Morgunblaðið - 24.05.1989, Side 4
i
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1989
Erlendu ísfískmarkaðirnir:
Mínna þorskframboð
o g lægra meðalverð
ÚTFLUTNINGUR á ísuðum þorski til Bretlands fyrsta þriðjung ársins
varð 10.046 tonn, sem er um 2.500 tonnum minna en á síðasta ári.
Samdrátturinn er um fimmtungnr, en þrátt fyrir hann hefur meðalverð
í pundum lækkað og hefiir það ekki verið lægra umrætt tímabil í Qög-
ur ár. Útflutningur á ísuðum karfa til Þýzkalands hefiir hins vegar
aukizt úr 8.327 tonnum í 9.379 tonn eða um 1.000 tonn. Um leið hefur
verðið hækkað talið í mörkum og hefiir aldrei verið hærra. Skýringar
á þessum breytingum eru meðal annars taldar lakari gæði en undanfar-
in ár.
Utflutningur á ísuðum þorski hef-
ur farið vaxandi síðustu ár þar til
nú. Skýring á því er að hluta til
minni kvóti. 1986 var útflutningur-
inn fyrstu fjóra mánuði ársins 7.798
tonn, meðalverð 90 pens, árið eftir
varð hann tæp 12.000 tonn, meðal-
verð 94 pens og í fyrra 12.553 tonn,
meðalverð 91 pens á kíló. Lægst á
þessu ári hefur meðalverðið farið
niður í 73 pens en hæst í 1,22 pund.
Flutningurinn skiptist nú jafnar á
vikur en áður, hann hefur aldrei far-
ið yfir 900 tonn í viku og minnstur
orðið 213 tonn. Síðustu ár hefur út-
flutningur á ísuðum þorski til Bret-
lands 4 til 6 sinnum farið yfir 1.000
tonn á viku og mest í tæp 1.400
tonn. Við svo jafnan útflutning sam-
fara samdrætti hefði mátt ætla að
verð héldist hátt, en svo hefur ekki
verið. Vilhjálmur Vilhjálmsson,
starfsmaður LÍÚ, segir skýringarnar
vafalaust margar og sumar óljósar,
enn að minnsta kosti. Menn hafi þó
talað um lakari gæði, hlýindi og
hægvirði, sem auka sókn og afla
heimabáta. Þá virðist, sem fisk-
vinnsla í Bretlandi kaupi ekki ísaðan
fisk á mörkuðunum á eins háu verði
og áður.
Sala á ferskri ýsu í Bretlandi hef-
ur vaxið verulega síðustu árin, nær
tvöfaldazt síðan 1986. Nú hafa fyrsta
ársþriðjunginn verið flutt utan 5.194
tonn og er meðalverð 1,07 pund á
kíló. Sama meðalverð var í fyrra,
1,14 pund 1987 og 1,01 1986. Meðal-
verð fyrir kola er hærra nú en áður,
en útflutningur er minni.
Karfasala í Þýzkalandi hefur
aukizt og verð hækkað. 1986 voru
flutt þangað 6.777 tonn fyrsta árs-
þriðjunginn 1986, meðalverð 2,54
mörk, en nú 9.379 tonn að meðal-
tali fyrir 2,79 mörk. Skýringin er
talin minna framboð frá öðrum og
því vaxandi eftirspum. Útflutningur
á ufsa er 50% meiri en i fyrra og
verð heldur lægra, en umtalsverðar
sveiflur hafa verið á ufsasölunni
undanfarin ár. Magn hefur sveiflazt
á milli 847 tonna upp í 2.621.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00.
Heimild: Veðurstofa islands
á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 24. MAI
YFIRLIT í GÆR:Skammt út af Vestfjörðum er 998 mb lægð á leið
norðaustur. önnur lægð um 996 mb djúp yfir Melrakkasléttu á
hrwfingu norður. Um 1.200 km suður af landinu er 1.027 mb
hæo, sem þokast austnorðaustur. Veður fer heldur kólnandi.
SPÁ:Suðvestan 5—6 vindstig og slydduvél um vestanvert landið
en annars þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG:Vestan- og suðvestan-
átt. Skúrir við norður- og vesturströndina, annars þurrt og víða
bjart veður. Hiti 4 til 8 stig um vestanvert landið, en 6 til 12 stig
um landið austanvert.
