Morgunblaðið - 24.05.1989, Side 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
114. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hernám Israela:
Shamir hafinar
áskorun Bakers
Lundúnum. Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætisráðherra ísraels, hafiiaði í gær
áskorun James Bakers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til
Israela um að þeir byndu enda á hernámið á Gaza-svæðinu og
Vesturbakka Jórdanár og reyndu að ná samkomulagi við Pa-
lestínumenn.
„Ég álít að slíkt sé gagnslaust,"
sagði Shamir á fréttamannafundi
í Lundúnum. Baker sagði í ræðu
á mánudag að ísraelar ættu að
gefa „óraunsæjar hugmyndir" um
landvinninga upp á bátinn og
stöðva flutninga á ísraelum til
hemumdu svæðanna. Þessu hafn-
Reuter
Gullpálminn
í Cannes
Kvikmyndin Kynlíf, lygar og
myndband í leikstjóm Banda-
ríkjamannsins Stevens Soder-
bergs var valin besta kvik-
myndin á 42. kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í gærkvöldi og
hlaut myndin hinn eftirsótta
Gullpálma. James Spader, er
fer með aðalhlutverkið í verð-
launamyndinni, var kjörinn
besti leikarinn í aðalhlutverki.
Bandaríska leikkonan Meryl
Streep var kjörin besta leikkon-
an í aðalhlutverki fyrir leik sinn
í_ kvikmyndinni Hróp í myrkri.
Á myndinni sést Soderberg
taka við Gullpálmanum.
aði Shamir algjörlega. „Ég tel að
þetta ágreiningsefni tengist á eng-
an hátt friðartillögu okkar,“ sagði
Shamir, sem var í heimsókn í Bret-
landi til að afla fylgis við tillögu
Israela um kosningar á hernumdu
svæðunum. Samkvæmt þeim kysu
Palestínumenn á hemumdu svæð-
unum samningamenn er hæfu við-
ræður við ísraela um bráðabirgða-
stjóm og varanlegan friðarsamn-
ing.
Talsmaður breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að breska
stjórnin liti svo á að tillaga ísraela
gengi ekki nógu langt. Hún væri
enn þeirrar skoðunar að ísraelar
þyrftu að láta landsvæði af hendi
við Palestínumenn og að efna ætti
til ráðstefnu um frið í Mið-Austur-
löndum.
Sjá „ísraelar og arabar sýni
friðarviya" á bls. 21.
Reuter
*
Forseti Islands íHvíta húsinu
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands hitti George Bush Bandaríkjaforseta í gær í skrifstofu forsetans í
Hvíta húsinu í Washington. Ræddu þau stöðu heimsmála en forseti íslands vakti máls á umhverfisvemd.
ívar Guðmundsson, fréttaritari Morgunblaðsins í höfuðborg Bandaríkjanna, segir að forseti íslands hafi
hlotið sérstaklega vinsamlegar móttökur hjá Bandaríkjaforseta sem bauð Vigdísi inn á heimili sitt til að
hitta Barböm forsetafrú. Hafi forseti íslands dvalist lengur hjá forsetahjónunum en venja sé við slík tæki-
færi. Eftir heimsóknina í Hvíta húsið var haldið til Lexington í Kentucky-ríki þar sem forseti íslands kynnti
sér starfsemi Long John Silver skyndibitakeðjunnar en fyrirtækið er mikilvægur viðskiptavinur Coldwater
Seafood, dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfiystihúsanna.
Sjá „Bush tók sérstaklega vel á móti Vigdísi" á bls. 20.
Mesta valdabarátta í Kína frá andláti Maós Tsetungs:
Milljón manns krefst
að Li Peng segi af sér
Opinberir flölmiðlar snúast einnig gegn forsætisráðherranum
Fækkun langdrægra kjarnorkuvopna:
Viðræður hefjast í júní
Washington. Reuter.
START-viðræðurnar svo-
nefhdu um fækkun langdrægra
kjamorkuvopna milli Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna hefiast
að nýju 19. júní næstkomandi.
Skýrði James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, frá
þessu í gær. Hlé hefur verið á
viðræðunum meðal annars vegna
endurmats nýrrar sljómar í
Bandaríkjunum.
Baker skýrði frá þessu á blaða-
mannafundi í gær, þar sem hann
ræddi um ferð George Bush Banda-
ríkjaforseta til Evrópu. Tekur forset-
inn meðal annars þátt í leiðtoga-
Peking. Daily Telegraph. Reuter.
UM EIN inilljón manna fór um götur Peking-borgar hrópandi slag-
orð í gær, að sögn hinnar opinberu kínversku fréttastofu Nýju Kína.
