttur, sem ein- kennt hefur viðskiptalífið á þétt- býlissvæðinu suðvestanlands, byggist á meira ftjálsræði þar en annars staðar. A.m.k. er mikið til í því, þegar Þorsteinn Pálsson segir í grein sinni: „Verði áfram stefnt að vaxandi miðstýringu í hagkerfí landsbyggðarinnar en meiri opnun og auknu frjálsræði í hagkerfí þéttbýlisins við Faxa- flóa er hætt við að þjóðin klofni í stríðandi hagsmunahópa." ið e.k. utangarðsmaður með samtíð sinni; rétt einsog Kirkegárd. Thoreau sagði að vísu að sjálfsálitið væri strangari húsbóndi en almenningsálit- ið, og má það vera. Ennfremur að það sé aldrei of seint að losa sig við for- dómana. Og loks að sjálfsálit manns- ins réði örlögum hans Sannleikurinn er sá að velferð okk- ar er undir því komin að umhverfis- verndarmönnum verði vel ágengt. Þeir geta farið offari einsog aðrir og ekki sjást menn alltaf fyrir. En hitt er mikilvægara að við eigum samleið með þeim um vemdun umhverfís okk- ar, svo rík sem sú tilhneiging er að breyta Norður-Atlantshafí í sorpþró fyrir kjarnorkuúrgang. Við eigum því að taka höndum sam- an við umhverfisverndarmenn, og þá ekki sízt grænfriðunga, um að stöðva yfírgang iðnaðarríkja og koma í veg fyrir að Atlantshafíð verði eyðilagt fyrir framan nefið á okkur; verði forar- pollur iðnríkja en ekki sú auðlind sem okkur er skylt að varðveita. Við eigum ekki að vera að karpa við þetta fólk um hvali. Þeir skipta okkur litlu og við höfum aldrei verið nein sérstök hvalveiðiþjóð, þótt nú sé reynt að eymamarka okkur sem slíka. Við hljótum að geta fundið leið útúr ógöngum, ekki sízt vegna þess græn- friðungar virða og viðurkenna áhuga okkar á umhverfisvemd einsog nýlega kom fram í brezkum útvarpsþætti. Umfram allt eigum við ekki að láta Japani nota okkur. Þeir eru eitt helzta iðnaðarríki heims, hafa allt af öllu — og vilja einsog alltaf er um slíkar þjóð- ir meira af öllu; einnig hvölum. Um- hverfisvemd er þeim ekki efst í huga, heldur peningar. Við eigum miklu fremur að læra af þeim að varðveita og ávaxta sérstæða menningu, það kunna þeir öðram þjóðum betur, enda stoltir af arfleifð sinni. Mér heyrist það sé harla athyglisvert hvemig þeir hafa breytt henni í eftirsóknarvert sjónvarpsefni. Það þyrftum við einnig að læra öðra fremur, svo mikilvægt sem það er nú á dögum. Sá gamli konservatismi er að kom- ast í tízku um allan heim; þ.e. fast- heldni, varðveizla. Við höfum kallað hann íhald, sumir í niðrandi merkingu. En merking orðsins íhald er alltaf já- kvæð, þegar líf okkar og umhverfi era annars vegar. M. (meira næsta sunnudag) JIIwgmiÞIjifrifr Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtrýggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstraeti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttástjórar Auglýsingastjóri Landsbyggðin og frjálsræði í atvinnulífi Djúpstæður ágreiningur milli íbúa þéttbýlis og lands- byggðar hefur valdið vaxandi áhyggjum á undanfömum áram. Mörgum fínnst þjóðin vera að skiptast í tvær andstæðar fylking- ar. Landsbyggðarfólk sjái ofsjón- um yfír uppgangi þéttbýlis á suð- vesturhomi landsins og íbúar þess sjái ofsjónum yfír því fjármagni, sem lagt er til uppbyggingar úti um land. Vandamál af þessu tagi er ekki einskorðað við fsland. Þetta er alþekkt annars staðar, t.d. í Noregi, þar sem áþekk við- horf ríkja milli dreifbýlis í Norð- ur-Noregi og þéttbýlis sunnar í landinu. