Morgunblaðið - 19.04.1989, Blaðsíða 35
P* íítj QAtl 'JJft'MI Y rt!Cí,A.J!HHUnaOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1989
JþS
35
Minninff:
Ágústa Sigurðardóttir
fyrrv. matráðskona
Fædd 2. apríl 1920
Dáin 7. apríl 1989
í dag_ verður jarðsungin frá Nes-
kirkju Ágústa Sigurðardóttir, fyrr-
um matráðskona á Borgarspítalan-
um. Hún hafði átt við nokkra van-
heilsu að stríða undanfarið, en engu
að síður kom kallið óvænt.
Ágústa fæddist í Borgarholti í
Biskupstungum 2. apríl 1920 og var
því nýorðin 69 ára er hún lést. Hún
var önnur í röðinni af sjö börnum
þeirra hjóna Kristínar Guðmunds-
dóttur frá Tjörn og Sigurðar Guðna-
sonar frá Holtakoti í Biskupstung-
um. Sigurður og Kristín hófu búskap
í Borgarholti árið 1918 en fluttu
árið 1922 til Reykjavíkur. Sigurður
stundaði almenna verkamannavinnu
í Reykjavík. Hann gegndi for-
mennsku í Verkamannafélaginu
Dagsbrún 1942 til 1954 og sat á
Alþingi 1942 til 1956.
Þegar verkamannabústaðirnir við
Hringbraut voru byggðir, fluttu þau
hjónin þangað og bjuggu þar alla
sína tíð. Þannig varð hún Ágústa
vesturbæingur og hélt áfram að vera
það fram í fingurgóma á meðan hún
lifði. Við kölluðum hana oft í gríni
„hreppstjórann í vesturbænum". í
vesturbænum var allt fallegra og
betra en annars staðar í Reykjavík.
Þar voru túnin grænni og trén hærri
og stundum þegar við töluðum sam-
an í síma og ég kvartaði yfir ótíð í
hlíðunum, þá brást það ekki að það
var glaðasólskin og blankalogn fyrir
vestan læk.
Ágústa giftist Halldóri V. Páls-
syni prentara árið 1941. Þau eignuð-
ust einn son, Pál, flugmann. Þau
byggðu sér hús á Hagamel 14.
Ágústa lét ekki sitt eftir liggja í fjár-
öflun til húsbyggingarinnar. Hún
fékk margar hugmyndir og fram-
kvæmdi þær flestar. Þau gáfu út
bók með krosssaumsmynstrum og
matreiðslubók, en mikill skortur var
á slíku á stríðsárunum og seldist
allt jafnhraðan. Hún vann mikið með
manni sínum í prentverkinu allan
þeirra búskap, en þau slitu sam-
vistum árið 1963. Halldór lést ári
síðar.
Ég hef stiklað á stóru í lífshlaupi
Ágústu, en árið 1979 kynntist ég
henni er við sonur hennar hófum
búskap saman. Hún tók mér strax
sem dóttur sinni og fór ávallt vel á
með okkur. Ég dáðist mikið að því
hvað hún var glæsileg á götu, hnar-
reist og hressileg í göngulagi, eins
og þvítug manneskja.
Á þessum tíu árum sem mér hlotn-
aðist að vera samvistum við hana
hefur svo margt skemmtilegt gerst.
Minningarnar standa mér fyrir hug-
skotssjónum hver á eftir annarri.
Allar stórhátíðir, þar sem hún var
mætt í eldhúsið að leggja blessun
sína yfir matargerðina. Spenningur-
inn að opna gjafir frá henni sem
alltaf voru jafn höfðinglegar og hún
sjálf. Sumarferðirnar á Barðaströnd-
ina í beijatínslu, þar vakti hún okk-
ur á hverjum morgni með einhveiju
nýbökuðu góðgæti og dekraði við
ökkur af lífi og sál. Eg gæti haldið
svona áfram endalaust. Það verður
erfítt að fylla í skarðið eftir hana.
Ég hef engri manneskju kynnst
sem var jafn verklagín, fljótvirk,
skipulögð og kjörkuð. Hún réðst í
verkin og var búin að ljúka þeim á
mettíma. Margt hef ég af henni
lært á þessum árum, því hún bað
mig stöku sinnum að hjálpa sér við
að smyija brauð eða eitthvað annað
sem hún var að gera fyrir aðra.
Þær eru óteljandi veislurnar sem
hún hefur undirbúið fyrir ættingja,
vini og kunningja í gegnum árin og
eiga margir henni gott að gjalda.
Allt þetta gerði hún fyrir utan sína
fullu vinnu á Borgarspítalanum, sem
hún stundaði af einstakri trú-
mennsku í 20 ár.
Eftir að heilsan fór að bila og tími
til kominn fyrir aðra að gera eitt-
hvað fyrir hana, þá átti hún svo
erfitt með að þiggja. Hún var svo
sjálfstæð og hafði alla tíð treyst á
sjálfa sig, þannig að viðbrigðin voru
mikil. Hún vildi halda áfram að vera
eins og hún var, full af áhuga og
krafti og ekki vera upp á aðra komin.
Hennar verður saknað af okkur
öllum. Það verður engin amma
Ágústa til að stjórna piparköku-
skreytingunum um næstu jól með
barnabörnum og barnabarnabörnun-
um tveimur, sem veittu henni svo
mikla ánægju. Við hin verðum að
halda áfram að lifa og vera henni
til sóma.
Fari kær vinkona í friði.
Sigrún
3LOMI>
HAFNARSTRÆT115,
SÍMI21330
Krafisnr, krossar op~
kistuskreytingar.
Sendum um allt land.
Ppið kl. 9-19 virka daga
•i og til_21 um helgar.
VIÐ FLYTJUM
Á SUMARDAGINN FYRSTA
LOKAÐ Á FÖSTUDAG
Húsnœðlsstofnun ríklsins og Veðdelld Landsbonko íslands
flytja í nýtt húsnœði fimmtudaginn 20. apríl. Vegna flutninganna verður
einnig lokað föstudaginn 21. apríl.
Mónudaginn 24. apríl hefst starísemi okkar ð ný með eðlilegum hœtti.
Við flyfjum að
SUÐURLANDSBRAUT 24.
Sfmanúmer Húsnæðisstofnunar verður ófram 69 69 00
og símanúmer Veðdeildar er einnig óbreytt, 60 60 55.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
Landsbanki
íslands
Veödeild
SAMEINADA AUGLYSINGASTOFAN SIA