Skömmu eftir að göngunni lauk greindi fréttastofan frá því í fyrsta
sinn að mótmælendur hefðu einkum beint spjótum sínum gegn Li
Peng, forsætisráðherra Kína, og krafist afsagnar hans. Dagblað al-
þýðunnar greindi frá því að nokkrar hersveitir, sem staðsettar höfðu
verið í úthverfum Peking frá því að herlög vom sett 20. maí, hefðu
verið kallaðar á brott.
Mörg hundruð þúsundir náms-
manna, verkamanna og jafnvel op-
inberra starfsmanna gengu í gær
frá austurhluta Peking að Torgi
hins himneska friðar og hrópuðu:
„Niður með Li Peng“ og „Dauða
yfir Li Peng“. Á meðal mótmælenda
voru starfsmenn kínverska ríkis-
sjónvarpsins sem sögðu að hermenn
hefðu náð sjónvarpsstöðinni á sitt
vald og stjórnuðu útsendingum
hennar.
„Flestum slagorðunum var beint
gegn forsætisráðherranum. Allt frá
því að Li Peng fyrirskipaði herlög
í sumum borgarhlutum Peking hafa
fjölmenn mótmæli verið daglegur
viðburður á götum höfuðborgarinn-
ar,“ sagði Nýja Kína.
Fréttaflutningur af árásum á for-
sætisráðherrann þykir benda til
þess að hann sé að verða undir í
mestu valdabaráttu sem farið hefur
fram í Kína frá því að Maó Tse-
.fundi ríkja Atlantshafsbandalagsins
í Brussel 29. og 30. maí næstkom-
andi.
I máli Bakers kom fram, að ekki
hefði enn náðst samkomulag milli
ríkisstjóma Bandaríkjanna og Vest-
ur-Þýskalands um skammdrægar
eldflaugar. Um helgina var talið að
málamiðlun hefði fundist en Baker
sagði að enn bæri nokkuð á milli.
Hann taldi ólíklegt að ágreiningur-
inn myndi spilla andrúmslofti á leið-
togafundinum í Brussel.
Sjá „Wörner hlynntur sam-
komuíagi ...“ á bls 21
tung, fyrrum Kínaleiðtogi, andaðist
1976.
Við Hlið hins himneska friðar var
málningu slett á geysistóra mynd
af Maó. Embættismenn brugðust
siq'ótt við og strengdu dúk yfir
myndina og seinna um kvöldið var
nýrri mynd af formanninum komið
fyrir. Námsmenn kváðust hafa
komið höndum yfir sökudólgana
sem þeir kölluðu æsingamenn, og
tyftuðu þeir þá áður en þeim var
slegpt.
Á sama tíma og Li sætir ámæli
í opinberum fjölmiðlum hefur staða
Zhao Ziyangs, formanns kínverska
kommúnistaflokksins og helsta
umbótasinna í röðum valdamanna,
styrkst. Orðrómur hefur verið uppi
um að hann hafi verið settur af en
Qian Qichen, utanríkisráðherra
Kína, sagði á fundi með sendiherr-
um Evrópubandalagsins í Peking
að Zhao væri enn formaður komm-
únistaflokksins.
Wan Li, forseti kínverska þings-
ins, sem var í opinberri heimsókn
í Bandaríkjunum þar sem hann hitti
George Bush Bandaríkjaforseta í
gær, batt skyndilega enda á för
sína og hélt heimleiðis í gærkvöldi.
Wan, sem talinn er stuðningsmaður
flokksformannsins, sagði að stjórn-
völd yrðu að bregðast skynsamlega
og friðsamlega við mótmælum
námsmanna.
Kínverskir heimildamenn í Pe-
king sögðu að Wan hefði verið kall-
aður heim til að stjórna_ neyðar-
fundi í kínverska þinginu. Á fundin-
um yrði rætt hvort lögmætt hefði
verið að setja herlög í höfuðborg-
inni og nýr forsætisráðherra jafnvel
tilnefndur til að taka við af Li Peng.
Sovéski
kafbáturiim
myndaður
_ Moskvu. Rcutcr.
ÁHÖFN sovésks rannsókna-
sklps hefur tekið myndir af
sovéska lq'amorkukafbátnum
sem sökk fyrir norðan Noreg
7. apríl. Mælingar sýna ekki
aukna geislavirkni á svæðinu.
Að sögn TASS-fréttastofunn-
ar náðust myndir af kafbátnum
þar sem hann liggur á meira en
1.500 metra dýpi á hafsbotni.
Mælingar sem gerðar voru á
geislavirkni sýndu engin frávik
frá því sem eðlilegt er talið á
þessum slóðum.