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kom með at- hyglisvert innlegg í þessar um- ræður í grein hér í Morgunblaðinu í gær. Hann sagði m.a.: „í þessu ljósi er vert að veita því athygli, að íslenzka hagkerfíð hefur á undanfömum áram verið að þró- ast í tvær gagnstæðar áttir. Á þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa hefur hagkerfíð smám saman orð- ið opnara og fíjálsara. Þar hafa breytingar átt sér stað í samræmi við það, sem er að gerast á Norð- urlöndum og í Vestur-Evrópu, þó að í ýmsum efnum séum við enn á eftir þessum þjóðum. Úti á landsbyggðinni hefur þró- unin á hinn bóginn gengið í þver- öfuga átt. Sjávarútvegur og land- búnaður era höfuðatvinnugreinar landsbyggðarinnar og sjávarút- HELGI spjall Aliðnu hausti kom út bókin Iðnbylting hugar- farsins eftir Olaf Ás- geirsson sagnfræðing í ritröðinni Sagnfræði- rannsóknir sem Sagn- fræðistofnun Háskóla íslands stendur að en bókaútgáfa Menn- ingarsjóðs annast útgáfu og dreifíngu. f ritröðinni birtast prófritgerðir frá Háskóla íslands, sagnfræðirannsóknir, sem unnið hefur verið að á vegum Sagnfræðistofnun- ar, svo og aðrar sagnfræðiritgerðir, sem sérstök ástæða þykir til að birta. Ollum sem hafa áhuga á sögu lands og þjóðar og vilja líta á þróun mála frá öðram sjónarhóli en hinum hefðbundna ætti að þykja forvitnilegt að kynna sér þessa bók Ólafs Ásgeirssonar. Meginviðfangsefni hennar er afstaða íslendinga og sér í lagi íslenskra stjómmálamanna til atvinnubylt- ingarinnar sem varð í landinu frá aldamót- um fram til 1940. í inngangi dregur höf- undur upp þessa mynd: „Laust fyrir aldamótin síðustu skall bylgja hinnar^ alþjóðlegu vélamenningar að ströndum íslands og olli á skömmum tíma meira umróti í þjóðfélaginu en verið hafði um aldir. Hið rótgróna bændasam- félag stóð nú andspænis öflum sem ógn- uðu tilvist þess, atvinnuháttum og menn- ingu. Sveitamenningin einkenndist af sterkum hefðum þar sem fólkið fylgdi for- dæmi liðinna kynslóða og tók litla áhættu varðandi ný atvinnutæki og vinnubrögð. Vélamenningin virti hefðina lítils en setti kröfuna um afköst í öndvegi. Hér skullu saman tveir ólíkir menningarheimar. Innreið vélaaldar á íslandi var afsprengi alþjóðlegrar þróunar, útbreiðslu kapítal- ismans. Þessi máttuga hugmyndafræði hefur umbylt stóram hlutum jarðarinnar með öflugum framleiðslutækjum og þeim nýju þjóðfélagsháttum er honum fylgdu. Grannhugmynd kapítalismans byggir á skynsemishyggju upplýsingarmanna frá 18. öld þess efnis að maðurinn geti losnað úr viðjum náttúraaflanna og skapað sín eigin örlög, að maðurinn verði drottnari jarðarinnar og geri náttúrana að þörfum þjóni sínum. Vélamar og verksmiðjurekst- urinn era afsprengi þessa. Hugmyndir manna í hinum hefðbundnu handiðnaðar- og bændasamfélögum byggðu miklu frem- ur á að menn skyldu brynja sig gegn óum- flýjanlegum áföllum frá hendi náttúrannar og forðast alla áhættu. Gervöll 19. öldin einkenndist af sívaxandi sóknarþunga iðn- byltingaraflanna gegn hinum eldri at- vinnuháttum. Verksmiðjur sprattu upp og rótgróin starfsemi handverksmanna beið mikinn hnekki vegna ódýrra vara frá verk- smiðjunum. Fólkið