Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989
3
Launavísi-
talanhækk-
ar um 1,3%
HAGSTOFA íslands hefiir reikn-
að út launavísitölu maímánaðar
og reyndist hún vera 2.244 stig
eða 29 stigum hærri en hún var
í apríl, þegar hún var 2.215 stig.
Þetta jafiigildir 1,3% hækkun á
milli mánaða.
Vísitalan mælir hækkun launa
að meðaltali á milli mars og apríl
mánaðar. Hækkunin er einkum til
komin vegna samninga Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, sem
giltu frá aprílbyijun. Einnig er um
að ræða eldri leiðréttingar og samn-
inga Félags háskólakennara.
Hækkanir samkvæmt kjarasamn-
ingum Alþýðusambands Islands og
Bandalags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna er ekki farið að gæta
í þessari vísitölu, þar sem þeir
samningar gilda frá maí og koma
því ekki inn í vísitöluna fyrr en í
næsta mánuði.
Lög um launavísitölu voru sam-
þykkt undir þinglok, en launavísi-
tala vegur 1/3 í grunni lánskjara-
vísitölu á móti 1/3 byggingarvísi-
tölu og 1/3 framfærsluvísitölu,
samkvæmt reglugerð viðskipta-
ráðuneytisins frá því í ársbyijun.
Ný lánskjaravísitala
Lánskjaravísitalan 2475 gildir
fyrir júnímánuð og hefur hún hækk-
að um 1,75 frá núgildandi vísitölu.
Þessi hækkun vísitölunnar sam-
svarar 22,8% hækkun á tólf mánaða
tímabili. Hækkun lánskjaravísitölu
undanfarna þijá mánuði samsvarar
23,9% verðbólgu en síðustu tólf
mánuði hefur hún hækkað um
Litlu ferðalangamir, þær Brynhildur, Diljá, Alexandra og Elín láta fara vel um sig í burðarrúmum á farangurskerrum á Heath-
rowflugvelli í London.
Fyrsta ferðalag flórburanna
NÝLEGA fóm fjórburarnir úr
Mosfellssveit í sitt fyrsta ferða-
lag og það til Englands á sam-
komu til heiðurs Patriks
Steptoe, frumkvöðuls á sviði
glasaftjóvgunar. Mætt vom
rúmlega sex hundmð „glasa-
böra“ á hátíð þessa sem haldin
var í Bourn Hall í Cambridges-
hire.
íslensku stúlkumar eru einu
glasafjórburarnir frá þessari
stofnun og vöktu þær hvarvetna
athygli. Að sögn Margrétar Þóru
Baldursdóttur, móður telpnanna,
gekk ferðin í alla staði ágætlega.
„Það var talsvert rót á telpun-
um eins og við mátti búast, og
tvær þeirra fengu mislingabróður.
Við fengum sjaldan frið fyrir ljós-
myndurum og það var vonlaust
að fara í búðir með þær eða keyra
með þær um götur, fólk var alltaf
að koma og skoða ofan í kerrum-
ar. Afinn og amman og bróðir
þeirra vom með okkur og við
skiptumst á að sinna stelpunum.
En það var ekki mikið sofið,“
sagði Margrét Þóra eftir heim-
komuna.
Hátíðin fór fram fyrir utan
stofnunina sem er gamall kastali,
og er markmiðið að halda slíkt
mót á tíu ára fresti. Þar vom
saman komin sex hundmð „glasa-
böm“, af tæplega þrettán hundr-
uð, hvaðanæva að úr heiminum,
en elsta bamið, Louise Brown,
10 ára, var heiðursgestur.
Athöfnin vakti athygli fjöl-
miðla, og meðal annars birtist
umíjöllun og myndir af íslensku
fjórbumnum. „Við fómm með
upptökuvélina með okkur og eig-
um því fyrsta ferðalagið á mynd-
bandi. En ég held að við ferðumst
ekkert meira á næstunni,“ sagði
Margrét Þóra að lokum.
20,7%.
Hafliði Jóns-
son svarar
spumingiim
Lesendaþjónusta Morgun-
blaðsins mun næstu vikumar
taka við fyrirspumum um
garðyrkju. Hafliði Jónsson,
fyrrverandi garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, hefúr
góðfúslega fallist á að svara
fyrirspuraum lesenda.