TÁKN:
Heiðskírt
y' Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / r
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\j Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, » Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veöur Akureyri 9 skýjað Reykjavík 6 skúr
Bergen 19 lóttskýjað
Helslnki 22 skýjað
Kaupmannah. 17 léttskýjað
Narssarssuaq 3 léttskýjað
Nuuk +2 snjókoma
Osló 21 skýjað
Stokkhólmur 24 hálfskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 24 helðskírt
Barcelona 24 alskýjað
Berlfn 22 heiðskfrt
Chlcago 16 léttskýjað
Feneyjar 23 léttskýjað
Frankfurt 23 heiðskfrt
Glasgow 20 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Las PalmaB 25 iéttskýjað
London 28 léttskýjað
Los Angeles 13 helðskfrt
Lúxemborg vantar
Madrfd 18 súld
Malaga 19 rigning
Mallorca 26 hélfskýjað
Montreal 14 alskýjað
New York 18 alskýjað
Orlando 22 heiðskfrt
Parfs 26 léttskýjað
Róm 22 þokumóða
Vín 17 léttskýjað
Washington 19 alskýjað
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Vorhreingerning í Leifsstöð
Gluggarnir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru bæði margir og stór-
ir og veitir ekki af öflugum tækjabúnaði við hreinsun þeirra. Um
daginn var vorhreingerning og gekk verkið bæði f^jótt og vel
enda notuð kraftmikil tæki við verkið.
Austurlandsvegur:
Lægsta tilboð helm-
ingur af því hæsta
MEIRA en helmings munur var
á lægsta og hæsta tilboði í lagn-
ingu tveggja vegarkafla á Aust-
urlandsvegi í Suður-Múiasýslu en
tilboðin voru opnuð hjá Vega-
gerðinni í vikunni. Lægsta tilboð-
ið á Guðmundur Björgólfsson á
Breiðdalsvík, 24,5 milfjónir kr.,
sem er 64,3% af kostnaðaráætlun
en hún var 38,1 mil\jón kr. Hæsta
tilboðið er 50,9 miHjónir kr., sem
er meira en tvöfalt meira en
lægsta boð.
Vegurinn sem leggja á er sam-
tals 15 km. Annars vegar er um
að ræða veginn á milli Fossárvíkur
og Framness, 12 km., og hins veg-
ar á milli Merkis og Valtýskambs,
3 km. Verkinu á að vera lokið 1.
júlí 1990. Níu verktakar buðu í
verkið, allir austfírskir.
Skákmótið í Moskvu:
Stórmeistaraáfangi
í augsýn hjá Hannesi
HANNES Hlífar Stefánsson vant-
ar einn vinning í stórmeistaraá-
fanga úr síðustu tveimur skákum
sínum á skákmótinu í Moskvu.
Hann vann ungverska stórmeist-
arann Csom í 7. umferð mótsins
og er með 4!á vinning. Margeir
Pétursson vann Grlinberg frá
Austur-Þýskalandi og er með jafii-
marga vinninga og Hannes, en
Helgi Ólafsson gerði jafntefli við
Dlugy fró Bandaríkjunum og er
með 4 vinninga.
Tveir Sovétmenn, Akopjan og
Gavrikov, eru ej-owi á mótinu með
5Mt vinning, en Dolmatov er með 5
vinninga og unna biðskák. Með 5
vinninga eru Pigusov, Vladimirov,
Halisman, Popovic og Tunic, en
með 414 vinninga og biðskák eru
DeFirmian, Vaisder og Gelfand.
Hannes og Margeir eru í hópi 18
skákmanna með 414 vinning.
Mótinu lýkur á fímmtudag, en
íslendingunum hefur verið boðið á
annað mót sem hefst í Moskvu þeg-
ar þessu lýkur. Er Hannes að íhuga
að þiggja boðið.
Ljóðabók eftir Þor-
stein frá Hamri
KOMIN er út hjá Iðunni ný jjóða-
bók eftir Þorstein frá Hamri.
Nefhist hún Vatns götur og blóðs.
Bókin skiptist i Qóra meginþætti
og hefur að geyma fjörutíu og eitt
Uóð.
I kynningu útgefanda á bókinni
segir svo: „Ekkert er sem sýnist“
gætu verið einkunnarorð um skáld-
skap Þorsteins frá Hamri. Tök hans
á ljóðmáli sínu eru löngu orðin nán-
ast óbrigðul og svo persónuleg að
ekki verður um villst. Umhugsun um
rætur menningar okkar verður æ
áleitnari í Ijóðum hans og hvarvetna
finnur hann leynda þræði, líftaugar
sem ekki mega rofna. Til er jafnvel
svo veikur þráður „að hann hrekkur
í tvennt ef talað er um hann“. í sam-
ræmi við þetta eru ljóð Þorsteins
full af dulum tilvísunum sem les-
andinn áttar sig því betur á sem
hann les oftar. Sá mannheimur sem
ljóðin lýsa er vissulega andstæður
ýmsum þeim straumum sem flæða
um yfirborð samtímalífs.
í skáldskap Þorsteins frá Hamri
getum við ekki aðeins fengið veður
Þorsteinn frá Hamrí
af hvaðan við erum runnin, „eftir
vatns götum og blóðs“, heldur einnig
fundið margt sem launvitundinni
verður til skemmtunar og örvunar.
Tryggvi Ólafsson gerði kápu bók-
arinnar. Bókin er prentuð í Odda.“