streymdi frá sveitunum til borganna og landbúnaðarvélamar tóku við hlutverkum þess." í bókinni lýsir höfundur umræðum á vettvangi stjómmálanna um þessar breyt- ingar og áhrifum iðjuþróunarinnar á stjómmálabaráttuna, flokka og forystu- menn þeirra. í því samhengi lítur höfund- ur á þá sem bandamenn, er vilja ýta und- ir iðjuþróunina, hvort heldur þeir vora til vinstri eða hægri á hinni hefðbundnu mælistiku um pólitískar skoðanir. Og hann segir: „Það kann að virðast ankannalegt við fyrstu sýn að spyrða þannig saman aðila sem eiga að vera höfuðandstæðingar í stjómmálunum, en frá sjónarmiðum þeirra er vildu varðveita gamla samfélagið vora sósíalistar engu minni ógn en kapítal- istar. Enda varð það svo að marxistar vildu í raun ganga fetinu framar í að uppræta „úrelta" framleiðsluhætti en frjálshyggju- mennimir og þeir lögðu sinn stóra skerf af mörkum til eflingar stærri bæja með kröfu um aukna atvinnu og bættan húsa- kost.“ Hlutur Al- þýðuflokks- ins býli búa. Málflutningur Gylfa Þ. Gíslason í SEINNI TÍÐ hefur Alþýðuflokk- urinn gengið fram fyrir skjöldu sem sérstakur málsvari þeirra sem í þétt- ar um landbúnaðarmál og nauðsyn þess að stemma stigu við offramleiðslu í land- búnaði og draga úr niðurgreiðslum og öðram opinberam fjárframlögum mæltust vel fyrir hjá almenningi í þéttbýli. Á tímum viðreisnarstjómarinnar þegar Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn störf- uðu saman í tólf ár af miklum heilindum var öllum ljóst, að sjálfstæðismenn vora málsvarar landbúnaðarstefnu sem byggð- ist á niðurgreiðslum og útflutningsupp- bótum en alþýðuflokksmenn vildu fara aðrar leiðir. Áður en Jón Baldvin Hanni- balsson gekk til samstarfs við Framsókn- arflokkinn var hann ómyrkur í máli um landbúnaðarstefnuna og gagnrýndi þar jafnt Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðis- flokkinn. Ef til vill má líta á ræðu Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra á flokks- þingi Alþýðuflokksins nú í vetur um að menn hættu að neyta lambakjöts til að stuðla að gróðurvemd sem anga af þess- ari landbúnaðarstefnu Alþýðuflokksins. Bændur telja hana sér ekki sérstaklega vinveitta. í bókinni Iðnbylting hugarfarsins heitir einn kaflinn „Tilvistarvandi jafnaðar- manna 1918-1924“ og þar er því lýst hvemig jafnaðarmenn reyndu í senn að höfða til verkafólks og biðla til fátækra bænda og vinnuhjúa í sveitum. Síðan segir: „Hvemig átti svo að þjóna hagsmunum þessara þjóðfélagsstétta allra í senn? Svar- ið fólst í málflutningi Jóns Baldvinssonar, leiðtoga flokksins og eina þingmanns hans 1921-1926. Um það verður ekki deilt að Jón vildi bæta kjör verkafólks og sjómanna og auka réttindi þurfamanna í þjóðfélag- inu. Hins vegar má draga þá ályktun af málflutningi hans á Alþingi að hann hafí verið ákaflega svartsýnn á framþróun efnahagslífsins. Árið 1923 lagði hann til á þingi að atvinnubótum yrði komið á fyr- ir atvinnulaust verkafólk í Reykjavík. Þó taldi hann vafasamt að atvinnubótavinna gæti afstýrt atvinnuleysinu til langframa. „En þá verður að hugsa um að ráða bót á því á annan hátt, t.d. með nýbýlum." Þama birtist hin mikla vantrú Jóns á möguleikum iðnaðarsamfélagsins til að leysa helsta vandamál þessa tíma, atvinnu- leysið. Jón taldi greinilega að