Tekið verður á móti fyrir-
spumum kl. 13-14 í síma
691100 og ennfremur má póst-
senda fyrirspumir merktar:
Lesendaþjónusta Morgunblaðs-
ins — Spurt og svarað um garð-
yrkju — Aðalstræti 6, 101
Reykjavík.
Umíjöllun Hafliða og svör
verða birt í Daglegu lfi á föstu-
dögum.
Gengið var að tillögum
nemenda í Iðnskólanum
GENGIÐ var að málamiðlunartiilögum nemenda í Iðnskólanum í
Reykjavík á kennarafúndi í skólanum í gær, og vom þær síðan sam-
þykktar á almennum nemendafúndi. Ekki verður um frekari kennslu
að ræða í skólanum í vor og verður mat látið fara fram í öllum áföng-
um þar sem gögn liggja fyrir. Gert er ráð fyrir að skólaslit verði
rétt eftir næstu mánaðamót.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar,
formanns nemendafélags Iðnskól-
ans, verður þeim nemendum, sem
ekki sætta sig við niðurstöðu úr
mati eða ná ekki tilskilinni lág-
markseinkunn, verður gefinn kost-
ur á að taka próf. Boðið verður upp
á sérstaka stoðkennslu í skólanum
þessa og næstu viku, en kennsla
samkvæmt stundaskrá fellur niður.
Á nemendafundi í Menntaskólan-
um í Kópavogi á mánudag var kos-
in sjö manna nefnd nemenda sem
átti fund með Ingólfi A. Þorkels-
syni, skólameistara, um kröfur
nemenda um frekara námsmat og
tilslakanir. Að sögn Ingólfs náðist
algjört samkomulag á fundinum og
var það síðan lagt fyrir nemenda-
fund í gær og samþykkt þar. Að
sögn Ingólfs fylgdi kröfum nem-
enda engin hótun um setuverkfall
í skólanum, og engar kröfur hefðu
komið frá nemendum um að fá að
taka stúdentspróf á svipaðan hátt
og ákveðið hafí verið að gera í MR.
„Samkomulag var gert við stúd-
entsefni í skólanum síðastliðinn
föstudag, og er meginreglan sú að
stúdentsefni fari í próf hér sam-
kvæmt reglugerð um menntaskóla
* , ■
Avöxtunarmál:
Rannsókn á fjórum kærum
vegna meintra lögbrota lokið
RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkisins hefúr lokið rannsókn á Ijórum
kæmm á hendur Ármanni Reynissyni og Pétri Bjömssyni. Kæram-
ar tengjast rekstri sjóða Ávöxtunar, Ávöxtun s/f, viðskiptum tveggja
fyrirtækja sem þeir Pétur og Ármann áttu hluta í, og meðferð
skuldabréfa sem þeir fengu í viðskiptum. Ríkissaksóknara hafa ver-
ið sendar niðurstöður rannsóknanna. Að sögn Hallvarðs Einvarðsson-
ar em málin til athugunar hjá embættinu. Fleiri kærur hafa ekki
borist rannsóknarlögreglunni í tengsluni við gjaldþrot Ávöxtunar.
Umfangsmest málanna fjögurra og þess - sem bankaeftirlitið taldi
er, að sögn Harðar Jóhannessonar
lögreglufulltrúa hjá RLR, rannsókn
sem hófst í framhaldi af athuga-
semdum bankaeftirlitsins. Rann-
sóknin beindist einkum að ráðstöf-
un og meðferð fjár, sem var í vörsl-
um Rekstrarsjóðs Ávöxtunar h/f
og Verðbréfasjóðs Ávöxtunar h/f.
Hörður Johannesson staðfesti að
leitt hefði verið í ljós að talsverður
hluti af fjármagni sjóðanna var
bundinn hjá fyrirtækjum Péturs og
Ármanns. Sú rannsókn náði síðar
einnig til starfsemi Ávöxtunar s/f
vera bankastarfsemi - að fólk lagði
þar inn fé og fékk kvittanir fyrir
inneign sem fyrirtækið tæki að sér
að ávaxta.
Hörður staðfesti einnig að lokið
væri rannsókn á kæru frá þrotabúi
Hughönnunar h/f, sem var í meiri-
hlutaeign Ármanns og Péturs,
vegna þess að skömmu áður en það
fyrirtæki var gefið upp til gjald-
þrotaskipta, á seinnihluta síðasta
árs, höfðu mestallar eignir þess
verið seldar. Þar var aðallega um
skrifstofubúnað að ræða og var
söluandvirðið, nokkur hundruð þús-
und krónum.