bæjarsam- félagið byggi yfír takmörkuðum möguleik- um til að rífa sig upp úr lægðinni. Því væri vænlegast að fólk hallaði sér að landinu aftur og tæki upp fyrri lífshætti. Jón taldi að hamla bæri gegn flutningi fólks til Reykjavíkur. Að hans áliti var meginástæðan fyrir aðsókninni á mölina sú að stóijarðeigendur hrektu smábændur og leiguliða af kotum sínum. Væri víða svo komið að landeigendur hefðu ekki mannskap til að ýta fleytu á flot og hey- fengur hefði minnkað að mun á mörgum jörðum. Jón benti á sjálfsþurftarsamfélag- ið sem valkost gegn samfélagi verkaskipt- ingar. Jón Baldvinsson studdi eindregið ráð- stafanir Alþingis til að auka fjárfestingar í landbúnaði og rökstuddi þær meðal ann- ars með því að þingið ætlaðist ekki til að fólkið sem nýlega hafði sest að í Reykjavík fengi þar atvinnu. Því væri nýbýlastefnan eina færa leiðin. Fulltrúi jafnaðarmanna á þingi rak þannig umbótasinnaða stefnu í félagsmál- um, en hún braut í bága við sósíaldemó- kratíska stefnuskrá flokksins í efnahags- málum. Atvinnustefna Jóns einkenndist af íhaldssemi, tilhneigingu til að ofmeta stöðugleika hinna eldri atvinnuhátta og vanmeta þróunarmöguleika hinna nýrri. Þessi efnahagssýn var nokkum veginn sú hin sama og Jónas Jónsson byggði á [í] sínum málflutningi, þótt það sé ljóst að forsendur þeirra væra á margan hátt ólík- ar. Jón mótmælti til að mynda eindregið þeirri skoðun að öreigar bæjanna væra latir og spilltir. Jónas hafði vanþóknun á iðnvæðingunni en Jón hafði á henni vantrú. Á hitt ber að líta að þá einkennilegu slagsíðu sem einkenndi efnahagsstefnu Jóns má sennilega skýra að hluta með þeirri landbúnaðarvakningu sem greip um REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 25. febrúar sig í íslensku þjóðlífí laust eftir 1920.“ Það var einmitt Jónas Jónsson frá Hriflu sem var í hópi þeirra manna sem stóðu að því árið 1916, að Alþýðusamband ís- lands var stofnað sem stjómmálaflokkur og verkalýðssamtök í senn. Jónas, sem einnig stóð fyrir stofnun Framsóknar- flokksins, vildi eins og bent er á í bókinni Iðnbylting hugarfarsins efla samtök verka- manna svo þau gætu stutt bændur í þeirri viðleitni að hamla gegn vexti verkalýðs- stéttarinnar. En til þess að tryggja fram- gang þess varð forysta Alþýðusambands- ins að gangast inn á þessa pólitík og með stuðningi Jónasar frá Hriflu var Jón Bald- vinsson kjörinn forseti Alþýðusambandsins á öðram fundi fyrsta þings þess og féll þá Ottó N. Þorláksson fyrir Jóni. En þeir Jónas og Jón töldu hagsmuni verkafólks og bænda fara saman (varðveislustefna) en Ottó áleit iðnvæðinguna (sjávarútveg- inn) þjóna hagsmunum verkamanna. Þessi lýsing eða skilgreining brýtur í bága við þær hugmyndir sem menn hafa um hlutverk Alþýðuflokksins nú á tímum og upprana hans. Að sjálfsögðu hafa bæði Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur breyst frá því að Jónas frá Hriflu beitti sér fyrir stofnun þeirra á sínum tíma. Síðustu mánuði hafa núverandi formenn flokkanna þó lagt sig fram um að minna á bræðraböndin. Þess vegna er biýnna en áður að gera sér grein fyrir því, að hinn sameiginlegi upprani á rætur í andstöðu við þá þróun, sem hefur gjörbreytt lifn- aðarháttum og Iífskjöram í landinu. Á ÁRUNUM 1900-1940 var f r þannig tekist