Þá barst, eins og Morgunblaðið
hefur áður greint frá, kæra á hend-
ur Ármanni og Pétri, sem samtals
áttu 45% hlutafjár í Kjötmiðstöð-
inni, og Hrafni Bachmann, aðaleig-
anda og framkvæmdastjóra þess
fyrirtækis, frá aðilum sem snemma
á síðasta ári keyptu annað tveggja
dótturfyrirtækja Kjötmiðstöðvar-
innar, Veitingamanninn h/f. Þar
voru seld tæki, að verðmæti 2-3
milljónir króna, sem fengin höfðu
verið með kaupleigu og voru því
ekki eign Veitingamannsins. Tækin
voru engu að síður seld með Veit-
ingamanninum snemma á síðasta
ári en Kjötmiðstöðin hélt fyrst um
sinn áfram að greiða kaupleigufyr-
irtækinu afborganirnar. Ásamt
hinu dótturfyrirtækinu, Kjötvinnslu
Kjötmiðstöðvarinnar við Vitastíg,
var einnig selt tæki sem fengið
hafði verið á kaupleigu, en kæra
hefur ekki borist vegna þeirra við-
skipta, að sögn Harðar Jóhannes-
sonar.
Fjórða kæran á hendur Ármanni
Reynissyni og Pétri Bjömssyni er
frá aðila sem lét af hendi við þá
6-7 miljón króna skuldabréf í við-
skiptum. Sá taldi að skuldabréfun-
um hefði verið ráðstafað með öðrum
hætti en um var verið samið og
taldi sig hlunnfarinn.
Að sögn Harðar Jóhannessonar
er rannsóknum allra málanna lokið
og hafa göng verið send ríkissak-
sóknara. Hjá Hallvarði Einvarðs-
syni ríkissaksóknara fengust þær
upplýsingar að hjá embættinu væri
verið að yfirfara gögnin og kanna
hvort einhveijir þættir málanna
þörfnuðust frekari rannsóknar.
sem enn er í gildi, en þar segir að
nemandi hafi lokið stúdentsprófi
þegar hann hefur gengið undir loka-
próf í öllum námsgreinum. Flest
stúdentsefni fara í próf nú í vor og
verður síðasti prófdagur 3. júní. Það
er engin menntun hér á útsölu og
við gefum ekki stúdentspróf," sagði
Ingólfur.
Að sögn Þórunnar Hönnu Hall-
dórsdóttur, varaformanns nem-
endaráðs Menntaskólans á Laugar-
vatni, era nemendur í 1. til 3. bekk
þar mjög óánægðir með tilhögun
námsloka í skólanum, en þeir gerðu
kröfur um að sama fyrirkomulag
yrði viðhaft og í Menntaskólanum
í Reykjavík. Hún segir kennara
skólans hafa neitað því, og nemend-
ur væra skyldugir til að mæta í öll
próf. Einkunnir í öðram fögum en
stúdentsfögum skiptu þó ekki máli,
ef nemendur hefðu náð lágmarks-
einkunn á haustönn.
Í Kvennaskólanum hófust próf í
gærmorgun, og að sögn Aðalsteins
Eiríkssonar, skólameistara, hafa
allir nemendur að örfáum undan-
teknum skráð sig í próf og mat
eftir þeim reglum sem settar hafa
verið. Hann sagði nokkra nemendur
standa í þeirri meiningu að þeir
ættu í einhverjum samningaviðræð-
um við hann, en það væri á mis-
skilningi byggt. Ingi R. Ingason,
einn af kjörnum fulltrúum nemenda
í viðræðum við skólameistara, sagði
í samtali við Morgunblaðið að á
fundi með skólameistara í gær hefði
verið lögð fram tillaga, þar sem
verulega hefði verið dregið úr fyrri
kröfum þeirra, og væri von á svari
við henni í dag. Hann sagði að kenn-
arar hefðu spillt fundi nemenda á
mánudag, og grafið undan sam-
stöðu þeirra með því að fá þá til
að gera prófval fyrir fundinn, en
með því hefði verið grafið undan
starfi þeirra fulltrúa nemenda, sem
átt höfðu í viðræðum við skóla-
meistara.