á um attumál það hvemig bragð- ist skyldi við nýjum atvinnuháttum, tæknivæðingu og stóriðju. Þessi átök tóku fyrst og fremst mið af hagsmunum bænda sem mynduðu öflugan hóp á Alþingi. Deilumar milli þéttbýlis og dreifbýlis era síður en svo úr sögunni. Bændur mega sín að sjálfsögðu enn mik- ils. Deilumar nú einkennast einkum af því að íbúar í sjávarþorpum úti um lands- byggðina telja sig hlunnfama á kostnað þeirra sem í Reykjavík og nágrenni búa. Þá er ekki lengur deilt um að við eigum að nýta okkur hina fullkomnustu tækni og fáar þjóðir era líklega ginnkeyptari fyrir hvers kyns tækninýjungum en við. Deilan um stóriðju hefur tekið á sig aðra mynd en áður og snýst nú að veralegu leyti um eignarhald og fjármagn. Á fyrri hluta aldarinnar litu menn hins vegar er- lenda fjárfestingu frá öðram sjónarhóli en nú á tímum. Ólík bar- Það var innangengt á milli Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins alveg fram til ársins 1958, þegar upp úr vinstri stjóm Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks slitnaði og Alþýðuflokkurinn hóf tólf ára samstarf við Sjálfstæðisflokk- inn. Þetta samstarf grandvallaðist á því, að horfið var frá hafta- og skömmtunar- stjóm í innflutningsmálum. Það skref til fijálsræðis sem þá var stigið náði hvorki til banka né gjaldeyrismála. Smátt og smátt hafa tök ríkisvaldsins verið linuð í þeim málaflokkum en þó ekki að fullu. Eitt helsta ágreiningsefni Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks um þessar mundir snertir fjármagnsmarkaðinn, þ.e. stjóm bankamála og íhlutun ríkisvaldsins í vaxtaákvarðanir. I þeirri ríkisstjóm sem nú situr hefur Alþýðuflokkurinn gengið til móts við sjónarmið Framsóknarflokksins, þótt Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra leit- ist við að halda dyram opnum í vaxtamál- um. Stjómarframvarp um bankamál sem lagt hefur verið fram á Alþingi er því marki brennt að bankaráðin sem kjörin era af Alþingi yfir ríkisbankana eiga að hafa ákvörðunarvald um vexti. Ástæða er til að velta því fyrir sér, hvort þar með er ekki verið að taka upp pólitíska skömmt- unarstjóm á þessu sviði, sem er sambæri- leg við hina pólitísku ofstjóm, sem var í innflutningsmálum á tímum hafta og skömmtunar. Jónas Jónsson frá Hrlflu. Hann studdi Jón Baldvinsson í forsetakjöri í Alþýðu- sambandi Islands. J6n Baldvlnsson. Hann var ekki tals- maður þess að fólk flyttist úr sveitum á mölina. í sömu andrá er nauðsynlegt að átta sig á því, að þeir sem gerst þekkja til ein- stakra þátta í samskiptum okkar við sam- aðila okkar að EFTA og við ríkin í Evrópu- bandalaginu hafa vakið máls á því sérstak- lega að gjaldeyrishöft séu nú þær hindran- ir í samskiptum okkar við þessi ríki sem helst séu okkur hættulegar og geti leitt til þess að við drögumst aftur úr og ein- angramst. Hömlur á gjaldeýrisviðskipti endurspegla meðal annars hræðsluna við erlent fjármagn. Andstaða Alþýðubandalagsins við Ál- verið í Straumsvík og hugmyndir um nýja álverksmiðju á rætur að rekja til þess að flokkurinn telur, að erlend fjárfesting í landinu sé af hinu illa. Þetta sjónarmið stangast alfarið á við þróunina hvarvetna annars staðar. í stuttu máli má segja, að nú á tímum minni andstaðan við inn- streymi erlends fjármagns hingað til lands helst á það þegar menn stóðu gegn því á fyrstu áratugum aldarinnar að nýr tækni- búnaður, ný atvinnutæki bærast til lands- ins. Við sjáum það öll nú, hve fráleit sú barátta var og vafalaust eiga afkomendur okkar eftir að líta á orðaskakið út af stór- iðjunni, erlendu fjárfestingunum og frelsi í gjaldeyrisviðskiptum sem álíka fomeskju og við teljum andstöðu við iðjuþróunina fyrr á áram. FJÁRMAGNIÐ leitar nú um heim allan og festir þar umhverfis- rætur þar sem arð- VPrnd semin þykir mest. Flestar þjóðir sækj- ast raunar eftir erlendri flárfestingu, meira að segja lokuð þjóðfélög eins og kommún- istaríkin. Samhliða því sem landamæri standa ekki lengur í vegi fyrir streymi fjár- magns skipta þau æ minna máli þegar Alþjóðleg í bóklnnl Iðnbylting hugarfarsins er þessi teikning birt með eftirfarandi texta: „Þessi teikning sýnir pólitísk viðhorf „sveitasósíalistanna" í hnotskum. íslenskir bændur skyldu tryggja jafnvægi milli borgara- og öreigastéttar. umhverfísvemd ber á góma. Hvarvetna þar sem menn telja dýrategundir í hættu láta samtök umhverfísvemdarsinna að sér kveða og gripa til allra ráða til að ná markmiði sínu eins og við íslendingar höf- um kynnst í hvalamálunum. Það era vissulega mikil viðbrigði fyrir okkur búsetta í fjarlægð frá öllum megin- löndum, að geta ekki lengur stundað óáreittir þær veiðar sem við sjálfír kjósum. Að sjálfsögðu litum við á skorður af þessu tagi sem skerðingu á sjálfsákvörðunarrétti okkar. Við megum hins vegar ekki gleyma því að í mörgu tilliti höfum við verið braut- ryðjendur í því efni að sjálfsákvörðunar- rétti þjóða væra settar skorður í hafréttar- málum og barist harkalega við aðrar þjóð- ir um vemdun fískimiða eða a.m.k. um yfírráðarétt yfír fískimiðum eins og land- helgisdeilumar sýna. Einhver gleðilegasti atburðurinn í sambandi við þann ágreining vora hin skjótu umskipti, sem urðu á al- þjóðavettvangi í þann mund sem við voram að færa lögsögu okkar út í 200 mílur þeg- ar þær hlutu alþjóðlega viðurkenningu á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og í hafréttarsáttmálanum sem þar var samþykktur. Hafréttarsáttmálinn er í eðli sínu al- þjóðleg löggjöf um vemdun hafsins. Og hann er tæki strandrílqa til að halda fram rétti sínum og ná því markmiði að vemda og nýta auðlindir hafsins. Alþjóðlegt gildi umhverfisvemdar sést bæði í hafinu og í lofti. Rannsóknirnar yfír norðurheimskaut- inu á ósonlaginu minna okkur á að engin ein þjóð getur staðið undir slíkum athugun- um og engin ein þjóð á í vök að veijast ef eitthvað fer úrskeiðis. Að þessu leyti eram við allir á sama báti og verðum allir að leggja eitthvað af mörkum til að bæta úr því sem miður hefur farið. „í stuttu máli má segja, að nú á tímum minni and- staðan við inn- streymi erlends fjármagns hingað til lands helst á það þegar menn stóðu gegn þvi á fyrstu áratugum aldarinnar að nýr tæknibúnaður, ný atvinnutæki bær- ust til landsins. Við sjáum það öll nú, hve fráleit sú barátta var og vafalaust eiga af- komendur okkar eftir að líta á orðaskakið út af stóriðjunni, er- lendu fiárfesting- unum og frelsi í gjaldeyrisvið- skiptum sem álíka forneskju og við teljum andstöðu við iðjuþróunina fyrr á árum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.